Leita í fréttum mbl.is

Hver borgar brúsann fyrir Heimssýn?

Á morgun stendur Heimssýn fyrir ráðstefnu um sjávarútvegsmál. Við val á frummælendum virðist gulltryggt að engin gagnrýni komi fram á íslenska kvótakerfið þrátt fyrir mannréttindabrot og að kerfið hafi markað upphafið að hruni fjármálakerfisins sem þjóðin horfir upp á skelfilegar afleiðingar af, m.a. miklar skerðingar í heilbrigðiskerfinu og vaxandi atvinnuleysi.

Uppsetningin á ráðstefnunni er fáránleg í ljósi aðstæðna í samfélaginu, og einkum fáránleg hjá samtökum sem þykjast standa vörð um hagsmuni almennings. Það sem ég fór að velta fyrir mér var hvort sjávarútvegsráðuneytið og þröng hagsmunasamtök í samfélaginu standi undir kostnaði við ráðstefnuhaldið, s.s. við komu norska sérfræðingsins. Ef svo er er bara hreinlegra að þetta sé gert í nafni LÍÚ og/eða sjávarútvegsráðuneytisins.

Sjálfur hef ég miklar efasemdir um skynsemi þess að ganga í Evrópusambandið út frá fiskveiðihagsmunum, ekki vegna þess að íslenska kerfið sé svo gott - eins og fram hefur komið - heldur vegna þess að það eru meiri líkur á að breyta kerfinu í átt til meriri skynsemi og réttlætis ef við stöndum utan ESB.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Ég held að Heimssýn sé nú ekki vettvangur baráttu um kvótakerfi sjávarútvegs, hins vegar á Frjálslyndi flokkurinn fulltrúa þar, Kolbrúnu Stefánsdóttur ritara flokksins.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.1.2009 kl. 22:26

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Rétt hjá þér Guðrún María og hún er bæði á móti kvótakerfinu í núverandi mynd og inngöngu í ESB. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 10.1.2009 kl. 22:38

3 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Þarna er fólk sem lætur sægreifana nota sig í botn. - Það þarf ekki að opna augun mikið til að sjá það.

Helgi Jóhann Hauksson, 10.1.2009 kl. 22:45

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Heimssýn hefur einfaldlega enga stefnu gagnvart kvótakerfinu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 10.1.2009 kl. 22:54

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Við getum aldrei haft áhrif á fiskveiðistefnuna ef við göngum í ESB Þó þetta sé ekki gott í dag er þetta allavega á okkar forræði og meðan svo er, er  enn von. Það virðist með ólíkindum hvað ESB sinnar virðast illa upplýstir um sjávarútvegsmál bæði hér heima og í ESB Eða setja kíkinn fyrir blinda augað sem ég gruna þá stundum um.

Víðir Benediktsson, 10.1.2009 kl. 22:58

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hér er fullyrt að Heimssýn hafi enga stefnu gagnvart óréttlátu kvótakerfi en ég get ekki séð betur en með vali á frummælendum sé verið að blessa illræmt kvótakerfi.

Sigurjón Þórðarson, 10.1.2009 kl. 23:30

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það kann að vera rétt, hef ekki skoðað það. Vonandi laga þeir það bara.

Víðir Benediktsson, 11.1.2009 kl. 00:08

8 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Menn verða vita hvað þeir eru að tala um Víðir.

ALLIR kvótar ESB eru RÍKJA-kvótar.

Sem merkir að ríkin fá kvótann til að endurúthluta til sinna þegna, og ráða sjálf á hvaða forsendum þeim er endurúthlutað til þegna ríkisins, - og ríkin hafa frá upphafi gert það með ólíkum hætti. Af þeirri ástæðu áttu t.d. Bretar í vandræðum með Spánverja sem skráðu skip og útgerðir í Bretlandi - EN DANIR EKKI (munurinn var að Bretar úthlutuðu árlega á öll skip óháð fyrri veiði en Danir úthlutuðu eftir veiðireynslu).

Það er hinsvegar löngu búið að úrskurða um það að þar sem kvótarnir eru ríkjakvótar mega ríkin gera það sem þarf til að kvótar fari ekki frá þegnum þess ríkis sem fær kvótann, sé í raun kvóti þess ríkis. - Þ.e. kvótahopp er bannað og það má gera nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra það.

Í öðru máli er mjög athyglisvert að sjá hvernig þið leikið tveimur skjöldum annarsvegar er staðhæft að alls engu sé hægt að breyta - og svo hinsvegar geta helstu grundvallareglur sem allt kerfið byggir - bara sí svona breyst á morgun, - Þið segið ekki hægt að treysta grunnreglum sem mest sátt er um (um hlutfallslegan stöðugleika) því þeim geti öllum verið breytt á morgun að ykkar sögn.

Hvort ætlið þið að halda því fram að engu sé hægt að breyta eða allt geti breyst á morgun? 

Eftir stendur að við getum breytt á hverju ári þeim reglum sem við úthlutum kvótum eftir til íslenskra þegna það yrði á okkar höndum inna ESB, og þær reglur geta verið eins og við viljum hafa þær - bara að þær standist almenn jafnréttissjónarmið stjórnsýslu og mannréttinda

- Er það kannski það sem Heimssýn/LÍÚ  getur ekki sætt sig við? - Mannréttindi og jafnréttissjónarmið?

Helgi Jóhann Hauksson, 11.1.2009 kl. 00:12

9 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Sigurjón spyr hér afar mikilvægrar spurningar sem úr því sem komið er ætti ekki að vera látin ósvarað:

- Hver borgar brúsann fyrir Heimssýn?

Ef Heimssýn ætlar að ber sig fram sem óháðan félagsskap fólks verður að svara þessu.  - Allt uppi á borðum.

Helgi Jóhann Hauksson, 11.1.2009 kl. 00:30

10 Smámynd: Víðir Benediktsson

Málið er tiltölulega einfalt. Ef við höldum okkur utan ESB þurfum við ekkert að pæla í þeirra fiskveiðistjórnunarkerfi sem er algerlega úti á túni en það er annað mál. Ef frá er talinn gjaldmiðillinn höfum við nákvæmlega ekkert að sækja til ESB en það má leysa þau mál öðruvísi. Allavega hefur ekki einum einasta manni takist að benda mér á hvað við eigum að sækja þangað sem við getum ekki gert upp á eigin spýtur.

Víðir Benediktsson, 11.1.2009 kl. 01:04

11 identicon

Eins og Hjörtur sagði þá hefur Heimssýn ekki stefnu í kvótamálinu. Sigurjón, Heimssýn þykist ekki standa vörð um hagsmuni almennings, eins og þú segir í færslunni.

Heimssýn er þverpólitísk samtök einstaklinga sem eiga það eitt sameiginlegt að vilja að Ísland standi utan Evrópusambandsins.

Hverjir kosta Heimssýn og Evrópusamtökin? Ætli það séu ekki þeir sem eru sammála málstað þeirra, t.d. félagsmenn? Er það ekki ágætt svar og mjög líklega rétt!

Helga (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 02:39

12 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl verið þið. Þetta er einkennileg umræða og virðist eingöngu til þess að kasta rýrð á samtökin Heimsýn og þá helst út af því að ræðumenn eru ekki opinberir andstæðingar íslenska kvótakerfisins. Ég tek undir svar Helgu hér á undan, nema að ég tel Heimsýn einmitt bera hag Íslendinga fyrir brjósti og vill því berjast fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og halda henni utan ESB. Þetta eru þverpólitísk samtök. Fjármál frjálsra félagasamtaka á Íslandi eru yfirleitt með mjög svipuðum hætti. Það er framlag meðlima og styrkir frá þeim sem vilja að sjónamið beggja aðila fái að njóta sín. Nú veit ég ekki hverjir hafa styrkt þennan fund en sjálf var ég að borga minn hlut í auglýsingu sem birt var fyrir nokkru. Skil nú ekki alveg af hverju það er AFAR MIKILVÆGT að svara Sigurjóni en það er tekið við frjálsum framlögum ef þið Helgi og Sigurjón hafið áhuga á að styrkja þennan ágæta málstað. Hvort LÍÚ styrkir þennan fund veit ég ekki en mér finnst þeir ekki of góðir til þess að leggja sitt af mörkum til að verja kvótann fyrir erlendum yfirráðum. Það verður svo að takast á um það á öðrum vettvangi hvernig hægt er að ná kvótanum aftur til þjóðarinnar með sanngjörnum hætti. Ég tek undir það sem Víðir segir að það hefur enginn sýnt mér fram á einn einasta kost við að fara inn í Evrópusambandið. Skora á ykkur að mæta á fundinn í dag kl 15:00 kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.1.2009 kl. 13:02

13 identicon

Já mörg okkar andstæðinga ESB erum sko alls ekkert hrifinn af Íslenska fiskveiði kvótakerfinu, nema síður sé. 

En fylgjendur ESB aðildar sem svo líka þykjast sumir hverjir á móti kvótakerfinu skil ég nú ekki alveg í, því það stemmir engan veginn. 

Vegna þess að ekkert eitt myndi festa þetta skaðræðis kvótakerfi meira varanlega í sessi en aðild okkar að þessu kerislega bandalagi SKRIFRÆÐISINS.

Allt ESB starfið byggir nefnilega umfram allta annað á svona tilskipana regluverki og útreiknuðum stærðum og skömmtum svona steingeldra stjórnskipaðra nefnda og óréttláts sérfræðingaveldis. 

Við myndum því ALDREI sjá til lands eða getað breytt einu eða neinu í þessu hörmungar kerfi ESB- kommisarana, jafnvel þó svo að þorskstofninn yrði algerlega friðaður en að á stofn marhnúta yrði gefinn út 30.000 tonna kvóti, af því að svokölluð Umhverisnefnd sjávarútvegsnefndar ESB KOMMÍSARANA teldi þann stofn svo sjálfbæran.

Allir Íslenskir sjómenn og útgerðarmenn myndu auðvitað hlæja að þessu, en þetta gæti því miður farið svona og þá gæti Víðir Skipstjóri ekkert rifið kjaft við Valgerði Sverris, Halldór Blöndal, eða Steingrím J. Sigfússon, vegna þess að þetta væri ekkert lengur á þeirra fórræði að einu eða neinu leiti. Þau skötuhjú yrðu þá bara eins og skrautfígúran Sakorsky forseti Frakklands sem fyrir skömmu reyndi að róa öskureiða Franska bændur, sem mótmæltu heimskulegum skrifræðis reglum ESB kommisarana í París með þeim orðum að hann og Franskir ráðamenn réðu bara alls ekki lengur neinu um þessa hluti, en samt skyldi hann svo ósköp vel angist þeirra og reiði  !

Er nema furða að Herra Sakorsky sé bara fyrir  löngu orðinn skrípafígúra og hálfgerður Playboy á sínum heimaslóðum. 

Hvað haldiði að yrði um okkur og okkar fulltrúa í svona skítlegu skrifræðiskerfi !     

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 16:46

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég var á þessum fundi og fannst hann góðu. Uppúr stóð afar fróðlegur fyrirlestur norska þjóðréttafræðingsins um réttarstöðu ríkja innan ESB og hvernig ákvarðanir eru teknar þar. Íslenska kvótakerfið var alls ekki viðfangsefni fundarins. Sjálfur lagði ég fram spurningar um hugsanleg áhrif Íslands innan ESB á ákvarðanatöku. Svarið var á þá leið að áhrif Íslands yrðu nánast engin. Þá spurði ég ráðherra hvað liði fríverslunarsamningum með fisk til Asíu, sem unnið hefur verið að í langan tíma en ekkert hefur frést af á þessu kjörtímabili. Svarið var að samningaumleitanir væru enn í gangi en þeir samningar myndu falla niður ef landið gengi í ESB.  Þá get ég ekki séð hvernig svona fámennt land eins og Ísland getur mannað allar þær undirnefndir og lobbýistagrúppur sem þarf til að hafa einhver áhrif.

Sigurður Þórðarson, 12.1.2009 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband