Leita í fréttum mbl.is

Meiri sáttatónn hjá útgerðarmönnum

Mér finnst ég skynja þann sáttatón hjá ýmsum útgerðarmönnum að þeir geri sér ljóst að núverandi kerfi gengur ekki lengur óbreytt. Að vísu hafa þær raddir ekki komið fram opinberlega af því að fréttamenn hafa einkum veitt athygli Binna í Vestmannaeyjum sem hefur haldið uppi gömlu harðlínunni um að kerfið eigi bara að haldast óbreytt.

Margir sjá að þjóðin mun ekki líða braskið áfram og stöðugur samdráttur í veiðum verður greininni mjög erfiður. Allt útlit er fyrir að ef ráðum Hafró verður fylgt verður niðurskurður í aflaheimildum mikill í ýsu og þorski. Það þýðir milljarðatap fyrir þjóðarbúið og ég veit um ýmislegt sem íslenska þjóðin vildi gera fyrir milljarðana sem við getum veitt úr hafdjúpunum. Dettur þér eitthvað í hug, hmm?

Mörgum útgerðarmanninum sem er annt um heimabyggð sína óar við þeirri ábyrgð sem hvílir á herðum hans hvað varðar framtíð byggða en vill engu að síður tryggja öruggan rekstrargrunn og arðsemi fyrirtækisins. Margur sér feigðina í því að girt sé fyrir nýliðun í atvinnugreininni.

Frjálslyndi flokkurinn hefur um árabil lagt fram lausnir til breytinga og gerir sér grein fyrir því að útvegsmenn og sjómenn þurfa að vera aðalleikararnir í því að koma þjóðinni út úr kreppunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Binni ver sitt og sína sem von er.Karlar með milljón á mánuði í stjórnunarstöðu,hampa vel reknu fyrirtæki en tíma aldrei að borga verkamönnum mannsæmandi laun.Mafía hvað???

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 12:52

2 identicon

Það er lámarks krafa að útgerðamenn sýndu samfélags ábyrðar og skildu ekki fólk eftir í átthagafjötrum eins og staðan er vítt og breitt um LANDIÐ Í DAG.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband