Leita í fréttum mbl.is

Ólýðræðisleg vinnubrögð Bjarna Ben. sem eru Alþingi ekki til sóma

Það ætti ekki að hafa farið framhjá landsmönnum að ég hef farið fram á að sjá gögn sem vísað var til allsherjarnefndar til umfjöllunar varðandi veitingu ríkisborgararéttar til tilvonandi tengdadóttur ráðherra í ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.

Ég á sæti í allsherjarnefndinni og hlýt þess vegna að hafa fullan aðgang að öllum þeim gögnum sem koma til meðferðar í nefndinni.  Annað er ólýðræðislegt og þeir sem taka þátt í þvílíku athæfi hljóta að verða að skýra það.  Ég hef farið fram á að ritari allsherjarnefndar veiti mér skriflega skýringu á þessum fáheyrðu vinnubrögðum sem eru skýrt brot á lýðræðislegum leikreglum, og ætlaði ritarinn að gera það í samráði við formann allsherjarnefndar, Bjarna Benediktsson.

Í yfirlýsingu sinni frá í morgun segir formaðurinn að hann ætli að fara að flokka  og greina gögn allsherjarnefndar síðar í dag. Hvaða dauðans della er að fara að stað? Sérstaklega þegar haft er í huga að Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, heldur því fram hvað eftir annað að umbeðin gögn hafi farið í gegnum pappírstætara.

Bjarni formaður allsherjarnefndar á einfaldlega að veita aðgang að umbeðnum gögnum. Það er kjarni þessa máls.  

Svo einfalt er það. 


mbl.is Bjarni segist ekki hafa neitað Sigurjóni um gögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ánægjulegt að það skuli vera nefndarmaðr hér. Þú hefur þá vonandi kynnt þér mál eins og það sem rætt er um hér að neðan?

First að alsherjarnefnd talar um að farið sé að lögum hjá nefndinni, þá væri gaman að líta á þessa umfjöllun um nefndina í öðru máli:

http://www.photo.is/bb2/viewtopic.php?t=179

http://www.photo.is/bb2/viewtopic.php?t=181

http://www.photo.is/bb2/viewtopic.php?t=182

íslenskur karlmaður (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 13:07

2 Smámynd: Þarfagreinir

Sigurjón, þú missir af aðalmálinu, sem er að Bjarni er að væna þig um að hafa gefið í skyn að þú hafir persónulega leitað til hans og fengið neitun! Þetta er einfaldlega bara ekki rétt, alla vega út frá skrifum þínum hér á blogginu. Ég get bara ekki betur séð en að hann sé með þessu að reyna að gera þig tortryggilegan með ómaklegum hætti.

Þarfagreinir, 2.5.2007 kl. 13:23

3 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

Flokka hvað pappíra eru þeir ekki aðgengilegir og á vísum stað er þetta ekki spurning um ljósitun ? Á þessi flokkun kannski að standa fram yfir kosningar.Ég tek það skýrt fram að að mínum dómi snýst þetta ekki um þessa ágætis stúlku sem fékk þetta landvistarleyfi heldur um vinnubrögð þessarar nefndar .Og ef að það er staðreind að pappírarnir eru ekki aðgengilegir þá þarf að skoða vinnulag nefndarinnar 

Grétar Pétur Geirsson, 2.5.2007 kl. 13:32

4 Smámynd: Óli Garðars

Hvað ertu hættur að segja að Bjarni Ben segi ósatt?

Annars fannst mér gaman að þessu orðavali hjá þér. Börn tala um að aðrir segji óstatt, þegar fullorðið fólk talar blygðunarlaust um lygi. Gerir manni auðveldara að aldursflokka hugarheim þinn

Óli Garðars, 2.5.2007 kl. 16:15

5 identicon

Málið liggur að mestu ljóst fyrir þannig séð.  Jónína snakkar við nefndarmenn um hvort þeir vilji nú ekki hjálpa sér með þetta lítilræði að fá ríkisborgararétt fyrir tilvonandi tengdadóttur.  Nefndarmenn samþyggja það.  Punktur.

 Eina vafamálið er hvort þarna hangi ekki eitthvað meira á spýtunni, þe. að þarna glitti aðeins í röð "greiðasemi" þjóðkjörinna fulltrúa lýðveldisins.

þe. að Jónína (Framsóknamaður) fær þennan greiða, gegn því að Bjarni (eða annar sjálfstæðismaður) fái annan greiða og síðan Guðrún(eða einhver samfylkingarmaður) enn annan... "Einbjörn greip í Tvíbjörn" lögmálið.

 Það gæti líka skýrt að hingað til hafa flestir verið meira og minna í felum sem tengjast málinu.

Enn núna virðast menn vera að sjóða saman einhver ólíkindi og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þeir/þau ætla að reyna að snúa sér útúr þessu.

Því samkvæmt því sem kom fram í Kastljósi þá voru engar sérstakar ástæður til að mölbrjóta venjur og reglur í tilfellinu.  Ástæðan sem borin var fram í umsókninni var,  að það væri ótrúlegt vesen að sækja um nýtt dvalarleifi milli skólavista í Englandi.  Allt og sumt.

Og samkvæmt eðli starfs þremenninganefndar, þá gátu þau ekki annað en vitað að Ráðherra tengdist umsækjandanum.  Það þarf ekki einu sinni að ræða það.  Borðleggjandi.

Ríkisborgarinn (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 17:48

6 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Það er sama plottið með þetta eins og allt annað hérna á Íslandi,tóm lygi og síðan á bulla allt í gegn og enginn fær að vita neitt fyrr en allt of seint og þá kemur bara enn ein lygin,já ég er ekkert að skafa af þessu það er allt svona sýkt þjóðfélagið okkar og þar við situr:Úlli.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 2.5.2007 kl. 22:40

7 identicon

Ósköp er að heyra. Þarftu að fá gögn í hendurnar í dag í máli sem þú hefur þegar fjallað um og afgreitt??? Varstu ekki viðstaddur eða varstu bara ekki að vinna vinnuna þína? Eftir að þetta var afgreitt úr allsherjarnefnd þá var þetta afgreitt í Alþingi. Varstu ekki viðstaddur þar heldur?? Þú fyrirgefur en ég er bara ekki að skilja þetta mál hjá þér. Þú segist eiga sæti í nefndinni og þá hlýtur þú að hafa tekið þátt í að afgreiða þetta mál.

Sólveig Kristjáns (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 22:51

8 identicon

Hvurskonar slugsaháttur var þetta í þér, sitjandi í nefndinni og greiðandi um þetta atkvæði, bara svona út í bláin!

Hvernig getur þú svo farið fram á það að landinn kjósi þig aftur á þing, þegar þú ert orðin uppvís af svona afleitum vinnubrögðum?

Gasprið í þér er sjálfum þér til vansa!

amman (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 22:59

9 identicon

Þetta var undirnefnd Allsherjarnefndar sem fjallaði um málið, Sigurjón kom þar hvergi nærri og það eiga menn að vita! En að hugsa sér að stelpan sækir um á röngum forsendum, vantar ríkisborgararétt hér til að komast á ódýr námslán til að geta stundað nám í Bretlandi. Jónína veit væntanlega af þessu og ýtir á nefndarmenn og þeir keyra málið í gegn af því að stelpan tengist syni hennar. Þetta er allt eitt svínarí þetta stjórnarlið og réttast fyrir kjósendur að koma þeim frá völdum!!!

Ragnar (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 23:16

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Verklag í nefndinni var þannig eins og þeim sem fylgst hafa náið með málinu ætti að vera ljóst að þrír fulltrúar af níu manna nefnd voru í vinnuhópi sem var ætlað það verkefni að fara í gegnum og meta umsóknir. Aðrir komu ekki að þeirri vinnu nema að spyrja út í einstaka mál og veitti þá formaðurinn yfirleitt greið svör um hin ýmsu mál sem vörðuðu þá sem spurt var um, m.a. sem varðaði fjölskylduhagi og fleiri þætti sem geta talist persónulegir.

Meginþungi þessa máls snýst í mínum huga um að ráðamenn hafa ekki greint rétt frá gangi mála, heldur hafa reynt að torvelda aðgengi almennings og keyra villuljós til að afvegaleiða blaðamenn þegar þeir hafa reynt að fá upp hvers vegna tengdadóttir ráðherra fékk ríkisborgararétt með hraði. 

Sigurjón Þórðarson, 2.5.2007 kl. 23:22

11 identicon

Viðbrögð umræddra nefndarmanna í þessu máli lýsa ótrúlega miklum hroka gagnvart almenningi.  Það nýjasta í vörn ráðamanna er að Kastljós sé með pólitískar ofsóknir gagnvart Framsóknarflokknum.  Pólitískur rétttrúnaður er alltaf hvimleiður sama hver á í hlut.  Þetta snýst ekki um það í hvaða flokki þessir nefndarmenn eru, heldur að þeir virðast hafa sýnt mikið dómgreindarleysi í þessu ákveðna máli og halda að sauðsvartur almúginn séu  eins og heimskar rollur sem geti ekki hugsað sjálfstætt.  Svo móðgast þetta sama fólk af því að það sætir réttmætri gagnrýni og er réttilega krafið svara.  Spilltir stjórnmálamenn eru hvimleiðir alveg sama í hvaða flokki þeir eru.  Þeir eru allavega ekki að vinna vinnuna sína.  Hefur þetta fólk aldrei heyrt talað um rannsóknarblaðamennsku. 

Bryndís Júlíusdóttir (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 10:44

12 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Hún finnst orðið langar leiðir skítalyktin úr framsóknarfjósinu.

Jens Sigurjónsson, 3.5.2007 kl. 12:02

13 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Bryndís Júlíusdóttir. Ég ætla að leifa mér að svara gagnrýni þinni um.

Sauðsvartann almúgann.

Það er einmitt málið... ÞESSI SAUÐSVARTI ALMÚGI HRÓPAR OG ÆPIR OG LÆTUR ÖLLUM LÁTUM ÞEGAR RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR SÍNA AF SÉR ALGERT SIÐLEYSI ÞEGAR ÞEIR HYGLA VINUM SÍNUM OG FARA HVORKI EFTIR REGLUM OG OFT LÖGUM ÞEGAR MÁLEFNI VINANNA ERU TEKIN FYRIR... Og síðan ekkert meir. Þetta vita stjórnmálamenn og komast upp með shittið aftur og aftur og aftur og aftur

Guðrún Magnea Helgadóttir, 3.5.2007 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband