Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
31.10.2008 | 18:06
DV að sækja í sig veðrið
Oft og einatt er sami vinkillinn í fréttamiðlum á Íslandi, rætt við hagsmunasamtök og málflutningur þeirra fluttur gagnrýnislítið, hvort sem það er LÍÚ eða úr greiningardeildum bankanna margrómuðu og síðan mæta hóparnir sitt á hvað í hina ýmsu fjölmiðla og ræða málin út frá sama sjónarhorninu. Það er oft eingöngu blæbrigðamunur á fréttaflutningi t.d. Fréttablaðsins og Morgunblaðsins þar sem skrúfað er reglulega frá mönnum á borð við Ragnar Árnason sem sannarlega hefur haft rangt fyrir sér varðandi þjóðahagslega hagkvæmni og ábyrgð í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.
Dæmi um slíkt er viðtal við Ragnar í Morgunblaðinu í vikunni þar sem Ragnar tíundaði kosti kerfis sem skilar þrisvar til fjórum sinnum færri þorskum á land, og fyrirtækin sem eftir standa í greininni eru skuldum vafin.
Í DV kveður oft við annan tón og ferskara sjónarhorn. Í DV og jafnvel á Útvarpi Sögu eru málin krufin frá hinum ýmsum hliðum. Það sem er kannski einna verst við hvítu pressuna er að menn leggja ekki í að rökræða ákveðin sjónarmið, heldur er reynt að dæma eða öllu heldur gjaldfella málflutning án þess að fara yfir röksemdir.
Breytingar eru í vændum í íslensku samfélagi. Það skyldi þó aldrei verða að hvítþvottapressan gæfi á endanum eftir þar sem frjálsari fjölmiðlar sem ekki eru bundnir á klafa þröngra hagsmunasamtaka og valdaflokka sækja í sig veðrið gegn hvítu pressunni.
30.10.2008 | 10:54
Eru þetta ekki seiðin sem voru á matseðlinum í Grímsey?
Nú furða menn sig enn og aftur á því að aukin friðun gefi ekki af sér fleiri seiði - það er enn verið að bíða og bíða.
Hvernig væri nú að blaðamenn og aðrir sem fjalla um sjávarútvegsmál færu nú að tengja?
Faglegum gagnrýnum skýrslum á þær aðferðir sem notaðar hafa verið á umliðnum árum er stungið undir stól og haldið er áfram með svokallað uppbyggingarstarf á þorskstofninum sem hefur hvergi gengið eftir í heiminum.
2008 árgangur þorsks virðist slakur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 10:40
Hvað var Konráð Alfreðsson að meina þá?
Í gær birtist Konráð Alfreðsson í fjölmiðlum landsmannaþar sem að hann fullyrti að Seðlabankinn væri vísvitandi að koma af stað fjöldagjaldþrotum í sjávarútvegi meðal sterkustu fyrirtækja í greininni.
Margur taldi fyrir víst að Konráð ætti við Samherja sem hefur löngum talist til sterkari fyrirtækja í sjávarútvegi. Í ársreikningum Samherja fyrir árið 2006 sem eru þeir síðustu sem fyrirtækið hefur birt kemur fram að skuldir félagsins séu um 32 milljarðar á meðan tekjur af veiðum og vinnslu voru um 17 milljarðar. Frá árinu 2006 hefur fyrirtækið gefið laxeldið upp á bátinn og sömuleiðis herma fréttir að ekki hafi allar fjárfestingar í Færeyjum gengið upp.
Það er þó ekki allt svart sem betur fer þar sem bleikjueldið gengur ágætlega. Eitt er víst að mun aldrei geta náð sér út úr skuldafeninu með núverandi fiskveiðistjórn þar sem leyfður þorskafli er einungis þriðjungur af því sem hann var áður en svokallað uppbyggingarstarf hófst.
Segja stöðu Samherja sterka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 22:15
Pínleg staða Einars Kristins Guðfinnssonar
Í Kastljósi kvöldsins réttlætti Einar Kristinn Guðfinnsson 50% hækkun stýrivaxta. Það hefði svo sem verið ókei ef að ráðherrann hefði ekki haft það sem helsta baráttumál á liðnum árum að lækka umrædda vexti. Fyrr á þessu ári þá skrifaði Einar Kristinn Guðfinnsson pistil þar sem að hann vitnaði í sjálfan Björgólf Thor Björgólfsson til marks um að Seðlabankinn yrði að skrúfa vextina niður.
Einar Kristinn er vanur maður þegar kemur að því að snúa algerlega við blaðinu. Hann bauð sig fram fyrir hverjar kosningar á fætur öðrum á þeim forsendum að hann væri á móti kvótakerfinu og myndi jafn vel ekki styðja ríkisstjórn sem endurskoðaði ekki kerfið sem rústaði vestfirskum byggðum.
Eftir að hann varð ráðherra varð kerfið skyndilega heilagt og svo mjög að ekki má breyta því þó svo að það hafi verið úrskurðað af Sameinuðu þjóðunum sem óréttlátt.
Hvernig er það Sjálfstæðisflokkinn - Vilja menn á þeim bænum láta taka sig alvarlega?
Vaxtahækkun jók bankakreppuna í Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 19:12
Þiggjum aðstoð Færeyinga á fleiri sviðum
Færeyingar eru mikir höfðingjar að bjóðast til að hjálpa okkur á erfiðum tímum.
Íslenskir ráðamenn ættu að setjast yfir það með Færeyingum hvernig þeim tókst að komast út úr sinni krísu á tíunda áratugnum, en það gerðu þeir meðal annars með því að hætta að nota kvótakerfi við að stýra fiskveiðum. Færeyingar höfðu reynt kvótakerfi í 2 ár með afar slæmum afleiðingum s.s. brottkasti og minnkandi afla. Hér höfum við reynt kvótakerfi með hræðilegum afleiðingum í tvo áratugi.
Utanríkisráðherra Færeyinga og formaður Fólkaflokksins, Jörgen Niclasen sem gegndi áður starfi sjávarútvegsráðherra, er sá stjórnmálamaður sem staðið hefur vörð um færeyska fiskveiðistjórnunarkerfið í sjávarútvegi. Nú er um að gera fyrir íslensk stjórnvöld að taka upp viðræður við utanríkisráðherra Færeyinga og kynna sér fordómalaust gríðarlega mikinn árangur Færeyinga við að stjórna fiskveiðum. Við það eitt að taka upp færeyska kerfið þá streymdu í auknum mæli margir tugir milljarða króna í beinhörðum gjaldeyri til að þjóðarbúsins.
Siðferðileg skylda að hjálpa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.10.2008 | 22:45
Yfirmaður loddaradeildarinnar leysir úr vanda lántakenda
Greiningadeildir bankanna sálugu voru eins konar áróðurs- og sölubatterí fyrir bankanna sem höfðu það helsta markmið að skrúfa upp í hæstu hæðir verð á "öruggum" hlutabréfum í bönkunum og tengdum fyrirtækjum.
Mér finnst það óneitanlega í takt við annað við úrlausn bankahrunsins að Samfylkingin skuli skipa fyrrum yfirmann greiningardeildar Landsbankans, Eddu Rós Karlsdóttur í nefnd sem á að leysa úr vanda viðskiptavina bankans, sem sumir hafa eflaust látið gabbast af fræðilegum loddaraskap greiningadeildanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.10.2008 | 10:52
Morgunblaðið bjargar í horn
Morgunblaðið hefur misboðið mörgum lesendum sínum á umliðnum vikum í umfjöllun um bankahrunið en þó tók steininn úr í gær.
Áróður blaðsins hefur gengið út á það að hrunið væri ekki neinum einum um að kenna nema þá helst eyðslu almennings og var Þessi tónn hávær í efnistökum blaðsins sem kom út í gær. Svo mjög að einhverjir tóku blaðið á orðinu og ákváðu að spara þær baunir sem fara í kaup á Morgunblaðinu.
Við blasti að trúverðugleiki blaðsins biði þvílíkan hnekki að fátt eitt gæti komið blaðinu til bjargar annað en skylduáskrift. Ritstjóri Morgunblaðsins virðist hafa séð það ráð vænst í leiðara blaðsins í dag að skamma fyrrum eigendur Landsbankans fyrir bankaklúðrið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.10.2008 | 13:23
Morgunblaðið tekur afstöðu með útrásarvíkingum gegn Geir Haarde
Í Morgunblaðinu kemur skýrt fram að blaðið tekur afstöðu með eigendum sínum Björgólfunum og gegn Geir Haarde forsætisráðherra.
Stjörnublaðamaðurinn Agnes Bragadóttir tekur tilfinningaþrungið viðtal við Björgólf Guðmundsson útrásarvíking en í viðtalinu kennir hann ríkisstjórn Íslands að stórum hluta um ófarir bankanna.
Blaðið er með umfjöllun um neyðarlögin þar sem slegið er úr og í varðandi réttmæti þeirra.
Síðast en ekki síst kemur fram sú furðulega afstaða í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins að bankahrunið sé ekki bein afleiðing fjárglæfra og lausataka stjórnvalda við stjórn efnahagsmála og fjármálaeftirlits, eins og ætti að vera flestum ljóst. Nei ritstjóri Morgunblaðsins étur upp eftir eiganda blaðsins þá skoðun að bankahrunið sé stjórnvöldum að kenna og þá sérstaklega þrákelkni Geirs Haarde við að vilja standa fyrir utan ESB sem hafi síðan beinlínis orðið til þess að sett voru neyðarlög, þar sem ótal lagaákvæðum var sópað til hliðar.
Farið inn í brennandi hús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.10.2008 | 14:45
Í hverju er Samfylkingin lent? Icesave í Hollandi var stofnað í vor
Samfylkingin var stofnuð með það að markmiði að verða mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn.
Nú eru breyttir tímar og Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin eiga í nánu samstarfi með hræðilegum afleiðingum fyrir Íslendinga. Samfylkingin veitti í stjórnarandstöðu stjórnarháttum Sjálfstæðisflokksins á köflum eitthvert aðhald. Samfylkingin gat beitt sér hart í málum sem snertu fjölmiðla en minna fór fyrir andstöðu við einkavinavæðingu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, hvað þá mannréttindabrotum stjórnvalda á sjómönnum. Mögulega hefur leiðtogi Samfylkingarinnar talið það betur fallið til vinsælda að hafa fjölmiðla með sér og svo er hitt, það að taka á spillingunni í kringum ráðstöfun bankanna gat verið of viðkvæmt fyrir mögulega samstarfsaðila á komandi kjörtímabilum.
Nú er flokkurinn kominn í þá ömurlegu stöðu að verja vítaverða stjórnahætti liðinna ára og bæta jafnvel gráu ofan á svart í þeim efnum. Það hefur Samfylkingin gert með því að taka þátt í aðgerðarleysi, flytja þjóðinni hálfsannleik og jafnvel skrök um stöðu mála.
Hver hefur ekki heyrt hvern ráðherra Samfylkingarinnar á fætur öðrum enduróma bergmálið úr Valhöll - það ber enginn einn ábyrgð á stöðu mála - stöndum saman - kreppan kom að utan??
Bæði forsætisráðherra og viðskiptaráðherra hafa haldið því fram á síðustu dögum að hægt hefði verið að stofna útibú Icesave á grundvelli einfaldrar tilkynningar og þá hafa þeir vísað til EES-samningsins. Þetta er ekki rétt þar sem Fjármálaeftirlitið getur bannað stofnun útibús á EES enda gerir tilskipun EES ráð fyrir því að hægt sé að stofna til útibús á EES-svæðinu. Það er tekið sérstaklega fram í 36. gr. laga nr. 161/2002:
Fjármálaeftirlitið getur bannað stofnun útibús skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að stjórnun og fjárhagsstaða hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis sé ekki nægilega traust.
Það er ömurlegt fyrir skattgreiðendur og sömuleiðis Íslendinga framtíðarinnar að vita til þess að útibú Landsbankans var stofnað í vor þegar nokkuð ljóst var orðið að á brattann væri að sækja fyrir íslensku bankana. Frétt um stofnun hollenska útibúsins birtist á bls. 7 í afkomutilkynningu Landsbankans frá 29. júlí 2008.
24.10.2008 | 20:50
Aumkunarverður viðskiptaráðherra
Það var dapurlegt að horfa upp á Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra í Kastljósinu í kvöld. Björgvin er góður drengur sem vill láta gott af sér leiða og sýna af sér ákveðna snerpu eins og þegar hann setti bráðabirgðalög um rafföng á Keflavíkurflugvelli. Hvers vegna segir hann þjóðinni ekki satt? Hann lætur líta út sem eitthvað hafi breyst frá 15. september eins og að lausafjárkreppa hafi skollið skyndilega á sem hafi orðið til þess að allir bankarnir fóru á hausinn á tveimur vikum.
Hver sá sem veltir þessum hlutum eitthvað fyrir sér veit betur. Það þurfti engan speking til að átta sig á að helstu máttarstólpar Glitnis töpuðu hátt í 70 milljörðum á FL Group og þar að auki gekk rekstur fjölda fyrirtækja sem tengdust bönkunum, s.s. Eimskipafélagið, afar illa og voru skuldsett langt út fyrir skynsamleg mörk. Hið sama má segja um veð sem voru tekin í sjávarútvegsfyrirtækjum, staðan í íslensku viðskiptalífi var orðin gríðarlega þröng. Björgvin á náttúrlega að segja eins og er, hann hafi verið að klóra í bakkann í þessum viðtölum og skrifum á heimsíðunni þar sem hann taldi að íslensku bankarnir stæðu einstaklega vel og að einhverjir útlendingr væru í rógsherferð.
Það má segja að með þessum digurbarkalegu yfirlýsingum hafi verið reynt að berja í brestina en skynsamlegra hefði verið fyrir stjórnvöld hefðu strax hugað að útgönguleið og reynt að tryggja hag íslensks almennings.
Núna þarf þjóðin að gera upp við sig hvort hún treysti fólkinu sem svaf á verðinum til að hreinsa upp eftir sjálft sig. Það blasa við möguleikar til að gera betur, spara í utanríkisþjónustunni og ná í meiri gjaldeyri úr hafinu.
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007