Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010
27.7.2010 | 17:48
Niðurstaðan er að Ögmundur eigi að kyngja enn einu sinni
Af óljósum yfirlýsingum Jóhönnu og Steingríms má helst ráða að niðurstaðan sé að gera sem allra minnst og að Magma samningurinn verði að mestu látinn standa óbreyttur. Athyglisvert var að "niðurstaðan" var einungis kynnt af leyndar og pukursráðherrunum en órólega deildin sem rankaði eitthvað við sér í síðustu viku kom þar hvergi nærri.
Framvindan verður líklegast sú að Ögmundur kyngi þessu eins og öðrum ógeðsdrykkjum sem Steingrímur hefur rétt honum á færibandi. Grettur í Ögmundar í aðdraganda þess að hann svelgir í sig hverjum bikarnum á fætur öðrum eru farnar að verða nokkuð grátbroslegar.
Vill vinda ofan af Magma máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2010 | 12:04
Hvað klikkaði?
Helgi Laxdal fyrrum forystumaður í íslenskum sjávarútvegi skrifar hreinskilna og ágæta grein í Morgunblaðið í dag, þar sem að hann veltir fyrir sér hvað hafi klikkað við stjórn fiskveiða. Í greininni fer gamall talsmaður kvótakerfisins yfir þá ömurlegu staðreynd að útgerðin standi völtum fótum fjárhagslega þrátt fyrir meinta hagræðingu og "besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi".
Í greininni tekur Helgi Laxdal saman mjög áhugaverða gögn um að veiðin á þorski frá árinu 1992 og til ársins 2003 hafi verið nálægt útgefnu aflamarki og ráðleggingum Hafró en það skeikaði innan við 1%. Frá árinu 2003 og fram til dagsins í dag hefur ráðleggingum Hafró nær undantekningarlaust verið fylgt upp á tonn. Í framhaldinu er fróðlegt að fara yfir árangur uppbyggingarstefnu stjórnvalda en árið 1991 var þorskaflinn 308 þúsund tonn en aflamark næsta fiskveiðiárs verður 160 þúsund tonn af þorski.
Það er rétt fyrir Helga Laxdal og aðra þá sem tilbúnir eru að endurmeta sjávarútvegsstefnu þjóðarinnar að fara rækilega yfir líffræðilegar forsendur kvótakerfisins sem stangast á við viðtekna líffræði. Aðferðarfræði reiknisfiskifræðinga hefur verið reynd af fullum þunga í brátt tvo áratugi með hræðilegum afleiðingum. Eitt er víst ef að með breyttri nýtingarstefnu þá glímdu fiskvinnslur við hráefnisskort heldur væru á fullum snúningi að afla þjóðinni erlends gjaldeyris og koma þjóðinni út úr kreppunni.
Makríll og síld til bjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2010 | 18:28
Virti Gunnar Andersen forstjóri FME umboðsmann Alþingis?
Í dag rann út sá frestur sem Umboðsmaður Alþingis gaf forstjóra FME og seðlabankastjóra Má Guðmundssyni til þess að skýra út tilmæli sín um að snúa út úr dómi Hæstaréttar um ólöglega gengistryggingu lána.
Ekkert hefur frést af því hvort að þeir Már Guðmundsson og Gunnar Andersen hafi virt ósk Umboðsmanns Alþingis um að gera grein fyrir og rökstyðja ólögleg tilmæli sín til fjármálafyrirtækja en án efa verður fróðlegt að lesa þá samantekt. Á hinn bóginn þá sá forstjóri FME ástæðu til þess að vængja sig í ríkisútvarpinu og greina frá því að ný úttekt sýndi það sama og fyrri úttektir um hundruða milljarða tap fjármálafyrirtækjanna vegna dóms Hæstaréttar. Engu að síður greindi forstjórinn frá úttekinni í véfréttarstíl og ekki hefur hún enn orðið opinbert gagn frekar en fyrri úttektir.
Allt bendir til þess að forstjóri FME sé að ýkja þegar hann miklar áhrif dóms Hæstaréttar og hann sé að taka með í reikninginn lán sem löngu er búið að afskrifa.
Eflaust vilja seðlabankastjórinn og forstjóri FME gera sitt ýtrasta til þess að draga umræðuna frá svörum sínum til umboðs Alþingis eða sem verra væri svaraleysi.
14.7.2010 | 23:49
Norður Kóreu ástand á ÍNN
Á stundum hafa landsmenn talið sig hafa efni á að hlæja góðlátlega að fjölmiðlum í Norður Kóreu. Grímulaus áróðurinn er þannig á borð borinn að hann er beinlínis hlægilegur, þó svo að hann sé ein skrúfan sem viðheldur hræðilegu ástandi í landinu.
ÍNN sjónvarpsstöðin hefur tekið upp á því að fjalla kvótakerfið á Íslandi sem skilar óumdeilt einungis þriðjungnum af þeim þorskafla sem veiddist fyrir daga kerfisins.
Þrátt fyrir framangreindar staðreyndir þá kemur skýrt fram á ÍNN að kvótakerfið sé algott rétt eins og kommúnisminn er algóður í Norður Kóreu.
Kvótakerfisfélagar hafa komið í röðum í viðtöl á ÍNN og haldið því óhikað fram að íslenskar stórútgerðir sem beita venjulega togurum sem komnir eru vel á fertugsaldur, séu sérstakur hátækni- og þekkingariðnaður. Sjónvarpsstjórinn sjálfur Ingvi Hrafn Jónsson hefur vitnað um undur nýsköpunar og þekkingariðnaðarins, þar sem varan komi út úr frystihúsunum i umbúðum sem á stendur þyngd, framleiðsludagsetning og jafnvel verð vörunnar!
Kvótakerfisfélagar leggja þunga áherslu á að eitt af því mikilvæga við stærri kvótafyrirtækin sé að keðjan frá; veiðum, vinnslu og til útflutnings sé órofin og þar með lítil sérhæfing. Framkvæmdastjóri stórs fiskvinnslufyrirtækis á Vestfjörðum játaði engu að síður hreinskilnilega að hann gæti engan veginn keppt um hráefni við sérhæfðar fiskvinnslur sem starfa á frjálsum fiskmarkaði. Á látbragði þáttarstjórnanda ÍNN, mátti að greinilega marka að hann taldi að sitt hvað væri bogið við frjálsa markaðinn og kvótinn sem króaði af hráefnið væri greinilega betra fyrirkomulag.
Fulltrúar kvótakerfisfélaganna sem mörg hver skulda mörg þúsundir milljónir króna og miklu meira en þau geta nokkurn tíma greitt, telja það vera þjónýtingu og níðingsverk hið mesta ef nýtingarréttinum er ráðstafað á jafnræðisgrundvelli til annarra sem vilja gera betur en þeir sem fyrir eru og hafa rekið sín fyrirtæki í þrot.
Auðvitað mætti hlæja að þessu rugli sem fram fer á ÍNN ef að þjóðin væri ekki komin djúpa kreppu og í raun búin að glata efnahagslegu sjálfstæði sínu til AGS. Það er orðið löngu tímabært að útgerðarmenn komi upp úr skotgröfunum og viðurkenni að aflamarkskerfið sé afar vont til þess að stjórna fiskveiðum og miklu nær væri að fara farsæla leið Færeyinga við stjórn fiskveiða. Leiðin út úr kreppunni hlýtur að vera að afla meiri útflutningstekna og vísasta leiðin til þess er að efla sjávarútveginn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.7.2010 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.7.2010 | 00:56
Hvers vegna er sýkta síldin ekki veidd?
Í nokkur ár hefur það verið ráðlagt að takmarka mjög veiðar á síld á þeim forsendum að stór hluti stofnsins sé sýktur af sníkjudýri sem dragi hana til dauða. Sýkta síldin er jafn gott og verðmætt hráefni til bræðslu og heilbrigð. Hvers vegna í ósköpunum er síldin þá ekki veidd fyrst að hún er hvort er eð að drepast?
Ég get ekki séð nokkra einustu ástæðu til þess að vernda sérstaklega dauðvona fiska - hvers konar rugl er látið viðgangast?
Ástæðan er eflaust sú að það hefur ekki verið starfandi sjávarútvegsráðherra á Íslandi frá því að Matti Bjarna var í brúnni.
Í fréttum af rannsóknum Hafró kemur ekki fram hve stofninn mældist stór sem var þó upphaflegt markmið leiðangursins. Það verður fróðlegt að fylgjast með niðurstöðu á stofnstærðarmælingunni þar sem að þetta er þriðja árið sem að stór hluti stofnsins mælist dauðvona en samt hefur stofninn mælst 100 þúsund tonnum stærri á milli mælinga.
Sýking í síld lítið í rénun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2010 | 23:35
Katrín Júlíusdóttir til viðræðna um stefnumörkun
Í orði hefur það verið stefna Samfylkingarinnar að tryggja eignarhald þjóðarinnar á orkuauðlindum en á borði hefur stefnan verið að selja útlendingum orkuna. Sú stefna kom upp á yfirborðið í framgöngu Össurar Skarphéðinssonar og Dags B. Eggertssonar í REI málinu og nú í sölunni á Hitaveitu Suðurnesja til Magma Energy. Síðan REI málið kom upp árið 2007 hefur verið ljóst að það þyrfti að treysta varnir fyrir því að orkuauðlindir glutruðust ekki úr höndum landsmanna. Í stað þess að reisa varnir þá hefur Samfylkingin ásamt Steingrím J. verið að útlista fyrir erlendum fjárfestum hvar götin væru í löggjöfinni.
Vert er að staldra örlitla stund við aðferðafræðina við söluna og skúffufyrirtækið sem að Samfylkingin hefur "góðkennt". Er hægt að sjá það fyrir að Norðmenn hefðu selt olíuauðlindir sínar til skúffufyrirtækis í Svíþjóð? Ég er viss um að svo sé ekki og í framhaldinu er rétt að fara yfir hvort að ábyrgðir og tryggingar fyrir skuldbindinum sem varða kaupin séu eingöngu í skúffufyrirtækinu í Svíþóð sem líklega verður álíka mikið hald í ef til kastanna kemur og fræg eignarhaldsfélög á borð við Stím.
Það var sérkennilegt að hlýða á viðtal við Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra á Rás 2 í dag, en hún skýrði furðuleg vinnubrögð ráðuneytisins með því að vísa á að unnið væri vélvirkt innan þess lagaramma sem væri í boði. Ekki vottaði fyrir skýrri stefnumörkun hjá stjórnmálamanninum um hvert ætti að halda varðandi ráðstöfun orkuauðlinda þjóðarinnar en slegið var úr og í með óskýrum áherslum um að salan væri ekki henni alveg að skapi. Ráðherrann lagði engu að síður áherslu á að aðrar orkuauðlindir sem eitthvað önnur umgjörð væri um, væru falar. Í framhaldinu væri rétt að Samfylkingin gerði einhverja söluskrá til þess að kjósendur jafnt sem kaupendur geti áttað sig á því hvert flokkurinn er að fara.
Ríkisstjórnin hefur verið krafin svara um hvort áframhald eigi að verða á sölu auðlinda þjóðarinnar og sömuleiðis hvort að sölunni á orkuauðlindum Suðurnesjamanna til skúffufyrirtækisins verði ekki rift.
Svör ráðherra hafa vægast sagt verið óskýr - eitthvað stendur þó til að koma fram með nýtt frumvarp í haust um erlendar fjárfestingar og Katrín Júlíusdóttir sagðist í viðtalinu á Rás 2 vera til viðræðna um lagasetningu og þá væntanlega stefnumörkun.
Íslensk lög einungis útskýrð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.7.2010 | 11:14
Katrín og krimmarnir
Ég tek undir með Petrínu Baldursdóttur að fréttirnaraf því hvernig Katrín Júlíusdóttir leiðbeindi Magma Energy að fara fram hjá lögum með stofnun platfyrirtækis í Svíþjóð, koma ekki á óvart. Salan er í samræmi við stefnu AGS að selja náttúruauðlindir landsins hratt og örugglega. Sömuleiðis hefur Katrín Júlíusdóttir sýnt það að hún vill helst starfa á gráu svæði en hún semur við stórtæka bankaræningja um sérstakan skattaafslátt til atvinnuuppbyggingar.
Allir sem eitthvað velta þessum furðulegu málum fyrir sér ættu að gera sér fullljóst að skúffan í Svíþjóð og skattaafslátturinn til fjárglæframannanna til að reisa gagnaverið var stofnað til með vitund og vilja Steingríms J. Sigfússonar formanns Vg.
Það er merkilegt hvað hann hefur komist lengi upp með að leika tveim skjöldum.
Iðnaðarráðuneyti leiðbeindi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.7.2010 | 13:42
Mun Jóhanna Sigurðardóttir axla ábyrgð á klúðrinu?
Umboðsmaður Alþingis spyr Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið réttu spurninganna, varðandi ólögleg tilmæli stofnananna til fjármálafyrirtækja. Sömuleiðis liggur fyrir að tilmælin voru samin fyrir tilstilli ríkisstjórnarinnar og hún lagði blessun sína yfir þau.
Í framhaldinu hljóta að vakna upp spurningar um hvort að Jóhanna Sigurðardóttir muni axla ábyrgð á klúðrinu?
Umboðsmaður óskar eftir skýringum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2010 | 19:22
Steingrímur J. verðlaunar Icesavekálfa
Það er gaman að sjá hve Steingrímur er léttur í lund. Það má vel skilja gleði Steingríms enda nýbúinn að rétta af dóm Hæstaréttar og fréttir bárust af því í dag að hann væri á fullu að koma Jóni Sigurðssyni fyrrum stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins inn í embætti stjórnarformanns Þróunarbanka Evrópu. Jón Sigurðsson afrekaði það m.a. í störfum sínum í FME að sitja fyrir í bæklingi Landsbankans sem notaður var við markaðssetningu á Icesave í Hollandi rétt áður en íslenska bankakerfið hrundi til grunna. Það verður án ef mikill fengur að fá þennan mikla reynslubolta inn í Þróunarbanka Evrópu.
Steingrímur er mikill áhugamaður um Icesave og tókst fyrir örfáum dögum að þrýsta Hollendingum og Bretum til þess að semja um ólögvarðar kröfur. Sömuleiðis tókst Steingrími að kreista í gegnum þingið sérstökum skattaafslætti til Björgólfs Thors til þess að hann hefði ráð á að byggja upp gagnaver.
Það má s.s. fastlega gera ráð fyrir því að fjármálaráðherrann haldi með Hollandi fyrst að Norður- Kórea datt slysalega út úr keppni.
Steingrímur á HM-fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.7.2010 | 19:26
Ekkert spurst til millistjórnanda AGS, Steingríms J. Sigfússonar
Ekki vantaði yfirlýsingagleði Steingríms J. Sigfússonar þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst og sömuleiðis einarða andstöðu hans við AGS og Icesave. Á þeim tíma naut Steingrímur dyggrar aðstoðar harðlínu flokksmannsins Álfheiðar Ingadóttur. Hún var sögð hafa verið í beinu sambandi við mótmælendur og hvetja þá til stórhættulegra verka.
Nú er öldin önnur, Steingrímur J. Sigfússon er orðinn millistjórnandi hjá AGS og er það staðfest af formanni viðskiptanefndar að hann starfi algerlega í skugga Franek Rozwadowski. Steingrímur er orðinn svo skuggsækinn að hann virðist ekki hafa látið sjá sig í dag.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé orðið löngu tímabært að þau flokkssystkinin velti því fyrir sér í hvaða sporum þau séu stödd og ákveði í framhaldinu að virða dóm Hæstaréttar og koma AGS úr landi.
Æsir upp í manni réttlætiskenndina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 1014400
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007