Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
Stjórnendur Kastljóssins og laganemarnir eiga mikla þökk skilda fyrir að upplýsa um hluta af því braski sem viðgengst í fiskveiðistjórnunarkerfinu og líka hvernig ekki einungis stjórnmálastéttin heldur líka embættismannaklíkan hefur sett kíkinn fyrir blinda augað. Það var að heyra á Fiskistofustjóra að honum þætti eðlilegt og sjálfsagt mál að framfylgja lögum í blindni sem augljósa stangast á við markmið laganna sem hann á að framfylgja. Það kemur fram í 1. gr. laganna:
Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.
Hvað yrði sagt ef forstjóri Barnaverndarstofu teldi það varla sitt mál þó að þær reglur sem honum væri gert að framfylgja gengju í berhögg við hagsmuni barna í landinu? Hvað yrði sagt ef starfsmenn Umferðarstofu hefðu enga skoðun á því að reglurnar sem þeir framfylgdu ykju á slysahættu? Hvað yrði sagt um brunamálastjóra sem hefði enga skoðun á því að reglurnar sem hann framfylgdi stuðluðu frekar að brunahættu en hitt?
27.6.2009 | 22:00
Steingrímur Jóhann Sigfússon auðgar íslenska menningu
Margir hafa misst álit á Steingrími J. Sigfússyni vegna viðsnúnings hans í mörgum mikilvægum málum. Margur gamall alþýðubandalagsmaðurinn er farinn að vorkenna alþýðuhetjunni.
Í Skagafirði og Húnavatnssýslum hefur maður þó heyrt ýmislegt jákvætt um aðalritarann, t.d. það er að skattahækkanir hans á áfengi séu liður í þrifnaðaraðgerðum og almennum hreinsunum eftir óþrif sjálfstæðismanna. Þessar aðgerðir verða til þess að endurvekja heimilisiðnað; brugg og landagerð.
Skál, og syngja, Skagfirðingar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.6.2009 | 17:02
Jón sterki Bjarnason
Það er örugglega leitun í mannkynssögunni að stjórnmálaafli sem hefur étið jafn mikið ofan í sig og Vinstri grænir. Það er ekki eitt, heldur nánast allt, Icesave, Evrópusambandið og það að taka föstum tökum á spillingunni.
Ég heyrði í Jóni Bjarnasyni í morgun á Útvarpi Sögu. Hann talaði gleiður fyrir kosningar um gjörbreytta fiskveiðistjórn og frjálsar handfæraveiðar en núna þegar hann er kominn í stjórn er afraksturinn af stóru orðunum rýr í roðinu. Leyfðar hafa verið handfæraveiðar með miklum takmörkunum til eins árs, þær eru ekki frjálsari en svo að magnið verður brot af því sem veiddist á handfæri þegar raunverulegt frelsi ríkti.
Þegar sjávarútvegsráðherra er spurður út í hvort leyfa eigi auknar veiðar leitar hann í skjól fiskifræðinganna og þykist stikkfrír. Þegar hann er spurður út í hvað dvelji innköllun aflaheimilda leitar hann í skjól nefndar hagsmunaaðila sem vitað er að ekki vilja breytingar.
Sjávarútvegsráðherrann sem var svo ægilega sterkur fyrir kosningar virðist þrotinn að kröftum og þori þegar á hólminn kemur.
25.6.2009 | 00:09
Er Össuri treystandi í hvalamálum?
Í fréttum hefur komið fram að Íslendingar eru í lykilnefnd um að ná samkomulagi við grænfriðunga um framtíð hvalveiða. Embættismenn Össurar sitja í nefndinni og framfylgja stefnu hans.
Fram kom í vor að Össur var mjög vonsvikinn með þá ákvörðun fráfarandi sjávarútvegsráðherra að gefa út veiðileyfi á hvali. Nú er að sjá hvort Össur er enn trúr þeirri stefnu sinni sem hann náði ekki fram í vor í hvalveiðiráðinu.
24.6.2009 | 12:17
Jóhanna segir það af því að Logos segir það
23.6.2009 | 00:43
Seiðið Gunnar Birgisson
Mér finnst umhugsunarvert hve mál Gunnars Birgissonar fá mikið vægi í umræðunni miðað við alvarlegri mál sem hafa sett þjóðfélagið nánast á hausinn.
Ekki veit ég betur en að hundruðamilljóna kúlulánabankastjórar og kúlulánaráðherra gegni enn trúnaðarstörfum fyrir almenning. Sama á við um ráðherrann sem bar pólitíska ábyrgð á Icesave- klúðrinu en hann er enn einn valdamesti landsins. Tortólaglæpamenn ferðast enn á lúxusfarrými inn og út úr landinu á meðan allur almenningur sem er alvarlega særður eftir fjármálaglæpina, kemst hvorki lönd né strönd.
Mál Gunnars Birgissonar fá jafnvel meira vægi í umræðunni, en sú skelfilega staða sem uppi er á þjóðþinginu, að mögulega sé meirihluti fyrir samþykkt Icesave nauðasamningsins.
Alltaf kemur betur og betur í ljós að Íslendingar geta ekki staðið við samninginn og að hann vegur að fullveldi þjóðarinnar.
Samstarfið heldur í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.6.2009 | 00:04
Alþjóðleg stofnun greinir frá því að margir Íslendingar hafi verið dæmdir saklausir
Fyrr í mánuðinum greindi ég frá því að ágætur kunningi minn, smábátasjómaður, væri á leið fyrir dómara. Hann átti að hafa lagt línu með nokkrum krókum á inn á friðuð svæði. Í þeirri færslu rakti ég efasemdir um að þessi friðunarstefna og þessar friðunaraðgerðir væru byggðar á traustum grunni. Staðreyndirnar tala sínu máli, árangurinn er að við veiðum einungis þriðjunginn af því sem stefnt var að þegar hafist var handa við meinta uppbyggingu.
Nú hef ég undir höndum glænýja ráðgjöf ICES, Alþjóðahafrannsóknaráðsins, þar sem höfð er uppi kunnugleg rulla um að of mikið hafi verið veitt og að rétt sé að veiða minna til að hægt sé að veiða meira seinna. Og þetta er sagt þrátt fyrir að veiði sé við sögulegt lágmark. Það sem vakti sérstaka athygli mína í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins var að skyndilokanir sem hafa verið notaðar frá árinu 1976, þar sem lokað er um tveggja vikna skeið ef fjórðungur aflans er undir viðmiðunarmörkum, eru gagnslausar að mati ráðsins. Þær hafa verið notaðar til einskis frá 1976!
Þessi dómur Alþjóðahafrannsóknaráðsins um árangur skyndilokana gefur sterklega til kynna að margir íslenskir sjómenn hafi verið dæmdir á hæpnum forsendum og hafi verið saklausir af ávirðingum sem á þá eru bornar.
A quick-closure system has been in force since 1976, aimed at protecting juvenile fish. Fishing is prohibited, for at least two weeks, in areas where the number of small cod (< 55 cm) in the catches has been observed by inspectors to exceed 25%. A preliminary evaluation of the effectiveness of the system indicates that the relatively small areas closed for a short time do most likely not contribute much to the protection of juveniles.
20.6.2009 | 22:50
Blaðsíða 38 í Morgunblaðinu í dag
Í Morgunblaðinu í dag var ýmislegt markvert s.s. viðtal við konu sem trúði á mátt mannshugans og svo útskýringar á kreppuaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Það sem stakk mig þó mest við lestur blaðsins var þéttskipuð heilsíðuauglýsing á nauðungarsölum sýslumanna víðsvegar um landið, en þessar auglýsingar taka æ meira pláss á síðum blaðsins. Það að bankar leysi til sín fjölda eigna sem ekki standa undir sér hlýtur að fara verða mjög tvíeggjað fyrir viðkvæman rekstur bankanna.
Leiðir stjórnmálaflokkanna sem nú eiga fulltrúa á Alþingi út úr kreppunni hafa verið: að skera niður ríkisútgjöld, auka skatta og svo sérleið Samfylkingarinnar að komast hvað sem það kostar inn í Evrópusambandið. Auglýsingarnar um nauðungarsölurnar á blaðsíðu 38 í Morgunblaðinu eru skýr teikn um hversu gríðarlega erfitt efnahagsástandið er. Stór hætta er á að aukin skattheimta og niðurskurður ríkisútgjalda virki ekki eins og til er ætlast þ.e. að bæta afkomu ríkissjóðs umtalsvert, heldur herði á kreppunni. Það að hækka skatta leiðir til minni umsvifa og skatttekna. Það sama á við um mikinn niðurskurð hins opinbera.
Enginn stjórnmálaflokkanna leggur áherslu á að auka framleiðslu og útflutning, sem hlýtur þá að byggjast á því sem landsmenn kunna sæmilega. Í stað þess að sameinast um að auka frelsi í aðalútflutningsgrein landsmanna, þá er tekist á um það í sölum Alþingis hvort leyfa eigi örlítið frelsi við handfæraveiðar. Allir flokkarnir virðist hins vegar vera að mestu sammála um að skera niður aflaheimildir í það magn sem veiddist þegar landsmenn áttu einn togara.
19.6.2009 | 19:43
Sigmundur Davíð skammast í öllum málum - mannréttindi Tortólanna
Nýr Framsóknarflokkur er ekki nýrri en svo að þingmenn flokksins mega ekki heyra á það minnst að hreyft sé við helsta pólitíska minnisvarða fyrrum leiðtoga Framsóknarflokksins, Halldórs Ásgrímssonar, en þá á ég við illræmt kvótakerfi í sjávarútvegi, sem markaði upphaf ofurveðsetningar og hrunsins. Fyrrum flokkur dreifbýlisins þvældist fyrir því síðustu vikurnar á þingi, að opnuð yrði lítil glufa tímabundið á leyfi til takmarkaðra handfæraveiða.
Formaður Framsóknarflokksins hefur skammast í öllum málum þinginu án þess að koma með nokkrar raunhæfar lausnir nema þá helst í Icesave-málinu. Í kvöldfréttum skammaðist hann yfir bæði aukinni skattheimtu og niðurskurði ríkisútgjalda. Þessi afstaða er óskiljanleg í 170 milljarða halla á ríkiskassanum, sérstaklega ef litið er til þess að Sigmundur Davíð er á móti gjaldeyrishöftunum og hefur ekki lagt til neinar markverðar leiðir til tekjuöflunar.
Það liggur beinast við að það séu sóttar auknar gjaldeyristekjur í sjóinn, en þorskaflinn er einungis þriðjungurinn af því sem hann var áður en hafist var handa við vitavonlausa uppbyggingu á þorskstofninum, sem stangast á við viðtekna vistfræði.
Í stað þess að leita allra leiða með opnum hug við að breyta kerfi sem sannarlega hefur reynst þjóðinni dýrkeypt, þá dundar formaður Framsóknarflokksins, með hinum klíkuflokknum, við að leggja fram tillögu um að loka leiðum til breytinga á kvótakerfinu - Breytinga sem vel að merkja, kæmu á móts við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Þess ber að geta formanni Framsóknarflokksins hefur verið á umliðnum mánuðum mjög umhugað um mannréttindi en hann varaði sterklega við í nafni mannréttinda, að eignir Tortóla fjárglæframannanna yrðu kyrrsettar.
Vilja yfirlýsingu um að hætt verði við fyringarleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2009 | 00:26
Velferðarmaðkur Samfylkingarinnar kominn fram
Nú er bandormur Jóhönnu Sigurðardóttur kominn fram, breytingar á fjölmörgum lögum til að ná fram markmiðum hennar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ríkisfjármálum. Eitt helsta markmið Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er að greiða skuldir óreiðumanna í útlöndum og þá sérstaklega Icesave-reikninginn. Maðkurinn er afar undarlegt plagg í ljósi þess að Samfylkingin lofaði fyrir nokkrum vikum að byggja mikla velferðarbrú. Fyrir utan mikla skattlagningu verður helsta sparnaðartillagan að ná að klípa af gamla fólkinu. Nálægt 2/5 af öllum sparnaði í rekstri eiga að koma frá elli- og örorkulífeyrisþegum, 1.830 milljónir, og á næsta ári á að skera niður um tvöfalda þá upphæð.
Ekki hefur komið fram að loka eigi einu einasta sendiráði en ríkisstjórnin eða Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn - eitt og hið sama? - virðist hafa ákveðið að skera niður í samgöngumálum um á níunda milljarð króna á næsta ári. Báðir aðilar virðast vera algjörlega einhuga um að halda öllum sendiráðum opnum og halda óhikað áfram byggingu tónlistarhússins.
Heildarmyndin ekki komin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.12.): 0
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 101
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 55
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007