Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011
30.1.2011 | 13:53
Fals Jóhönnu Sigurðardóttur
Í gegnum árin hefur Jóhanna Sigurðardóttir slegið sér upp á því að þykjast ætla að standa vörð um lífeyrisþega og afnema verðtrygginguna. Í aðdraganda síðustu kosninga sagðist formaður Samfylkingarinnar ætla að beita sér fyrir gangsæi, taka á skuldavanda heimilanna og illræmdu kvótakerfi í sjávarútvegi.
Jóhanna hefur í tveggja ára forsætisráðherratíð sinni sagt eitt og annað og haldið tilfinningaþrungnar ræður um að eitthvað eigi að fara að ske eftir næstu helgi eða þá þarnæstu helgi í fyrrgreindum málaflokkum.
Ef verk ríkisstjórnarinnar eru hins vegar skoðuð þá blasir við að ríkisstjórnin hefur fyrst og fremst ráðist að kjörum lífeyrisþega, bjargað og gengið undir allt of stóru gjaldþrota fjármálakerfi á meðan skuldsett heimili hafa verið látin sitja á hakanum.
Í ræðu sinni á flokksþingi Samfylkingarinnar boðaði Jóhanna breytingar á kvótakerfinu eins og hún gerði í áramótaávarpinu og ræðum fyrir kosningar. Málið er bara að reynsla sl. tveggja ára sýnir að ekki er hægt að taka mikið mark á tali forsætisráðherrans. Sáttanefndin sem Guðbjartur Hannesson stýrði um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu fól í sér að festa ætti kerfið í sessi!
Ef að einhver snefill af meiningu væri að baki þessu tali forsætisráðherra um að breyta kvótakerfinu, þá væri hún t.d. fyrir löngu búin að taka upp viðræður við þá tvo harðduglegu sjómenn sem sóttu mál sitt fyrir Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna. Áliti nefndarinnar, sem orðið er þriggja ára gamalt var skýrt og fól það í sér að stjórnvöld ættu að breyta óréttlátu kerfi og greiða viðkomandi sjómönnum bætur. Í stað að taka upp viðræður þá ákveður forsætisráðherrann með fullum stuðningi framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar að sniðganga bindandi álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og senda sjómennina sem hafa staðið í áratuglangri baráttu í enn eina ferðina fyrir dómstóla landsins til þess að knýja á um að stjórnvöld fari að bindandi áliti.
Mikil er skömm Jóhönnu Sigurðardóttur í þessu máli.
Eigum ekki að hræra í innyflum hvers annars | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2011 | 23:37
Fundur Samherja mun snúast gegn kvótakerfinu í sjávarútvegi!
Ég hef mikla trú á Oddi Helga Halldórssyni stofnanda og leiðtoga L- listans á Akureyri. Hann hefur ávallt komið mér fyrir sjónir sem jarðbundinn og heiðarlegur stjórnmálamaður. Á dögunum fór forstjóri Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson fram á það við Akureyrarbæ að haldinn yrði sérstakur upplýsingafundur um afleiðingar þess að breyta kvótakerfinu í sjávarútvegi, sem brýtur í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Að sjálfsögðu varð Oddur Helgi við bón Þorsteins Más, en orð fer af því hversu harðdrægur útgerðarmaður hann er og sleipur í kvótafrumskóginum, þó svo að hann hafi vissulega misstigið sig illilega í bankabraskinu en það gerðu víst fleiri.
Ég reikna með því Oddur Helgi veiti á fundinum haldgóðar upplýsingar um hversu Eyfirðingar hafa farið illa út úr Kvótakerfinu í sjávarútvegi og þá er ég ekki einungis að benda á hversu verstöðvarnar Hrísey og Grenivík hafa látið á sjá heldur einnig sjálf Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu hafa Eyfirðingar farið sérstaklega illa út "þróun og meintri hagræðingu" kvótakerfisins frá árinu 1993.
Landaður botnfiskafli á Akureyri hefur dregist saman um liðlega 67% frá árinu 1993, samkvæmt opinberum gögnum Fiskistofu.
Hrísey og Grenivík hafa farið enn verr út úr kvótakerfinu en landaður afli í byggðalögunum hefur dregist saman annars vegar um 77% og hins vegar 90%.
Ég er nokkuð viss um að þegar þessar sláandi upplýsingar verða ræddar fundinum í Hofi á Akureyri þá muni það verða til þess að ábyrgir sveitarstjórnarmenn og verkalýðsleiðtogar í Eyjafirði krefjist gagnrýnnar endurskoðunar á kvótakerfinu og sömuleiðis tafarlausra breytinga. Áframhaldandi skuldsetning og afturför sjávarútvegsins er óþolandi fyrir sjávarbyggðirnar og landsmenn alla.
26.1.2011 | 00:03
Stjórnarandstaðan blæs lífi í dauðvona ríkisstjórn
Við öllum blasir klúður ríkisstjórnarinnar í stjórnlagaþingsmálinu. Óvart var sú framkvæmd á ábyrgð vinsælasta ráðherra landsins í seinni tíð, sem rætt hefur verið um að eigi eftir að verma forsetastól Íslands. Eflaust hafa pappakassarnir og ódýru skilrúmin verið liður í að gera framkvæmdina eins ódýra og kostur var en hörð gagnrýni var uppi í samfélaginu á kostnað við stjórnlagaþingið, á niðurskurðartímum.
Nú liggur niðurstaða Hæstaréttar fyrir og framkvæmdin fékk falleinkunn. Í stað þess að þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks bjóðist til þess að lappa upp á stjórnarskrána eða þá að aðstoða ríkisstjórnina við að standa sæmilega að framkvæmd kosninga þar sem kosið yrði í leiðinni um Icesave, þá eru þingmennirnir komnir í gamla góða sandkassann.
Framsóknarmenn gleðjast mjög yfir rándýru klúðri við að framkvæma eitt af forgangsverkefnum formanns Framsóknarflokksins. Heldur reiðilega bergmálar varaformaður Sjálfstæðisflokksins málflutning Framsóknar - ekki er boðið upp á neinar lausnir frekar en hjá systurflokknum. Sama má segja um málflutning þægs kjölturakka kerfisins, Einars K. Guðfinnssonar sem skrifar á bloggsíðu sína um svipað leyti og landsleik Íslands og Frakklands lauk, grein undir fyrirsögninni; Áfall fyrir lýðræðisríkið Ísland.
Báðir hrunaflokkarnir Framsókn og Sjálfstæðisflokkur leggja algjöra ofuráherslu á að breyta helst ekki einu né neinu af þeim kerfum sem ollu hruninu og alls ekki illræmdu kvótakerfi sem brýtur í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Engu líkara er að forystumenn Sjálfstæðis og Framsóknarflokks átti sig ekki á því að með þessum málflutningi eru þeir að blása af kappi lífi ónýta og dauðvona ríkisstjórn.
Meiriháttar áfall fyrir Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.1.2011 | 00:33
Heimskulegar hótanir Samtaka atvinnulífsins
Forsvarsmenn Samtaka Atvinnulífsins hafa í hótunum við stjórnvöld og þjóðina vegna áforma um að breyta illræmdu kvótakerfi í sjávarútvegi. Ekki er úr vegi að staldra við hvers vegna í ósköpunum SA hafa gefist upp á að leggja með sér málefnaleg og sanngjörn rök fyrir því að halda áfram með óbreytt kerfi, sem brýtur reyndar vel að merkja algerlega í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Ástæðan er einfaldlega sú að forystumenn SA með gamla ráðuneytisstjórann í sjávarútvegsráðuneytinu eru algerlega rökþrota. Sjávarútvegurinn er skuldum vafinn og þarfnast stór hluti fyrirtækjanna afskrifta. Kvótakerfið hefur ennfremur algerlega brugðist því upphaflega hlutverki sínu að auka aflann, en þorskaflinn nú er einungis þriðjungurinn af því sem hann var fyrir daga kvótans.
Örvæntingafullur málflutningur forsvarsmanna samtakanna sem kenna sig svo ábúðarfull við atvinnulífið, ber með sér mikla tilvistarkreppu SA. Samtökin hafa á umliðnum árum haft lítinn áhuga á að sinna minni fyrirtækjum og hafa minni atvinnurekendur verið hálfmunaðarlausir enda fór mikið púður hjá forsvarsmönnum SA, í útrásina. Fyrrum formaður Samtaka atvinnulífsins var staðinn af glæpsamlegu atferli með bótasjóð Sjóvár og framkvæmdastjórinn núverandi Vilhjálmur Egilsson var ötull þjónn útrásarinnar. Kjarasamningar útrásartímabilsins einkenndust af því að SA og verkalýðsforstjórarnir sameinuðust um setja æ stærri hluta launaumslagsins í sjóði sem nýttust síðan við að keyra útrásina örlítið lengur áfram en ella.
Óábyrg skuldsetning og oflátungsskapur endaði með hruni útrásarfyrirtækjanna sem réðu SA. Forsvarsmenn SA s.s. Vilhjálmur Egilsson heimta hótandi engu að síður nú að gera allt með nákvæmlega sama hætti og í aðdraganda hrunsins. Engu líkara er en að þeir átti sig ekki á stöðu sinni en þeir sitja nú í skjóli skilanefnda bankanna, fjármálafyrirtækja og tryggingafélaga sem endurreist voru með skattfé almennings og síðan endurreistum fyrirtækjum sem fjármögnuð eru af lífeyri landsmanna.
Í þessari þröngu stöðu sem Samtök atvinnulífsins eru í þá eru þessar hótanir í garð launþega og þjóðarinnar ekki einungis ófyrirleitnar heldur einnig fádæma heimskulegar.
Margir á fundi um atvinnumál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hlutirnir eru ekki að ganga upp hjá borgarstjóranum en honum virðist samkvæmt fréttum þykja allir sem ekki eru í Besta flokknum og systur flokki hans Samfylkingunni leiðinlegir.
Sjálfur hef ég reynt í liðlega hálft ár að ná tali af formanni Besta flokksins en án árangurs og í framhaldi af þeim samskiptum eða samskiptaleysi réttara sagt fór ég að velt fyrir mér hvers konar fíflagangur sé í gangi í ráðhúsi Reykjvíkur.
Eitthvað eru Besta flokksmenn farnir að skynja óróa borgarbúa og þeim þyki nóg boðaða breytingu á sorphirðu í Reykjavík kennda við 15 metrana, sem ætlað er að taka gildi innan skamms. Reglur Besta flokksins og Samfylkingarinnar fela í sér að borgarbúar þurfi að greiða mikinn aukakostnað þrátt fyrir minni þjónustu.
Í stað þess að fara yfir gagnrýni á sorphirðuna eða svara henni efnislega þá hleypir Besti flokkurinn af stokkunum alþjóðlegri undirskriftarsöfnun til að stöðva óþörf og ómannúðleg dráp á Ísbjörnum á Íslandi.
Ég leyfi mér að efast um hversu jákvæð þessi herferð Jóns Gnarr er fyrir ímynd landsins. Okkur Norðlendingum þykir mörgum það nokkuð sérstök skilaboð frá Besta flokknum að telja það vera í góðu góðu lagi að hafa hér Ísbirni á vappi í næsta nágrenni við íbúa og búpening.
Ef til vill er skýringin á þessum tillögum að Jóni Gnarr leiðist almennt Norðlendingar, nema að það sé hugmynd Besta flokksins að nýta þær milljónir sem sparast í sorphreinsunardeildinni í Reykjavík til þess að stofna hér sérstaka ísbjarnarbjörgunardeild norðan heiða.Samskiptin við minnihlutann tímaeyðsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2011 | 22:42
Jæja Flateyringar - "túttí frúttí"
Í Kastljósi sjónvarpsins birtist framkvæmdastjóri sem nýbúinn var að reka sjávarútvegsfyrirtæki sitt í þrot. Gjaldþrot var staðreynd þrátt fyrir að fiskvinnslan væri sú eina í einni bestu verstöð landsins sem liggur mjög vel við auðugustu fiskimiðum heims. Aldrei í sögu þjóðarinnar hefur gengi gjaldmiðilsins verið hagstæðara fyrir sjávarútveginn en samt gekk reksturinn ekki upp. Ástæðan er einfaldlega sú að rétturinn til að nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar var seldur úr verstöðinni og þeir sem eftir sátu þurfa að kaupa hann eða leigja hann dýrum dómum - svo dýrum að enginn rekstur stendur undir því.
Hver voru síðan skilaboð framkvæmdastjórans Teits Björns Einarssonar? Jú þau voru að ekki mætti hrófla við einu né neinu í kvótakerfinu sem lagði byggðalagið og fyrirtækið í rúst! Er maðurinn túttí frúttí?
Það er nokkuð ljóst að Flateyringar þyrftu ekki að senda nein neyðarblys á loft ef að Frjálslyndi flokkurinn réði ferðinni í sjávarútvegsmálum þar sem að þá væru handfæraveiðar frjálsar og sjómönnum leyfðist að róa með línustubb s.s. eins og 8 bala án þess að þurfa greiða einum né neinum sérstakt leigugjald fyrir.
17.1.2011 | 12:19
Jón Gnarr velur ófrið þó svo friður sé í boði
Greinilegt er að Jón Gnarr borgarstjóri og Dagur B. Eggertsson álíta sig svo mikla menn að þeim sé algerlega í sjálfsvald sett hvort þeir fari að úrskurði æðra stjórnvalds um greiðslu styrkja til lýðræðiskjörinna framboða.
Ráðuneyti sveitarstjórnarmála hefur tvívegis gefið út það álit að Reykjavíkurborg haldi eftir styrkjum sem Frjálslyndi flokkurinn á rétt á samkvæmt lögum 162/2006 og sömuleiðis beindi ráðuneytið þeim tilmælum með skýrum hætti til Jóns Gnarr að leitað yrði lausnar á málinu með samráði og samtölum við forráðamenn Frjálslynda flokksins. Þess ber að geta að forráðamenn Frjálslynda flokksins hafa reynt að ná fundi með Jóni Gnarr frá því á miðju síðasta ári en án árangurs, vegna mikilla anna borgarstjóra að sögn aðstoðarmanna hans. Að vísu boðaði Jón Gnarr, Guðjón Arnar Kristjánsson til fundar við sig í ráðhúsinu einn daginn en skýringalaust mætti borgarstjóri ekki á þann fund.
Ég hef aflað mér þokkalegrar reynslu í gegnum tíðina af hinum ýmsu félagastörfum s.s. fyrir íþróttahreyfinguna, pólitískt starf og sömuleiðis áratuga starf í opinberri stjórnsýslu. Aldrei fyrr hef ég kynnst öðrum viðlíka vinnubrögðum og hjá Jóni Gnarr. Erfitt er að ráða í hvað ræður för hjá borgarstjóranum en það gildir einu hvort um sé að ræða hroka, bjálfagang eða spaug, þá er það ekki fallega gert hjá Jóni Gnarr að setja starfsmenn Reykjavíkurborgar s.s. sérfræðing sinn í upplýsingamálum í þá andstyggilegu stöðu að þurfa fara með villandi málflutning um framgang málsins.
Sú spurning hlýtur að vakna hvers vegna "friðarsinninn" Jón Gnarr kjósi ofríki og átök þó að friður og samtöl séu í boði af hendi Frjálslynda flokksins?
14.1.2011 | 23:16
Steingrímur undirbýr klofning
Ekki vottar fyrir neinum sáttartóni hjá Steingrími J í fundarherferð hans um landið. í kvöld mætti fjármálaráðherra í öllu sínu veldi á fund í Skagafjörðinn. Ef Steingrímur hefði ætlað að ná flokknum saman þá hefði verið nærtækast að hafa með sér unga vinsæla dalamannin, Ásmund Einar Daðason sem er vinsæll m.a. vegna andstöðu sinnar við ESB og blóðugan niðurskurð á Heilbrigðisstofuninni á Sauðárkróki. Í stað þess hafði Steingrímur með sér Árna Þór stofnfjárbraskara og Eprópusinna og sömuleiðis ætlaði hann að hafa með sér einn allra óvinsælasta þingmann VG í Skagafirði Björn Val Gíslason sem barðist af alefli fyrir að rústa algjörlega heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Spurst hefur að fundurinn hafi verið mjög fámennur enda takmarkaður áhugi sveitunga minna á að hitta kvalara sína.
Vinnubrögð Steingríms sýna að hann undirbýr fyrirsjáanlegan klofning í flokknum og er að reyna að þjappa fólki í kringum sína þröngu klíku.
7.1.2011 | 14:39
Sóknaráætlunin er skýrsluskvaldur
Afrakstur 20/20 áætlunar ríkisstjórnarinnar er lítið annað en samtíningur úr gömlu skýrsluskvaldri, þar sem iðlulega koma fram heitingar um að: efla öflugt, nýstárlegt, sameina, votta, setja á fót klasa, efla nýsköpun og þekkingarsamfélagið, framþróa heildræna samþætta stefnu, efla menntun og jafnrétt osfrv.
Þegar búið er að skræla utan af orðskrúðinu stendur fátt ef nokkuð eftir um raunverulegar aðgerðir til þess að ná fram markmiðum um að Íslands verði í fremstu röð árið 2020.
Ekki er ég viss um að upphaflega hafi verið sáð til þess að 20/20 áætlunin varðaði leið að raunhæfum mælanlegum markmiðum fyrir Ísland, heldur miklu frekar að búa til svið fyrir Dag B. Eggertsson í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna sl vor.
Ég lenti í því að taka þátt í þjóðfundi í tengslum við 20/20 áætlunina eins og fram kemur hér í pistlinum maður er manns gaman 20/20 áætlunin.
Sóknaráætlun í skjóli niðurskurðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2011 | 22:25
Allt sem skiptir máli er rætt á Harmageddon
Í gær var ég í viðtali á útvarpsstöðinni X inuí þættinum Harmageddon hjá þeim Mána og Frosta. Í þættinum Harmageddon er rætt allt sem skiptir máli eða eins og segir kynningu á þættinum "hver er ríkur, frægur, samkynhneigður, íþróttamaður, eiturlyfjaneitandi eða klæðskiptingur í karlmannsleit" og svo auðvitað við formann Frjálslynda flokksins.
Máni og Frosti er skynsamir og jarðbundnir sveinar sem spá í þjóðmálin m.a. út frá því sjónarhorni hvernig hlutirnir snerta strax með beinum hætti manninn á götunni.
Greinilegt var að spyrlum Harmageddon var ofarlegar í huga en mér hver afdrif aðildarumsóknar Íslands að ESB yrðu. Mátti vel greina hjá þeim þá von að aðlid færði lausn margra mála s.s. vondra stjórnmála, spillingar og stjórn efnahagsmála. Ég er þeirrar skoðunar að hver s.s. niðurstaðan verður í samningaviðræðum og þjóðaratkvæðagreiðslu þá situr íslenskt samfélag upp með þau verkefni sem eru lífsnauðsynleg til þess að komast út úr ógöngum s.s. að taka á spillingu og stjórna efnahagsmálum af einhverri framsýni.
Ekki er ég heldur að svo viss um að það sé von um harðan jólapakka frá Evrópusambandinu sem hefur haft í hótunum við landið í miðju hruni út af ólíklegustu hlutum s.s. greiðslu Icesave og veiða á makríl innan efnahagslögsögu Íslands.
Evrópusambandið er að mínu viti hvorki í eðli sínu gott eða vont heldur stórt hagsmunatengt stjórnkerfi þar sem ráða aðrir kraftar og sjónarmið en skipta öllu máli fyrir íslenskt samfélag.
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 196
- Sl. sólarhring: 658
- Sl. viku: 740
- Frá upphafi: 1013887
Annað
- Innlit í dag: 184
- Innlit sl. viku: 644
- Gestir í dag: 181
- IP-tölur í dag: 181
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007