Leita í fréttum mbl.is

Betri stjórnmál Samfylkingarinnar

Endurreisnarnefnd Samfylkingarinnar hefur nýlega farið í mikla naflaskoðun og skilað af sér tillögum um betri stjórnmál.  Uppgjör Samfylkingarinnar við dökka fortíð sína fólst helst í því að kenna vondum félagsskap um óhæfuverk sín.

Fréttir af níðpóstum og harðneskjulegur málflutningur áhrifamanna flokksins í garð þeirra sem greiða atkvæði samkvæmt samkvæmt samvisku sinni á þingi s.s. Lilju Mósesdóttur kemur ekki heim og saman við þá yfirveguðu umræðustjórnmál sem flokkurinn sagðist boða.

 

   


mbl.is Ættu að viðurkenna níðpóstana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Menn ættu að lesa skeyti Ólínu áður en farið er að tala um níð. 

Bréfið er hógvært og hvergi hallað á Lilju og ekki amast við því að hún hafi skoðanir. 

Það er bara spurt hvort hún tilheyri stjórnarmeirhlutanum eða ekki. 

Og lái henni hver sem vill. 

GG (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 12:37

2 identicon

"TILHEYRA MEIRIHLUTANUM" hvers konar endemis bull er þetta. Hópsálarmentalitet þar sem allir hinir eru logandi hræddir. Ef einn sker sig úr og setur ljósið á hvað verið er að gera með hjarðhugsunarhætti "ef þú ert ekki ein af okkur þá ertu á móti okkur"

Hlusta á Árna Þ. segja að þessi stjórn sé að gera góða hluti og sé búin að ná "frumjöfnuði" (nýja tískuorðið þeirra) í málin, hvar er þetta fólk statt - alla vegana ekki á Íslandi 2010. Samfylkingin er núna að undirbúa nýjan afsökunarstuðul; það er Sjálfstæðisflokknum að kenna það er hruninu að kenna og nú eiga þeir í pokahorninu það er Lilju að kenna.

Allir vita að fjárlögin 2011 eru ljósár frá kosningaloforðum Samfylkingarinnar og VG og það sem verra er stórt skref tilbaka í velferðarkerfi þjóðarinnar, eftir 2 ár í stjórn hefur ekkert miðað framávið lái einhver Liju og fleirum að neita að skrifa undir þessi fjárlög.

Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 13:42

3 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Lilja er að benda stjórninni á að ef haldið er áfram á sömu braut er samdrátturinn meir og á næsta ári enn meiri því stjórnin er að skrúfa allt niður og þannig heldur sá snúningur áfram ef ekki verður stoppað og skrúfað til baka , þetta endar í verðhjöðnun þannig að enginn gerir neitt vegna þess að allir bíða eftir að allt kosti minna og og minna þeir sem eiga pening fara með hann úr landi og hinir sem ekki geta það setja hann í bankahólf.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 21.12.2010 kl. 22:44

4 identicon

Frjálslyndi flokkurinn var dæmdur fyrir dómi til að greiða háar bætur til varnarlausrar konu sem hann hafði komið illa fram við. Konan er Margrét Sverrisdóttir. Hefur flokkurinn gengið frá þessu máli? Frjálslyndi flokkurinn virðist heldur ekki skilað bókhaldi sínu til ríkisendurskoðunar síðan 2007 og þannig brotið lög um fjármál stjórnmálaflokka. Á sama tíma hefur flokkurinn þegið mjög háar fjárhæðir úr ríkissjóð. Ekki hefur verið gerð grein fyrir í hvað þetta skattfé almennings hefur farið. Hvar er bókhaldið? Vitað er þó að flokkurinn er nánast gjaldþrota og án fylgis. Þrátt fyrir þetta þá telur formaður Frjálslynda flokksins að hann hafi efni á því að saka aðra flokka um að hafa svarta fortíð og hann talar um níðpósta. Lýðskrumið er alltaf að ná nýjum hæðum hjá honum. Hvernig er hægt að taka mark á svona stjórnmálamanni? 

Samfylkingarkona (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband