Leita í fréttum mbl.is

Hvar er Lúlli?

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Lúðvík Bergvinsson, gekk hart fram í að krefjast rannsóknar á olíusamráðssvikamálum olíufélaganna á sínum tíma og fannst hlutirnir ganga heldur hægt fyrir sig. Hann krafðist þess að menn bæru ábyrgð. Núna þegar Lúðvík er í stjórn liggur honum ekkert á að rannsaka mörghundruðfalt stærra mál, þ.e. ósómann í kringum bankahrunið.

Allir sem bera ábyrgð stimpla sig inn á kostnað almennings, hvort sem það er Birna Einarsdóttir hjá Glitni, ráðuneytisstjórinn Baldur, Árni Mathiesen, Gunnar Páll Pálsson - þið þekkið þessi nöfn og ég þarf ekki að telja fleiri upp. Er ekki Sigurjón Þ. Árnason m.a.s. enn á launum hjá Landsbanka? Engin rannsókn fer fram á hruni bankanna, Stími eða á uppgufun Icesave-peninganna.

Trúverðugleiki Samfylkingarinnar er augljóslega á leið niður í holræsið - ætlar Lúðvík að beina leið ofan í iðuna?


mbl.is Skilur að Bretar efist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Satt segirðu. Hvar er Lúlli?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 18:54

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Góður Sigurjón, um að gera að klípa í stjórnarspikið.

Gunnar Skúli Ármannsson, 9.12.2008 kl. 19:12

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Lúlli er sjálfur gerspiltur - hann er víst þessi jarphærði sem þáði siglingu með meiru á snekkju Baugs ekki fyrir svo löngu - skrítið að fréttablaðið sé ekki búið að fletta ofan af því eða þá að Lúlli þessi komi myndum af herleigheitunum á framfæri máli sínu til stuðnings

Jón Snæbjörnsson, 9.12.2008 kl. 19:20

4 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Auðvitað er allt í svikum og svínaríi hvert sem litið er og aðalatriðið er að Samfylkingin á að gjalda fyrir það. Gleymum því ekki. Höldum því til haga og reynum að endurtaka það nógu oft. Nógu oft.

Frjálslyndi flokkurinn hefði viljað standa öðru vísi að málum eins og kemur fram í tillögum formanns flokksins Guðjóns Arnars Kristjánssonar á Alþingi. Þær ganga út á að ......

.... eða er verið að reyna fyrir sér í gruggugu?  

Gunnlaugur B Ólafsson, 9.12.2008 kl. 21:02

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gunnlaugur, það er nú svo að Samfylkingin og Björgvin Sigurðsson ber ábyrgð á þessum málum en ekki Frjálslyndi flokkurinn og Guðjón Arnar Kristjánsson.

Samfylkingin verður að horfast í augu við verk sín og ábyrgð í stað þess að benda í allar áttir - Ekki réð Davíð Oddson KPMG það er víst.

Sigurjón Þórðarson, 9.12.2008 kl. 21:18

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Sástu Lúlla í Kastljósinu? Hann bara "lenti" í þessu.

Víðir Benediktsson, 9.12.2008 kl. 21:22

7 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ábyrgðin er skilanefndanna að velja endurskoðunarfrirtæki. Björgvin vissi ekki af þessu fyrr en í gær. Eru skilanefndirnar ekki settar saman meðal annars af fagfólki og fulltrúum flokka? Er Guðjón Arnar ekki í neinni skilanefnd?

Gunnlaugur B Ólafsson, 9.12.2008 kl. 21:24

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ég bloggað þetta í dag

FME er undir stjórn Björvins G Sig. bankamálaráðherra og stjórnarformaður FME er Jón Sigurðsson skipaður af Ingibjörgu Rauðsól Gísladóttur. Jón er mesti fjármálaspekingur SAMFYLKINGNAR og hann er einnig varaformaður stjórnar Seðlabankans. Jón Sig er aðalmaðurinn í að skrifa hvítbók fjárglæframanna með því að rannsaka ekki neitt og hvítþvo öll þeirra verk. Björgvin bankamálaráðherra skipar í skilanefndir og þar eru vinir Baugsmafíunnar fengnir til að ransaka Baugsfélögin. Stoðir eru í greiðslustöðvun og Jakob Möller skipaður umsjónarmaður með greiðslustöðvunni. Jakob var verjandi í Baugsmálinu. BT varð gjaldþrota og Helgi Jóhannesson skipaður skiptastjóri. Helgi var verjandi í Baugsmálinu.
Það er ég vissum að þegar Baugur fer í þrot verður Gestur Jónsson skipaður skiptastjóri“

Jón Snæbjörnsson, 9.12.2008 kl. 21:31

9 identicon

Nafni minn hinnágæti B. Ólafsson er svolítið hörundsár og svíður aumingjaskapur Samfylkingarinnar, sem er auðvitað að vonum !

Ja er nema von að undan svíði nafni, ég skil það !

Fáa veit ég aumari og ömulregri en Formann flokksins Ingibjörgu Sólrúnu !

Manneskjan sem sat ásamt Geir, heila SEX krísufundi með Bankastjórn Seðlabankans frá því í febrúar og fram á sumar þar sem farið var yfir gríðarlega erfiða stöðu bankakerfisins !

Þessi sama kona sem löngu áður hafði svo fjálgelga talað fyrir siðbót og opinni umræðu og svokölluðum samræðustjórnmálum, bla, bla bla, Ragnar Reykás HVAÐ !  Muniði ekki eftir öllu þessi BULLI !

En hvað gerði akkúrat hún. Hún algerlega féll á prófinu !

Öllum þessum fundum og grafalvarlegu efni þeirra hélt hún algerlega leyndum fyrir samráðherra sínum sjálfum Banka- og viðskiptamálaráðherra þjóðarinnar.

Er hægt að bregðast skyldum sínum gagnvart landi og þjóð á verri hátt en þetta.

Sér fólk virkilega ekki í gegnum þetta rugl !

Pukurs- og lyndarmálaráðherra Samfylkingarinnar ætti að segja af sér STRAX í dag. 

Þjóðin hefur fyrir löngu fengið nóg af pukri hennar og fláttaskap !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 21:32

10 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Nafni Ingvarsson talar hér sem blaðurfulltrúi Davíðs Oddssonar, sem kaupir það að hann hafi varað við einhverju sem að engin man eftir. Það sem er svo deginum ljósara að kappinn sá gerði ekki neitt í eftirlitshlutverkinu sem honum ber að sinna samkvæmt lögum.

Afhverju er Sjálfstæðisflokki sem ber ábyrgð á hruni frjálshyggjunnar ekki hallmælt hér. Af því að þeir urðu fyrir svo miklum vonbrigðum með að vera ekki teknir upp í rúm til mömmu og Framsóknar eftir síðustu kosningar. Það er heila málið ...

Gunnlaugur B Ólafsson, 9.12.2008 kl. 21:51

11 identicon

Sá ekki betur en Lúlli væri farinn að stjórna umræðum í Kastljósi og hafði til viðtals Atla Gísla of einhvern ljósærðan gaur.

101 (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 22:00

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það virðast fleiri koma af fjöllum en jólasveinarnir og oddvitar ríkisstjórnarinnar þar sem að Björgvin G. Sigurðsson virðist vita sífellt minna og minna um málin.

Sigurjón Þórðarson, 9.12.2008 kl. 22:04

13 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Hann er fundinn, Guði sé lof - hann sást í Kastljósi og virtist heill heilsu en aðeins ringlaður!

R

Ragnar Eiríksson, 9.12.2008 kl. 22:34

14 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ragnar  mér fannst Atli hafa öll spil í hendi sér og formaður Samfylkingarinnar var rétt eins og þú segir ringlaður. 

Ég hafði á tilfinningunni að Atli vildi ekki sauma of mikið að Lúðvík í því augnamiði að hvekkja "jafnaðarmennina" ekki um of þanni að þeir treystu sér ekki fram úr bæli Sjálfstæðisflokksins

Sigurjón Þórðarson, 9.12.2008 kl. 22:52

15 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Gunnlaugur,

þú ert hreint skemmtiefni hérna á síðunni hans Sigurjóns. Þú ert að verja Samfylkinguna með öllum ráðum og er það svo sem allt í lagi. Samfylkingin hefur algjörlaga brugðist væntingum okkar Íslendinga.

Samfylkingin bauð sig fram í síðustu kosningum sem eitthvert stjórnarandstöðuafl eða betri kostur en spillingarliðið sem var þar fyrir. Ertu búinn að gleyma því? Sjálfstæðisflokkurinn bauð sig fram sem varðhundur spillingarinnar. því gerum við ekki svo miklar kröfur til þeirra. Því eru kröfur okkar á hinar hreinu meyjar úr Samfylkingunni mun meiri. Þannig var Samfylkingin seld í síðustu kosningabaráttu, sem hin hreina og óspjallaða mey. Eftir kosningarnar fer hún beint í bælið með melludólgnum og blikkar ekki auga einu sinni. Það eina sem þú gerir er að segja að Samfylkingin sé betri en hinur verstu, það er ekki stórmannalegt. Við væntum þess að Samfylkingin myndi opna samfélagið og afhjúpa sukkarana. Þess í stað stendur hún vörð um þá. Hún viðheldur núverandi valdhöfum og leynimakkinu. Hún vill að þjóðin hafi það eins skítt og mögulegt er, bara í þeim eina tilgangi að við fylgjum ykkur inn í ESB.

Gunnar Skúli Ármannsson, 9.12.2008 kl. 23:05

16 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég held að Gulli minn góði uppeldisbróðir sé að undirbúa inngöngu í Frjálslynda flokkinn, hvað annað skýrir þessa ást hans á síðu eins af öflugasta talsmanni Frjálslynda flokksins?

Samkvæmt lauslegri athugun þá er hann einn af dyggustu lesendum síðunnar og nánast undantekningalaust sér hann sig knúinn til að lífga verulega upp á umræðuna, enda enn sem komið er í flokki sem gefur sig út fyrir samræðupólitík.

Eitthvað virðist samt mikils misskilnings gæta innan samræðuflokksins því sumir vita hreinlega ekki neitt og hafa aldrei vitað neitt frá upphafi vegna skort á samræðum. Spurning hvort þeir yfir höfðuð viti af því að þeir eru í ríkisstjórn.

En að öðru Lúlli er fundinn, og mun ekki gleymast alveg strax eftir útreiðina sem hann fékk í kastljósinu í kvöld. Þótt ég sé ekkert sérlega hrifinn af Vinstri Grænum þá verð ég að klappa fyrir þeim sköllótta, sallarólegur með hæðnisglotti lét hann Lúlla nánast blaðrað sig út úr kofanum.

Hallgrímur Guðmundsson, 9.12.2008 kl. 23:28

17 identicon

Hvar er FF

Sigurjón hvað eru þið í FF að gera? þið eruð að verða ein mestu vonbryggði í þessari orrahríð. 

Ætli þið ekki að nýta ykkur þann meðbyr sem stjórnarandstaðan hefur ef seglum er rétt stýrt.

Getur verðið að FF sem ónýtt afl með tvo þá mestu eiginhagsmunapotara sem uppi eru í Ísenskum stjórnmálum? þeim JM og KHG sem hvergi hafa haldið plássi, getur verið að þessi litli flokkur logi stafna á milli?

Hvað eru þið að gera

FF RÆS

Vilbogi Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 23:41

18 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Vilbogi, ég er nú hér fyrir norðan á hliðarlínunni í FF og  sinni vinnu, er í námi og tek þátt í félagsstörfum fyrir UMSS.

Ég tel að margt búi í FF en í flokknum er mjög harður kjarni. Vissulega þurfa að verða miklar breytingar á útbreiðslustarfi, málflutningi og starfsháttum eins og skoðanakannanir bera með sér.  Mér finnst JM hafi staðið sig vel en hann hefur beitt sér í sjávarútvegsmálum og fáir ef enginn þingmaður hefur lagt eins mikla áherslu á að afnema verðtrygginguna.

Vandi flokksins felst m.a. í því að nú í haust hafa þingmenn flokksins ekki talað einni röddu en KHG greiddi m.a. gegn vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á gríðarlega óvinsæla ríkisstjórn sem nýtur einskis trausts.

Sigurjón Þórðarson, 10.12.2008 kl. 00:18

19 Smámynd: Árni Gunnarsson

Alltaf þegar Atli Gíslason birtist á skjánum fer ég að efast um að það séu allir pólitíkusar ómerkileg grey. Og þá fara jafnvel að birtast nokkur önnur nöfn en þau eru örfá.

Ekkert stjórnmálaafl hefur brugðist vonum mínum jafn skelfilega eins og Samfylkingin. Það er blátt áfram óskiljanlegt hversu blindir og firrtir stuðningsmenn hennar reynast vera. Og útyfir tekur hve vaskir þeir eru við að klappa saman lófunum þegar einhver þingmannsbjálfinn tekur til máls og skýrir ástandið!

Árni Gunnarsson, 10.12.2008 kl. 00:23

20 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lúlli var í tómu klúðri í Kasljósinu. Hann og hans skoðanabræður eru stöðugt að "lenda" í einhverju. Honum datt aldrei í hug að hann og hans fólk hafi komið sér í þessi vandræði.

Haraldur Bjarnason, 10.12.2008 kl. 00:45

21 Smámynd: Víðir Benediktsson

Sigurjón minn. Ég held í alvöru að það séu fleiri en KHG sem sjá að tortíma fylginu. JM virkar á almenning eins og minkur í hænsnakofa svo ekki sé minnst á upphlaup MÞH í vor út af palentísku konunum. held að hann verði seint tekinn í sátt aftur. En Addi er sómamaður, það vita allir sem hafa kynnst honum, þar á meðal ég.

Víðir Benediktsson, 10.12.2008 kl. 07:10

22 identicon

Ég get tekið undir það að JM hefur talað hátt um afnám verðtryggingar. en segi eins og Víðir hann virkar eins og minkur í hænsnakofa.

Ég vil meina að nú sé lag ef ekki nú þá aldrei.

Vilbogi Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 08:14

23 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég get ekki tekið undir með þér Hafþór að málið snúist einigöngu um sjómenn, heldur miklu frekar um hag landsins, framtíð atvinnugreinarinnar og fólkið sem vinnur í greininni. 

FF hefur lagt ríka áherslu á hækkun skattleysismarka og fleira en vissulega verið mótfallin því að afnema einhliða sjómannaafslátt m.a. á þeim forsendu að um hann var samið við gerð kjarasamninga við sjómenn á sínum tíma og það væri óeðlilegt að afnema hann einhliða.

Á sínum tíma þá beitt ég mér mjög fyrir að sérhæft nám í fiskvinnslu yrði komið á fót á ný en Sjálfstæðisflokkurinn lokaði 2 fiskvinnsluskólum öðrum á Dalvík og hinum í Hafnafirði sem sinntu sérhæfðu fiskvinnslunámi en þetta nám var víst ekki nógu fínt fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  

Víðir, málflutnigur MÞH sem þú kallar upphlaup var studdur af lista Frjálslyndra á Akranesi og á sér mjög breiðan stuðning á Skaganum. Málflutningurinn var rökstuddur af greinargerð þar sem áhersla var lögð á að fara rækilega yfir málið en stjórnvöld vildu ekki heyra á það minnst enda var móttakan hluti af kosningabaráttu fyrir setu í Öryggisráði SÞ.

Það er rétt að geta þess að við það að MÞH óskaði eftir því að farið yrði yfir málið í ljósi óvissu í efnahagsmálum og að fyrir væri fólk í félagslegakerfinu á Akranesbæ sem væri á biðlista eftir húsnæði þá jókst fylgi flokksins. Fylgið dalaði fljótlega á ný þeagar KHG kom í bakið á félögum sínum á Akranesi og tók undir ómerkilega gagnrýni á MÞH, þar sem málflutningur Magnúsar var lagður út á versta veg.

Sigurjón Þórðarson, 10.12.2008 kl. 10:16

24 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

"Upphlaup" er undarlegt orð yfir fyllilega réttmætar athugasemdir sem tíminn hefur leitt í ljós að áttu sér fulla stoð. Nú stendur sameiginlegur sjóður Akranesbæjar (íbúa og skattgreiðenda á Akranesi) frammi fyrir því að taka á herðar sínar fjárhagslegar byrðar vegna félagslegs tilraunaverkefnis ríkisstjórnarinnar sem meðal annars var farið út í til að undirbyggja misheppnaða umsókn um að komast í öryggisráð SÞ.

Þetta verkefni kostar líklega ekki undir 100 milljónum árlega. Sá reikningur lendir á bæjarsjóð í komandi efnhagskreppu þar sem tekjur bæjarins eru að hrynja á sama tíma og fólki fjölgar mjög sem þarf að félagslegum styrkjum að halda. Það er nefnilega morgunljóst að ríkið mun ekki greiða með Írökunum lengur en í eitt ár eftir komu þeirra. Síðan er málið á framfæri og ábyrgð bæjarfélagsins í bullandi kreppu sveitarfélags þar sem stórir hópar fólks missa vinnu í hverjum mánuði.

Allt þetta mál er ein hörmung og á fulla ábyrgð allra flokka á Akranesi Frjálslynda flokksins sem einn hafði kjark til að standa í lappirnar og setja spurningamerki við það með rökstuddum fyrirvörum á sínum tíma.

Magnús Þór Hafsteinsson, 10.12.2008 kl. 11:20

25 identicon

Er þetta ekki allt undir einum hatti. Baugshattinum.

Það er með ólíkindum að þeir sem menn hrópuðu "Stærsta bankarán sögunnar"  eru einmitt þeir menn sem rændu rændu bankana og hvar sem er í veröldinni er slíkir menn ofsóttir t.d. fyrrum forsætisráðherra Thailands sem er eftirlýstur af þarlendum stjórnvöldum fyrir spillingu, Enron dæmið og lengi mætti telja.

Ég er hjartanlega sammála þér um þetta allt saman og það þarf einhvernveginn að klippa á öll hagsmunatengls og fjölskyldutengls o.þ.u.l. sukk. 

Ef ég hefði fengið að stjórna þó ekki væri nema bara fyrir hádegi í 1 dag væri ég búinn að koma þessum mönnum bak við lás og slá og koma því í kring að þeir ættu aldrei afturkvæmt í viðskipti á Íslandi. Ef hægt er að kalla þetta einhverju nafni þá er það "landráð".

Baldvin Baldvinsson

Reyðarfirði

Baldvin Baldvinsson (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 11:45

26 identicon

Ég vil sjá öflugan björgunarpakka fyrir skútuna frá ykkur strákar . .

kosningar eru að koma . .

x-f

LS.

LS (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 13:29

27 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Jón Þorvarðarson - hvort Lúlli kom við í snekkju Baugsmanna á Florida og þáði ýmist góðgætið ásamt samfélögum ? tja því spyrðu ekki kallinn beint

Jón Snæbjörnsson, 10.12.2008 kl. 15:18

28 identicon

Hver er að tala um spillingu, þú fórst inn á alþingi um tíma Sigurjón er það ekki ??? Hvað beið eftir þér þegar þú laukst þeim ferli ????

Starfið sem þú varst í áður, er það ekki rétt ???

Bara að benda á að það eru ekki allir eins blásaklausir eins og þeir vilja af láta !!!!!!

Takk fyrir

Sigurður R Stefánsson (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 18:14

29 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sigurður þetta er greinilega stórt mál sem þú ert búinn að fletta ofan af - Ætli ég verði ekki að fá mér hauspoka til þess að komast gegnum morgundaginn.

Sigurjón Þórðarson, 10.12.2008 kl. 18:28

30 identicon

Það er ekki nóg að setja á fót fiskvinnsluskóla,  hvaða fólk ætti eyða tíma í að mennta sig í greininni til að fá sömu lúsarlaunin og fyrir eru? 

Hafþór Skúlason (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 21:12

31 identicon

Það er ekki hægt að bregðast SKYLDUM sínum gagvart BÖRNUM Landsins á verri hátt en þessi Ríkisstjórn hefur gert.Burt með þessar afætur eins og skot.Lúðvík ver kvótan það er hans hagur þegar frá líða stundir svo mikið er víst.

guðrún hlín adolfsdótt (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 22:41

32 identicon

Lúlli... lenti í bankahruni og bað menn að hætta allri tortryggni, er hann ekki frábær alveg

DoctorE (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband