Leita í fréttum mbl.is

Pínleg staða Einars Kristins Guðfinnssonar

Í Kastljósi kvöldsins réttlætti Einar Kristinn Guðfinnsson 50% hækkun stýrivaxta.  Það hefði svo sem verið ókei ef að ráðherrann hefði ekki haft það sem helsta baráttumál á liðnum árum að lækka umrædda vexti.  Fyrr á þessu ári þá skrifaði Einar Kristinn Guðfinnsson pistil þar sem að hann vitnaði í sjálfan Björgólf Thor Björgólfsson til marks um að Seðlabankinn yrði að skrúfa vextina niður.

Einar Kristinn er vanur maður þegar kemur að því að snúa algerlega við blaðinu. Hann bauð sig fram fyrir hverjar kosningar á fætur öðrum á þeim forsendum að hann væri á móti kvótakerfinu og myndi jafn vel ekki styðja ríkisstjórn sem endurskoðaði ekki kerfið sem rústaði vestfirskum byggðum.

Eftir að hann varð ráðherra varð kerfið skyndilega heilagt og svo mjög að ekki má breyta því þó svo að það hafi verið úrskurðað af Sameinuðu þjóðunum sem óréttlátt.

Hvernig er það  Sjálfstæðisflokkinn - Vilja menn á þeim bænum láta taka sig alvarlega?


mbl.is Vaxtahækkun jók bankakreppuna í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Yfirleitt eru sjálfsstæðismenn að grínast en gallinn er sá að fólk tekur þá alvarlega. Ætli Einar sé kominn með veiðikort?

Víðir Benediktsson, 28.10.2008 kl. 23:55

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sjálfstæðismenn hafa hingað til tekið hverja boðun forystunnar sem hinn eina boðskap. Forystan fær á hverjum tíma ábendingar frá flokkseigendafélaginu um hvaða ríkiseigur meðlimir þess þurfi að fá afhentar til að lenda ekki í fjárhagslegri andnauð.

Árni Gunnarsson, 29.10.2008 kl. 00:37

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mér sýnist einn mesti vandinn við styrkingu krónunnar vera sá að stjórnvöld skorti það sem kallast traust, um þessar mundir.

Sigurjón Þórðarson, 29.10.2008 kl. 00:41

4 identicon

Menntafólk hefur brugðist heimskum almenningi og það á að tukthúsa snobbpakkið um ókomin ár,stýrisvaxta hækkun kemur þeim vonandi fljótar frá þessum blábjánum. Og þið sem ætlið að taka við verðið að koma með rótækar aðgerða ekkert hálfkák t.d.laun bankastjóri 100kall laun fiskverkakona 100 kall og þjóðin borgar sína skuld meðan menntafólkið er ekki baggi á þjóðinni og tekur út sina réttlátu refsingu.

Luðvik (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 00:54

5 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn ber alla ábyrgð á stöðunni sem er upp núna. Við þurfum kostningar sem fyrst til að fá tækifæri til að hreinsa til. Það er full ástæða fyrir stjórnmálamenn til að óttast dóm kjósenda. Það voru Sjálfstæðismenn sem settu leikreglurnar í fjármálakerfinu. Það er fráleitt að kenna kaupsýslumönnum og bankamönnum um stöðuna þegar þeir voru látnir spila eftir götóttum leikreglum. Það var marg varað við afleiðingum þess að fella niður bindiskylduna ofl. Svo vitlaus var stefnan að maður er farinn að halda að Sjálfstæðismenn hafi velt kerfinu af ásettu ráði til þess eins að koma gamla kolkrabbanum sínum í framlínuna aftur.

Ólafur Garðarsson (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 07:58

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta sem við köllum sjávarútvegsráðherra, er hlaupatík og ómerkingur.  Ég hef mikla skömm á þessum tiltekna manni.  Vill hann burtu með restinni af þessu liðið, og það strax.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2008 kl. 10:41

7 Smámynd: Rannveig H

Ég tek heilshugar undir orð Ásthildar, Einar hefur staðið einna verst sem ráðherra,og þá er mikið sagt. Það á eftir að koma enn betur í ljós þegar þjóðin verður að horfa betur til þeirra atvinnuvega sem geta haldið í okkur lífinu. Einar ætti að stefna að því að hysja upp um sig buxurnar og skilja eftir sig spor sem hann getur verið stoltur af núna síðustu mánuði sem hann verður í embætti. Einar á og hann skuldar okkur það, að afla frumvarpi FF um fiskveiðistjórnun fylgi.

Rannveig H, 29.10.2008 kl. 14:13

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já Það er rétt hjá Ásthildi að Einar K. hefur ekki verið að gera það gott a.m.k. ekki fyrir Vestfirðinga.

Sigurjón Þórðarson, 29.10.2008 kl. 15:18

9 Smámynd: Dunni

Einar er sjálfsagt náinn ættingi Ragnars Reykáss.

Ég her reyndar ekki getað fylgst með hverju orði Einars undanfarin ár.  En ég hef aldrei aldrei orðið þess var að hann tali um breytingar á fiskveiðikerfinu nema í kosningabáráttu.  Þar fyrir utan er kvótakerfið bæði gleymt og  vandlega geymt.

Annars var frammistaða hans í kastljósinu dulítð pínleg.

Dunni, 29.10.2008 kl. 18:01

10 identicon

ég ber nú bara virðingu fyrir fólki sem skiptir um skoðun eftir því sem aðstæður breytast. það sem hentaði fyrir nokkrum árum og menn börðust fyrir hentar kannski ekki í dag. það er nokkuð ljóst að ekkert ykkar þekkir einar af eigin raun því hann er öðlingsmaður. það getur vel verið að þið séuð ósammála einhverjum gjörðum hans en að drulla yfir hans persónu finnst mér nú alveg óþarfi. alveg merkilegt hvað almenningur er skyndilega klár í hagfræði, sjálfmenntaðir hagfræðingar spretta upp hér og þar og fordæma hitt og samþykkja annað án þess að hafa þekkingu eða reynslu á þessu flókna fagi til að sjá heildarmyndina. það þarf stundum að gera eitthvað sem er tímabundið slæmt til þess að forða einhverju verra og hækkun stýrivaxta er dæmi um það.

Lára (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 20:19

11 Smámynd: haraldurhar

   Einar hefur ætið skriðið fyrir ríkjandi valdi, hvert sem það er. Að hann sér skipaður Ráðherra, sýnir  hve Sjálfstæðisflokkurinn hefur lága staðla í skipun embætta.

haraldurhar, 29.10.2008 kl. 20:59

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég get tekið undir með Láru um að Einar K á ýmsa kosti en hann er að mörgu leyti þægilegur og skemmtilegur. Hann var röksamur þegar hann heimilaði á hvalveiðar á ný en því miður þá virðist vera sem Samfylkingin reyni hvað hún getur til að stöðva veiðarnar.

Það er samt sem áður ekki hægt að líta fram hjá því  að staða sjávarútvegsráðherra er afar pínleg. Við framangreint má bæta að Einar K efaðist stöðugt um ráðgjöf Hafró á meðan hann var óbreyttur þingmaður en eftir að hann var orðinn ráðherra þá hefur hann farið í einu og öllu eftir ráðgjöfinni sem hann efaðist áður um og neitað að fara yfir og gaumgæfa rök þeirra sem hafa komið fram með málefnalega gagnrýni á ráðgjöf sem hefur ekki skilað neinu nema niðurskurði.

Sigurjón Þórðarson, 29.10.2008 kl. 21:48

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Já efinn um ráðgjöfina hvarf alveg eftir að hann settist í ráðherrastólinn, það var þó eitthvað sem sjá mátti.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.10.2008 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband