Leita í fréttum mbl.is

1. maí í skugga ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur

Baráttudagur launafólks er haldinn hátíðlegur í skugga ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.  Miklar vonir voru bundnar við að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur myndi fara í umfangsmiklar breytingar á þeim kerfum og vinnubrögðum sem ollu hruninu.  Óhætt er að fullyrða að ríkisstjórnin hefur brugðist þeim vonum sem bundnar voru við hana. Miklu frekar hefur verið hert á leyndarhyggjunni frekar en að aukið hafi verið á gagnsæi í samfélaginu.  Fréttir dagsins bera það með sér að Seðlabankinn sé genginn í lið með fjármálafyrirtæki um að leyna upplýsingum sem geta varpað ljósi á hvort að bankarnir hafi staðið í lögbrotum!  Bankaleyndin er fyrir suma en aðra ekki s.s. greina bankarnir skilmerkilega frá innistæðum lífeyrisþega svo hægt sé að skerða bætur þeirra frá almannatryggingakerfinu.  Stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur vill leiða í lög að hægt sé að leyna opinberum gögnum í meira en heila öld og hefur nú þegar lögleitt vafasamt og kostnaðarsamt eftirlit með fjölmiðlum.  Nú þessa vikuna er ríkisstjórnin í leynimakki með SA um það hvernig tryggja megi að koma helstu auðlind landsmanna í varanlega eigu örfárra og halda óbreyttu kerfi við stjórn fiskveiða sem stórskaðað hefur hag landsmanna.

Öll loforð Vg og S um að reisa skjaldborg um heimilin reyndust orðin tóm en hins vegar hafa flokkarnir verið drjúgir við að setja milljarða tugi inn í fallin fjármálafyrirtæki.

Nú skiptir miklu máli að almenningur láti sig spillta stjórnarhætti varða og krefjist skilyrðislausra úrbóta.

 


Ályktun vegna tilboðs Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til LÍÚ um að festa í sessi mannréttindabrot á Íslandi

Stjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með þær fréttir að ríkisstjórn Íslands hyggist festa í sessi illræmt kvótakerfi til áratuga, sem mismunar landsmönnum og særir réttlætisvitund almennings. Ljóst má þykja að þeir ráðamenn sem samþykkja slíka ósvinnu geta verið sóttir til saka fyrir að fara gegn stjórnarskránni.

Stjórn Frjálslynda flokksins hvetur til þess að sjómenn íhugi að láta reyna á ólögin um stjórn fiskveiða sem brjóta í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og halda til veiða.

29 apríl, 2011

Sigurjón Þórðarson, formaður Ásta Hafberg, varaformaður Grétar Mar Jónsson ritari


Verður Jón Gnarr fyrsti íslenski pólitíski flóttamaðurinn?

Frami Jóns Gnarr hefur orðið mikill og skjótur. Nú á hátindi frægðar sinnar sem nær langt út fyrir landsteinana þá hefur hann ekki nennt að setja sig inn í smærri mál s.s. Icesavemálið eða skólamál.  Jón Gnarr hefur ekki heldur nennt að hitta hvern sem er s.s. formann Frjálslynda flokksins enda er hann stjarna.

Á dögunum boðaði Jón Gnarr flótta sinn frá landinu vegna húmorslausra stjórnmála og tilgangslausra viðræðna við einhverja minnihluta.  Mér finnast fréttir dagsins bera það með sér að það styttist mjög í að Jón Gnarr verði fyrsti pólitíski flóttamaður landsins. 

Það verður spennandi vita á hvaða lendur stjarnan muni ákveða að skína næst - mögulega Hollýwood eða jafnvel Bollýwood.


mbl.is Húmorsleysi og neikvæðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sex Skagamenn á móti Ásmundi Daða

Ég heyrði í kunningja mínum a Skaganum sem sagði mér frá því að þar væri gert góðlátlegt grín af þessari ályktun Vg, þar sem  afsagnar Ásmundar Daða væri krafist.   Ályktunin var samþykkt naumlega á afar fámennum fundi, sem flokksforysta Vg hafði blásið til, en einungis 6 fundarmenn greiddu henni atkvæði.

Sú spurning hlýtur að vakna hvað Steingrímur J. fær út úr því að skrapa saman nokkrum hræðum á samstöðufund við hreinsunarstarf sitt í þingflokknum? 


mbl.is Skora á Ásmund Einar að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitleysisumræða í boði Samtaka Atvinnulífsins

Samtök Atvinnulífsins bjóða landsmönnum upp á þvílíka þvælu málflutning að það hálfa væri meira en nóg. Málflutningur sem gengur út á að ekki sé hægt að gera almenna kjarasamninga í landinu vegna þess að það þurfi að tryggja þeim sem stunda fiskveiðar sérstaka einokun til að stunda veiðar og það til margra áratuga! Rökin eru að það verði engar fjárfestingar nema að núverandi handhafar og afkomendur þeirra fái réttindi umfram aðra landsmenn.  Þetta er illskiljanlegt þó væri ekki vegna annars en þess að margir þeirra sem um er rætt að þurfi að hafa einokun, hafa steypt útgerðum sínum í gríðarlegar skuldir og tekið svakalegt fjármagn út úr atvinnugreininni.

Maður hefði skilið að það væri erfitt að gera kjarasamning ef að til stæði að skera niður veiðiheimildir um tugi prósenta og auðveldara væri að semja ef veiðar og atvinnufrelsi yrði aukið í sjávarútveginum. Sömuleiðis ætti það að greiða fyrir samningum ef að allur fiskur færi á fiskmarkað en fyrir þá sem trúa á mátt markaðarins ættu að sjá það í hendi sér að það myndi stuðla að aukinni verðmætasköpun í landinu.

Stundum er engu líkara en að forysta SA og reyndar ASÍ einnig berjist á hæl og hnakka gegn markaðslögmálum en fyrir einokun og fákeppni.


Forysta ASÍ er með í samsærinu

Leikaraskapurinn í kringum kjarasamningana er orðinn langdreginn og þreyttur. Beggja vegna borðsins sitja forystumenn sem voru beinir þátttakendur í hruninu þar sem þeir spiluðu með útrásarvíkingum með lífeyrispeninga landsmanna. Báðir hafa þeir varið kröftum sínum í að endurreisa og varðveita þau kerfi sem ollu hruninu. Báðir voru sammála um að samþykkja Icesave, viðhalda óbreyttu lífeyrissjóðakerfi og verðtryggingu. Sömuleiðis leggja báðir mikla áherslu á svo undarlegt sem það nú er, að verja óbreytt kvótakerfi sem skilar víst helmingi minni botnfiskafla á land en veitt var fyrir tveimur áratugum. Kvótakerfið sem forysta ASÍ og SA vill verja hvetur ennfremur til sóunar verðmæta og var upphaf loftbóluhagkerfisins.

 Það er beinlínis galið að stilla varðveislu kvótakerfisins upp sem einhvers lykilatriði sem forsendu þess að semja um kaup og kjör við launafólk í landinu - kerfi sem brýtur í bága við jafnræði og mannréttindi landsmanna!

 Miklu nær væri að SA og ASÍ sameinuðust um að endurskoða algerlega frá grunni veiðiráðgjöfina og leyfa auknar veiðar og frelsi í atvinnugreininni.


mbl.is Reyna að ná skammtímasamningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. byggði Vg upp og reif síðan niður

Steingrímur J. á stærsta þáttinn í því að byggja upp Vg en á þeirri vegferð hefur hann farið í fjölbreytt en vissulega ólík hlutverk s.s. byltingarmanns, umhverfisverndarsinna, kvenfrelsismann, andstæðing Icesaves, Evrópusambandsins, talsmann hinna dreifðu byggða, kvótakerfis, lýðræðisumbóta og breyttra stjórnarhátta. Sömuleiðis hefur Steingrímur J. farið í búning þjónustumanns AGS, verndara kvótakerfisins í sjávarútvegi og sölumanns á orkuauðlindum þjóðarinnar til útlendinga. Steingrímur J. er atvinnumaður sem hefur skilnings á því að hvorki gagnsæið sem hann boðaði þrútinn í ræðustól Alþingis á ekki við um hann og alls ekki á þeim erfiðu tímum sem nú eru uppi. 

Sem von er hafa þessi stöðugu hamskipti Steingríms J. gert talsmenn flokksins mjög ringlaða og hafa þeir hver af öðrum týnst úr flokknum og jafnvel úr sjálfum þingflokknum.

Fréttir kvöldsins hljóta að vera að Ásmundur Daði Einarsson treystir sér ekki lengur til þess að styðja ríkisstjórnina á meðan þau Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir gera sig líklega til þess að veita stjórninni stuðning.  Sjötti þingflokkurinn virðist vera í burðarliðnum á Alþingi en vænta má þess að Ásmundur Daði gangi til liðs þau Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason. 

Þó svo að aðfarir Steingríms J. við að rífa niður Vg toppi jafnvel skipulagt niðurrif Halldórs Ásgrímssonar á Framsóknarflokknum, þá  bjó hann þetta dæmi til, á meðan Halldór fékk sinn flokk í arf.


mbl.is Vantrauststillaga felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar

Lítil von er  til þess að vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar verði samþykkt þar sem að hann virðist hafa lagt tillöguna fram án nokkurs undirbúnings.  Bjani ráðfærði sig hvorki við Framsóknarflokkinn né Hreyfinguna eða hvað þá við tvímenningana sem nýlega sögðu skilið við þingflokk Vg.

Ef tilgangurinn með vantrauststillögunni er að opna pólitísk sár nú í kjölfar Icesave kosninganna þá er eins víst að umræðan verði Sjálfstæðisflokknum ekki síður erfið en ríkisstjórninni. Ræða Bjarna munu að öllum líkindum ekki vigta þungt í pólitískri framvindu en meiri athygli mun beinast að því hvort að þingflokksvillingarnir í Vg þau Lilja og Atli munu lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Atkvæðagreiðsla þeirra mun upplýsa um hversu djúpstæður ágreiningurinn er í Vg og þá hversu lengi flokkurinn heldur saman.


Þakkir til forseta Íslands

Stjórn Frjálslynda flokksins þakkar Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir frækna framgöngu hans í Icesave málinu. Frá upphafi hefur málsmeðferð stjórnvalda í Icesavemálinu verið með endemum s.s. að ætla að þröngva  Icesavesamningnum ólesnum í gegnum Alþingi og geta ekki skýrt og varið af myndugleika málstað Íslendinga.

Sú ákvörðun forsetans að skjóta Icesavemálinu til þjóðarinnar verður vonandi til þess að núverandi ríkisstjórn og sömuleiðis ríkisstjórnir framtíðarinnar taki í auknum mæli ákvarðanir í samræmi við vilja þjóðarinnar.

Niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesavesamninginn staðfestir að myndast hafi djúp gjá á milli þings og þjóðar.  Meirihluti kjósenda greiddi atkvæði gegn því að taka á sig ótakmarkaða ábyrgð og kostnað vegna gallaðs regluverks Evrópusambandsins og misferla fjármálakerfisins.  Nú ætti það að vera forgangsverkefni hjá þjóðkjörnum fulltrúum að brúa gjána svo landsmenn snúi bökum saman allir sem einn.

Barátta og sigur grasrótarsamtakanna Samstöðu þjóðar og Advice er merkilegur fyrir margra hluta sakir og ekki síst að þau öttu kappi við sterkustu öflin í þjóðfélaginu þ.e. leiðandi stjórnmálaflokka, sérfræðingaveldi og álitsgjafa flokkanna inn á fjölmiðlum, helstu fjölmiðla, Samtök atvinnulífsins og verklýðshreyfinguna.

 Venjulegir kjósendur sögðu nei við boði valdastéttarinnar að játast undir  ósanngjarnan samning.

 Mikil barátta stendur um þessi ólíku sjónarmið um allan heim og þess vegna erum við Íslendingar ekkert eyland í umræðunni á heimsvísu. Ísland hefur nú tekið þá afstöðu að bankakerfið geti ekki gengið, að því vísu að almenningur borgi kostnaðinn vegna mistaka þess.

 

Sigurjón Þórðarson, formaður

Ásta Hafberg, varaformaður

Grétar Mar Jónsson, ritari

 

Óútfyllt ávísun til að losna við uppgjör

Hrunið er bein afleiðing af samkrulli spilltrar stjórnmálastéttar og fjárglæframannanna í útrásarbönkunum. Almenningur hefur orðið vitni að því að furðu lítið hefur breyst í íslensku samfélagi á þeim rúmu tveimur árum sem liðin eru frá hruni nema, jú, að lífskjör almennings eru stórskert. Enn eru sömu aðilar á ferðinni í viðskiptalífinu, og sömu kerfin og hagsmunabandalögin halda saman sem áður. Skýringarnar á þessari stöðnun eru þær að fjórflokkurinn sigraði í síðustu alþingiskosningum og fékk 59 sæti gegn fjórum. Sameiginlegir hagsmunir stjórnmálamanna og fjárglæframannanna hafa farið saman um að   forðast hreinskiptið uppgjör og gera raunverulegar breytingar á íslensku samfélagi. Ógöngurnar sem Icesave-málið hefur ítrekað ratað í eru angi af þessu getu- og viljaleysi stjórnvalda til að verja hagsmuni
íslensks almennings, enda hafa þau óhreint mjöl í pokahorninu. Á síðustu misserum hefur stór meirihluti Alþingis, svo undarlegt sem það er, miklu frekar verið harður málsvari þess að íslenskir skattgreiðendur beri einir alla ábyrgð og áhættu af Icesave-málinu í stað þess að halda á lofti málstað íslenskra skattgreiðenda. Icesave-málið er bein afleiðing af gölluðu innistæðutryggingakerfi og óvönduðu eftirliti með glæfralegu fjármálakerfi sem búið var að vara við um árabil. Ósanngjarnt er að íslenskir skattgreiðendur séu einir látnir sitja upp með að tryggja tjón vegna kerfisins og endurgreiða fjármuni sem aldrei rötuðu til landsins. Miklu nær væri að Evrópusambandið hefði forgöngu um að tjóninu væri að einhverju leyti skipt af sanngirni í stað þess að beita Íslendinga þrýstingi og jafnvel síendurteknum
hótunum.  
Svo rammt hefur kveðið að þessum róðri innanlands gegn hagsmunum Íslands í Icesave-málinu að margir standa í þeirri trú að sú aðgerð stjórnvalda að tryggja innistæður í bönkum á Íslandi hafi að einhverju leyti skaðað þá sem áttu fjármuni inni á Icesave-reikningum Landsbankans. Þessu er algerlega öfugt farið þar sem Bretar fá mörghundruð milljörðum króna hærri upphæð endurgreidda   en ef Íslendingar hefðu látið hjá líða að setja umdeild neyðarlög sem deilt er um, þ.e. á sjöunda hundrað milljarða króna í stað þess að fá á tólfta hundruð milljarða króna. Íslendingar hafa því gert vel við Breta í umræddu uppgjörsmáli sem snýst um fjármuni sem eins og áður segir runnu að öllum líkindum ekki frá Bretlandseyjum og skiluðu sér ekki hingað til landsins.
Efnahagsörðugleikar Íslands eru miklir og víst er að samþykkt Icesave verður til þess að óréttlátar og ólögvarðar skuldbindingar sem enginn veit hvað verða háar verða að kröfum á hendur komandi kynslóðum sem hægt verður að innheimta.
Íslendingar eiga að afþakka það kinnroðalaust að taka á sig skuldir fjárglæframanna þann 9. apríl nk. þó svo að stjórnmálamenn sem hafa meira og minna verið á spillingarjötunni forðist umfram allt heiðarlegt uppgjör við hrunið.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband