Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011
26.6.2011 | 12:18
Frasar bankaráðherrans
Billegur og frasakenndur málflutningur Árna Páls Árnasonar er ótrúlega mótsagnakenndur og staðfestir algjöra vanhæfni ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Hann þykist hafa verið að þrýsta á fjármálafyrirtæki og beita þau hörðu, á sama tíma og upp komst að ráðherra sendi ráðuneytisfólk á fund þingnefndar með svör sem samin voru af umræddum fjármálafyrirtækjum. Málið sem var til umræðu var kostulegir endurútreikningar á ólöglegum lánum þar sem ríkisstjórnin dró taum fjármálafyrirtækja á kostnað almennra lántakenda.
Ráðherra bankamála hefur upp á síðkastið blandað sér umræðu um sjávarútvegsmál og er ástæðan mögulega sú að Árni Páll vill leiða talið frá vandræðagangi og spillingu í eigin málaflokki eða þá gefa Jóhönnu tilli ástæðu til að slá á frest breytingum á sjávarútvegskerfinu. Vandséð er að það sé nokkur meining á bak við fyrirheit Jóhönnu Sigurðardóttur um breytingar á kvótakerfinu frekar en afnám verðtryggingarinnar.
Annars er málflutningur málflutningur Árna Páls kostulegur en hann tíundar sögulegt mikilvægi Samfylkingarinnar við að koma á réttlátu Norrænu velferðarþjóðfélagi þar sem markaðslögmálin knýja verðmætaframleiðslu samfélagsins. Ráðherrann telur að vænlegasta leiðin til þess sé að viðhalda lokuðu kvótakerfi sem hvetur til sóunar og hefur fengið algjöra falleinkunn hjá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna!
Er hægt að taka eitthvað mark á Árna Páli?
22.6.2011 | 19:58
Hver er þessi Gunnar Haraldsson hagfræðingur OECD?
Margir furða sig á því hvers vegna í ósköpunum Efnahags og framfarastofnun Evrópu, OECD hafi stutt áframhaldandi mismunun og mannréttindabrot í undirstöðuatvinnugrein landsmanna og vitnað eingöngu í vitleysisútreikninga Daða Más Kristóferssonar og Ragnars Árnasonar. Eflaust er ástæðan fyrir því sú að einn af höfundum skýrslunnar er Gunnar Haraldsson hagfræðingur.
Gunnar Haraldsson fyrrum stjórnarformaður FME, var um áratugaskeið samverkamaður Ragnars Árnasonar prófessors og eiga þeir sameiginlega "heiðurinn" eða réttara sagt sökina á skýrslunni, Þjóðhagsleg áhrif alfareglunnar. Umrædd aflaregla er hornsteinn reiknisfiskifræðinnar sem gengur í megin dráttum út á að veiða minna, til að geta veitt meira seinna og veiða fast ákveðið hlutfall af veiðistofni. Frá því að aflareglan var tekin upp hefur botnfiskafli dregist saman frá því sem áður var. Þrátt fyrir gífurlegan samdrátt í veiðum þá er ekkert lát á því að fylgismenn reiknisfiskifræðinnar berji hausnum við steininn og haldi áfram að boða orðið sem gengur þvert á viðtekna vistfræði. Framangreind skýrsla um þjóðhagsleg áhrif alfareglunnar var engin undantekning á því. Í henni er því haldið fram að árangur hafi náðst, en herða þyrfti á niðurskurði á veiðum og hætta um skeið þorskveiðum. Það er engin spurning í mínum huga að umræddar aðferðir eru fyrir löngu fullreyndar enda ganga þær í berhögg við viðtekna líffræði. Þær munu einfaldlega ekki ganga upp.
Annars er merkilegt að fylgjast með framgöngu RÚV í umfjöllun um fiskveiðikafla í skýrslu OECD. Þáttarstjórnendum í Síðdegisþætti þjóðarútvarpsins fannst við hæfi, að fá hlutlæga og fræðilega umfjöllun hjá Friðriki Má Baldurssyni, prófessor við HR.
Í umfjöllun RÚV var sleppt að taka það fram að sá hlutlausi Friðrik Már Baldursson sat í þeirri nefnd sem ákvað að taka upp umrædda aflareglu, sem reynst hefur svo ákaflega illa. Hann var jafnframt fenginn sem varaformaður í nefnd sem hafði það að hlutverk að endurskoða eigin aflareglu, þegar ljóst var að vonir um aukinn afla höfðu brostið. Einnig var hlaupið yfir þá staðreynd að Friðrik Már Baldursson, stjórnarformaður Hafró, skrifaði vafasama skýrslu ásamt Portes sem kostuð var af hrunaliðinu. Niðurstaða skýrslunnar sem kom út skömmu fyrir algjört hrun fjármálakerfisins ,var sú að íslensku bankarnir stæðu traustum fótum! Þess ber að geta að á sama tíma og Friðrik Már skrifaði skýrsluna sem olli þjóðarbúinu ómældum skaða, þá gegndi hann stöðu prófessors við HÍ með fulltingi Kaupþings, eins og það var orðað.
Mér finnst sem að bitur reynslan ætti að kenna þjóðinni að nóg sé komið af því að hagfræðingar séu að reikna út vöxt og viðgang dýrastofna, jafnvel áratugi fram í tímann. Sömuleiðis þá er tímabært að fá til ráðgjafar aðra en þá sem hafa haft rangt fyrir sér.
Það er orðið tímabært að RÚV og aðrir fjölmiðlar hleypi að í umræðunni, gagnrýnum viðhorfum sem byggja á viðtekinni vistfræði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.6.2011 | 19:27
OECD: Ragnar Árnason segir kerfi Ragnars Árnasonar skili árangri
Margir landsmenn klóra sér í hausnum yfir því hver ástæðan sé fyrir því að OECD leggi mikla áherslu á að viðhalda óbreyttu kvótakerfi sem skilar stöðugt færri sporðum á land og brýtur í bága við mannréttindi! Illræmt kvótakerfið hefur; grafið undan búsetu í heilu landshlutunum, verið hvati til mikillar sóunar og skuldsetningar atvinnugreinarinnar.
Eftir að hafa rennt í gegnum skýrslu OECD þá kemur í ljós að helsta heimildin fyrir árangri kerfisins er höfundur reiknisfiskifræðilegra kenninganna sem unnið er með, prófessor Ragnar Árnason og lærisveinn hans Daði Már Kristófersson. Þeir hafa ítrekað verið fengnir í skýrslugerðir til vitnis um gildi og hagkvæmni kenninga Ragnars Árnasonar. Niðurstaða skýrslnanna er alltaf á sömu leið að kvótakerfið sé nánast fullkomið og er þá jafnan hlaupið yfir þá staðreynd að þorskaflinn sé einungis þriðjungurinn af því sem að hann var fyrir daga kvótakerfisins.
Í einu helsta "meistaraverki" Ragnars Árnasonar, skýrslan Þjóðhagsleg áhrif aflareglu sem kom út árið 2007, kom fram að hagkvæmast væri fyrir þjóðarbúið að hætta algerlega þorskveiðum árið 2008 og veiða síðan 20 þúsund tonn árið 2009. þess ber að geta að umrædd 20 þúsund tonn er einungis áttundi hluti þess sem veitt er nú af þorski. Í umræðu kom fram að hagfræðingarnir töldu þjóðarbúið stæði svo afskaplega vel ári fyrir hrun að óhætt væri að fara alla leið með þá fráleitu hugmyndafræði að veiða minna til að geta veitt meira seinna . Þessi ráðgjöf hafði alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarútveginn þar sem að Einar K. Guðfinnsson kokgleypti þessa dellu Ragnars og félaga og skar gríðarlega niður veiðiheimildir. Núna hefur Hafró staðfest hversu ófær þessi leið friðunar var, þar sem þorskurinn glímdi við mikinn ætisskort.
Flestir ættu að sjá og þar með talið OECD að Ragnar Árnason er ekki hæfur til að gefa eigin sköpunarverki einkunn.
Vilja óbreytt kvótakerfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
20.6.2011 | 11:25
Ofveiði kjaftæðið
Almenn skynsemi segir að fiskistofn sem glímir við viðvarandi fæðuskort geti ekki verið ofveiddur. Það rekst greinilega hvað á annars horn í ráðgjöf reiknisfiskifræðinnar, eins og komið hefur fram í fyrri "þáttum".
Það sætir furðu stjórnvöld taki ekki til endurskoðunar grunnforsendur fiskveiðistjórnunarkerfisins þegar augljóst er að dæmið gengur alls ekki upp. Stöðugt er klifað á því að veiða skuli minna til að hægt sé að veiða mun meira seinna en þetta seinna hefur ekki enn komið og enn er beðið!
