Leita í fréttum mbl.is

Katrín Júlíusdóttir til viðræðna um stefnumörkun

Í orði hefur það verið stefna Samfylkingarinnar að tryggja eignarhald þjóðarinnar á orkuauðlindum en á borði hefur stefnan verið að selja útlendingum orkuna. Sú stefna kom upp á yfirborðið í framgöngu Össurar Skarphéðinssonar og Dags B. Eggertssonar í REI málinu og nú í sölunni á Hitaveitu Suðurnesja til Magma Energy.  Síðan REI málið kom upp árið 2007 hefur verið ljóst að það þyrfti að treysta varnir fyrir því að orkuauðlindir glutruðust ekki úr höndum landsmanna.  Í stað þess að reisa varnir þá hefur Samfylkingin ásamt Steingrím J. verið að útlista fyrir erlendum fjárfestum hvar götin væru í löggjöfinni.

Vert er að staldra örlitla stund við aðferðafræðina við söluna og skúffufyrirtækið sem að Samfylkingin hefur "góðkennt".  Er hægt að sjá það fyrir að Norðmenn hefðu selt olíuauðlindir sínar til skúffufyrirtækis í Svíþjóð? Ég er viss um að svo sé ekki og í framhaldinu er rétt að fara yfir hvort að ábyrgðir og tryggingar fyrir skuldbindinum sem varða kaupin séu eingöngu í skúffufyrirtækinu í Svíþóð sem líklega verður álíka mikið hald í ef til kastanna kemur og fræg eignarhaldsfélög á borð við Stím.

Það var sérkennilegt að hlýða á viðtal við Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra á Rás 2 í dag, en hún skýrði furðuleg vinnubrögð ráðuneytisins með því að vísa á að unnið væri vélvirkt innan þess lagaramma sem væri í boði.  Ekki vottaði fyrir skýrri stefnumörkun hjá stjórnmálamanninum um hvert ætti að halda varðandi ráðstöfun orkuauðlinda þjóðarinnar en slegið var úr og í með óskýrum áherslum um að salan væri ekki henni alveg að skapi. Ráðherrann lagði engu að síður áherslu á að aðrar orkuauðlindir sem eitthvað önnur umgjörð væri um, væru falar.  Í framhaldinu væri rétt að Samfylkingin gerði einhverja söluskrá til þess að kjósendur jafnt sem kaupendur geti áttað sig á því hvert flokkurinn er að fara.

Ríkisstjórnin hefur verið krafin svara um hvort áframhald eigi að verða á sölu auðlinda þjóðarinnar og sömuleiðis hvort að sölunni á orkuauðlindum Suðurnesjamanna til skúffufyrirtækisins verði ekki rift. 

Svör ráðherra hafa vægast sagt verið óskýr - eitthvað stendur þó til að koma fram með nýtt frumvarp í haust um erlendar fjárfestingar og Katrín Júlíusdóttir sagðist í viðtalinu á Rás 2 vera til viðræðna um lagasetningu og þá væntanlega stefnumörkun.

 

 

 


mbl.is Íslensk lög einungis útskýrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Síðasta haust eða seint síðasta sumar þegar OR seldi Magma sinn hlut í HS-Orku, þá var formanni Vinstri grænna, falið það af þingflokknum, að hlutast til um að lögum um erlenda fjárfestingu yrði breytt.

 Gera má ráð fyrir því að Steingrímur, hafi orðið við beiðni þinglokksins og lagt málið fyrir í ríkisstjórn.

 Samkvæmt orðum formanns þingflokks Vinstri grænna, þá var Samfylkingin andvíg, slíkri lagasetningu, síðastliðið haust, þó svo að öllum hafi verið það ljóst að Magma, ætlaði sér HS-Orku alla.

 Orð Katrínar og reyndar líka Gylfa viðskiptaráðherra, í dag, eru ekkert annað en tækifærissinnað orðagjálfur um eitthvað sem hvorugt þeirra hefur engan áhuga á.

Kristinn Karl Brynjarsson, 12.7.2010 kl. 23:55

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sigurjón, afþví þú ert atvinnupólitíkus og norðan úr Húnavatnssýslu eins og Forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hversvegna mátti Orkuveitan gleypa allar hitaveitur frá Hvalfirði og norður í land en mátti ekki eiga 10% hlut í Hitaveitu Suðurnesja?   Sá úrskurður var jú upphafið að þeirri fléttu að afhenda Magma 98.5% hlut í HS Orku. Ég get bara ekki skilið það leikrit og þetta er ekki hægt að skrifa á AGS

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.7.2010 kl. 00:02

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Kristinn, ekki er ég viss um að Steingrímur hafi lagt mikla áherslu á að fara að samþykktinni enda stangast hún á við viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem send var AGS.  Þær áherslur hefðu í sjálfu sér ekki átt að fara fram hjá Svandísi, Álfheiði og Jóni

Það er orðið löngu tímabært að hún sé þýdd þannig að fólk átti sig betur á stjórnarstefnunni.

Sigurjón Þórðarson, 13.7.2010 kl. 00:06

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jóhannes spurningarnar mættu vera örlítið nákvæmari en ég vil samt taka það fram að ég get varla hvorki notið þess heiðurs að vera atvinnupólitíkus né að vera úr Húnvetningur.

Til leiðtréttingar þá á ég sæti í sveitarstjórn Skagafjarðar.

Sigurjón Þórðarson, 13.7.2010 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband