Leita í fréttum mbl.is

Björn Bjarnason dómsgoði

Fyrrum borgarstjóri og núverandi þingmaður, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um breytingar á stjórnarskrá og lögum til að taka megi upp nýtt starfsheiti ráðherra sem bæði kynin geta borið eins og það er orðað. Ég veit ekki betur en að bæði kyn hafi borið titilinn og gegnt þessu starfi með ágætum, en það er fjarri mér að gera lítið úr að þetta starfsheiti geti mögulega truflað eða stuðað fólk. Sjálfum er mér ekkert sérstaklega annt um það og finnst það jafnvel vera heldur gamaldags og ekki lýsandi fyrir pólitískan leiðtoga sem þiggur vald sitt frá fólkinu.

Það sem mér finnst vanta upp á þingsályktunartillögu Steinunnar, einkum ef málið brennur heitt á henni, er að hún komi með einhverjar tillögur að nýrri nafngift. Nú ætla ég að bæta þar úr og leggja til að við Íslendingar leitum upprunans. Þá liggur beinast við að taka upp orðið goði. Goðar voru á þjóðveldisöldinni helstu pólitísku leiðtogar auk þess að hafa með höndum geistlegt hlutverk. Goðar eru fram á þennan dag af báðum kynjum og ekkert því til fyrirstöðu að konur beri heitið goði, s.s. hofgoði og Vesturlandsgoði vitna um.

Ég er ekki frá því að þetta væri virðulegra starfsheiti fyrir einn duglegasta ráðherra þjóðarinnar, þ.e. að gegna heitinu dómsgoði Íslendinga í stað þess að vera hæstvirtur dómsmálaráðherra. Eini mögulegi lausi endinn sem þyrfti að hnýta við þessa nafnabreytingu væri starfsheiti Geirs Haarde sem yrði þá væntanlega allsherjargoði, sbr. líka allsherjarnefnd sem tekur við málum frá forsætisráðherra/allsherjargoða. Væntanlega þyrfti þá að semja við Hilmar Örn Hilmarsson, sem nú ber þennan titil með virktum, um að hnýta aftan við sinn Ásatrúarfélagsins. Þá væri það mál leyst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Sigurjón. Allsherjargoði, allrahandagoði, almenningsgoði.

Ekki galin hugmynd en hvað heldurðu að Steinka segi við viðskeytinu goði? Er það ekki of karllægt?

Þórbergur Torfason, 22.11.2007 kl. 23:05

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Nei ég reikna með því að hún verði mjög sátt við þessa tillögu en annars er góður pistill um sama efni hjá frænda mínum Sverri Stormsker þar sem að hann bendir á að Steinunn hafi aldrei gert athugasemd við að gegna starfsheitinu borgarstjóri.

Sigurjón Þórðarson, 22.11.2007 kl. 23:15

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góð hugmynd Sigurjón.. en mér finnst Sverrir stormsker hafa betri hugmynd.. ráðherfa í stað ráðherra

Óskar Þorkelsson, 22.11.2007 kl. 23:15

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég er nú ekki alveg sammála þér Óskar.

Sigurjón Þórðarson, 22.11.2007 kl. 23:20

5 Smámynd: Þórbergur Torfason

Titill með viðskeytinu "herra er mjög afgerandi vísun til karlkyns því verður ekki mótmælt. Hef lesið Stormsker en hugnast ekki alveg "herfu" viðskeytið þó það geti sannarlega átt við á hátíðarstundum. KK. yrði þá "herfi eða herfill".

Þórbergur Torfason, 22.11.2007 kl. 23:22

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

... saggði Hegranesgoðinn.

Jón Valur Jensson, 22.11.2007 kl. 23:23

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég verð að viðurkenna, Jón Valur, að ég hef ekki alveg rækt þetta embætti mitt sem skyldi.

Sigurjón Þórðarson, 22.11.2007 kl. 23:25

8 identicon

Ég er nokkuð sammála Steinunni. Það er í raun ókurteisi að konum sé ætlað að bera embættis eða stöðuheiti sem eru karlkynsorð en á sama tíma sé kvenkyns stöðuheitum breytt í karlkynsheiti þegar karlmönnum dettur í hug að vinna fyrrum kvennastörf. Að vísu getur verið snúið að finna kvenkynsorð sem passa fyrir viðkomandi heiti. Í eina tíð þótti það sjálfsagt að kalla konur sem stýrðu skólum skólastýrur, en einhverra hluta vegna var farið að kalla þær skólastjóra, engu líkara en þær hefðu farið í kynskiptiaðgerð. Nota má ráðynja í stað ráðherra ( sbr. greifynja). forstýra í stað forstjóri, borgarstýra í stað borgarstjóri, meistarína í stað meistari. Í raun eru það örfá heiti sem þyrfti að finna nýyrði fyrir. Hvað er eiginlega orðið af riddaramennsku okkar karlmannanna að koma ekki til móts við þessar kvenlegu kröfur? Viljum við heldur karlgera þær konur sem takast á hendur einhver forystustörf í þjóðfélaginu?

Guttormur Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 00:22

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Guttormur, Seinunn Valdís kvartaði ekki og bar þann kross karlmannlega að vera kölluð borgarstjóri. En þegar hún kemst í ríkisstjón verður að líkindum búið að skipta út orðinu ráðherra, þannig að hún hlýtur goðatign. Ef henni hugnast það ekki þar sem það er karlkynsorð mætti getur hún orðið gyðja.

Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur gefið út þá yfirlýsinu að hún ætli að "axla sín skinn".  Því liggur beint við að Steinunn verði titluð:

Frú, Steinunn Valdís Óskarsdóttir umhverfisgyðja.  

Ekki amarlegur titill það. 

Sigurður Þórðarson, 23.11.2007 kl. 00:42

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þetta orð er komið úr saxnesku og hafði merkinguna hár, en breyttis síðar í yfirvald, guð og yfirmaður t.d. í her. Ætlast er til að undirmann svari fyrirskipunum yfirmanna með orðunum og skipit þá kyn ekki máli. "Já, skal gert herra minn"  Íbúar nýlenduvelda voru kallaðir herraþjóð.

Sigurður Þórðarson, 23.11.2007 kl. 00:56

11 Smámynd: Jens Guð

  Goðahugmyndin er frábær. 

Jens Guð, 23.11.2007 kl. 01:01

12 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður Sigurjón

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.11.2007 kl. 01:05

13 identicon

Mér finnst þetta nú ekki amalegt, goði og gyðja. Hvernig er það, er Steinunn Valdís þingkona, nú eða þingkvenmaður?

Bjarni Ben (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 01:21

14 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Sæll Sigurjón og takk fyrir síðast. Heyrðu mér datt nú í hug orðið ráðherrína samanber ballettdansari og ballerína.. held að það gæti leyst vandann.

Jóhann Kristjánsson, 23.11.2007 kl. 09:33

15 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er slls ekki amalegt Bjarni Ben, fyrir Geir Haarde að verða skyndilega að allsherjargoða. Jóhann ég þakka sömuleiðis kærlega fyir síðast, mér finnst nú eiginlega hugmynd Guttorms betri að kalla viðkomandi ráðynju en að ætla að bæta ína aftan við herra,

Sigurjón Þórðarson, 23.11.2007 kl. 09:47

16 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

En hvað með að halda orðinu "ráðherra" og taka upp kvenkyns útgáfu af þessu, eins og t.d.: Ráðynja, Ráðstýra eða eitthvað þvíumlíkt?

Ekki líst mér á neina goðafræði í þessu sambandi!   hehehe...  en það er bara ég. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.11.2007 kl. 12:43

17 Smámynd: Upprétti Apinn

Ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta miður vitlaus hugmynd hjá Steinunni þegar ég heyrði fréttina.  Bæði finnst mér þessi nafnbót ásamt fleirum orðin kyn laus í núverandi notkun, en einnig var ég hræddur við þann Pólitísk Rétthugsandi Orvellisma sem liggur að baki.

En þessi snylldar hugmynd hjá þér um endurupptöku á því frábæra orði Goði Hefur breytt skoðun minni á þessu máli.  Ég styð þessa tillögu heilshugar ef Goði kemur fyrir Ráðherra! 

Goði og Goð er náttúrulega ekki það sama, og myndi ég líklega mæla með orðinu Gyða í stað Gyðja til sömu aðgreiningar.

Upprétti Apinn, 23.11.2007 kl. 14:15

18 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Ég er alveg að missa mig í þessu titlatogi - en segi enn og aftur: tröllkennum ráðmenn þessarar aumu þjóðar. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálatröll hljómar vel, ekki satt?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 23.11.2007 kl. 15:15

19 Smámynd: halkatla

mér finnst þetta snilldarhugmynd - goði er gott orð

halkatla, 23.11.2007 kl. 16:42

20 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þessi var nokkuð góður með að tröllkenna ráðamenn.  Ég man einungis eftir einum ágætum embættismanni á Akureyri sem kenndur var við tröll.

Sigurjón Þórðarson, 23.11.2007 kl. 16:44

21 identicon

Vitlaus hugmynd og ekki sanngjörn fyrir þá sem bera nafnið Goði í dag.

Ráðherra er gott og gilt nafn og þingheimur ætti að fara að huxa um mikilvægari mál þegar í stað. 

Svenni (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 17:28

22 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Veistu, ég er ekki á því að það þurfi að breyta þessu. Það er hreinasti óþarfi, sóun á tíma og skattpeningum.

Hvernig væri að þingheimur einbeitti sér að meira áríðandi málum...?

...veit ekki hvort það yrði mikið betra, væntanlega fundnar nýjar leiðir til þess að sóa skattpeningum almennings á sem flesta vegu sem koma sem fæstum til góða. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 23.11.2007 kl. 17:44

23 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Frábær prentvilla Sigurður RÍKISSTJÓN, þótt essunum sé aðeins ofaukið en samt frábær samnefnari fyrir liðið.

Hallgrímur Guðmundsson, 23.11.2007 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband