Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011
29.4.2011 | 11:36
Ályktun vegna tilboðs Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til LÍÚ um að festa í sessi mannréttindabrot á Íslandi
Stjórn Frjálslynda flokksins hvetur til þess að sjómenn íhugi að láta reyna á ólögin um stjórn fiskveiða sem brjóta í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og halda til veiða.
29 apríl, 2011
Sigurjón Þórðarson, formaður Ásta Hafberg, varaformaður Grétar Mar Jónsson ritari
19.4.2011 | 18:47
Verður Jón Gnarr fyrsti íslenski pólitíski flóttamaðurinn?
Frami Jóns Gnarr hefur orðið mikill og skjótur. Nú á hátindi frægðar sinnar sem nær langt út fyrir landsteinana þá hefur hann ekki nennt að setja sig inn í smærri mál s.s. Icesavemálið eða skólamál. Jón Gnarr hefur ekki heldur nennt að hitta hvern sem er s.s. formann Frjálslynda flokksins enda er hann stjarna.
Á dögunum boðaði Jón Gnarr flótta sinn frá landinu vegna húmorslausra stjórnmála og tilgangslausra viðræðna við einhverja minnihluta. Mér finnast fréttir dagsins bera það með sér að það styttist mjög í að Jón Gnarr verði fyrsti pólitíski flóttamaður landsins.
Það verður spennandi vita á hvaða lendur stjarnan muni ákveða að skína næst - mögulega Hollýwood eða jafnvel Bollýwood.
Húmorsleysi og neikvæðni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.4.2011 | 11:05
Sex Skagamenn á móti Ásmundi Daða
Ég heyrði í kunningja mínum a Skaganum sem sagði mér frá því að þar væri gert góðlátlegt grín af þessari ályktun Vg, þar sem afsagnar Ásmundar Daða væri krafist. Ályktunin var samþykkt naumlega á afar fámennum fundi, sem flokksforysta Vg hafði blásið til, en einungis 6 fundarmenn greiddu henni atkvæði.
Sú spurning hlýtur að vakna hvað Steingrímur J. fær út úr því að skrapa saman nokkrum hræðum á samstöðufund við hreinsunarstarf sitt í þingflokknum?
Skora á Ásmund Einar að segja af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.4.2011 | 23:32
Vitleysisumræða í boði Samtaka Atvinnulífsins
Samtök Atvinnulífsins bjóða landsmönnum upp á þvílíka þvælu málflutning að það hálfa væri meira en nóg. Málflutningur sem gengur út á að ekki sé hægt að gera almenna kjarasamninga í landinu vegna þess að það þurfi að tryggja þeim sem stunda fiskveiðar sérstaka einokun til að stunda veiðar og það til margra áratuga! Rökin eru að það verði engar fjárfestingar nema að núverandi handhafar og afkomendur þeirra fái réttindi umfram aðra landsmenn. Þetta er illskiljanlegt þó væri ekki vegna annars en þess að margir þeirra sem um er rætt að þurfi að hafa einokun, hafa steypt útgerðum sínum í gríðarlegar skuldir og tekið svakalegt fjármagn út úr atvinnugreininni.
Maður hefði skilið að það væri erfitt að gera kjarasamning ef að til stæði að skera niður veiðiheimildir um tugi prósenta og auðveldara væri að semja ef veiðar og atvinnufrelsi yrði aukið í sjávarútveginum. Sömuleiðis ætti það að greiða fyrir samningum ef að allur fiskur færi á fiskmarkað en fyrir þá sem trúa á mátt markaðarins ættu að sjá það í hendi sér að það myndi stuðla að aukinni verðmætasköpun í landinu.
Stundum er engu líkara en að forysta SA og reyndar ASÍ einnig berjist á hæl og hnakka gegn markaðslögmálum en fyrir einokun og fákeppni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.4.2011 | 20:44
Forysta ASÍ er með í samsærinu
Leikaraskapurinn í kringum kjarasamningana er orðinn langdreginn og þreyttur. Beggja vegna borðsins sitja forystumenn sem voru beinir þátttakendur í hruninu þar sem þeir spiluðu með útrásarvíkingum með lífeyrispeninga landsmanna. Báðir hafa þeir varið kröftum sínum í að endurreisa og varðveita þau kerfi sem ollu hruninu. Báðir voru sammála um að samþykkja Icesave, viðhalda óbreyttu lífeyrissjóðakerfi og verðtryggingu. Sömuleiðis leggja báðir mikla áherslu á svo undarlegt sem það nú er, að verja óbreytt kvótakerfi sem skilar víst helmingi minni botnfiskafla á land en veitt var fyrir tveimur áratugum. Kvótakerfið sem forysta ASÍ og SA vill verja hvetur ennfremur til sóunar verðmæta og var upphaf loftbóluhagkerfisins.
Það er beinlínis galið að stilla varðveislu kvótakerfisins upp sem einhvers lykilatriði sem forsendu þess að semja um kaup og kjör við launafólk í landinu - kerfi sem brýtur í bága við jafnræði og mannréttindi landsmanna!
Miklu nær væri að SA og ASÍ sameinuðust um að endurskoða algerlega frá grunni veiðiráðgjöfina og leyfa auknar veiðar og frelsi í atvinnugreininni.
Reyna að ná skammtímasamningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2011 | 22:55
Steingrímur J. byggði Vg upp og reif síðan niður
Steingrímur J. á stærsta þáttinn í því að byggja upp Vg en á þeirri vegferð hefur hann farið í fjölbreytt en vissulega ólík hlutverk s.s. byltingarmanns, umhverfisverndarsinna, kvenfrelsismann, andstæðing Icesaves, Evrópusambandsins, talsmann hinna dreifðu byggða, kvótakerfis, lýðræðisumbóta og breyttra stjórnarhátta. Sömuleiðis hefur Steingrímur J. farið í búning þjónustumanns AGS, verndara kvótakerfisins í sjávarútvegi og sölumanns á orkuauðlindum þjóðarinnar til útlendinga. Steingrímur J. er atvinnumaður sem hefur skilnings á því að hvorki gagnsæið sem hann boðaði þrútinn í ræðustól Alþingis á ekki við um hann og alls ekki á þeim erfiðu tímum sem nú eru uppi.
Sem von er hafa þessi stöðugu hamskipti Steingríms J. gert talsmenn flokksins mjög ringlaða og hafa þeir hver af öðrum týnst úr flokknum og jafnvel úr sjálfum þingflokknum.
Fréttir kvöldsins hljóta að vera að Ásmundur Daði Einarsson treystir sér ekki lengur til þess að styðja ríkisstjórnina á meðan þau Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir gera sig líklega til þess að veita stjórninni stuðning. Sjötti þingflokkurinn virðist vera í burðarliðnum á Alþingi en vænta má þess að Ásmundur Daði gangi til liðs þau Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason.
Þó svo að aðfarir Steingríms J. við að rífa niður Vg toppi jafnvel skipulagt niðurrif Halldórs Ásgrímssonar á Framsóknarflokknum, þá bjó hann þetta dæmi til, á meðan Halldór fékk sinn flokk í arf.
Vantrauststillaga felld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.4.2011 | 13:27
Vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar
Lítil von er til þess að vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar verði samþykkt þar sem að hann virðist hafa lagt tillöguna fram án nokkurs undirbúnings. Bjani ráðfærði sig hvorki við Framsóknarflokkinn né Hreyfinguna eða hvað þá við tvímenningana sem nýlega sögðu skilið við þingflokk Vg.
Ef tilgangurinn með vantrauststillögunni er að opna pólitísk sár nú í kjölfar Icesave kosninganna þá er eins víst að umræðan verði Sjálfstæðisflokknum ekki síður erfið en ríkisstjórninni. Ræða Bjarna munu að öllum líkindum ekki vigta þungt í pólitískri framvindu en meiri athygli mun beinast að því hvort að þingflokksvillingarnir í Vg þau Lilja og Atli munu lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Atkvæðagreiðsla þeirra mun upplýsa um hversu djúpstæður ágreiningurinn er í Vg og þá hversu lengi flokkurinn heldur saman.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2011 | 20:44
Þakkir til forseta Íslands
Stjórn Frjálslynda flokksins þakkar Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir frækna framgöngu hans í Icesave málinu. Frá upphafi hefur málsmeðferð stjórnvalda í Icesavemálinu verið með endemum s.s. að ætla að þröngva Icesavesamningnum ólesnum í gegnum Alþingi og geta ekki skýrt og varið af myndugleika málstað Íslendinga.
Sú ákvörðun forsetans að skjóta Icesavemálinu til þjóðarinnar verður vonandi til þess að núverandi ríkisstjórn og sömuleiðis ríkisstjórnir framtíðarinnar taki í auknum mæli ákvarðanir í samræmi við vilja þjóðarinnar.
Niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesavesamninginn staðfestir að myndast hafi djúp gjá á milli þings og þjóðar. Meirihluti kjósenda greiddi atkvæði gegn því að taka á sig ótakmarkaða ábyrgð og kostnað vegna gallaðs regluverks Evrópusambandsins og misferla fjármálakerfisins. Nú ætti það að vera forgangsverkefni hjá þjóðkjörnum fulltrúum að brúa gjána svo landsmenn snúi bökum saman allir sem einn.
Barátta og sigur grasrótarsamtakanna Samstöðu þjóðar og Advice er merkilegur fyrir margra hluta sakir og ekki síst að þau öttu kappi við sterkustu öflin í þjóðfélaginu þ.e. leiðandi stjórnmálaflokka, sérfræðingaveldi og álitsgjafa flokkanna inn á fjölmiðlum, helstu fjölmiðla, Samtök atvinnulífsins og verklýðshreyfinguna.
Venjulegir kjósendur sögðu nei við boði valdastéttarinnar að játast undir ósanngjarnan samning.
Mikil barátta stendur um þessi ólíku sjónarmið um allan heim og þess vegna erum við Íslendingar ekkert eyland í umræðunni á heimsvísu. Ísland hefur nú tekið þá afstöðu að bankakerfið geti ekki gengið, að því vísu að almenningur borgi kostnaðinn vegna mistaka þess.
Sigurjón Þórðarson, formaður
Ásta Hafberg, varaformaður
Grétar Mar Jónsson, ritari
7.4.2011 | 09:22
Óútfyllt ávísun til að losna við uppgjör
íslensks almennings, enda hafa þau óhreint mjöl í pokahorninu. Á síðustu misserum hefur stór meirihluti Alþingis, svo undarlegt sem það er, miklu frekar verið harður málsvari þess að íslenskir skattgreiðendur beri einir alla ábyrgð og áhættu af Icesave-málinu í stað þess að halda á lofti málstað íslenskra skattgreiðenda. Icesave-málið er bein afleiðing af gölluðu innistæðutryggingakerfi og óvönduðu eftirliti með glæfralegu fjármálakerfi sem búið var að vara við um árabil. Ósanngjarnt er að íslenskir skattgreiðendur séu einir látnir sitja upp með að tryggja tjón vegna kerfisins og endurgreiða fjármuni sem aldrei rötuðu til landsins. Miklu nær væri að Evrópusambandið hefði forgöngu um að tjóninu væri að einhverju leyti skipt af sanngirni í stað þess að beita Íslendinga þrýstingi og jafnvel síendurteknum
hótunum.
Svo rammt hefur kveðið að þessum róðri innanlands gegn hagsmunum Íslands í Icesave-málinu að margir standa í þeirri trú að sú aðgerð stjórnvalda að tryggja innistæður í bönkum á Íslandi hafi að einhverju leyti skaðað þá sem áttu fjármuni inni á Icesave-reikningum Landsbankans. Þessu er algerlega öfugt farið þar sem Bretar fá mörghundruð milljörðum króna hærri upphæð endurgreidda en ef Íslendingar hefðu látið hjá líða að setja umdeild neyðarlög sem deilt er um, þ.e. á sjöunda hundrað milljarða króna í stað þess að fá á tólfta hundruð milljarða króna. Íslendingar hafa því gert vel við Breta í umræddu uppgjörsmáli sem snýst um fjármuni sem eins og áður segir runnu að öllum líkindum ekki frá Bretlandseyjum og skiluðu sér ekki hingað til landsins.
Efnahagsörðugleikar Íslands eru miklir og víst er að samþykkt Icesave verður til þess að óréttlátar og ólögvarðar skuldbindingar sem enginn veit hvað verða háar verða að kröfum á hendur komandi kynslóðum sem hægt verður að innheimta.
Íslendingar eiga að afþakka það kinnroðalaust að taka á sig skuldir fjárglæframanna þann 9. apríl nk. þó svo að stjórnmálamenn sem hafa meira og minna verið á spillingarjötunni forðist umfram allt heiðarlegt uppgjör við hrunið.
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 1014400
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007