Leita í fréttum mbl.is

Falsspámennirnir í háskólunum

Hún kom mér ekki á óvart, greining Ingólfs Arnarssonar á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu sem Magnús Þór endursegir á heimasíðu sinni í dag. Niðurstaða Ingólfs er í stuttu máli sú að kerfið sé gjaldþrota og verðlagning á veiðiheimildum hafi ekki með nokkru móti getað staðið undir sér.

Fyrir nokkrum árum stóð ég fyrir opnum fundi í Háskólanum á Bifröst þar sem ég fór yfir háa verðlagningu kvótans, helstu kostnaðarliði í útgerð og tekjur af veiðum. Niðurstaða mín þá var að dæmið gæti aldrei gengið upp, og vel að merkja, þá var verðlagningin á kvótanum helmingi lægri en þegar hún fór í hæstu hæðir.

Enginn fundarmanna dró í efa forsendur útreikninganna, ekki heldur reikninganna en samt sem áður varð niðurstaða einlægra kvótasinna að þetta væri ekki svona. Niðurstaðan sem þjóðin horfir upp á þessa dagana er því miður svona, við sitjum uppi með útgerðarfyrirtæki sem vilja að þjóðin borgi lánin sem tekin voru til að borga fyrir veiðiheimildir sem stjórnvöld veittu sumum í kringum árið 1990 án endurgjalds.

Það undarlegasta af öllu er að spillt stjórnvöld ljá máls á því að afskrifa skuldir og halda áfram með óbreytt kerfi.

Þegar maður horfir til baka og veltir fyrir sér hvers vegna ungt fólk sem hafði dæmin fyrir framan sig og var í viðskiptafræðinámi og í háskóla að tileinka sér gagnrýna hugsun skuli ekki hafa vaknað í meira mæli verður maður að átta sig á að áróðurinn með bullkerfinu var ógurlegur. Krakkarnir fengu áróðurinn um hagkvæmni kerfisins beint í æð úr Morgunblaðinu við morgunverðarborðið. Sumir slysuðust í ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna þar sem messað var um árangur og hagkvæmni kerfisins, jafnvel í landshlutum sem voru brunarústir einar eftir framgang kerfisins. Ábyrgir stjórnmálaleiðtogar, eins og Halldór Ásgrímsson, Davíð Oddsson, Geir Haarde og Ingibjörg Gísladóttir, þvældu um stöðugleika og hagkvæmni kerfisins. Í háskólum héldu hagfræðideildir uppi linnulausum ómerkilegum áróðri um ábyrgð, hagkvæmni og skilvirkni kerfisins.

Falsspámenn eins og Ragnar Árnason héldu ráðstefnur með erlendum aðilum þar sem kerfi mannréttindabrota var blessað í bak og fyrir.

Í fyrra var síðasta tillaga Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sú að hætta þorskveiðum í nokkur ár því að þjóðarbúið stæði svo afskaplega vel og þess vegna væri rétti tíminn til að hætta tímabundið þorskveiðum og vona að í kjölfarið staflaðist þorskurinn upp á miðunum eins og vörur í pakkhúsi.

Merkilegt er núna að engin rödd berst úr háskólunum eða úr ráðandi stjórnmálaflokkum um að tímabært sé að endurskoða þessa vitleysu - nema hin einangraða rödd Kalla Matt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þetta er allt rétt, Sigurjón eins og við vitum vel, það er með ólikindum að fræðimenn komi ekki út úr skápum varðandi þau atriði sem þarna er um að ræða.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.1.2009 kl. 00:24

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

"..staflaðist upp eins og vörur í pakkhúsi"

Meistaralega orðað. En þessu trúa hagspekingar og vísindamenn HAFRÓ!

Árni Gunnarsson, 12.1.2009 kl. 00:32

3 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Sigurjón!

Er Háskóli Íslands ekki afsiðvæðingarstofnun Íslands eins og ég nefndi í pisli í gær - þar er Hannes Hólmsteinn, þar er Ragnar Árnason og hópur lægra settra og svo svífur andi - og peningar LÍÚ yfir öllu draslinu!  Heitir svona ekki "indoktrinering" sem ég veit ekki hvað kallast á íslensku en er náskylt orðinu heilaþvottur!!     Öll stjórn þessa þjóðfélags er náttúrlega geðbiluð, það hlýtur hver heilvita maður að sjá og þeir sem ekki eru þjófar eru alla vega bófar!

    Ég hef bara einusinni á ævinni unnið í fiski - misst af miklu þar - það var hjá Súlunni EA á Akureyri og ég þá 15-16 ára.    Þar var ég að stafla skreið í pressu fyrir Nígeríumarkað held ég!    Það var nú meiri ógeðsfiskurinn maður lifandi!      Ætli væri ekki rétt að benda þeim í H.Í. á að með því að pressa fiskbirgðirnar sem geyma á í sjónum er hægt að auka geymslumagnið verulega - það er ekki víst þeir átti sig á þessu, snillingarnir!    Ég er viss um að pressuna má fá hjá Súlunni fyrir lítið!  Nei annars, Sverrir er sjálfsagt búinn að selja hana!  

Kveðja,

Ragnar 

Ragnar Eiríksson, 12.1.2009 kl. 00:53

4 identicon

Háskólarnir og menntamenn bera mikla ábyrgð að þessu uppþoti Halldórs og Davíðs.  Þó þeir séu þeir sem draga fyrir landsrétt.  Hér er um hrein landráð að ræði. 

Ég veit ekki eftir hverju löggann er að bíða eftir eða þingið.  Þingið allt er ónýtt upp til hópa.

Rúnar (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 08:36

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kalli Matt er "Hrópandinn í eyðimörkinni" en hann hefur mikla og hljómfagra rödd.

Sigurður Þórðarson, 12.1.2009 kl. 10:53

6 identicon

Varðandi þá 6 - 700 milljarða sem útgerðin skuldar og forsvarsmenn hennar (LÍÚ klíkan) hefur talað hástöfum fyrir því að hluti skuldarinnar verði afskrifuð má benda á það að útgerðarmenn eru búnir í gegnum tíðina að draga út úr rekstri fyrirtækjanna og skuldsetja þau um hundruði milljarða.

Þessa peninga hafa þessir herrar verið að gambla með (í útrásinni), finnst mönnum réttlætanlegt að þeir fái að afskrifa þær skuldir sem þeir hafa safnað á fyrirtækin með þessum hætti og ætlast til að almenningur í landinu borgi.

skipstjóri (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 18:11

7 identicon

Þá tek ég undir þaug orð sem skipstjórinn segir. En fjármagnið sem hefur verið dregið útur rekstri útgerðarinnar var að stórum hluta sem notað var í útrásinna og þar af leiðandi komið okkur á þá vondu stöðu sem við stöndum í dag. Og nú er nóg komið góðir hálsar látum ekki valta yfir okkur lengur !!

Gb (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband