Leita í fréttum mbl.is

OECD: Ragnar Árnason segir kerfi Ragnars Árnasonar skili árangri

Margir landsmenn klóra sér í hausnum yfir því hver ástæðan sé fyrir því að OECD leggi mikla áherslu á að viðhalda óbreyttu kvótakerfi sem skilar stöðugt færri sporðum á land og brýtur í bága við mannréttindi! Illræmt kvótakerfið hefur; grafið undan búsetu í heilu landshlutunum, verið hvati til mikillar sóunar og skuldsetningar atvinnugreinarinnar.

Eftir að hafa rennt í gegnum skýrslu OECD þá kemur í ljós að helsta heimildin fyrir árangri kerfisins er höfundur reiknisfiskifræðilegra kenninganna sem unnið er með, prófessor Ragnar Árnason og lærisveinn hans Daði Már Kristófersson.  Þeir hafa ítrekað verið fengnir í skýrslugerðir til vitnis um gildi og hagkvæmni kenninga Ragnars Árnasonar.  Niðurstaða skýrslnanna er alltaf á sömu leið að kvótakerfið sé nánast fullkomið og er þá jafnan hlaupið yfir þá staðreynd að þorskaflinn sé einungis þriðjungurinn af því sem að hann var fyrir daga kvótakerfisins.

Í einu helsta "meistaraverki" Ragnars Árnasonar, skýrslan Þjóðhagsleg áhrif aflareglu sem kom út árið 2007, kom fram að hagkvæmast væri fyrir þjóðarbúið að hætta algerlega þorskveiðum árið 2008 og veiða síðan 20 þúsund tonn árið 2009.  þess ber að geta að umrædd 20 þúsund tonn er einungis áttundi hluti þess sem veitt er nú af þorski.  Í umræðu kom fram að hagfræðingarnir töldu þjóðarbúið stæði svo afskaplega vel ári fyrir hrun að óhætt væri að fara alla leið með þá fráleitu hugmyndafræði að veiða minna til að geta veitt meira seinna .  Þessi ráðgjöf hafði alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarútveginn þar sem að Einar K. Guðfinnsson kokgleypti þessa dellu Ragnars og félaga og skar gríðarlega niður veiðiheimildir.  Núna hefur Hafró staðfest hversu ófær þessi leið friðunar var, þar sem þorskurinn glímdi við mikinn ætisskort. 

Flestir ættu að sjá og þar með talið OECD að Ragnar Árnason er ekki hæfur til að gefa eigin sköpunarverki einkunn.

 


mbl.is Vilja óbreytt kvótakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki að sjá að OECD-menn hafi lagt MIKLA vinnu í að kynna sér kerfið, heldur látið sér nægja áróður frá LÍÚ-mafíunni.............

Jóhann Elíasson, 21.6.2011 kl. 20:16

2 identicon

Sæll Sigurjón,

geturðu bent á heimildir fyrir þessu og hvar þetta kemur fram í skýrslunni?

Agnar Kr. Þorsteinsson (IP-tala skráð) 21.6.2011 kl. 20:47

3 identicon

Maður gaf sér eiginlega að þessu væri einhvernveginn svona varið, þótt maður nennti ekki að gera það sem Sigurjón formaður er búinn að gera.

Bensi (IP-tala skráð) 21.6.2011 kl. 20:57

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sigurjón. Þetta er þá skýringin. Ég vissi ekki að þessi Ragnar Árnason einhver prófessor, hefði verið potturinn og pannan í að skálda þetta bull. En ég sá að þetta álit OECD á fiskveiðikvótanum stangaðist 100% á við raunveruleikann á Íslandi.

Hér er fiski kastað í sjóinn í tonnavís, og önnur eins mörg tonn veidd til "rannsóknar" og tölur falsaðar til að viðhalda vægast sagt tortímandi fiskveiðistjórn. Svo þegar búið er að láta þessa þekkingarlausu yfirborguðu prófessora/embættismenn tortíma með lygum og fölskum upplýsingum, þorskveiðistofninum og öðrum tegundum í hafinu, ásamt atvinnulífinu og lífskylirðum fólksins, þá segja þeir bless, og fara með allan hagnaðinn og bankana aftur í skattaskjól. Hvað ætlum við að gera þá?

Þegar maður hefur fylgist með í dálítinn tíma, hvernig umsögn/mat þessara erlendu og innlendu raunveruleika-firrtu prófessora/embættismanna/ráðamanna og framkvæmdir tvinnast saman, þá er greinilegt að skipulagður þjófnaðurinn hjá þeim fær að ganga hindrunarlaust fyrir sig. Ráðamenn/konur þjóðarinnar beita sér ekki, af einhverjum ástæðum, fyrir því að stoppa ruglið, og bjarga því sem bjargað verður af verðmætum í sjónum.

Og afleiðingarnar eru síst skárri en afleiðingar Icesave-klúðursins, og mun kosta okkur miklu meir, en ef við hefðum samþykkt Icesave-ránið.

Næst vilja OECD ræningja-ráðgjafarnir að við tökum upp hálf-hrunda og verðlitla Evru sem fyrst, til að við verðum tryggilega föst í fátækranetinu, og getum ekki bjargað okkur með gjaldmiðil eigin þjóðarverðmæta.

Hvort ætli það verði svo orkan eða vatnið næst? Þetta er allt löngu planað af sjúkum auðmönnum alheimsmafíunnar, og allir eru þægir og góðir og gera eins og böðlar í prófessors-gervi ráðleggja (fyrirskipa)?  

Nú er farið að skipuleggja afnám gjaldeyrishaftanna, svo hægt sé að flytja ránsfeng númer 2 úr bönkunum og í skattaskjól erlendis. Varla trúir því nokkur maður að gjaldeyrishöftin verði afnumin fyrir almenning á Íslandi? Ekki á meðan AGS-ESB-mafíukóngarnir ráða hér í gegnum blinda íslenska prófessora og embættismenn!

Lengi getur vont versnað, og allt sem ráðlagt er um fiskveiðar, er gert með hagnað heimsmafíu-kónga í huga, en ekki almennings á Íslandi.

Bendi á síðuna hans Jóhannesar Björns Lúðvíkssonar: vald.org.

Skipulag næsta bankaráns-hruns gengur eftir áætlun heims-mafíunnar, og allir gera eins og þeim er sagt, þótt raunveruleikinn bendi til að hér verði allt banka-kerfið látið hrynja aftur bráðlega. Verði ráðamönnum og okkur öllum þá að góðu, ef við gerum ekki eitthvað núna til að stoppa vitleysuna.

M.b.kv.  

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.6.2011 kl. 21:11

5 identicon

Það toppar þetta nú alveg, ef íslenskir skattgreiðendur eru að borga þessum Ragnari laun fyrir þetta rugl.

Jón Ólafs (IP-tala skráð) 21.6.2011 kl. 21:56

6 identicon

Gott kvöld Sigurjón.

Ég sló á þessa skýrslu sem telur nær 100 bls. Viltu gefa mér upp blaðsíðutalið þar sem Ragnar leggur til 20,000 tonnin 2008 og líka ráðgjöf um engan afla 2008. Langar að sjá þetta svart á hvítu.

Með þakklæti, Vilhj

Vilhjálmur Jónsson (IP-tala skráð) 21.6.2011 kl. 22:18

7 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Aggi,

ef þú lest kafla 4 í skýrslunni sérðu vitnað í Arnason/Kristoferson.

Gunnar Skúli Ármannsson, 21.6.2011 kl. 23:35

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Vilhjálmur, það er á bls. 33 í umræðu um hagkvæma aflareglu í skýrslunni um þjóðhagsleg áhrif aflareglu frá árinu 2007.

Agnar Kr. Þorsteinsson, ef þú flettir skýrslu OECD þá sérðu að ítrekað er vitnað í Arnason og Kristofersson. þ.e. þá Ragnar og Daða Má.

 Sá sem tekur saman skýrsluna um þjóðhagsleg áhrif aflareglunnar þ.e. Gunnar Haraldsson fyrrverandi forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands er einn af höfundum OECD skýrslunnar sem hér er til umræðu.

Gunnar skiptir um hatt og gefur dellunni sinni, Ragnars og Daða Más topp einkunn frá OECD.  Þetta er auðvitað ekkert annað en skandall.

Mér finnst sem það sé nóg komið af dellunni frá þessum drengjum. 

Sigurjón Þórðarson, 21.6.2011 kl. 23:55

9 identicon

Ertu búinn að kvarta yfir þessu við yfirmenn OECD?

Einar (IP-tala skráð) 22.6.2011 kl. 02:48

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Einar, nei ég er ekki búinn að því enn. Mér finnst eðlilegt að yfirmenn OECD verði látnir vita af þessari misnotkun.

Sigurjón Þórðarson, 22.6.2011 kl. 08:21

11 Smámynd: Haraldur Baldursson

Texti skýrslunnar :

"Mynd 2.4 sýnir glögglega að samkvæmt hagkvæmri aflareglu er þorskveiðunum nánast lokað

fyrstu tvö árin ― algerlega lokað árið 2008 og aflamark einungis um 20 þús. tn. árið 2009.

Eftir það er afli yfir 300 þús. tn. til frambúðar. Þetta er gert til að byggja veiðistofninn upp

sem hraðast. Samkvæmt gildandi aflareglu er hins vegar ekki um neina stórkostlega afladýfu

að ræða, nema e.t.v. á fyrsta ári. Það tekur hins vegar sjö ár að ná aflanum upp í 300 þús. tn."

Er nánast ævintýralega skemmtilega skrifborðs-legur. Að því marki að þarna er setið við skrifborðið og horft á dæmið út frá stærðfræðimódeli....sem þó tekur ekkert tillit til þess að þorskurinn er ekki stak í óhreyfanlegu mengi...en RÁ, góður sem hann annars kann að vera, gengur og þröngan veg einföldunarinnar....

Haraldur Baldursson, 22.6.2011 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband