Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
30.10.2009 | 17:49
Fleiri líffræðingar taka undir með Jóni Kristjánssyni fiskifræðingi
Á fréttavefnum Nordlysid kemur fram að fiskifræðingurinn Dr. Petur Steingrund, taki undir sjónarmið Jóns Kristjánssonar fiskifræðings um áhrif stærðar hrygningarstofns á nýliðun þorsks. Samkvæmt fréttinni fellst Petur ekki a hefðbundnar kenningar í doktorsritgerð sinni, um að þorskurinn hafi notað sporðinn til þess að synda í burtu og ekki heldur að stór hrygningarstofn sé ávísun á mikla nýliðun.
Niðurstaðan er að hafna forsendum og hornsteini reiknisfiskifræðinnar þ.e. að byggja upp stóran hrygningarstofn til þess að fá mikla nýliðun. Það er einmitt sú aðferð sem íslensk stjórnvöld hafa verið að rembast við að fara hér á Íslandsmiðum síðustu tvo áratugina með hræðilegum afleiðingu.
Nú er að sjá til hvort að búfræðingurinn Jón Bjarnason óski eftir ráðgjöf þeirra Jóns Kristjánssonar og Peturs Steingrund til þess að yfirfara nýtingarstefnu íslenskra stjórnvalda en það gæti orðið mikill búhnykkur fyrir íslenska þjóðarbúið.
29.10.2009 | 12:50
Tímamótagrein Ólínu Þorvarðardóttur
Það var ánægjulegt að lesa grein eftir Ólínu Þorvarðardóttur sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Í greininni fjallar þingmaðurinn um þá staðreynd að kvótakerfið hefur algerlega brugðist því hlutverki sínu að "byggja upp" þorskstofninn. Þorskveiðin nú er einungis þriðjungurinn af því sem hún var áður en farið var að vinna eftir mjög umdeildum reiknisfiskifræðilegum aðferðum Hafró, sem stangast reyndar illilega á við viðtekna vistfræði.
Nú er spurning hvort að fleiri stjórnarliðar séu tilbúnir til þess að fara í gegnum og ræða það augljósa að ráðgjöf Hafró hefur ekki reynst sem skyldi. Víst er að Össur Skarphéðinsson daðraði við það á sínum tíma að taka ráðgjöf reiknisfiskifræðinga til endurskoðunar, en hafði ekki kjark þegar til átti að taka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
28.10.2009 | 11:47
Munu Jóhanna og Steingrímur J. segja þjóðinni satt?
Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur á liðnum árum varað við erlendri skuldasöfnun þjóðarinnar. Ráðandi öfl hafa reynt að blása á gagnrýnina með ýmsum hætti s.s. að eignir íslenskra fyrirtækja erlendis væru vanmetnar og að þær upplýsingar sem birtast á vef Seðlabankans væru villandi. Hrunið hefur leitt það í ljós að Gunnar Tómasson hafði rétt fyrir sér en samt sem áður reyna litlu flokkshestarnir að blása á varnaðarorð hans þess efnis að óráð sé fyrir þjóðarbúið að bæta á sig enn meiri skuldum s.s. Icesave.
Það er orðið löngu tímabært að Jóhanna og Steingrímur J. geri hreint fyrir sínum dyrum og segi nú þjóðinni satt hvað varðar skuldir hins opinbera og hvaða áætlun þau hafi til þess að gera umræddar skuldir upp.
„Skrípaleikur“ að leggja á slíka byrði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2009 | 14:41
Það er þungt yfir álverssáttmálanum
Ég hef reynt að átta mig á því hver kjarni deilu ASÍ og SA gegn ríkisstjórninni er. Það er látið í veðri vaka að deilan sé fjölþætt og snúist um vanda heimilanna, skatta og jafnvel sjávarútvegsmál. Þegar betur er að gáð virðast Samtök atvinnulífsins og Aþýðusamband Íslands alls ekki vera að pressa á stjórnvöld um að afnema verðtryggingu og taka á gengistryggðu lánunum og vaxtaokrinu.
Málið virðist vera bara eitt - þrátt fyrir stóryrði - að þrýsta á byggingu álvers í Helguvík.
Aldrei hef ég heldur heyrt þessi samtök sameinast um að taka á gjaldþrota fiskveiðistjórnunarkerfi og auka veiðar og virðast þeir síamstvíburarnir Villi og Gylfi telja að lausnin felist í álveri.
Baráttan fyrir stóriðju er góðra gjalda verð en ég set spurningarmerki við þetta dellumeik um að í húfi sé einhver sáttmáli um stöðugleika. Svo virðist sem Samfylkingin í ríkisstjórn sé að keyra með fulltingi þessara samtaka á samstarfsflokkinn.
25.10.2009 | 22:32
Þór Saari hefur rétt fyrir sér
Gagnrýni Þórs á frumvarp félagsmálaráðherra og breytingartillögur nefndarinnar á fyllilega rétt á sér. Ekki verður betur séð en að meiningin sé að gefa lánastofnunum galopnar heimildir til þess bæði að afskrifa og veita skattaafslætti á kúlulán og afleiðusamnginga og allt þetta ,,fína" sem kom þjóðinni á hausinn.
Sem betur fer fékk breytingartillagan um skattaafsláttinn ekki brautargengi, hún virðist hafa verið kölluð aftur á lokametrunum. Það sem stendur upp úr er að rúmu ári eftir hrunið virðist fjórflokkurinn ekki geta komið frá sér óbrengluðum tillögum sem snúa að heimilunum heldur þarf hann að lauma í leiðinni inn ákvæðum sem koma heimilunum ekkert við, s.s. með afleiðusamningana.
Þegar Þór leyfði sér að benda á hið rétta í málinu kom Ólína Þorvarðardóttir stútfull af heilagri vandlætingu yfir því að hann læsi það út sem stendur nánast berum orðum í frumvarpinu!
Þessu máli er hvergi nærri lokið.
24.10.2009 | 19:22
Framsóknarþingmaður yfir sig hneykslaður á gjörðum Framsóknarflokksins
Það er margt sérstakt á þingi, frá kosningum hafa þingmenn jarmað um að eitthvað þurfi að gera fyrir heimilin og þegar slíkt mál er til afgreiðslu sér aðeins helmingur þingmanna sér fært að vera við lokaumræðu og greiða atkvæði.
Sérkennilegra var þó að fylgjast fyrr í vikunni með snerpulegri framgöngu Vigdísar Hauksdóttur þegar hún var yfir sig hneyksluð á framgöngu Framsóknarflokksins við lagasetningu liðinna ára. Maður spyr sig hvað Valgerður Sverrisdóttir segi um dómhörku Vigdísar þegar hún fullyrti að lagasetning sem Valgerður stóð að hefði orðið til þess að Landsvirkjun fór að leika sér með fé.
Hvers vegna var opnað á það í lögum 2003 að Landsvirkjun, veitufyrirtæki okkar, fyrirtæki sem er búið að fá leyfi til að virkja og nota landið okkar og fallvötnin, fengi heimild til að leika sér með fé?
Vigdís er ekki aðeins að gagnrýna lagasetningu heldur öll störf, ráðdeildarleysi og óráðsíu Framsóknarflokksins.
23.10.2009 | 16:38
Vinstri grænir - falskari en sextíu og fimm krónu seðill
Friðunarsinnarnir í Vg hafa beitt sér af hörku fyrir vernd hvala og hagsmunum auðmanna. Steingrímur J. er iðinn við að afskrifa skuldir auðmanna á sama tíma og hann hleður skuldum á þjóðarbúið.
Eitt af því aumasta af öllu aumu sem Vg hefur staðið að eru blekkingar Jóns Bjarnasonar, Atla Gíslasonar og Ögmundar Jónassonar þegar þeir fluttu þingsályktunartillögu um breytta stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Núna þegar flokkurinn fer með ,,stjórn" sjávarútvegsráðuneytisins þá bólar ekkert á breytingum, hvað þá bótum til handa Erlingi Sveini Haraldssyni og Erni Snævari Sveinssyni sem þeir þó lofuðu bótum í greinargerð með þingsályktunartillögunni.
Sjávarútvegsráðherra reynir að drepa raunverulegum breytingum á dreif með skipan einhverrar nefndar um breytingar á óstjórninni þar sem stuðningsmenn áframhaldandi mannréttindabrota eru í miklum meirihluta. Í ræðu sem Jón Bjarnason flutti fyrir rúmu ári fordæmdi hann þáverandi stjórnvöld harðlega fyrir mannréttindabrotin og sagði þau grafalvarlegt mál en í dag hefur Jón tekið upp þá brotastarfsemi sem hann áður gagnrýndi harðlega!
Á morgun, laugardaginn 24.10. kl 11, verður kaffifundur að Lynghálsi 3, í húsnæði Frjálslynda flokksins, þar sem ég mun fjalla um hik og ótrúlegan viðsnúning Jóns Bjarnasonar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.10.2009 | 22:42
Eru ekki allir búnir að fá ógeð á Fitch Rating?
Ein aðalfrétt RÚV í kvöld var þess efnis að Fitch Rating varaði við því að tafir á afgreiðslu Icesave frá Alþingi gætu orðið til þess að lánshæfismatið lækkaði. Fólk hlýtur að vera komið með ógeð á matsfyrirtækjunum og greiningardeildum bankanna sem mögnuðu upp verð á bönkunum, jafnvel árið 2008, fölsuð verðmæti sem bankarnir slógu raunveruleg lán út á.
Upplýsingar frá matsfyrirtækjunum voru síðan notaðar til að glepja breska og hollenska sparifjáreigendur til að leggja fjármuni inn á Icesave. Það væri ekki nema sanngjarnt að Fitch garmurinn tæki á sig að greiða þeim bætur sem voru féflettir í stað þess að kostnaðurinn leggist á saklausan íslenskan almenning.
Ríkisstjórnin virðist bæði nota gulrót og svipu til að hvetja landsmenn til að sætta sig við Icesave-ósómann. Það er engin tilviljun að mögulegar afskriftir séu kynntar í dag, að aðgerðir til aðstoðar heimilunum, hugsanleg lækkun stýrivaxta og hin ódýra blekking að út úr Landsbankanum náist 90% upp í Icesave sé notað til að villa um fyrir fólki. Þar að auki er gefið í skyn að allt fari í voða ef ekki verður fallist á Icesave-hörmungina.
Fellur einhver fyrir þessu?
20.10.2009 | 19:50
Sjálfstæðismenn klaufar
Sjálfstæðismenn hafa ekki verið klókir í málflutningi sínum varðandi Icesave. Í stað þess að svara stjórnarliðum af yfirvegun hafa þeir tekið þátt í lágkúrulegum skylmingum stjórnarliða og svarað í sömu mynt. Í þessum hanaslag hefur t.d. Guðfríður Lilja, sem ég leyfi mér að efast um að hafi sterka sannfæringu fyrir málinu, harðnað í afstöðu sinni með alvondu máli þegar verið er að skrifa upp á efnahagslega aftöku landsins.
Að einhverju leyti má skilja gremju Guðfríðar og að hún missi stjórn á sér þegar hún stendur í orðaskaki við kúlulánaliðið og fyrrum sjóðstjóra í Sjálfstæðisflokknum sem setja sjálf sig á bekk alsaklausra fórnarlamba.
Ef menn ætla að ná árangri í þessu Icesave-máli verður að beita röksemdafærslu og láta þá sem endilega vilja skrifa upp á skuldahalann rökstyðja betur hvað sé svona óskaplega gott við það - bara til þess eins að fá lán þegar það eru einmitt lánin sem eru að sliga samfélagið.
20.10.2009 | 00:02
Steingrímur einnota
Jóhanna hefur látið Steingrím kyngja Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Icesave og Evrópusambandinu. Það er ósennilegt að hún hafi meiri brúk af honum og það henti ekkert að nota VG áfram, enda gætu þeir þvælst fyrir stóriðjudraumum og viljað láta rannsaka frekar aðdraganda hrunsins en þar á Samfylkingin hins vegar bandamenn í Sjálfstæðisflokknum, í að gera ekki of mikið úr hinu liðna.
Leiðtogar Samfylkingarinnar vita að ef ætlunin er að fara inn í Evrópusambandið er vænlegra að vinna að því með forystu Sjálfstæðisflokksins sem hefur daðrað við ESB - ef sérlausn fengist fyrir LÍÚ sem gæti þess vegna falist í makríl og marglyttu.
Sá búhnykkur sem fengist með því að söðla um væri að VG væri ótrúverðugt og Sjálfstæðisflokkurinn myndi að öllum líkindum klofna.
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Fólk
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
- Náði botninum við dánarbeð ömmu sinnar
- Aldís Amah með hlutverk í Hallmark-jólamynd
- Dyrnar opnaðar inn í myrkt samband Sonny og Cher