Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
30.4.2009 | 00:18
Lundaveislan
Vestmannaeyingum var um skeið meinað að hreinsa upp höfnina sína og ná upp nokkur hundruð tonnum af dauðvona síld sem er á við tveggja daga matarskammt lundans. Síldin er sólgin í sandsíli og seiði annarra fiska, tekur vel til matar síns og nær örugglega að grisja rækilega ýsu-, þorsk- og
loðnuseiði. Það getur vel verið að með hreinsunaraðgerðum í Vestmannaeyjum hafi Vestmannaeyingar bjargað einhverjum lundapysjum frá sulti. Ella væru einhverjar líkur til að síldin hefði afétið lundann.
Það sem er kristaltært í mínum huga er að þótt við drögum okkur út úr lífríkinu og hættum veiðum er ljóst að aðrir nytjastofnar staflast ekki upp, s.s. síld, loðna og þorskur, heldur mun vistkerfið halda áfram sinn vanagang. Stofnar rísa og hníga.
Maðurinn tekur tugfalt minna út úr vistkerfi sjávar en fuglar og spendýr hafsins láta greipar sópa um sjávargæðin. Þjóð sem stendur illa peningalega en hefur alla þessa þekkingu ætti ekki að tvínóna við að auka veiðar í stað þess að berja hausnum við reiknilíkön sem hafa bara gefið eina niðurstöðu niðurskurðog hana má afsanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.4.2009 | 21:55
Borgarahreyfingin lætur ekki undan skrílnum
Af yfirlýsingu Borgarahreyfingarinnar má ráða að hún standi þétt með stéttvísum þingmanni sínum sem hefur hafnað því að láta undan kröfum skrílsins um að skila heiðurslaunum. Listamaðurinn hlaut þessi heiðurslaun fyrir óumdeild og ómetanleg menningarverðmæti sem hafa mikið gildi fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar, s.s. verk á borð við Magnús, Dalalíf og Löggulíf. Ekki má gleyma meistarastykkinu sjálfu, Nýju lífi. Það er ómögulegt að vita hvort Sigga Sigurjóns og Karli Ágústi Úlfssyni hefði nokkru sinni skotið upp á stjörnuhimin Spaugstofunnar ef ekki hefði verið fyrir verk Þráins. Spaugstofan hefur ekki aðeins gríðarlegt skemmtigildi heldur er ekki síður vönduð pólitísk ádeila til 20 ára.
Borgarahreyfingin stóðst með prýði fyrsta prófið sem var lagt fyrir hana, stendur vörð um rætur íslenskrar þjóðmenningar og það verður spennandi að fylgjast með frekari stórtilþrifum byltingaraflsins.
28.4.2009 | 00:44
Þráinn með meiri stéttarvitund en Ögmundur
Þegar Ögmundur Jónasson varð ráðherra afþakkaði hann ráðherraviðbótina ofan á þingfararkaupið og sýndi þá af sér dæmalausan skort á stéttvísi. Hann stóð ekki með hinum ráðherrunum og sveik þar með stjórnmálastéttina. Það er greinilegt að búsáhaldabyltingin hefur komið af stað mikilli betrun og nánast umbyltingu í stéttvísi. Þráinn Bertelsson verður ekki sakaður um að hafa svikið lit en hann hefur þráast við að gera heiðurslistamannalaunin að ódýrri skiptimynt fyrir stundarvinsældir. Með þessu stendur hann þétt við bakið á Matthíasi Johannessen, Erró og Gunnari Eyjólfssyni.
Hver segir að byltingin éti börnin sín?
27.4.2009 | 09:41
Engin áætlun í efnahagsmálum
Það er sorglegt að verða vitni að því að núverandi stjórnarflokkar virðast ekki hafa kjark til að stjórna landinu og koma með raunverulegar áætlanir í efnahagsmálum. Þeir sögðu skýrt fyrir kosningar að þeir ætluðu að halda áfram ef þeir næðu meirihluta. Nú er allt orðið breytt og með þessu eru VG og Samfylkingin að ganga á bak orða sinna, ágreiningurinn um ESB var sagður eitthvað sem menn ætluðu að leysa. Íslendingar hafa ekki efni á að stjórnvöld láti reka á reiðanum.
Samfylkingin er búin að sýna fram á það í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og nú síðast í aðgerðalítilli stjórn með VG að þessu fólki lætur ýmislegt betur en að stjórna. Svo virðist vera sem flokkurinn treysti sér ekki í gegnum þann skafl sem framundan er í íslensku efnahagslífi.
Óbrúuð gjá í ESB-máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2009 | 22:08
Verða vextir lækkaðir?
Ég verð að segja að ég var nokkuð sammála Steingrími hvað varðar elítuna. Það sem brennur virkilega á fólki eru okurvextirnir og ótti um að ríkið verði ekki rekstrarhæft.
Allur krafturinn í umræðunni fer í ESB eða ekki ESB. Engar tillögur eru lagðar á borðið um að auka tekjur. Frjálslyndi flokkurinn lagði til að veiðar yrðu auknar og þær tillögur hafa enn þann dag í dag ekki fengið málefnalega umræðu. Sú aukning myndi þó skila tekjum í kassann umsvifalaust. Auknar veiðar eru músík dagsins í dag en ekki framtíðarharmónía Evrópusambandsins.
Elítan vill í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2009 | 23:49
Samfylkingin fagnar í rústunum
Það kemur nokkuð á óvart að fylgjast með sigurvímu Jóhönnu Sigurðardóttur þar sem hún fagnar því að Samfylkingin eykur fylgi sitt á þeim tímum þegar gríðarlegur vandi blasir við þjóðinni. Efnahagur landsins er í rjúkandi rúst og Samfylkingin á drjúgan þátt í því. Það sem hefur væntanlega að einhverju leyti valdið vali kjósenda er að Samfylkingin hafi þótt illskásti kosturinn af fjórflokknum en ekki að lausnir eða stefna Samfylkingarinnar geti talist bera í sér gæfu.
Nú á þessari stundu finnst mér úrslitin leiða það í ljós að Guðjón Arnr Kristjánsson verði ekki á þingi á næsta kjörtímabili sem ég tel mikinn missi fyrir þjóðina ef fram á að fara endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Vonast ég sannarlega til að Guðjón nái í mark þegar líður á nóttina. Sömuleiðis verð ég að segja að ég tel ákveðinn missi ef Ögmundur Jónasson dettur út af þingi þar sem mér finnst hann besti þingmaður flokksins síns.
Úrslitin eru vissulega vonbrigði fyrir okkur í Frjálslynda flokknum og ég er sannfærður um að við höfum lagt með okkur bestu stefnuna til að komast út úr kreppunni.
25.4.2009 | 16:28
Vöfflukaffi
Hvað sem öðru líður er ástæða til að taka hús á vinum sínum og bíta í eins og eina vöfflu. Býð nærsveitarmönnum að taka hús á kallinum á Skagfirðingabrautinni og lyfta kaffikrús.
Sjáumst spræk, Sigurjón
24.4.2009 | 13:04
Spilling - hverjum er treystandi?
Þótt ég segi sjálfur frá verð ég að segja að ég stóð vaktina vel sem þingmaður, gagnrýndi spillinguna og benti á leiðir til úrbóta. Ég sendi m.a.s. Transparency International bréf fyrir ríflega þremur árum til að hrekja mat þeirrar stofnunar á að hér væri allt með felldu. Víða fékk ég bágt fyrir.
Bréfið upp á tæpar þrjár blaðsíður fylgir hér með.
X-F
Transparency International (TI)
Alt Moabit 96 - 10559 Berlin, Germany
Phone: +49-30-343 8200 - Fax: +49-30-3470 3912
E-mail: ti@transparency.org / Web: http://www.transparency.org
Reykjavik, November 1st, 2005
To whom it may concern
Recently, Transparency International (TI) published a survey (see enclosed 1) ranking countries around the world in order of their level of corruption, both in politics and business. According to the latest results, Iceland is the least corrupt country in the world, but many Icelanders have expressed their disbelief in the results of the survey.
I am an MP for the Liberal Party in Iceland, and I wrote an article on my website expressing my disbelief in the survey, listing some examples of corruption in Iceland. Then several people wrote to me, giving comments regarding the survey, saying that they could not believe the results and giving examples on why Iceland cannot possibly be the least corrupt country in the world. I have made the following list of examples of corruption, built on their comments:
1) The reluctance of the political parties to reveal their sources of financing, with the ruling Independence Party still adamantly against opening their books.
2) The sale of the state banks Búnaðarbanki and Landsbanki in 2002, from which Prime Minister Halldór Ásgrímsson and his family profited personally.
3) Friends and family of former PM Davíð Oddsson have been appointed to the Supreme Court, in particular naming Ólafur Börkur Þorvaldsson in 2003, who University of Iceland law professor Sigurður Líndal said was one of the least qualified candidates for the position.
4) The connection between members of the ruling coalition and players in the oil price-fixing scandal, naming Kristinn Björnsson, the former CEO of Skeljungur (Shell), who is the husband of parliamentary president and Independence Party member Sólveig Pétursdóttir, who was also Minister of Justice at the time of the scandal´s investigation. Björnsson is today the vice chairman of Árvakur, the company that publishes Morgunblaðið, a widely distributed newspaper.
5) The "Baugur-case", where an investigation lasting three years and costing millions of krónur yielded 40 charges of economic crimes (only eight of which have made it to the Supreme Court), but is considered by many to be a politically motivated attack from key Independence Party players against corporate giant Baugur Group.
The survey´s result is confusing and therefore I have consulted the methodology of TI, to see how you´ve arrived at your conclusions (described on TI´s website):
The TI Corruption Perceptions Index is a composite survey, reflecting the perceptions of business people and country analysts, both resident and non-resident. It draws on 16 different polls from 10 independent institutions. For a country to be included, it must feature in at least 3 polls.
Fair enough. TIs table says that eight polls were used to assess Iceland. After a minimal amount of digging, it seems that in fact there were only four different polls used, for different years. These were the World Competitive Yearbook (conducted by the International Institute for Management Development), Grey Area Dynamics (conducted by the Merchant International Group), the Global Competitiveness Report (conducted by the World Economic Forum) and Risks Ratings (conducted by World Markets Research Centre). And what do these polls do?
The World Competitive Yearbook criterion ranks countries around the world by, in their own words, economic performance, government efficiency, business efficiency and infrastructure.
Grey Area Dynamics (GAD) seeks to help investors analyse the stability of countries, saying on the methodology page of their website that GAD is a unique programme designed to assess risks, weaknesses and threats.
The Global Competitiveness Report describes itself as a valuable tool for shaping economic policy and guiding investment decisions.
Risk Ratings says that it assesses the foreign direct investment (FDI) climate based on six individual ratings in each country: political, economic, legal, tax, operational and security.
In other words, Icelands entire rating was based mostly on how well foreign investors can expect to do in our country. That being the criterion, its easy to see how some of the largest examples of corruption in Iceland managed to slip through the net.
Curiously enough, as you descend TIs list of corrupt countries, youll notice a trend: the more corrupt the countries get, the more likely it is that more polls were used to rate them. Perhaps if Iceland was studied on a criterion based on more than just how much you can expect to cash in should you invest here, Icelands ranking would be slightly different.
This is not to say that there is much more corruption in Iceland than in other countries. But it can hardly be one of the least corrupt countries, and there is certainly room for improvement. And studies which make broad assessments based on narrow evidence certainly dont help.
Sincerely,
_________________________________
Sigurjón Þórðarson, MP
24.4.2009 | 08:58
Við höfum haft rétt fyrir okkur
Frjálslyndi flokkurinn hefur verið stefnufastur. Þjóðinni hefði sannarlega farnast betur ef stefna Frjálslyndra hefði ráðið för.
Frjálslyndi flokkurinn hefur haft opið bókhald frá upphafi og ekki þegið mútur.
Hann hefur beitt sér fyrir réttlátri og árangursríkri fiskveiðistjórn í sjávarútvegi sbr. leið Færeyinga. Reynslan sýnir að stöðugur samdráttur á veiðum er ekki ávísun á meiri afla síðar.
Flokkurinn hefur beitt sér gegn einkavinavæðingunni, varað við skuldasöfnun þjóðarbúsins og talað fyrir ráðdeild. Flokkurinn hefur um árabil beitt sér fyrir afnámi verðtryggingar. Lántakendur lentu í verulegum erfiðleikum ef laun hækkuðu ekki samhliða öðrum verðbreytingum. Aukinheldur slævði verðtryggingin ábyrgð bankanna og annarra lánveitenda.
Frjálslyndi flokkurinn hefur verið framsýnn og öll meginstefnumál flokksins hafa byggt á traustum grunni. Því væri þjóðráð fyrir kjósendur að hlýða á þá sem hafa haft rétt fyrir sér um hvaða leiðir væri ráðlegt að fara út úr kreppunni.
Kjósendur eru búnir að brenna sig á upphlaupsstjórnmálamönnunum sem hafa látið heilu fréttatímana snúast um björgun ísbjarna í Skagafirði og 90% lúxuslán fyrir unga fólkið.
Frjálslyndir bjóða raunhæfar lausnir sem krefjast vinnu og aumýktar gagnvart risavöxnu verkefni sem krefjast úrlausnar. Verkefnið er að skaffa atvinnulausum vinnu og stoppa í risastórt fjárlagagat. Þótt allir tekjuskattar á fyrirtæki og einstaklinga yrðu tvöfaldaðir næst ekki að fylla í gatið og ef það á að fara niðurskurðarleiðina þarf að skera niður starfsemi sem nemur rekstri fjögurra Landspítala. Það er ekki raunsætt að lausnin felist í því að skera niður ríkisútgjöld og hækka skatta.
Ekki er raunhæft að skapa störf til langframa úr styrktarsjóðum, bótasjóðum og byggingu tónlistarhúss. Mörg starfanna munu byggja alfarið á þeim sjóðum sem styrkja þau og lýkur um leið og viðkomandi sjóðir tæmast.
Eina færa leiðin er sú að gera sér grein fyrir vandanum og viðurkenna að hann sé þess eðlis að Íslendingar þurfi að semja við lánardrottna um afskriftir skulda. Það verður ekki gert með einhverjum gorgeir eða skeytasendingum. Við byggjum afkomu okkar að miklu leyti á viðskiptum við aðrar þjóðir og því er brýnt að fara leið sem lokar ekki mörkuðum. Það er miklu nær að semja um viðráðanlega greiðslu og leita leiða til að auka tekjur samfélagsins. Brýnt er að beita almennum aðgerðum, ná stöðugleika í gjaldmiðlinum og lækka vexti strax.
Stefna frjálslyndra er raunhæf og við höfum ekki lengur efni á að ýta út af borðinu raunhæfum lausnum. Stefnan gengur út á að þorskveiðar séu auknar um 100.000 tonn sem mun gefa þjóðarbúinu 40 milljarða í beinum gjaldeyri, skaffa nokkur þúsund störf í frumframleiðslu, enn fleiri afleidd störf og verða alvöruinnspýting í efnahagslífið.
Til að búa til þessa fjármuni þarf ekki að stofna til neinna nýrra fjárfestinga, skipin og fiskvinnsluhúsin eru fyrir hendi.
Aukið innstreymi gjaldeyris mun rétta af gengi íslensku krónunnar og rétta hag þeirra sem greiða af erlendum skuldum.
Frjálslyndi flokkurinn hefur sömuleiðis lagt áherslu á aukna ferðaþjónustu með auknu markaðsstarfi.
Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um starfandi iðnfyrirtæki, framleiða vörur og veita þjónustu sem bæði sparar gjaldeyri og eykur gjaldeyri. Það þarf að sýna margvíslegri iðn- og verkþekkingu virðingu. Það þarf að skapa skilyrði og andrúmsloft hvatningar til stofnunar fyrirtækja um frjóar hugmyndir á sem víðtækustu sviði, svo sem myndlistar, tónlistar og annarrar menningar. Hvatinn kemur ekki með aukinni skattlagningu og fleiri hálftómum sjóðum til að sækja í með því að fylla út flókin eyðublöð. Það þarf að virkja þann kraft og þær hugmyndir sem búa í fólki, gefa því frelsi til athafna.
Frjálslyndi flokkurinn hefur staðið fast á stefnumiðum sínum sem eru sígild. Kjósendur vita að hverju þeir ganga þegar þeir exa við F-ið og kjósa Guðjón Arnar Kristjánsson til forystu í íslensku samfélagi.
23.4.2009 | 00:36
Mér finnst Sigmundur Davíð krútt!
Ég komst að því í kvöld mér til mikillar undrunar að ég væri á lista yfir óvini Framsóknarflokksins. Satt best að segja hafði ég aldrei kynnst nokkrum framsóknarmanni fyrr en ég flutti norður í land, í Skagafjörðinn, árið 1992. Það sem meira er, ég kunni ákaflega vel við þá langflesta. Ég komst hins vegar að því að flokkurinn hafði farið villur vegar og gróf undan byggð í landinu með óréttlátu kerfi í sjávarútvegi, frændhygli og vinaráðningum sem endaði loks með því að Ísland lýsti yfir stuðningi við stríð á hendur annarri þjóð. Ég hef síðan reynt að leiðrétta kúrs Framsóknarflokksins af góðum hug og flokkurinn hefur játað á sig ýmislegt sem miður hefur farið, s.s. einkavinavæðinguna og fjárglæfrastarfsemina og að það hafi þurft að aflúsa forystu flokksins.
Það verður að segjast eins og er að enn er talsvert verk óunnið við að gera Framsóknarflokkinn góðan þar sem flokkurinn virðist enn halda í gatslitið kerfi í sjávarútvegi sem er undirrót spillingarinnar.
Mér fannst Sigmundur Davíð aðallega krútt þegar hann talaði sem skipulagsfræðingur og hef tekið eftir að hann er yfirleitt sammála Ólafi F. en báðir eiga í vandræðum með Óskar Bergsson, ekki síst með að láta hann opna bókhaldið sitt.
Ég vonast til þess að framsóknarmenn leiðrétti listann og ég verði settur snarlega á vinalistann - því að vinur er sá er til vamms segir.
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 1014400
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007