Leita í fréttum mbl.is

Össur Skarphéðinsson er ekki í nokkru jafnvægi

Í nótt skrifaði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra pistil á heimasíðuna sína sem ber með sér að karlinn er bæði sár og ekki nokkru jafnvægi. 

Það er ekki heil brú í röksemdafærslu Össurar þar sem hann kennir Júlíusi Vífli um klúðrið í kringum REI og GGE þar sem vélað var með eigur almennings á bak við tjöldin. Ráðherrann virðulegi lætur sér ekki nægja að úthúða Júlíusi heldur uppnefnir hann Júlíus Vífil með mjög barnalegum hætti.  Mögulega hefði það gengið ef reiðin og andlegt ójafnvægi hefðu ekki skinið í gegnum skrifin.

Það er rétt að íhuga aðkomu Júlíusar Vífils að þessu máli. Hún er einfaldlega sú að hann stóð með fyrrum minnihluta að því að fá upplýsingar um gjörðir sem oddvitar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks báru ábyrgð á um sameiningu REI og GGE, s.s. um kaupréttarsamninga og að opinberar eigur og gæði séu ekki seld án vitneskju kjörinna fulltrúa.

Nú eftir að Júlíus Vífill er kominn í minnihluta hefur hann haldið uppi málefnalegri gagnrýni um að nýr meirihluti greiði úr REI-málinu fyrir opnum tjöldum. Vonandi nær Össur sem fyrst jafnvægi, og eigi síðar en fyrir næsta ríkisstjórnarfund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fjármálamógúlarnir okkar þurfa lífsnauðsynlega á nýrri fjármálabólu að halda til að halda lífi í öðrum skímum sínum. Össur er bara ekki nógu góður bílasali og Bjarni Ármanns ekki heldur. Ruslpósturinn er líka verulega undirmannaður hvað þetta varðar. Það vantar betri sölumenn. HVerniog klikkuðu þeir á þessu? Með því að raða hvítasunnusöfnuðinum í menntamálaráðuneytið og síðan þar af leiðandi út í kerfið, ruslpóstinn osfrv.

Baldur Fjölnisson, 24.11.2007 kl. 18:10

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ótrúleg uppákoma.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.11.2007 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband