Leita í fréttum mbl.is

Ríkisborgararéttur með hraði - skoðun staðfestir fyrri fullyrðingar

Eftir að hafa gert mér ferð suður til Reykjavíkur til að skoða gögn sem varða veitingu ríkisborgararéttinda til tilvonandi tengdadóttur umhverfisráðherra setur að mér ónot.  Ég á þá alls ekki við sjálfa málavexti og þann afbrigðilega leifturhraða sem málið fór á í gegnum stjórnkerfið heldur ósvífna nauðvörn stjórnmálamannanna sem vilja ekki gangast við því sem allur almenningur sér, nefnilega að um pólitíska fyrirgreiðslu hafi verið að ræða.

Ég er bundinn trúnaði hvað varðar persónulega þætti málsins en málsmeðferð stjórnsýslunnar er harla óvenjuleg. Einum sólarhring eftir að dómsmálaráðuneytinu barst umrædd umsókn var hún send út þaðan til nokkurra opinberra stofnana sem bar að fjalla um hana með málefnalegum hætti. Umsagnirnar voru síðan yfirfarnar í dómsmálaráðuneytinu og sendar Alþingi. Þetta ferli var allt á leifturhraða og mjög ólíkt því sem ég hef kynnst hingað til enda fór allt þetta ferli fram á einum sólarhring - og eitt er víst að ekki var notuð venjuleg póstþjónusta heldur hafa bréfin verið boðsend á milli ráðuneytis, stofnana og Alþingis.

Dómsmálaráðuneytið gaf út sérkennilega yfirlýsingu um málið og tel ég best að lesendur heimasíðunnar kynni sér hana sjálfir en þar vísar Björn Bjarnason til þess að um hefðbundnar starfsvenjur sé að ræða.

Í kvöld birtist svo enn einn þáttur þessa máls þegar fyrrum aðstoðarmaður forsætisráðherra Steingrímur Ólafsson - en það er ekki ár síðan hann lét af starfi aðstoðarmanns Halldórs Ásgrímssonar - tók viðtal til þess að rétta hlut flokkssystur sinnar Jónínu Bjartmarz.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Eru þetta bara ekki vinnubrögð sem ættu að viðhafast, þ.e. opinberir blýantanagarar hreyfi á sér rassgatið, eins og annað fólk þarf að gera. Ég þurfti að nálgast tvo aðila hjá opinberum stofnunum á mánudag, báðir veikir. Gott að fá langa helgi, frí á þriðjudag.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.5.2007 kl. 22:55

2 identicon

Já Sigurjón, þetta mál er verulega ógeðfelt svo ekki sé meira sagt. Það eru þá ekki síst viðbrögð þeirra stjórnmálamanna sem að þessu komu: Það er einfaldlega logið upp í opið geðið á þjóðinni enda engin beinhörð sönnunargögn til sem staðfesta hina pólitísku fyrirgreiðslu er augljóslega átti sér stað. Við fíflin sem á þetta horfum getum bara átt okkur - við getum hvort sem er ekkert sannað. Um Guðrúnu Ögmundsdóttur og þá ömurlegu afsökun sem hún ber nú við - minnisleysi, er fátt annað að segja en að hún hlýtur að vera orðin afskaplega elliær - jafnvel sjúklingur. Er nema furða að maður skuli hugsa að gott sé hennar vegna að hún skuli vera að hætta þingmennsku. 

Agnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 00:36

3 identicon

Já Sigurjón

Haltu þessi máli VEL á lofti en ekki gleyma öðrum málefnum :)

kveðja

Arnar

Arnar Bergur Guðjónsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 01:48

4 identicon

getur ekki verið að þau sáu að þetta yrði engin félagsmálapakki og gáfu henni smá forgang, hef grun að þeir sem þurfa að bíða lengi séu fólk sem ríkið þarf að sjá um

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 02:44

5 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Þetta var fyrsta flokks pólitísk fyrirgreiðsla hjá framsókn.

Við hófum oft verið vitni að svipuðum vinnubrögðum áður úr þessum

herbúðum.

Jens Sigurjónsson, 4.5.2007 kl. 08:22

6 identicon

Spillingin hjá stjórnarflokkunum er yfirgengileg,stefnan er að stela allri sameign þjóðarinnar og skipta á milli flokksgæðinga.
Munum bankana,símann,Byrgið og margt fleira.Framundan er að ná höfnunum,Landsvirkjun,vatninu og fleiru.

Siggi (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 08:27

7 identicon

 

Sæll Sigurjón.

Ég er að velta fyrir mér vegna þess að Alþingi á að starfa fyrir opnum tjöldum samk. Stjórnarskrá, hvernig getur þingmaður verið "bundinn trúnaði" við aðra en umbjóðendur sína um grundvöll laga. Það þýðir td. að þingmaður ber fram frumvarp til laga um vernd silunga sem bíta gras, en hann getur ekki tekið þátt í umræðum um málið vegna trúnaðar við þá sem slíka silunga eiga!!!!!!!!!!

Kristján Sig. Kristjánsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 11:46

8 identicon

"getur ekki verið að þau sáu að þetta yrði engin félagsmálapakki og gáfu henni smá forgang, hef grun að þeir sem þurfa að bíða lengi séu fólk sem ríkið þarf að sjá "

Hvað með námslánin frá LÍN, ætlið þið að segja mér að hún sæki ekki um þau til að greiða fyrir námið og flug fram og til baka frá skóla til Íslands. 

Dísa (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 12:02

9 identicon

 

Sæll Sigurjón.

Ég er að velta fyrir mér vegna þess að Alþingi á að starfa fyrir opnum tjöldum samk. Stjórnarskrá, hvernig getur þingmaður verið "bundinn trúnaði" við aðra en umbjóðendur sína um grundvöll laga. Það þýðir td. að þingmaður ber fram frumvarp til laga um vernd silunga sem bíta gras, en hann getur ekki tekið þátt í umræðum um málið vegna trúnaðar við þá sem slíka silunga eiga!!!!!!!!!!

Kristján Sig. Kristjánsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 13:26

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þú segist hafa stormað suður og kíkt á gögn. Það er greinilegt að eitthvað hefur verið í þeim sem ekki hefur komið fram áður, annars værirðu ekki bundinn trúnaði. Þannig að málið er farið að snúast um hraða afgreiðslu málsins en ekki hvort veita hefði átt stúlkunni ríkisborgararétt. Er ekki kominn tími til að hætta þessu argaþrasi og snúa sér að einhverju sem skiptir ykkur meira máli?

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.5.2007 kl. 13:41

11 identicon

Það nýjasta sem vekur athygli er stórfurðuleg fréttatilkynning Dómsmálaráðuneytisins.  Þar er því lýst yfir, að ef sótt er um undanþágu til alþingis, þe. ef einstaklingar uppfylla ekki skilyrði sem sett eru til að hljóta borgararéttinn, þá fái menn afgreiðslu á ljóshraða!!  Þe. betra er að uppfylla ekki öll skilyrði og vera hafnað af umsagnaraðilum, þá fær maður Ríkisborgararétt nánast samdægurs!!

Og þetta kemur frá sjálfu Dómsmálaráðuneytinu!!

þetta nær auðvitað engri átt.  Og það er rétt, að það er ákaflega eftirtektarvert, að opinberar stofnanir og starfsmenn þess plús þjóðkjörnir fulltrúar, eru tilbúnir til að blekkja og villa um fyrir almenningi algeg hikstalaust.

Ríkisborgarinn (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 14:23

12 identicon

Það er líka merkilegt í sjálfu sér að á síðu ráðun. um ríkisborgararétt, eyðublöð og upplýsingar hér:http://domsmalaraduneyti.is/raduneyti/starfssvid/rikisborgaramal/

Þá er ekki einu orði eytt í að upplýsa nú fólk um að ef það uppfylli ekki skilyrði, þá fái það hraðmeðferð, reyndar er ekki sagt frá því að það geti sótt um beint til nefndarinnar.

Ég hefði álitið, miðað svona við reynslu af kerfinu íslenska, að fyrst þyrftu menn að fara í gegnum hefðbundið kerfi og síðan eftir að fá formlega höfnun, þá fyrst sækja um undanþágu.

En manni skilst að sagan sé núna orðin þannig að í viðkomandi tilviki hafi verið sótt um einfaldlega beint til alþingis og það komi Dómsmálaráðuneytinu sáralítið við!

Þetta er auðvitað allt með svo miklum ólíkindum að það tekur engu tali.

Ríkisborgarinn (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 15:54

13 identicon

Dísa segir: "Hvað með námslánin frá LÍN, ætlið þið að segja mér að hún sæki ekki um þau til að greiða fyrir námið og flug fram og til baka frá skóla til Íslands."

Dísa, námslán er lán en ekki styrkur. Þau þarf að endrugreiða og þau eru innheimt af fullri hörku samkvæmt gildandi lögum. 

Hvað sem því líður er þetta óvenju fljótt ferli. Ég á bandaríska eiginkonu og bara að fá dvalarleyfi er margra mánaða ferli. Þetta lyktar af fyrirgreiðslu en mér líst samt vel á stelpugreyið. Mín vegna má hún vera Íslendingur en allsherjarnefnd ætti að sjá sóma sinn í að viðurkenna og játa á sig það sem hver viti borin manneskja sér. Þetta fólk talar við þjóðina eins og hún sé samansafn af hálfvitum. 

Páll Geir Bjarnason (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 18:15

14 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Sæll Sigurjón. Vinir Jónínu á Alþingi Íslands eiga eftir að komast upp með að afgreiða umsókn tilvonandi tengdadóttir hennar og veita henni íslenskan ríkisborgararétt á örhraða!

Hefur enginn spáð í þá einföldu staðreynd að íslenskir ríkisborgarar njóta Lánasjóðar íslenskra námsmanna sem er einstakur og gefur fólki, fátækum sem ríkum lán á afarhagstæðum kjörum til að stunda nám víðsvegar í veröldinni.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 4.5.2007 kl. 18:48

15 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Það er náttúrulega augljóst að stúlkan fékk sérmeðferð og klént að reyna að ljúga sig frá því. Missti endanlega allt álit á Jónínu þegar hún sýndi fádæma hroka í Kastljóssviðtalinu við Helga Seljan...sem lét nú ekki slá sig út af laginu...maður man eftir svona hallæristöktum hjá Davíð Oddsyni stundum í viðtölum.

Georg P Sveinbjörnsson, 4.5.2007 kl. 20:48

16 identicon

Er það ekki nokkuð augljóst mál, að þegar fólk er ástfangið svona lengi í 2 ár, eins og sagan segir, að það væri eðlilegt að fólk myndi gifta sig og öðlast ríkisborgararétt á þann hátt.   Þannig myndi ríkisborgararétturinn fást á skjótan hátt, og ekkert ferðafrelsi væri skert.  En í þessu tilfelli er nokkuð ljóst að um sókn í íslensk námslán er að ræða, eða eru námslánin í Guatemala betri en þau íslensku?

Við erum mörg hér á landi frá útlöndum, sem værum ekki á móti því að fá ríkisborgararétt í lottói hjá Alþingi, til að geta farið til Bretlands í lögfræði eða eitthvað annað.

Ég get ekki séð að það sé nokkur ástæða til þess að veita ríkisborgararétt á þessum forsendum.  Það er fólk hérna hjá gömlu Júgóslavíu, eða frá Arabalöndum og er í þvílíkum vandræðum með sín skilríki í öllum landamærum.  Ef allt þetta fólk stillir máli sínu upp fyrir framan Alþingi að um skert ferðafrelsi sé að ræða, þá fengju allir ríkisborgararétt á mettíma, og færu svo bara úr landi með fullt ferðafrelsi og jafnvel á fullum námslánum.  Ég þekki mann frá Pakistan sem er búinn að búa 10 ár á íslandi, og er mjög metnaðargjarn.  Hann fékk ríkisborgararétt hér á 11 árum.  Hann þurfti að berjast við kerfið í allan þennan tíma til að fá sín réttindi fram.  Umsókn hans var synjað á allskonar smáatriðum.

Þurfti stúlkan ekki að sýna fram á það að hún gæti fjármagnað nám sítt í Bretlandi, því þegar fólk sækir um ríkisborgararétt á íslandi á venjulegum forsendum, þá þarf það að sanna sig með allskonar vottorðum, að viðkomandi umsækjandi sé fjáhagslega sjálfstæður.

Zdenka (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 22:32

17 identicon

Konan mín er frá Moldavíu og tekur þónokkuð langan tíma að endurnýja dvalarleyfið hennar á hverju ári. Lagði síðast inn umsókn um endurnýjun dvalarleyfis í byrjun febrúar s.l. og er enn ekki búinn að fá svar.

Held ég skrái mig í Framsóknarflokkinn og hef svo samband við J.B. (ef hún kemmst á þing).

 Enn annars áfram Frjálslyndir.

Þorsteinn Bjarki Ólafsson (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband