Leita í fréttum mbl.is

Bjarni Ben. dregur lappirnar

Það er greinilegt að Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, hefur mjög vondan málstað að verja þegar hann tekur þá afstöðu að meina þeim sem sæti eiga í allsherjarnefnd Alþingis að sjá gögn sem heyra undir nefndina.

Nefndarritari allsherjarnefndar hefur ítrekað neitað að afhenda mér gögn og er sú ákvörðun tekin í samráði við formann nefndarinnar. Ég óskaði strax eftir skriflegri skýringu á þessari ólýðræðislegu ákvörðun og mátti mér skiljast að ritarinn ætlaði að hafa samráð við formann nefndarinnar um gerð þess rökstuðnings. Hann hefur ekki ennþá komið. Ef hann kemur verður hann ábyggilega tímamótaplagg í lögfræðilegri vitleysu.

Hér er um mjög alvarlegt mál að ræða og formaður allsherjarnefndar er kominn í mjög þrönga stöðu. Það sést best á því að hann neitar að mæta í fjölmiðla og ræða málið og getur ekki rökstutt skriflega þau fáheyrðu vinnubrögð að nefndarmaður fái ekki að sjá gögn sem heyra undir þá nefnd sem hann situr í.

Þetta sýnir að það er ekki seinna vænna að skipta um ríkisstjórn. Þessir flokkar hafa setið allt of lengi og eru orðnir eins og heimaríkir hundar og líta svo á að lýðræðið sé ekki til fyrir fólkið heldur bara flokkana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann H.

Að vera memm eða ekki memm, það er málið.  Sigurjón er greinilega ekki í klíkunni, hvorki innvígður né innmúraður.  Sem betur fer...

Jóhann H., 1.5.2007 kl. 19:30

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sigurjón fær auðvitað að sjá þetta fyrr eða síðar.  Hitt er annað mál að það getur þurft að  sortera pappírana og það getur tekið þó nokkurn tíma. 

Sigurður Þórðarson, 1.5.2007 kl. 21:37

3 Smámynd: Raggi

Ég held að útlendingar og íslensk ættaðir sem eru að sækja um 
ríkisborgararétt andi léttar yfir því að Sigurjón fái ekki að komast yfir umsóknir og aðra trúnaðarpappíra varðandi þessar umsóknir.

Efast um að umsóknaraðilar hafi áhuga á að fjallað verði um þeirra
persónulegu aðsæður í fjölmiðlum landsins.

En hvað veit ég....

Ragnar

Raggi, 1.5.2007 kl. 23:28

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já er verið að sortera pappíra ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.5.2007 kl. 23:33

5 identicon

Ég hvet þig Sigurjón til að láta ekki undan í þessu máli.Láttu það ekki daga uppi, svo það komist á hreint í eitt skipti fyrir öll hvort að tengsl hennar við umhvefisráðherra sé ástæða þess að hún fékk undanþágu og þar með íslenskan ríkisborgararétt. 

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 23:47

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ja hjérna, er ekki komið eitt tækifæri enn sem hægt er að kippa út og setja  framm sem  einhverja sorafrétt um óréttmæt vinnubrögð. Af hverju segir þú ekki bara: Við í Frjálslinda flokknum," ætlum aldrei að  eða alltaf að" Da Da Da. Æ það er svolítil Drama Queen  likt af þessu umtali þínu. Nei bara mín skoðun.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.5.2007 kl. 07:42

7 Smámynd: Þarfagreinir

Ég styð þig heilshugar í þessu ströggli þínu, Sigurjón. Einhver þarf að rannsaka það hvort að einhver fordæmi eru fyrir því að manneskja hefur fengið ríkisborgararétt áður á jafn ótrúlega veikum forsendum.

Og þú Ragnar, með fullri virðingu, mátt bara einfaldlega þegja. Þetta snýst ekki um það að persónuupplýsingar komist í fjölmiðla, heldur einungis til meðlim nefndar sem hefur þetta allt saman á sinni könnu. Allt röfl um hversu miklar trúnaðarupplýsingar þetta eru lít ég einfaldlega á sem tilraunir til að þæfa málið.  Svo lengi sem enginn veit neitt fyrir víst um hversu rakalaust brot á venjum þessi veiting ríkisborgaréttar til þessarar stúlku var, þá er alltaf hægt að sá efa í hugum fólks.

Mér finnst hins vegar að sönnunarbyrðin eigi að liggja hjá nefndinni. Ef það eru til að mynda til fordæmi fyrir því að manneskju sem hefur verið á landinu í innan við 2 ár, hefur engin fjölskyldutengsl hér, er ekki fædd á Íslandi, er heil heilsu, og er ekki landflótta, hafi nokkurn einhvern tímann verið veittur ríkisborgararéttur áður, þá myndi málið strax horfa öðru vísi við. Og nota bene, þá er þetta nokkuð sem væri auðvelt að sannreyna með hjálp gagna sem ég get ekki séð að séu eitthvað trúnaðarmál, sérstaklega ekki ef nöfn fólks verða ekki birt.

Það er fjárans skömm að þessu máli, og enn meiri skömm að því að enn sé til fólk sem sér ekkert athugavert við það.

Þarfagreinir, 2.5.2007 kl. 10:20

8 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

Á fréttum í dag skylst mér að þú sért að fara með rakalausar dylgjur. Gaman væri að heyra þig svara þeim ásökunum.

Guðmundur H. Bragason, 2.5.2007 kl. 13:02

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég hef ekki verið með dylgjur heldur vel rökstuddar ásakanir sem hafa ekki verið hraktar og það kæmi mér ekki á óvart þó svo að fulltrúarnir 3 í allherjarnefnd þyrftu að segja af sér vegna málsins.

Sigurjón Þórðarson, 2.5.2007 kl. 15:36

10 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Mér finnst undarlegt að þú Sigurjón Þórðarson þorir núna að skilja þig frá öðrum meðlimum á Alþingi og benda á spillinguna sem þar ríkir og einlæga samheldni Alþingismanna, hvað sem á dynur. Mér er forvitni á að vita hvort slagorð Frjálslyndaflokksins ,,Spillinguna burt", sé raunverulegur vilji Frjálslyndra?

Guðrún Magnea Helgadóttir, 2.5.2007 kl. 17:51

11 identicon

Bjarni Ben. og Jónína Bjartmarz eiga bara einfaldlega að biðjast afsökunar og segja af sér, því það er svo augljóst að þarna voru viðhöfð röng vinnubrögð.  

Gunnar Tryggvason (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband