Leita í fréttum mbl.is

Forysta ASÍ er með í samsærinu

Leikaraskapurinn í kringum kjarasamningana er orðinn langdreginn og þreyttur. Beggja vegna borðsins sitja forystumenn sem voru beinir þátttakendur í hruninu þar sem þeir spiluðu með útrásarvíkingum með lífeyrispeninga landsmanna. Báðir hafa þeir varið kröftum sínum í að endurreisa og varðveita þau kerfi sem ollu hruninu. Báðir voru sammála um að samþykkja Icesave, viðhalda óbreyttu lífeyrissjóðakerfi og verðtryggingu. Sömuleiðis leggja báðir mikla áherslu á svo undarlegt sem það nú er, að verja óbreytt kvótakerfi sem skilar víst helmingi minni botnfiskafla á land en veitt var fyrir tveimur áratugum. Kvótakerfið sem forysta ASÍ og SA vill verja hvetur ennfremur til sóunar verðmæta og var upphaf loftbóluhagkerfisins.

 Það er beinlínis galið að stilla varðveislu kvótakerfisins upp sem einhvers lykilatriði sem forsendu þess að semja um kaup og kjör við launafólk í landinu - kerfi sem brýtur í bága við jafnræði og mannréttindi landsmanna!

 Miklu nær væri að SA og ASÍ sameinuðust um að endurskoða algerlega frá grunni veiðiráðgjöfina og leyfa auknar veiðar og frelsi í atvinnugreininni.


mbl.is Reyna að ná skammtímasamningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þegar svo ber við að starfsfólk ASÍ er með verðtryggð lífeyrisréttindi, ólíkt sínum skjólstæðingum (eða ber manni að segja þegnum?), þá stríðir það gegn hagsmunum þessara "forystumanna" að afnema verðtrygginguna. Glæpurinn fær því að standa og siðferðið reynist enn á ný vera of þungt í farteskið fyrir þetta "sómafólk".

Haraldur Baldursson, 15.4.2011 kl. 23:35

2 Smámynd: Snorri Hansson

Þessir menn eru með þvílíkt mikilmennskubrjálæði að þeir tilkinna okkur kvað við eigum að kjósa og að ísland eigi að ganga í ESB !!

Snorri Hansson, 15.4.2011 kl. 23:41

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Bæði þessi samtök eru núll - það þarf að breyta þessu.

Sigurjón Þórðarson, 15.4.2011 kl. 23:44

4 identicon

Eitt er á hreinu, við eigum að vera með öðrum evrópuþjóðum !

ESB er þá málið !  Við erum búnin að klára það !

ASÍ hagfræðingamáfían og glæpasamtök samata atvinnulífsins eiga margt sameiginlegt !

Ekkert sem dugar þessum venjulega íslesnskum launamanni !

JR (IP-tala skráð) 16.4.2011 kl. 02:21

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Así er búið að slíta viðræðunum svo þetta er ekki alveg að ganga upp..

Óskar Þorkelsson, 16.4.2011 kl. 07:57

6 identicon

Öll leikrit eru leikin þar til tjaldið fellur, í þessu leikriti eru þaulvanir leikarar sem kunna rulluna að teygja lopann!! Ég er sammála Sigurjóni þessi samtök eru 0 fyrir fólkið í landinu. SA vinnur vel fyrir sína félagsmenn. ASÍ vinnur ekki fyrir sína félagsmenn, það er í vinnu hjá ríkisstjórninni. Það gengur ekki að samtök fyrir vinnandi fólk sé svona pólitískt. ÞESSU ÞARF AÐ BREYTA!!!

Lúðvík Karl Friðriksson (IP-tala skráð) 16.4.2011 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband