Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

RÚV leiðréttir ekki rangfærslu

Fyrir rúmri viku flutti Ríkisútvarpið frétt um að veiði væri ekki eina skýringin á hruni þorskstofnsins, heldur jafnvel og ekki síður hlýnun sjávar. Ég hafði samband við fréttastofuna daginn eftir til að leiðrétta þetta því að sjórinn hefur alls ekki hlýnað, þvert á móti kólnað.

Enn hefur þetta ekki verið leiðrétt. Ég veit ekki hvað veldur. Hvað ætli valdi þessu?

 


Þingeyingar tapa á skattastefnu ríkisstjórnarinnar

Þingeyingar tapa á skattastefnu ríkisstjórnarinnar

  Í janúar sl. skrifaði ég grein í Skarp og birti með henni súlurit þar sem skýrlega sást sá gríðarlegi munur sem er á meðallaunum annars vegar á Norðurlandi eystra og hins vegar á höfuðborgarsvæðinu.   Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands má ætla að meðallaun á Norðurlandi eystra séu liðlega 500 þúsund krónum lægri en á höfuðborgarsvæðinu. Þessi launamunur endurspeglar þá stjórnarstefnu sem Framsóknar-  og Sjálfstæðisflokkur hafa rekið gegn íbúum landsbyggðarinnar og gerir þá að 2. flokks þegnum með lægri tekjur og lakari þjónustu. Skattbreytingar ríkisstjórnarinnar hafa líka komið hart niður á því sem almenningur á Norðurlandi eystra fær í beinhörðum peningum í launaumslagið. 

 

 Ef við gerum ráð fyrir því að meðallaun séu nú um 255 þúsund krónur á mánuði er forvitnilegt að reikna út hvað sá sem fær greidd þau laun fer illa út úr þeim breytingum sem Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur hafa gert á skattkerfinu á kjörtímabilinu. Þeir lækkuðu skattprósentuna í stað þess að hækka skattleysismörk eins og Frjálslyndi flokkurinn lagði til – og það hefur ekki gefist vel. Ef skattleysismörk hefðu fylgt launaþróun og þeim upphæðum sem varið er til sérstakra skattahækkana fyrir þá sem hafa hæstu launin má ætla að skattleysismörkin væru komin vel yfir 120 þúsund krónur á mánuði.  Miðað við skattleysismörk í kringum 125 þúsund hefði meðal-Gunnan haft 120 þúsund krónum meira í vasann árlega – og munar marga um þá upphæð. Meðalhjónin Jóninn og Gunnan hefðu því samanlagt 240 þúsund krónum meira úr að spila til að reka heimilið.  Í stað þess að fara þá leið að hækka skattleysismörkin eins og við í Frjálslynda flokknum boðuðum var farið í skattalækkanir sem hafa gagnast best hátekjufólki. Það er engin spurning að skattastefna núverandi stjórnarflokka er alls ekki sniðin að venjulegu launafólki og ef fólki er vitund annt um budduna sína er líklegast til árangurs að greiða Frjálslynda flokknum atkvæði sitt.     

Stálþráðurinn Illugi Gunnarsson

Í Fréttablaðinu í dag endurtekur Illugi Gunnarsson enn og aftur rétt eins og stálþráður, nauðsyn þess að halda verndarhendi yfir núverandi kvótakerfi, sem hefur leikið sjávarbyggðirnar grátt m.a. hans gamla heimabæ Siglufjörð. 

 

Illugi endurtekur sig og færir engin rök fyrir máli sínu.

Ég sendi greinina sem birtist hér að neðan í Fréttablaðið í vikunni en hún var svar við skrifum Illuga í sama blað fyrir viku síðan, þar sem að hann dásamaði núverandi kerfi. Í svari mínu þá benti ég lesendum á hið augljósa þ.e. að  núverandi kvótakerfi er algerlega vonlaust til að stjórna fiskveiðum. 

Allt kemur fyrir ekki Illugi Gunnarsson birtir enn á ný í dag nýja grein sama efnis og heldur áfram að vara fólk við að breyta vonlausu kerfi. 

Einu rökin er einhver hugmyndafræði sem hefur ekki gengið upp í veruleikanum enda er verið að yfirfæra einföld hugmynda- og hagfræðileg lögmál á lífríki hafsins allt í kringum Ísland.    

 

 ---------------------------------------------------------------------------------------------

Greinin í Fréttablaðinu

 

Hugmyndafræðin skynseminni yfirsterkari

 Það er ætíð áhyggjuefni þegar stjórnmálamenn fylgja einhverri hugmyndafræði í blindni burtséð frá því hvað bitur reynsla og skynsemi segir. Síðasta öld geymir því miður alltof mörg dæmi um mikla stjórnmálaleiðtoga sem leiddu þjóðir í hörmungar og fjötra vegna einstefnulegs hugmyndarfræðilegs rétttrúnaðar. Heilu samfélögin voru undirlögð og látin snúast í kringum rétttrúnaðinn, hvort sem það voru listir eða vísindi þeirra tíma. Gott dæmi um undirspil vafasamra vísinda og einstrengingslegrar hugmyndafræði er hvernig líffræðikenningar sovéska líffræðingsins Trofim Lysenko óðu uppi í samfélagi kommúnista og rústuðu lífsafkomu bænda.

 

Illugi Gunnarsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, birti grein á sunnudaginn var, 4. mars, þar sem skýrt kemur fram sú skoðun að séreignarréttur á nýtingu náttúruauðlinda og þar með talið fiskistofna sé einhver grunnforsenda þess að vel takist að nýta fiskveiðiauðlindina með heildarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.Þessu er slegið fram og einungis vitnað í einhverja hugmyndafræði en ekki neina reynslu íslensku þjóðarinnar sem hefur búið við meint draumakerfi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks þar sem aðgangur að auðlindinni hefur verið leigður og seldur eins og að um hverja aðra séreign væri að ræða.Það er auðvitað ekki tilviljun að Illugi Gunnarsson sem fylgir hugmyndafræðilegri stefnu í blindni nefnir ekki nein dæmi fullyrðingum sínum til stuðnings þar sem reynsla Íslendinga af draumakerfinu er mjög bitur.Það hefur ekkert gengið með meinta uppbyggingu þorskstofnsins sem hvílir á mjög vafasamri líffræði svo ekki sé meira sagt. Þorskveiðin nú er helmingi minni en fyrir daga kvótakerfisins en samt sem áður vill helsti ráðgjafi ríkisstjórnarinnar og sérfræðingur Hafró meina að óbreytt stefna gæti aukið líkur á að þorskstofninn við Ísland dæi út. Ég þarf vart að taka það fram að ég er langt frá því að vera sammála þessu mati.Stærstu og öflugustu fyrirtækin, s.s. Grandi, eru metin verðmætari ef þau eru brotin upp og seld í bútum þrátt fyrir að hafa farið í gegnum ótal sameiningar og meinta hagræðingu.Á síðasta áratug hafa skuldir útvegsins þrefaldast, og nálgast nú óðfluga 300 milljarða. Skuldaaukningin er ekki tilkomin vegna fjárfestinga í greininni heldur hafa milljarðar runnið út úr sjávarútveginum í stríðum straumi bæði vegna sölu og leigu aflaheimilda. Sú upphæð sem runnið hefur út úr greininni svarar til a.m.k. tveggja Kárahnjúkastíflna. Þetta gerist á sama tíma og tekjur greinarinnar hafa nánast staðið í stað í krónum talið.  Sjávarútvegurinn er nú veikari en áður þar sem fyrirtækin eru skuldug og kemur það berlega fram í kjörum sjómanna, og fiskvinnslufólks sömuleiðs því að engir kjarasamningar gilda um sjómenn sem sækja sjó á minnstu bátunum.Einna verst er þó að kerfið kemur nánast algerlega í veg fyrir nýliðun í sjávarútvegi og getur það seint talist vænlegt fyrir framþróun atvinnuvegar að honum berist ekki nýtt og ferskt blóð.Íslenska kvótakerfið er misheppnuð tilraun sem komið hefur verið á á grundvelli hag- og hugmyndafræði sem Illugi Gunnarsson kynnti í áðurnefndri grein. Það gengur mögulega upp ef horft er á það eingöngu út frá lagatæknilegum og stjórnsýslulegum sjónarhóli en er að sama skapi algerlega misheppnað stjórntæki til þess að stýra fiskveiðum á ólíkum veiðisvæðum. Það verður ekki meira af fiski á Vestfjarðamiðum þó svo að handfæraveiðum verði hætt í Eyjafirði eða á Austfjörðum um aldur og ævi. Kerfið særir einnig réttlætiskennd Íslendinga og hefur kippt fótunum undan sjávarbyggðum landsins hringinn í kringum landið.  Hugmyndafræðin um að einhver einkaeign náttúruauðlinda þjóða sé frumforsenda fyrir hagkvæmri nýtingu er mögulega barnaleg óskhyggja og ýkjur. Norðmönnum hefur gengið afskaplega vel að nýta olíuauð þjóðarinnar til þess að byggja upp norskt samfélag og ekki veit ég til þess að Norðmönnum hafi dottið í hug að gefa olíulindirnar til þess að þær nýttust sem best en eflaust hefði Illugi farið þannig að í blindri trú á sínar kennisetningar.Það er gríðarlega mikilvægt að snúa sem fyrst af þeirri leið sem stjórnarflokkarnir hafa farið í nýtingu og afhendingu auðlinda og eigna Íslendinga. Til þess er Frjálslynda flokknum best treystandi en hann hefur verið í fararbroddi skynsamlegrar og ábyrgrar stefnu í fiskveiðistjórn sem tryggir hag almennings en ekki sérhagsmuna.

Dæmi hver fyrir sig um meintan misskilning á því hvers vegna rödd Frjálslynda flokksins fær ekki að heyrast

 

From: Þóra Ólafsdóttir [mailto:thora@si.is]
Sent: 6. mars 2007 15:31
To: Ragnheiður Ármannsdóttir
Subject: RE: Iðnþing Samtaka iðnaðarins


Sæl,
Undirbúningur Iðnþings hófst sl. haust og lauk að mestu skömmu eftir áramótin. Þá vissum við ekki betur en Margrét yrði fulltrúi Frjálslynda flokksins. Þegar í ljós kom að hún var gengin úr flokknum var löngu búin að ganga frá og fastsetja dagskrá Iðnþings og því miður engu hægt að breyta eftir það.

Með kveðju
Þóra Ólafsdóttir

***********************************************
Þóra Ólafsdóttir
Samtök iðnaðarins
Borgartúni 35
105 Reykjavík
Sími: 591 0100 beinn sími: 591 0103
Fax: 591 0101
Vefsetur: www.si.is og www.idan.is
Netfang: thora@si.is
***********************************************



Ragnheiður Ármannsdóttir <ragnheidura@althingi.is>

06.03.2007 15:08

To
Þóra Ólafsdóttir <thora@si.is>
cc
Subject
RE: Iðnþing Samtaka iðnaðarins





Sæl,
 
Það er nokkuð síðan Margrét fór úr flokknum eða í lok janúar þ.e. fyrir tæplega einum og hálfum mánuði.
 
Með kv.
Ragnheiður

From: Þóra Ólafsdóttir [mailto:thora@si.is]
Sent:
6. mars 2007 14:53
To:
Ragnheiður Ármannsdóttir
Subject:
Re: Iðnþing Samtaka iðnaðarins



Sæl Ragnheiður,

Umræðum á Iðnþingi er þannig háttað að sjónvarpsviðtölum, sem þegar er búið að taka upp, verður brugðið á tjald í formi innskots. Við  látum þess getið að Margrét Sverrisdóttir var inni í myndinni alveg fram undir það síðasta en hún datt út af listanum og þess vegna er enginn fulltrúi frá frjálslyndum.


Með kveðju

Þóra Ólafsdóttir




***********************************************
Þóra Ólafsdóttir
Samtök iðnaðarins
Borgartúni 35
105 Reykjavík
Sími: 591 0100 beinn sími: 591 0103
Fax: 591 0101
Vefsetur: www.si.is og www.idan.is
Netfang: thora@si.is
***********************************************


Ragnheiður Ármannsdóttir <ragnheidura@althingi.is>

06.03.2007 13:39


To
<thora@si.is>
cc
Guðjón A. Kristjánsson <gak@althingi.is>
Subject
Iðnþing Samtaka iðnaðarins







Góðan daginn,

Það vakti athygli þingflokks Frjálslynda flokksins að engum úr hans röðum hefur verið boðið að taka þátt í umræðum á iðnþinginu (sem álitsgjafar). Formaður flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson hefði áhuga á að taka þátt í umræðu um auðlindanýtingu og byggðaþróun ef hægt væri að koma því við.

Með Kveðju,

__________________________________________________

Ragnheiður Ármannsdóttir
Framkvæmdastjóri þingflokks Frjálslynda flokksins

Skrifstofu Alþingis

Vonarstræti 12

150 Reykjavík

s. 563 0787


mbl.is SI segir iðnþing ekki málfund stjórnmálaflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband