Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010
31.12.2010 | 15:42
Jón Gnarr maður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
Jón Gnarr borgarstjóri er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2 sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Fréttamiðlum Jóns Ásgeirs var endurúthlutað af Samfylkingunni til fyrri eigenda sem er einn af höfuðpaurum hrunsins á sama tíma og tekið var af mikilli hörku á skuldum heimilanna
Í viðhafnarviðtali við Jón Gnarr þar sem að hann birtist áhorfendum ýmist sem geimvera eða friðarsinninn Dalai Lama þá boðaði hann framboð til Alþingis sem ætlaði litlu sem engu að breyta í íslensku samfélagi.
Ekki kemur á óvart að Stöð 2 styðji þann mann heilshugar sem engu vill breyta þó svo að hann hafi sýnt af sér fádæma undarlegheit og hroka.
Jón Gnarr maður ársins á Stöð 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2010 | 12:50
Fýla Samfylkingarinnar á síðasta degi ársins
Í fréttum RÚV í hádeginu var rætt við forsætisráðherrann okkar en það fór ekki á milli mála að Samfylkingin kveður árið í mikilli fýlu yfir því að sitja uppi með Jón Bjarnason í ríkisstjórninni.
Það sem veldur óánægjunni er fyrst og fremst að Jón Bjarnason er af og til eitthvað að káfa í að framkvæma kosningaloforð Samfylkingarinnar um að jafna aðgang landsmanna að fiskveiðiauðlindinni. Tillögurnar sem valda óánægju Jóhönnu Sigurðardóttur eru ekki að fyrna veiðiheimildir eins og Samfylkingin lofaði heldur að úthluta einungis lítilræði af viðbótarveiðiheimildum með jafnræði í huga.
Harka Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra er svo mikil í málinu að engu máli skiptir þó svo að auknar tekjur samfélagsins af auknum fiskveiðum séu margföld sú upphæð sem fyrirhugað er að skera niður í heilbrigðiskerfinu og gerðu þar af leiðandi sársaukafullan niðurskurð óþarfan.
Ríkisráðsfundur í morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2010 | 00:27
Sigmundur Davíð er of dýr Neyðarkall
Framsóknarflokknum eða að minnsta kosti hluta þingflokksins stendur til boða og er fús til að bjarga ríkisstjórn Samfylkingar og Vg. Framsókn er ætlað að fylla skarð þremenninganna sem Samfylkingin og Steingrímur J. vilja flæma úr Vg. Ástæðan fyrir reiði Samfylkingarinnar og Steingríms J. í garð Lilju Mósesdóttur og fylgismanna hennar er fyrst og fremst óþægðin í: Icesave, Evrópusambandsumsókninni, í skuldamálum heimila, efnahagsstefnu AGS og einkavæðingu orkuauðlindanna.
Liðsmen Samfylkingarinnar hafa tíðkað það að ráðast hvað eftir annað persónulega á "óþæga" þingmenn og ráðherra Vg. Steingrímur og brúða hans Björn Valur hafa látið sér vel líka þegar svívirðingar hafa dunið á villiköttunum og aldrei hafa þeir lyft litla fingri þeim til varnar á meðan þeir hafa hvað eftir annað hlaupið í vörn fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur.
Helsti vandinn við fyrirhugaða björgun er að ef farið verður í æfingarnar þá mun nokkuð örugglega þurfa að fylla skarð fleiri en þriggja þingmanna Vg. Það gerir það að verkum að ekki er nægjanlegt að treysta eingöngu á stuðning Evrópusinnaðra þingmanna s.s. Sivjar og Guðmundar Steingrímssonar. Hætt er við því að reikningur neyðarkallsins Sigmundar Davíðs eigi eftir að reynast of dýr og ég tala nú ekki um víxill neyðarkellingarinnar Vigdísar Hauksdóttur.
Ekki má gleyma því að þau Steingrímur J. og Jóhanna plötuðu Sigmund Davíð illilega þegar minnihlutastjórn Vg og Samfylkingar var mynduð hér um árið.
Missa sig í spunanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.12.2010 | 23:04
Mun Róbert Marshall axla pólitíska ábyrgð?
Róbert Marshall var ein helsta sprautan á bak við að setja skattfé landsmanna í Landeyjarhöfn án mikils né vandaðs undirbúnings. Var það gert þrátt fyrir varnaðarorð fjölmargra s.s. Grétars Mar Jónssonar fyrrverandi þingmanns Frjálslynda flokksins og reynds skipstjóra. Róbert Marshall var formaður stýrihóps um hönnun hafnarinnar sem ber ábyrgð á þeim dýru mistökum sem gerð hafa verið. Ekki vafðist það fyrir Róberti að skreyta sig persónulega í aðdraganda kosninga 2009 með því að hann bæri ábyrgð á verkinu ásamt Elliða Vignissyni.
Núna þegar ljóst er að er höfnin er að fyllast enn og aftur af sandi og ekki er lengur hægt að kenna um eldgosinu í Eyjafjallajökli, þá tekur Róbert upp á því að vindhanast út í núverandi samgönguráðherra, með þeim orðum að það skorti pólitíska forystu.
Væri Róberti ekki nær að íhuga hvort að það standi honum ekki nær að axla pólitíska ábyrgð á klúðrinu?
24.12.2010 | 11:56
Gleðileg jól
23.12.2010 | 17:48
Þegar mínus verður plús
Steingríms J. Sigfússonar hefur snúið baki við öllum helstu baráttumálum Vg. Steingrímur J.; sótti um aðild að Evrópusambandinu, hefur barist á hæl og hnakka fyrir því að greiða Icesave, haldið uppi leyndarhyggju, greitt götu pólitískra gæðinga og sömuleiðis staðið vörð um illræmt kvótakerfi í sjávarútvegi.
Núna dregur Steingrímur upp mjög brenglaða mynd af stöðu þjóðarbúsins með orðskrúði um væntingar um jákvæðan frumjöfnuð þjóðarbúsins á næsta ári. Frumjöfnuður er skilgreindur sem jöfnuður tekna og gjalda ríkissjóðs að undanskildum vaxtatekjum og vaxtagjöldum. Það er nú einu sinni svo að vaxtagjöld ríkisins eru einn helsti kostnaðarliður fjárlaganna upp á vel á áttunda tug milljarða króna á næsta ári sem eru mörgum tugum þúsunda milljóna hærri útgjöld en ríkið ver til menntamála.
Framganga og blaður Steingríms um að hann sé að koma þjóðarskútuna af strandstað eru vægast sagt brjóstumkennanleg.
Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.12.2010 | 12:29
Betri stjórnmál Samfylkingarinnar
Endurreisnarnefnd Samfylkingarinnar hefur nýlega farið í mikla naflaskoðun og skilað af sér tillögum um betri stjórnmál. Uppgjör Samfylkingarinnar við dökka fortíð sína fólst helst í því að kenna vondum félagsskap um óhæfuverk sín.
Fréttir af níðpóstum og harðneskjulegur málflutningur áhrifamanna flokksins í garð þeirra sem greiða atkvæði samkvæmt samkvæmt samvisku sinni á þingi s.s. Lilju Mósesdóttur kemur ekki heim og saman við þá yfirveguðu umræðustjórnmál sem flokkurinn sagðist boða.
Ættu að viðurkenna níðpóstana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.12.2010 | 15:36
Gagnleg fyrirspurn Guðlaugs Þórs
Ljóst er að forsætisráðherra veitti Guðlaugi Þór Þórðarsyni bæði seint og illa, umbeðin svör um greiðslur ráðuneyta til starfsmanna Háskóla Íslands. Margir af þeim sem hafa þegið laun beint af ráðuneytum hafa síðan verið eins og gráir kettir í umræðu- og fréttatímum og fjallað um viðkomandi viðfangsefni sín í ráðuneytunum, sveipaðir kápu hlutleysis og fræða.
Engu líkara er að Samfylkingin og Vg telji það skyldu sína að ástunda sömu slæmu vinnubrögðin og tíðkuðust fyrir hrun og halda verndarhendi yfir sömu ónýtu kerfunum og þeim sem komu þjóðinni í koll.
Mér fannst merkilegt að sjá milljónagreiðslur til Bjargar Thorarensen vegna vinnu við að réttlæta Hæstaréttardóm sem m.a. eiginmaður hennar kvað upp í máli tveggja sjómanna sem íslensk stjórnvöld beittu órétti og sviptu atvinnuréttindum
Það er svo sem eftir öðru í vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar að samkvæmt svarinu hefur hún staðið skilvíslega við að greiða "mannréttindasérfræðingnum" fyrir vinnu sína í því máli sem íslenska ríkið tapaði, á meðan ekki hefur enn verið réttur hlutur þeirra sjómanna sem brotið var á.
Segir Jóhönnu staðfesta leynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.12.2010 | 22:16
Kominn tími til þess að játa mistök
Við þjóðinni blasir að Steingrímur J. og Jóhanna Sigurðardóttir píndu vonlausan Icesavesamning í gegnum þingið með stóryrðum og hótunum. Ólafur Ragnar Grímsson bjargaði þjóðinni frá klúðrinu með því að vísa samþykkt Iceave til þjóðarinnar og uppskar þar með reiði og endalaus ónot liðsamanna Samfylkingarinnar og Steingrímsarms Vg.
Í stað þess að þeir sem gengu hvað harðast fram í að krefjast samþykktar á Icesave s.s. Steingrímur J, Jóhanna, Þórólfur Matthíasson ofl. játi mistök og biðjist fyrirgefningar á röngu stöðumati þá er haldið áfram að þrugla um að rétt hefði verið að "klára" Icesavemálið á sínum tíma. Ég sé lítinn ávinning fyrir trúverðugleika Samfylkingarinnar og Steingríms J. að halda áfram þessari afneitun í stað þess að viðurkenna einfaldlega mistök sem blasa við.
Eina sem mögulega getur réttlætt afneitun Steingríms J. og Jóhönnu er að nýji Icesavesamningurinn sé ekki eins hagstæður og af er látið. Það er sjálfsögð krafa að samningurinn verði þýddur og skýrður út fyrir almenningi og borinn undir þjóðina til samþykktar.
Icesave á endastöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2010 | 14:10
Klikkað
Sjálfsagt og eðlilegt er að sækja skaðabætur til móðurfélags PWC vegna svika og falsanna starfsstöðvar PWC hér á landi. Án aðstoðar endurskoðenda, áróðurs keyptra "fræðimanna" hefði Ísland aldrei getað orðið vettvangur stærstu gjaldþrota í viðskiptasögunnar.
Óneitanlega er það klikkað að þeir sem rændu bankanna að innan skulu enn lifa í vellystingum og eru jafnvel að fá afskriftir á færibandi í nýju bönkunum.
Satt best að segja sé ég það ekki fyrir mér að íslensk stjórnvöld sem réðu samverkamenn bankabófanna í æðstu stöður inn í "endurreista" banka og hafa enn sem komið er ekki svipt PWC starfsleyfi , hafi vilja né stöðu til þess að sækja bætur til móðurfélagsins bandaríska.
Nauðsynlegt er að hreinsa fjármálakerfið af samverkamönnum bankaræningjanna og aflétta bankaleyndinni ef ekki á að fara enn verr.
Vilja að ríkið höfði mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 1014400
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007