Skýrsla hagfræðinganna um hagræn áhrif á frumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu er byggð á sandi barnalegrar reiknisfiskifræði. Á blaðsíður 15 á mynd R. 1. í skýrslunni, kemur fram sú trú að hægt sé reikna út ákveðna sókn þar sem bæði er hægt fá hámarks hagnað og jafnstöðuafla til framtíðar litið. Allir sem hafa eitthvað velt fyrir sér náttúrulegum sveiflum í villtum dýrastofnum ættu að sá að þetta er hrein og tær della. Ekki gengur vel að áætla stærð stofna sem ekki eru veiddir s.s. sandsílisins, geitungastofnsins, kríunnar og svona má lengi telja. Ekki er heldur á vísan að róa með laxveiði þó svo nokkuð sé vitað um fjölda gönguseiða og að laxinn sé ekki veiddur í sjó.
Það felast gríðarlegir möguleikar í því að taka kerfið til rækilegrar endurskoðunar.
Þorskurinn hefur minna að éta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.6.2011 | 22:27
Skýrsla hagfræðinganna sýnir berlega tjón núverandi kvótakerfis
Ekki verður sagt um þá hagfræðinga sem gerðu umtalaða úttekt á frumvarpi ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur á breytingum á kvótakerfinu, að þeir séu vandir að virðingu sinni, þegar kemur að umfjöllun um sjávarútvegsmál. Nýlega tók helmingur hópsins þátt í því að gera skýrslu sem mælti á móti því að frjáls markaður fengi að ráða fiskverði. Í stað þess var fundinn furðulegur rökstuðningur í löngu máli fyrir tvöfaldri verðlagningu, þar sem ákveðnum aðilum var gefinn kostur á að fá fiskinn inn til vinnslu á tugum prósenta lægra verði en samkeppnisaðilum! Umrædd skýrsla er Háskóla Íslands til háborinnar skammar og verður örugglega skýrð þegar fram líða stundir sem ein af eftirhretum hrunsins.
Núna hefur nánast sami hópur hagfræðinga skilað af sér nýrri skýrslu þar sem þeir vitna bæði mikið og oft í sjálfa sig og sömuleiðis æðsta prest reiknisfiskihagfræðinnar Ragnar Árnason og hlaupið yfir alla hagfræðilega gagnrýni. Helsta niðurstaða hópsins var að ekki mætti hrófla við kerfinu sem brýtur í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna!
Engu að síður þá kemur fram í skýrslunni að viðurkennt er að brottkast sé viðvarandi vandamál og að botnfiskafli hafi dregist gífurlega saman frá því að kvótakerfið var tekið upp. Eitt af höfuðmarkmiðum kerfisins var að tryggja stöðugan 550 þúsund tonna þorskaafla en nú er svo komið að samanlagður botnfiskafli allra tegunda er vel á annað hundrað þúsund tonnum minni afli en áætlað var að þorskstofninn einn myndi standa undir!
Kerfið er hefur greinilega brugðist og er þess að vænta að rannsóknarblaðamenn sýni þessari staðreynd athygli og þá sérstaklega blaðamenn Morgunblaðsins sem sýnt hafa málefnum sjávarútvegsins verðskuldaðan áhuga. Að vísu hefur umfjöllun Morgunblaðsins verið litaðaður af skammtíma sjónarmiðum eigenda sinna en til lengri tíma litið er forsenda þess að árangur náist í greininni að taka til endurskoðunar grunnforsendur kvótakerfisins, sem greinilega eru ekki að ganga upp.
Frumvarpið fær falleinkunn" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2011 | 12:19
Skemmdarverkið á Stöðvarfirði
Í sjónvarpsþættinum Landanum á RÚV í gærkvöldi var umfjöllun um nokkra listamenn sem létu sig dreyma um að aflagt fyrstihús á Stöðvarfirði, yrði að alþjóðlegum vinnubúðum listamanna og miðstöð hönnunar og skapandi hugsunar. Umrætt frystihús var í fullum rekstri þar til fyrir örfáum árum en Samherji ákvað að hætta vinnslu þar þrátt fyrir fögur fyrirheit um að efla ætti alla starfemi.
Þegar húsnæðinu var lokað þá voru öll tæki og tól rifin með þeim hætti út úr húsnæðinu að nánast var útilokað fyrir nýja aðila að hefja fiskvinnslu á ný. Á máli listamannanna í Landanum mátti vel greina undrun á slæmu ástandi húsnæðisins - en þær eiga sínar skýringar.
Umhugsunarvert er að þeir sem skildu svona við Stöðvarfjörð eru sömu aðilar sem gera hróp að örlitlum breytingum á kvótakerfinu sem opna á mjög takmarkaðar handfæraveiðar, og kalla breytingarnar skemmdarverk!
10.6.2011 | 22:40
Nefnd sem rannsakar sjálfa sig skilar skýrslu
Ekki er öll vitleysan eins!
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra varð þess áskynja að mikil vantrú hefur verið á líffræðilegan grundvöll aflareglu sem kveður á um leyfilegan heildarafla. Ástæðan fyrir efasemdunum er einföld dæmið hefur ekki verið að ganga upp. Markmiðið var í upphafi að skila á land 550 þúsund tonna jafnstöðuafla en frá því að "reglan" var tekin upp hefur aflinn sveiflast í kringum það sem þorskaflinn var þegar landið var ekki orðið fullvalda og það sem frumstæður floti skilaði á árum fyrri heimstyrjaldarinnar. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra ákvað því að láta rannsaka aflaregluna og fannst handhægast að fá í verkið þá sem komu að gerð aflareglunnar. Niðurstaðan var því eins og við var að búast við. Aflareglan var talin lofa góðu!
Hvar í heiminum skyldu önnur eins vinnubrögð vera tíðkuð?
Annars er skýrslan sem skilað var til ráðherra furðulegt og ruglingslegt plagg sem má vel brosa að. Skýrsluhöfundar telja að orsök víðtækrar vantrúar á aflaregluna sé ekki algjört árangursleysi hennar, heldur skortur á samráði og kynningu aflareglunni. Engu að síður var ekkert samráð haft við þá sem hafa gagnrýnt vinnubrögðin og það sem meira er engin töluleg gögn eru birt um hvernig meintur árangur sé metinn.
Fyrir mig sem fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar kemur óþægilega á óvart að sjá rektor Hólaskóla taka þátt í jafn óvönduðum vinnubrögðum sem bitna mjög harkalega á Skagfirðingum. Við það eitt auka verulega veiðar þá myndi það samstundis leiða til aukinna tekna sjómanna, tekjuauka fyrir höfnina og bæta afkomu sveitarsjóðs. Í stað þess að vera í erfiðum hagræðingar og niðurskurðarverkum, þá gæfu auknar tekjur kost á eðlilegri uppbyggingu og niðurgreiðslu skulda Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2011 | 17:58
Furðulega einhliða umfjöllun
Það er merkilegur fjandi að ekki eru fengin fram gagnrýnin sjónarmið náttúrufræðinga á mjög svo umdeilda fiskveiðiráðgjöf. Á sama tíma eru fjölmiðlar kjaftfullir af hagfræðingum að blaðra um efnahagsleg áhrif fiskveiðiráðgjafarinnar.
Þeir fiskifræðingar og líffræðingar sem hafa leyft sér að kasta opinberlega rýrð á ráðgjöf sem skilar stöðugt færri sporðum land, hafa verið settir til hliðar í umræðunni. Þeirri aðferð er gjarnan beitt að fræðilegri gagnrýni er látin ósvarað og jafnvel látið í veðri vaka að um séu að ræða einhverjar öfgar eða vitleysa.
Einn þeirra sem hefur mátt sætta þessari meðferð er Jón Kristjánsson fiskifræðingur sem hefur á síðustu áratugum haldið fram málefnalegri gagnrýni á ráðgjöf reiknisfiskifræðinnar sem hafði það upphaflega markmið að skila árlega 550 þúsund tonna þorskafla. Ráðgjöfin nú hljóðar upp á 177 þúsund tonna þorskafla á næsta ári, sem er talsvert minni afli en veiddist árið 1914! Furðulegt er að hlusta á reiknisfiskifræðingana fullyrða um sé að ræða einhvern árang, af vel lukkaðri nýtingarstefnu- Maður hlýtur að spyrja hvaða merkingu hugtakið árangursleysi hafi í kolli þeirra sem halda framangreindum öfugmælum óhikað fram.
Reynslan hefur sýnt að Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur haft rétt fyrir sér eins og sjá má á þessu viðtali sem tekið við hann fyrir 10 árum.
420 milljóna samdráttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2011 | 00:36
Hver bað Helga Áss Grétarsson að gefa álit í nafni Háskóla Íslands?
Háskóli Íslands hefur ekki enn gert upp við ábyrgð sína, í aðdraganda hrunsins. Kostaðir hagfræðingar Háskólans poppuðu upp góða stemningu fyrir skuldsettri útrás og slegið var markvisst á alla gagnrýni í samfélaginu. Vissulega heyrðust nokkrar gagnrýnisraddir úr Háskólanum m.a. rökstuddur málflutningur Þorsteins Gylfasonar sem varaði mjög við skuldsetningu þjóðarbúsins. Málflutningur Þorsteins varð hjáróma í lofsöngnum sem barst af Melunum enda tóku margir þátt í fjöldasöngnum. Sigur skuldsettrar útrásar jafnvel notaður í kosningabaráttu stúdenta og rektor batt vonir við að glópagullið myndi fleyta Háskólanum upp í að verða einn af hundrað bestu háskólum heimsins.
Þessi saga er verðugt rannsóknar efni og ekki síður hvernig Háskóli Íslands streitist enn á móti því að breyta brengluðum starfsháttum.
Nú berast fréttir af því að einn af kostuðum sérfræðingum Háskóla Íslands, Helgi Áss Grétarsson hafi sent Alþingi umsögn um frumvarp um breytingu á kvótakerfi sem skilar stöðugt færri sporðum á land og er nú svo komið að botnfiskaflinn er helmingurinn af því sem að hann var fyrir tveimur áratugum. Í umsögn sinni segir "sérfræðingurinn" að hann hafi rýnt í efni flestra lagafrumvarpa sem borin hafa verið upp á hinu háa Alþingi frá árinu 1976. Niðurstaða sérfræðings Háskóla Íslands var að frumvörpin sem lögð hafa verið fram á umræddu tímabili hafi verið allt frá því að vera óvönduð til þess að vera til hreinnar fyrirmyndir í lagasmíð.
Í umfjöllun sinni hleypur lögspekingurinn yfir þá staðreynd að fiskveiðilöggjöfin hefur fengið algjöra falleinkunn hjá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna og sömuleiðis að lýðveldið Ísland sé skuldbundið til þess að hlíta þeim úrskurði. Í stað þess þá gerir hinn vandaði lagatæknir veigamiklar athugasemdir við þær greinar frumvarpsins sem mögulega geta tryggt jafnræði borgaranna!
Það er eitthvað meira en lítið að í Háskóla Íslands.
Gerir alvarlega athugasemdir við litla frumvarpið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2011 | 17:02
Hver fékk prófessorinn til að halda ræðu?
Fáir hafa veitt íslenskum sjávarútvegi jafn djúp sár og Ragnar Árnason prófessor í Fiskihagfræði. Hann hefur verið helsti boðberi þess að öll fiskimið hringinn í kringum landið séu meðhöndluð eins og eitt mengi sem hægt sé að selja sneið úr, leigja og jafnvel veðsetja. Sömuleiðis hefur hann boðað þá furðulegu kenningu að með því að veiða minna á þá sé hægt að veiða meira seinna. Það er auðvitað eins og hver önnur fjarstæða og hefur ekki gengið upp á Íslandsmiðum þau ár sem sú stefna hefur verið reynd, ekki frekar en annar staðar í víðri veröld.
Skömmu fyrir hrun boðaði Ragnar Árnason að hagkvæmast væri fyrir þjóðina að hætta þorskveiðum til þess að hægt yrði að veiða miklu meira seinna. Glámskyggni "fræðimaðurinn" taldi ári fyrir hrun að þá væri lag til þess að leggja af veiðar og leyfa stofninum að "byggjast upp" vegna þess hve hagur þjóðarinnar stóð traustum fótum.
Hvað rugl er þetta að nokkrum árum eftir hrun sé Ragnar enn að leggja þjóðinni lífsreglurnar og fullyrða að hvítt sé svart og svart sé hvítt. Það hlýtur hver maður að sjá að kvótakerfið er ekki að ganga upp en þorskaflinn er þriðjungur þess sem að hann var fyrir daga kvótakerfisins !
Hver ætli hafi staðið fyrir því að Ragnar Árnason hafi verið fenginn til að ávarpa Reykvíkínga á sjómannadaginn?
Atlaga að sjávarútvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 1014400
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007