Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
22.4.2009 | 13:52
Frjálslyndi flokkurinn hefur verið með opið bókhald frá upphafi
Í DV í dag má lesa enn einn þáttinn um tengsl stjórnmálanna og fjárglæframannanna. Þar voru þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins framarlega að vanda, og jú úr gömlu góðu Framsókn. Margir eru fyrst núna að fatta það sem Frjálslyndi flokkurinn hefur bent á í áratug, þetta óeðlilega spillingarsamband viðskipta og stjórnmála. Það sem verður örugglega með í umræðunni á næstunni er samband fjölmiðla og stjórnmála og hvers vegna umræða um almannahagsmuni er fyrir borð borin.
Í aðdraganda kosninganna er líka umhugsunarefni hvernig fjórflokkurinn í kosningabaráttu hefur komist hjá því að ræða hvernig á að stoppa í 150 milljarða fjárlagagat á einu ári. Hvaðan á að fá peningana? Með niðurskurði og skattahækkunum? Með því að endurvekja skattstofna?
Frjálslyndi flokkurinn hefur bent á að hallinn verði ekki réttur af nema með auknum veiðum - og það strax!
X-F
21.4.2009 | 23:46
Góður fundur á Skagaströnd í kvöld
Húnvetningar eru vel með á nótunum og átta sig á þeim grundvallaratriðum að út úr erfiðri stöðu þjóðarbúsins verður ekki komist nema með því að auka tekjur. Þeir eru klárir í að leggja sitt af mörkum, þeir vita sem er að fiskurinn er nægur á Skallaskerinu og höfnin er til staðar. Nokkur ónýtt fiskvinnsluhús eru líka til staðar þannig að Húnvetningum er ekkert að vanbúnaði, það eina sem beðið er eftir er grænt ljós frá jarðtengdum stjórnvöldum sem hafa þá skynsemi til að bera að leyfa auknar veiðar sem Frjálslyndi flokkurinn, enn sem komið er, einn flokka leggur til.
X-F
20.4.2009 | 22:38
Einsmálsflokkurinn
Fjórflokkurinn er í sárum. Eitthvað eru framsóknarmenn þó að leggja fram sín hefðbundnu yfirboð, s.s. 900 milljarða afskriftir, og trompa þannig 90% lánin sín sem slógu út fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000. Sjálfstæðisflokkurinn er eins og hauslaus hæna sem boðar lækkun stýrivaxta á sama tíma og að maðurinn sem alltaf hefur rangt fyrir sér, a.m.k. alltaf þegar efnahagsmál ber á góma, sbr. jöklabréfin og styrk bankanna, og líka varðandi atvinnuleysistölur í kjölfar hrunsins. Tryggvi Þór Herbertsson segir að stjórnmálamenn eigi ekki að skipta sér af vaxtastiginu - sem þó er helsta kosningamál flokksins hans!
Það er helst að Vinstri grænir uni glaðir við sitt enda hefur farið fram ein mesta ríkisvæðing á atvinnutækjum einnar þjóðar ef frá eru taldar ríkisvæðingar sem fylgt hafa blóðugum byltingum.
Samfylkingin er með sitt eina mál á dagskrá, Evrópusambandið, þó að hér gangi þúsundir manna um án atvinnu, ríkissjóður sé galtómur og algjört kerfishrun blasi við. Flóttinn frá raunveruleikanum er að ræða Evrópusambandið í gríð og erg, það er engu líkara en að forystumenn telji að með því að setja umsóknareyðublað í póst hverfi öll vandamál þjóðarinnar eins og sjóðir bankanna skömmu fyrir októberhrun. Árni Páll, Björgvin og Katrín Júlíusdóttir tala reyndar svo flókið mál þegar Evrópuumræðan hitnar skil ég, saklaus sveitamaðurinn, varla hvað er í gangi en þykist merkja á látbragði þeirra að þau ræði öll heimsins gæði - að eigin mati.
Í dag var ég svo heppinn að fá tækifæri til að ræða við nokkra girðingarverktaka frá Borðeyri og það sem þeir höfðu áhyggjur af, og stjórnmálaklúbburinn hefur greinilega ekki, er hvernig á að fylla í 150 milljarða fjárlagagatið. Þeir voru nokkuð skotnir í því að fara yfir tillögur Frjálslynda flokksins um að veiða meiri fisk enda sætir tíðindum ef trilla sést við innanverðan Húnaflóa.
X-F
Evrópustefnan verði á hreinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2009 | 12:13
Meiri sáttatónn hjá útgerðarmönnum
Mér finnst ég skynja þann sáttatón hjá ýmsum útgerðarmönnum að þeir geri sér ljóst að núverandi kerfi gengur ekki lengur óbreytt. Að vísu hafa þær raddir ekki komið fram opinberlega af því að fréttamenn hafa einkum veitt athygli Binna í Vestmannaeyjum sem hefur haldið uppi gömlu harðlínunni um að kerfið eigi bara að haldast óbreytt.
Margir sjá að þjóðin mun ekki líða braskið áfram og stöðugur samdráttur í veiðum verður greininni mjög erfiður. Allt útlit er fyrir að ef ráðum Hafró verður fylgt verður niðurskurður í aflaheimildum mikill í ýsu og þorski. Það þýðir milljarðatap fyrir þjóðarbúið og ég veit um ýmislegt sem íslenska þjóðin vildi gera fyrir milljarðana sem við getum veitt úr hafdjúpunum. Dettur þér eitthvað í hug, hmm?
Mörgum útgerðarmanninum sem er annt um heimabyggð sína óar við þeirri ábyrgð sem hvílir á herðum hans hvað varðar framtíð byggða en vill engu að síður tryggja öruggan rekstrargrunn og arðsemi fyrirtækisins. Margur sér feigðina í því að girt sé fyrir nýliðun í atvinnugreininni.
Frjálslyndi flokkurinn hefur um árabil lagt fram lausnir til breytinga og gerir sér grein fyrir því að útvegsmenn og sjómenn þurfa að vera aðalleikararnir í því að koma þjóðinni út úr kreppunni.
19.4.2009 | 23:01
Grípum þorskinn meðan hann gefst - Vg gamaldags
Ég er í tengslum við fjölmarga sjómenn og þó nokkra útgerðarmenn. Allir hafa sömu söguna að segja að þeir séu á flótta undan þorski í leit að ýsu vegna þess að hve takmarkaður þorskkvóti hamlar veiðum. Þrátt fyrir framangreinda staðreynd þá reiknar Hafró enn einu sinni þorskstofninn langt fyrir neðan meðaltal en að vísu eitthvað örlítið stærri en þá botnmælingu sem gerð var í fyrra.
Steingrímur J. hefur þegar sagt að hann ætli að fylgja ráðgjöf Hafró í einu og öllu þó svo að kenningin um að veiða minna til að veiða meira seinna hafi hvergi gengið eftir. Ef að Vg lenda í ríkisstjórn og fara með sjávarútvegsmál, eru allar líkur til þess að þorskveiðar verði skornar niður frá því sem nú er, en heimilt er að veiða 160 þúsund tonn, þar sem ráðlögð veiði á yfirstandandi fiskveiðiári var einungis 130 þúsund tonn. Fastlega má búast við því að þorskveiðar verði einungis liðlega 140 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Það er nánast ekkert fjallað um að Hafró reiknar ýsustofninn fjórðungi minni nú en í fyrra sem mun að öllum líkindum leiða til þess að leyfileg ýsuveiði verði skorin niður um tugi þúsunda tonna með tilheyrandi milljarða tapi fyrir þjóðarbúið.
Frjálslyndi flokkurinn hefur enga trú á þessum reiknikúnstum Hafró og telur algerlega óábyrgt að veiða minna en 260 þúsund tonn enda er það talsvert minna magn en það sem var veitt fyrir daga kvótakerfisins.
Þessi yfirlýsing Steingríms J gefur til kynna hve Vg eru íhaldssamir og gamaldags. Flokkurinn er ekki tilbúinn að skoða gatslitna ráðgjöf upp á nýtt sem hvergi hefur gengið eftir í heiminum og það þrátt fyrir vel rökstudda gagnrýni. Það eitt að reiknað hefur verið út frá forsendum Hafró að hrefnan ein éti mun meira af þorski og ýsu en íslenskum sjómönnum er leyfilegt að veiða ætti að vekja venjulegt fólk til umhugsunar.
18.4.2009 | 11:45
9,3% stuðningur við Frjálslynda flokkinn í Norðvesturkjördæminu
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup mælist fylgi Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi 9,3% og er það sama fylgi og flokkurinn mældist mest með fyrir Alþingiskosningarnar 2003 og 2007.
Sem kunnugt er kemur flokkurinn alltaf betur út úr kosningum en niðurstöður skoðanakannana gefa til kynna. Miðað við þessa niðurstöðu er nokkuð öruggt að Guðjón Arnar Kristjánsson verði kjördæmakjörinn og ég gæti jafnvel búist við að fá nýja vinnu í næstu viku og að það endurtaki sig að flokkurinn fái uppbótarþingmenn í öðrum kjördæmum.
xF
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um könnunina geta slegið á þráðinn til Guðjóns Arnars í síma: 898 7727.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
18.4.2009 | 01:07
Hvers virði er mannorðið?
Sem kunnugt er þiggur Frjálslyndi flokkurinn ekki mútur. Margur ferðalangurinn sem hefur gert víðreist um Evrópu síðustu mánuði hefur orðið þess áþreifanlega var að mannorð landans er stórskaðað.
Í komandi kosningum verður án nokkurs efa tekið eftir því hvort að íslenskir kjósendur munu veita þeim flokkum brautargengi sem eiga mesta sök á hruninu og fjármálamisferlinu en það eru auðvitað Sjálfstæðis- Framsóknarflokkur og jú Samfylkingin sem hafa verið á spena fjárglæfrafyrirtækjanna.
Með því að greiða framangreindum flokkum atkvæði sitt þá eru kjósendur í og með að skrifa undir vafasöm vinnubrögð sem hafa rýrt orðstír þjóðarinnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2009 | 07:53
Stjórnmálaklúbburinn í algjörri afneitun
Í gærkvöldi var ég í þessu pallborði ásamt öðrum frambjóðendum allra stjórnmálaafla sem bjóða fram. Svo var að heyra á fjórflokknum, stjórnmálaklúbbnum, að talsverðir fjármunir væru í ríkiskassanum til að hækka námslán og auka framboð á hinum og þessum námsleiðum og öllu yrði forgangsraðað til að tryggja óbreytt eða betra ástand í menntakerfinu. Satt að segja var mér svolítið brugðið yfir því að þingmennirnir og formaður Framsóknarflokksins virtust ekki hafa kynnt sér að vaxtagreiðslur ríkisins í ár nema sjöföldum fjárframlögum til HÍ, bara þess eina háskóla. Allar líkur eru til þess að vextirnir einir saman verði talsvert hærri á næsta ári þegar skuldadagar Icesave renna upp.
Frjálslyndi flokkurinn hefur ítrekað bent á að það verði að fara í mikla tekjuöflun, stórauka fiskveiðar og taka upp samninga um lán, að öðrum kosti er dæmið óyfirstíganlegt. Hinir flokkarnir hafa talað um blandaða leið, niðurskurð og skattaaukningu - nema Sjálfstæðisflokkurinn sem vill ekki hækka skatta og hlýtur þá að boða enn meiri niðurskurð en aðrir. Tölum tæpitungulaust, sleppum innihaldslausum fagurgalanum.
Ef taka mætti mark á fulltrúum flokkanna á þessum fundi ætti ekki að skera af eina einustu krónu í menntakerfinu, frekar bæta í. Eðlilega finnst námsmönnum ljúft að heyra það - en hverjar verða efndirnar þegar reikningarnir hrúgast inn á næsta ári? Reyndar bætti fyrrum menntamálaráðherra því við að þetta ástand, að borga af hátt í tveggja þúsund milljarða skuldum, væri á að giska tveggja ára verkefni! Skorturinn á raunsæi er algjör. Fjórflokkurinn er í stórkostlegri afneitun eða hann lýgur vísvitandi að fólki. Eini flokkurinn utan Frjálslynda flokksins sem sagði að smjör drypi ekki af hverju strái á komandi árum var Borgarahreyfingin og mér fannst jafnvel Ástþór Magnússon hafa á köflum mun meiri jarðtengingu en stjórnmálaklúbburinn. Samfylkingin heldur að fólki efnahagstillögum sem samdar eru af fyrrum stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins sem var Icesave-fyrirsætan í fyrrasumar. Jóni til aðstoðar við samningu ritsins var enginn annar en Jón Þór Sturluson sem gerði lítið úr olíusamráðssvindlinu fyrir fáum árum. Og eru menn búnir að gleyma hvernig olíugarkarnir svínuðu á okkur?
Bjartsýni er góðra gjalda verð en hún verður að ganga í takt við raunsæið. Fyrst þarf að afla teknanna.
Háskólanám verði metið til jafns við vinnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2009 | 22:45
Stjórnmálaklúbburinn í algjörri afneitun
Í kvöld var ég í pallborði hjá stúdentum og framhaldsskólanemum ásamt frambjóðendum allra stjórnmálaafla sem bjóða fram. Svo var að heyra á fjórflokknum, stjórnmálaklúbbnum, að talsverðir fjármunir væru í ríkiskassanum til að hækka námslán og auka framboð á hinum og þessum námsleiðum og öllu yrði forgangsraðað til að tryggja óbreytt eða betra ástand í menntakerfinu. Satt að segja var mér svolítið brugðið yfir því að þingmennirnir og formaður Framsóknarflokksins virtust ekki hafa kynnt sér að vaxtagreiðslur ríkisins í ár nema sjöföldum fjárframlögum til HÍ, bara þess eina háskóla. Allar líkur eru til þess að vextirnir einir saman verði talsvert hærri á næsta ári þegar skuldadagar Icesave renna upp.
Frjálslyndi flokkurinn hefur ítrekað bent á að það verði að fara í mikla tekjuöflun, stórauka fiskveiðar og taka upp samninga um lán, að öðrum kosti er dæmið óyfirstíganlegt. Hinir flokkarnir hafa talað um blandaða leið, niðurskurð og skattaukningu - nema Sjálfstæðisflokkurinn sem vill ekki hækka skatta og hlýtur þá að boða enn meiri niðurskurð en aðrir.
Eitt er víst, ef mark mátti taka á fulltrúum flokkanna á þessum fundi átti ekki að skera af eina einustu krónu í menntakerfinu, frekar bæta í. Reyndar bætti fyrrum menntamálaráðherra því við að þetta ástand, að borga af hátt í tveggja þúsund milljarða skuldum, væri á að giska tveggja ára verkefni. Maður hlýtur að velta fyrir sér hvort fjórflokkurinn sé í svona stórkostlegri afneitun eða að ljúga vísvitandi að fólki. Eini flokkurinn utan Frjálslynda flokksins sem sagði að smjör drypi ekki af hverju strái á komandi árum var Borgarahreyfingin og mér fannst jafnvel Ástþór Magnússon hafa á köflum mun meiri jarðtengingu en stjórnmálaklúbburinn. Samfylkingin heldur að fólki efnahagstillögum sem samdar eru af fyrrum stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins sem var Icesave-fyrirsætan í fyrrasumar. Jóni þeim Sigurðssyni til aðstoðar við samningu ritsins var enginn annar en Jón Þór Sturluson sem gerði lítið úr olíusamráðssvindlinu fyrir fáum árum.
Bjartsýni er góðra gjalda verð en hún verður að ganga í takt við raunsæið.
16.4.2009 | 15:14
Steingrímur J. Sigfússon tvöfaldur
Frjálslyndi flokkurinn fagnar öllum breytingum á illræmdu kvótakerfi í frjálsræðisátt en það hlýtur að vekja upp spurningar hvers vegna Steingrímur J. boðar breytingu á kerfinu með því að segjasta ætla að leggja fram frumvarp þess efnis eftir kosningar.
Staðreyndin er sú getur hæglega opnað fyrir frjálsar handfæraveiðar með því einu að gefa út reglugerð. Það er engin ástæða til þess að binda veiðarnar við ákveðið magn þar sem þær fóru sjaldnast yfir 20 þúsund tonn fyrir daga kerfisins þegar frelsi til veiða ríkti.
Eftir hverju er verið að bíða?
Strandveiðar í stað byggðakvóta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Takk fyrir svarið, Sigurjón. Inga Sæland sagði í viðtali, "Við ... 23.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Flokkur fólksins var rétt skráður en lögum var síðan breytt got... 23.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Ég las eftirfarandi á Vísi.is: Skrifstofa Alþingis hefur staðf... 23.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Nei alls ekki það er ekki rétt hvernig færðu það út? 22.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Er það ekki rétt að Flokkur fólksins fékk peninga sem hann átti... 22.1.2025
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins: Ad hominem. Gerðu betur. 22.1.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 11
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 128
- Frá upphafi: 1020405
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 118
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007