Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
29.5.2010 | 01:13
Byggjum á traustum grunni
Fjórflokkurinn leggur á borð fyrir kjósendur langa margendurunna óskalista þar sem stefnt er að margra milljarða byggingum en skilaboð Frjálslyndra eru einföld og skýr. Í fyrsta lagi munu Frjálslynd og óháð tala hátt og snjallt fyrir hagsmunum Skagafjarðar. Á tímum minnkandi ríkisútgjalda mega sveitarstjórnarfulltrúar búast við að harðsóttara verði að verja fjárframlög til mikilvægra stofnana í Skagafirði, s.s. Heilbrigðisstofnunarinnar, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Háskólans á Hólum, Vegagerðarinnar og Veiðimálastofnunar. Það er gríðarlega mikilvægt að sveitarstjórnin skynji hlutverk sitt og vinni samhent að því að verja af hörku sameiginlega hagsmuni og störf.
Í öðru lagi munu Frjálslynd og óháð ná jafnvægi í fjárhag sveitarfélagsins áður en ráðist verður í stórframkvæmdir. Við viljum gera það í samvinnu við stjórnendur og íbúa sveitarfélagsins. Aukinn skilningur er á því að vísasta leiðin til að tryggja uppbyggingu og opinber störf sé að bæta rekstur sveitarfélagsins og treysta fjárhagslegan grunn.
Tækifærin í Skagafirði til leiks og starfa eru óþrjótandi. Atvinnulíf er fjölbreytt. Má nefna öflugan landbúnað, sjávarútveg, fiskeldi og ferðaþjónustu, auk margvíslega stofnana og fræðslusetra sem fyrr var getið um. Skagafjörðurinn skartar blómlegum Sauðárkróki, búsældarlegum sveitum frá Fljótum í norðri og fram til dala og fallegu þéttbýli, Hofsósi, Hólum og Varmahlíð. Mikil áskorun og tækifæri felast í því að samræma og móta stefnu fyrir dreifbýlan og víðfeðman Skagfjörð.
Augljóst er að hægt er að efla ferðaþjónustuna með aukinni samvinnu og bættri aðkomu og upplýsingum þegar komið er inn í Skagfjörðinn.
Frumforsenda þess að sveitarfélagið verði kröftugt leiðandi afl til framfara og samvinnu er að það standi á traustum fjárhagslegum grunni.
Í Skagafirði eru svo sannarlega tækifærin og það er kjósenda að velja fulltrúa Skagfirðinga til varnar og sóknar fyrir hagsmuni sína þann 29. maí næstkomandi.
23.5.2010 | 23:12
Skinhelgi Vinstri grænna
Skinhelgi Vinstri grænna á sér fá takmörk. Vg sagðist ætla að: tryggja eignarhald auðlinda, vera utan ESB og á móti AGS. Flokkurinn hefur algerlega snúið við blaðinu og selt orkuauðlindir þjóðarinnar, sótt um aðild ESB og er orðinn bandingi AGS.
Íslenskufræðingurinn og menntamálaráðherrann Katrín Jakobsdóttir sem þóttist ætla að beita sér fyrir gagnsærri stjórnsýslu, hefur ekki enn haft fyrir því að þýða viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem er grundvallarplagg fyrir framtíð landsins. Í plagginu kemur fram hvað AGS vilji að ríkisstjórnin geri og get ég ekki séð annað en að Steingrímur J sé farinn sinna skítverkum sjóðsins.
Óskiljanlegt er að flokksmenn Vg vilji binda trúss sitt við sjóðinn í stað þess að fara að ráðleggingum hagfræðingsins Lilju Mósesdóttur sem sér að leið AGS er ófæra.
21.5.2010 | 10:10
Feykir í Skagafirði
Ekki má vanmeta jákvæða fréttamennsku sem sneiðir hjá viðkvæmum málum þar sem hún eflir dug og þor íbúa. Við getum verið ánægð með mjög margt í Skagafirði og mættum að ósekju vera hreyknari og auglýsa betur einstaka kosti svæðisins. Einn þeirra er Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki sem er einstaklega vel í sveit settur til þess að kenna náttúrufræði. Þá kemur upp í huga minn samanburður við minn gamla skóla, Menntaskólann í Reykjavík. Í FNV eru nokkrir metrar í Sauðána, hann er í göngufæri við Áshildarholtsvatn og auðvelt má nálgast fisk og líffæri úr sláturdýrum. Auk þess er hér stutt í sérfræðinga á Náttúrustofunni og Háskólanum á Hólum. Í Reykjavíkinni, eins góð og hún er, eru framangreinda kostir fjær og fjarlægari í alla staði.
Aðsendar greinar eru síðan mjög mikilvægur vettvangur fyrir tjáningarfrelsið og skarpari skoðanaskipti sem ritstjórn Feykis blandar sér hæfilega mikið í. Mér finnst rétt að hrósa ritstjórninni fyrir að gæta þess sérstaklega að jafnræði ríki hjá framboðum til sveitarstjórnar við að koma greinum áleiðis til lesenda blaðsins. Það er óhætt að segja að farið sé vel með fjórða valdið, fjölmiðlavaldið, í aðdraganda kosninga hér í Skagafirði.
Frjálslynd og óháð í Skagafirði hafa sett sér það stefnumið að efla Skagafjörð með nánari samvinnu við góða granna í austri og vestri. Augljóst er að aukin samvinna á ýmsum sviðum, s.s. ferðamennsku, kynningarstarfi og skólamálum, getur aukið ábata og styrkt Norðurland vestra. Hafa ber hugfast að góður staðbundinn fjölmiðill gefur samfélaginu ákveðin sóknarfæri sem rétt er að huga að.
20.5.2010 | 16:21
Jón Gnarr og Steingrímur J.
Margur þykist sjá að Jón Gnarr hafi haft Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra sem fyrirmynd persónusköpun sinni á Georgi Bjarnfreðarsyni í drepfyndnum sjónvarpsþáttum Fangavaktarinnar.
Það er ekki einungis ýmislegt í fasi þeira Georgs og Steingríms J sem er líkt heldur sömuleiðis að þá gilda órjúfanleg og óvíkjanleg lögmál um alla aðra nema þá sjálfa.
Steingrími J. hefði nær örugglega verið trylltur í þingsal þ.e. í stjórnarandstöðu út í fjármálaráðherra, sem vildi greiða Icesave, lúta stjórn AGS, skipa kúlánalið í áhrifastöður, selja orkuauðlindir til útlendinga og sækja um aðild að ESB í þokkabót.
Ég er viss um að sigrar Jóns Gnarrs í skoðanakönnunum megi ekki síður rekja til furðulegs viðsnúnings fjármálaráðherra í flestum málum en farsans í borgarstjórninni á kjörtímabilinu.
Flest er á huldu hvað varðar raunveruleg stefnumið Jóns Gnarrs og nokkuð erfitt að átta sig á því hvað er grín og hvað alvara, þó svo að hann hafi verið tíður gestur í stofum landsmanna að tjá lífsskoðanir sínar.
Í dag hefur blossað upp sá ótti meða Vg-liða að Jón sé Sjalli en ég tel ekki síður að þeir Vinstri grænu ættu ekki síður að óttast að Jón breyttist í Steingrím J..
18.5.2010 | 20:32
Orkusölumennirnir í Vinstri grænum
Steingrímur J. lét í Kastljósi kvöldsins eins og hann vissi lítið af og væri í þokkabót alfarið á móti sölunni á HS til Magma Energy.
Meint fáfræði Steingríms J. um söluna verður að teljast harla ólíkleg, sértaklega í ljósi þess að fyrir rétt rúmum mánuði síðan voru orkubraskarar frá Magma Energy og AGS á ferð með viðskiptaráðherra að ræða endurskoðun efnahagsáætlunar AGS fyrir landið.
Það má að líkum ráða að salan á HS sé í beinu framhaldi af bústjórn AGS.
Vill banna fjárfestingar erlendra aðila í orkufyrirtækjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.5.2010 | 13:45
Hundrað milljarða spurningin
Ólíklegustu leiðir hafa verið kannaðar eins og að framan greinir til þess að ná jafnvægi í opinberan rekstur en samt sem áður hefur algerlega verið hlaupið yfir þá spurningu hvort vert sé að ná meiri fiskafla úr hafinu sem gæti gefið þjóðinni tug ef ekki hundrað milljarða tekjur árlega. Óumdeilt er að upphafleg markmið núverandi fiskveiðiráðgjafar sem hefur gengið út á að geyma fiskinn í sjónum hefur alls ekki gengið upp.
Vísindalegar forsendur ráðgjafarinnar eru vægast sagt umdeildar, bæði meðal líffræðinga og sjómanna, en samt hefur ríkisstjórnin ekki varið einni krónu í að fara yfir vel rökstudda og málefnalega gagnrýni. Það er ljóst að ef efasemdamenn um ráðgjöf sem ekki hefur gengið upp hafa rétt fyrir sér myndi það skila þjóðinni milljarða gjaldeyristekjum. Oft var þörf en nú er nauðsyn.
Fyrir þá sem trúa í blindni á að veiðar mannsins stjórni í einu og öllu lífkeðjunni í hafinu er gott að hafa á bak við eyrað að sjófuglar, hvalir og selir taka tugfalt meiri næringu úr hafinu en maðurinn. Fiskarnir sjálfir eru miklu stærri lífmassi en framangreind dýr sem þurfa að næra sig. Oft er á matseðlinum hjá þeim smærri fiskur sem leiðir til að vöxtur og viðgangur þeirra sjálfra hlýtur að hafa úrslitaáhrif á stofnstærðarsveiflur.
Út frá framangreindum staðreyndum er út í hött að ætla að kenna veiðum um allar breytingar á stofnstærð fiska, sérstaklega í ljósi þess að hver og einn fiskur getur átt mergð afkvæma.
Og hundrað milljarða spurningin er: Er ekki tímabært að leita svara við öllum spurningum sem geta rétt hag þjóðarinnar, jafnvel þótt það kosti skotsilfur?
15.5.2010 | 21:48
Verður að leita til alþjóðastofnanna?
Ísland hefur orðið fyrir miklum áföllum vegna samkrulls spilltrar stjórnmálastéttar og fjárglæframanna. Nú í kjölfar rannsóknarskýrslu Alþingis hefði maður haldið að stjórnmálamenn sem viðriðnir voru hrunið skiptu um takt og leituðust við að vanda vinnubrögð sín sem aldrei fyrr.
Ekki er því að heilsa þegar borgarstjórinn Hanna Birna Kristjánsdóttir fer ekki að áliti æðra stjórnvalds frá því 4. febrúar og dregur að greiða fjárframlög til Frjálslynda flokksins í samræmi við álitið.
Ljóst er að sanngjarnar lýðræðislegar leikreglur standa völtum fótum þegar stjórnmálamenn beita grímulausum bolabrögðum í aðdraganda kosninga.
Mér finnst vera orðið fullt tilefni til þess að benda alþjóðastofnunum s.s. Evrópuráðinu á ástand mála en vinnubrögð Reykjavíkurborgar eru hvorki í samræmi við úrskurð sveitarstjórnarráðuneytisins né ráðleggingar ráðherranefndar Evrópuráðsins.
14.5.2010 | 18:21
Hanna Birna Kristjánsdóttir var samverkamaður Kjartans Gunnarssonar
Sumir hafa furðað sig á ósvífinni valdníðslu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur með því að kom í veg fyrir að Frjálslynda flokknum berist fjárframlög.
Til að átta sig á ólýðræðislegum og spilltum vinnubrögðum Hönnu Birnu borgarstjóra, er rétt að rifja það upp að hún var samverkamaður Kjartans Gunnarssonar fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Kjartan Gunnarsson var innsti koppur í búri einkavinavæðingarinnar og spillingarinnar sem orsakið hrun íslensks fjármálalífs. Hanna Birna var sérstakur aðstoðarmaður Kjartans Gunnarssonar, sem bendlaður er við vafasama styrki frá útrásarhyskinu. Fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins benti strax á það árið 2006 að Kjartan Gunnarsson og samverkamenn hans hefðu rænt Landsbankann. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur staðfest að ekkert var ofsagt um siðlaus myrkraverkin í Landsbankanum sem hafa haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Íslendinga og skaðað orðspor þjóðarinnar.
Eflaust hræðist Hanna Birna mjög það stefnumið Frjálslynda flokksins í Reykjavík að það fari fram opinber rannsókn stjórnsýslu Reykjavíkur einkum í tengslum við Orkuveitu Reykjavíkur.
14.5.2010 | 09:31
Þriðji geirinn í Skagafirði
Vitað er að Sveitarfélagið Skagafjörður situr ekki á digrum peningasjóðum en á hinn bóginn býr Skagafjörður yfir mikilli auðlegð sem felst ekki einungis í náttúruauðlindum og fegurð heldur gífurlegum félagsauði sem hægt væri að virkja í frekara mæli. Í Skagafirði eru margvísleg félagasamtök sem hafa ekki gróðasjónarmið að markmiði heldur að láta gott af sér leiða, s.s. kvenfélög, sjálfboðaliðasamtök, framfarafélög, íþróttafélög og umhverfissamtök svo eitthvað sé nefnt. Framangreind samtök eru oft nefnd þriðji geirinn til aðgreiningar frá einka- og opinberum rekstri. Skagfirðingar hafa verið öflugir og leiðandi í félagsmálum og stofnuðu m.a. fyrsta kvenfélagið að Ási í Hegranesi árið 1869.
Ég tel mikilvægt að ný sveitarstjórn í Skagafirði leiti í auknum mæli eftir samstarfi við frjáls félagasamtök og hlusti eftir því að hvaða verkefnum þau eru tilbúin að vinna. Sveitarstjórn getur beislað ómælda krafta með því að veita uppbyggilegu áhugastarfi brautargengi og stuðning. Ég er sannfærður um að hægt er að lyfta Grettistaki á fjölmörgum sviðum ef framangreint er haft að leiðarljósi og er vænlegri leið en að ætla að stjórna öllum að ofan.
Við ættum að hafa hugfast að í upphafi sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar ruddu frjáls félagasamtök leiðina í margvíslegum framfaramálum, s.s. kvenfélög, ungmennafélög og kaupfélög.
Núna þegar þjóðin þarf að rífa sig áfram eftir að spillt samkrull ráðandi stjórnmálaafla og fjárglæframanna hefur valdið þjóðinni tjóni og álitshnekki er rétt að leita í mann- og félagsauð til þess að efla samfélagið. Frjálslyndir og óháðir í Skagafirði munu leggja sérstaka áherslu á það á komandi kjörtímabili að efla tengsl og stuðning við þriðja geirann í Skagafirði og freista þess að leysa úr læðingi mikinn kraft, þor og bjartsýni.
7.5.2010 | 19:56
Framboðslisti Frjálslyndra og óháðra í Skagafirði
Frjálslyndir og óháðir í Skagafirði bjóða fram krafta sína til að stjórna Sveitarfélaginu Skagafirði næstu fjögur árin. Ekki er vanþörf á því að leysa Fjórflokkinn í Skagafirði af hólmi sem hefur sameinast um algerlega óábyrga skuldasöfnun. Frjálslyndir munu forgangsraða af skynsemi og standa vörð um störf og verja grunnþjónustuna. Frjálslyndir í Skagafirði munu beita sér fyrir innlendum innkaupum á vöru og þjónustu, til þess að efla íslenskt atvinnulíf.
Frjálslyndi flokkurinn hefur þá sérstöðu að hafa haft opið bókhald frá upphafi og er laus við fjárstyrki og sem draga heiðarleika hans í efa. Frjálslyndi flokkurinn hefur ávallt staðið vörð um hagsmuni almennings í stað þröngra sérhagsmunahópa.
Framboðslisti Frjálslyndra og óháðra í Skagafirði:
1. Sigurjón Þórðarson, líffræðingur.
2. Hrefna Gerður Björnsdóttir, lögfræðingur.
3. Ingvar Björn Ingimundarson, nemi.
4. M. Dögg Jónsdóttir, framhaldsskólakennari.
5. Oddur Valsson, nemi.
6. Guðný Kjartansdóttir, verslunarstjóri.
7. Pálmi Sighvatz, bólstrari.
8. Jón Ingi Halldórsson bifreiðastjóri.
9. Gréta Dröfn Jónsdóttir, húsmóðir.
10. Guðbrandur Guðbrandsson, tónlistarkennari.
11. Hafdís Elfa Ingimarsdóttir heilbrigðisstarfsmaður.
12. Þórður G. Ingvason, athafnamaður.
13. Ágústa Sigurbjörg Ingólfsdóttir, húsmóðir.
14. Árni Björn Björnsson, veitingamaður.
15. Benedikt Sigurðsson, útgefandi.
16. Hans Birgir Friðriksson, veiðimaður.
17. Hanna Þrúður Þórðardóttir, framkvæmdastjóri.
18. Marin Sorinel Lazar, tónlistarkennari.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007