Leita í fréttum mbl.is

Ferðafélagarnir Bjöggi og Baldur flækja málin

Björgvin Sigurðsson hefur gengið rösklega fram við rannsókn bankahrunsins, velt við hverjum steini og spurt spurninga þrotlaust af því að hann ann sér ekki hvíldar. Þrátt fyrir mikla leit í öllu kerfinu, hátt og lágt, í 10 vikur hefur hann ekki fundið nokkurn sem ætti að sæta ábyrgð, ekki einn mann.

Birna, vinkona hans í Glitni, reyndist vammlaus með öllu. 180 milljóna lánið fór aldrei í gegn þegar betur var að gáð en það var ekki henni að kenna.

KPMG sýndi gott frumkvæði og sagði sig frá málinu þegar óprúttnir aðilar höfðu gert vinnu fyrirtækisins tortryggilega og menn í viðskiptalífinu telja maklegt að það fái verðlaun, verði e.t.v. viðskiptamenn ársins, fyrir að standa vörð um trúverðugleika lands og þjóðar.

Það verður örugglega hart barist um verðlaunin, fleiri hafa verið nefndir til sögunnar og einn sterkasti kandídatinn er enginn annar en ráðuneytisstjórinn Baldur Guðlaugsson sem gerði feiknargóðan díl í kjölfar heimsóknar í Bretaveldi með vini sínum Björgvin G. Sigurðssyni. Reyndar finnst mér sem þeim félögum sé aðeins farið að förlast varðandi rannsókn á meintum skattsvikum í Lúxemborg. Baldur Guðlaugsson viðskiptamaður ver í Morgunblaðinu í dag þá ákvörðun skilanefndar að leyna skattrannsóknarstjóra upplýsingum um möguleg skattsvik. Björgvin segist vilja fá upplýsingar en flækir svo málið og vill spyrja Lúxemborgara hvort hægt sé að fá upplýsingarnar úr íslenska bankanum sem íslenska ríkið stýrir og á.

Hvaða ríki í heiminum sem stæði frammi fyrir grunsemdum um mestu efnahagsbrot sögunnar, nánast þjóðargjaldþroti, myndi spyrja kurteislega hvort stjórnvöld fengju gögn sem eru á forræði ríkisstarfsmanna og fulltrúa stjórnvalda þó að fyrirtækið sé niðurkomið í öðru landi? Vel að merkja, gögnin varða íslenska ríkisborgara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig er með Björgvin,  veit maður ekki nokkurn skapaðan hlut? 

Svo talar hann um tölvukeyrð gögn.   Engin hefur heyrt um að tölvugögnum er hægt að breyta og eyða.  

Á sama tíma og hann situr sem ráðherra og firrar sig allri ábyrgð "mest vegna þess að hann veit ekki neitt um neitt"  er hann alveg sammála Kpmg að segja sig frá endurskoðun vegna trúverðugleika.

Hans trúverðugleiki er ekki til staðar, hans vitund á því sem gerst hefur virðst ekki vera til staðar.  Hvernig dettur manninum í hug að sitja áfram sem ráðherra eftir allt þetta sull?

Hafþór Skúlason (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 00:31

2 identicon

Þegar alvöru uppgjör fer fram, hlýtur að vera hægt að kæra fólk sem situr á jötunni fyrir tómlæti. Þetta nær ekki nokkurri átt.

Burt með ríkisstjórnina og allt spillingarlið sem situr í skjóli hennar!

brana (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 15:47

3 identicon

Er Björgvin G Sigursson alveg úti á þekju eða bara gal tómur.Var hann kannski bara valinn úr símaskránni eins og frægur maður vitnaði í.Það kemur ekki betri tíð með blóm í haga með svona sauð sem BANKAMÁLA RÁÐHERRA.Hvenær er komið nóg hjá þessu fólki í RÍKISSTJ'ORN.Burt með þetta spillta fólk strax.  

guðrún hlín adolfsdótt (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 17:25

4 identicon

Tölvugögn þetta er mesti brandari sem ég hef heyrt, er að sækja um í háskóla og ég skal sko koma með prófskírteinin mín frumrit takk fyrir og þeir hjá HR ljósrita það. Ég má ekki skanna sjálfur inn og senda.

Og heyra svo þetta bull í Bjögga Bjánagangi að öll gögn séu til á tölvutæku. Sefur þessi maður á priki hangandi á löppunum eða hvað er að honum. Ekki nóg með að hann haldi að við séum fífl hann segir það hnökralaust með þessum málflutningi.

Ætli Birna bankasýra hefði verið jafn fegin ef þessi fjárfesting hefði skilað 100% arði og týnst í kerfinu manni verður óglatt af þessu öllu saman.

FF RÆS

Vilbogi Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 22:21

5 Smámynd: haraldurhar

     Björgvin er æ ofaní æ að opinbera hversu lítið hann veit og kann, það vellur uppúr honum hver vitleysan á fætur annari.  Nú síðast vill hann fara breyta bankalöggjöfinni í Luxemburg.

    Sigurjón þó ísl. Ríkið hafi með neyðarlögum tekið yfir Kaupþing og hirt eignirnar úr honum, en skilið eftir skuldirnar í Kaupþing, þá gefur það engann rétt til að vaða inn í erlendan banka í eign Kaupþings. Það eru sem betur fer til samfélög sem menn geta ekki vaðið inn á skítugum skónum, og framkvæmt þar hluti er þeim dettur í hug í það og það skipið.

haraldurhar, 11.12.2008 kl. 23:50

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Haradlurhar, Það er nú orðið löngu tímabært að íslensk stjórnvöld tækli málið af festu.

Ég er viss um sumir víkinganna munu hafa fullan skilning á því en þeir eru sum ekki óþekktir fyrir að taka fast á málum ef minnsti grunur er um lögbrot. Ég minnist þess þegar strákurinn var rekinn hér um árið á staðnum fyrir að næla sér í kókflösku.

Sigurjón Þórðarson, 12.12.2008 kl. 00:08

7 Smámynd: haraldurhar

    Sigurjón ég hef ekki trú á því að þú væntir þess að ísl. stjórnvöld, tækli einhvern hlut með festu. Þú veist og ég veit að fyrir liggja á fleti gæðingar er ekki má hreyfa við.   Öll stjórnsýslan yfirfull að pólitískt skipuðum embættismönnum, vinum og venzlamönnum. 

    Mitt álit er það að mikið mikilvægara væri að hreinsa til í stjórnsýslunni, en vera eyða hundruðuð eða milljörðum í svokallaða bankarannóknir, sem við vitum báðir að ekkert kemur út úr.  Það dapurlegasta í öllu þessu bankafári er að skipað er í skilanefndir ýsmir undirmálsmenn, og endurskoðendafyrirtæki er öll hafa tekið þátt í að kokka bækur bankanna á undanförnum árum.  Það virðist eins og gleymst hafi að öllu að ræða ábyrgð endurskoðunarfyrirtækjanna í bankahruninu, það var þó fyrsta fyrirtækið sem fór á hausinn í Enron hneykslinu endurskoðani þess Anderson.

   Þetta rugl að setja söluna á Kaupþingi Lux á ís, vegna ímyndaðra hótanna viðskiptaráðherrans, er mikið áhættuspil, og ekki síst að í bankanum eru verulegar upphæðir í eign íslendinga á innistæðureikningum er gætu glatast ef bankinn fer í þrot.  Nægt er nú tapið samt þó við leikum okkur ékki að því að tapa einhverjum tugum milljarða meir.

haraldurhar, 12.12.2008 kl. 01:11

8 identicon

Las þennan pistil einu sinni og hugsaði: en hvað þetta er nú hnittið allt saman.

Las hann svo aftur og hugsaði: hnittið en samt bara órökstuddar dylgjur.

 Las hann í þriðja sinn og hugsaði: Guð minn góður þessi maður sat á Alþingi okkar Íslendinga, mikið er ég feginn að sú er ekki lengur raunin.

Staðreyndin er sú að í þessum pistli kastar þú fram fullyrðingum að hætti kverúlanta og gerir ekki minnstu tilraun til að vera málefnalegur og rökstyðja það sem þú segir. 

 Til að vera álíka ómálefnalegur, get ég sagt þér að ég hef það frá fyrstu hendi að aðilar úr þingnefndum alþingis hafa aldrei séð annað eins rugl eins og frumvörp og ályktanir sem þú hefur lagt fram.

 Held þú ættir að hætta að blogga fullur.

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 01:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband