Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmálaklúbburinn í algjörri afneitun

Í kvöld var ég í pallborði hjá stúdentum og framhaldsskólanemum ásamt frambjóðendum allra stjórnmálaafla sem bjóða fram. Svo var að heyra á fjórflokknum, stjórnmálaklúbbnum, að talsverðir fjármunir væru í ríkiskassanum til að hækka námslán og auka framboð á hinum og þessum námsleiðum og öllu yrði forgangsraðað til að tryggja óbreytt eða betra ástand í menntakerfinu. Satt að segja var mér svolítið brugðið yfir því að þingmennirnir og formaður Framsóknarflokksins virtust ekki hafa kynnt sér að vaxtagreiðslur ríkisins í ár nema sjöföldum fjárframlögum til HÍ, bara þess eina háskóla. Allar líkur eru til þess að vextirnir einir saman verði talsvert hærri á næsta ári þegar skuldadagar Icesave renna upp.

Frjálslyndi flokkurinn hefur ítrekað bent á að það verði að fara í mikla tekjuöflun, stórauka fiskveiðar og taka upp samninga um lán, að öðrum kosti er dæmið óyfirstíganlegt. Hinir flokkarnir hafa talað um blandaða leið, niðurskurð og skattaukningu - nema Sjálfstæðisflokkurinn sem vill ekki hækka skatta og hlýtur þá að boða enn meiri niðurskurð en aðrir.

Eitt er víst, ef mark mátti taka á fulltrúum flokkanna á þessum fundi átti ekki að skera af eina einustu krónu í menntakerfinu, frekar bæta í. Reyndar bætti fyrrum menntamálaráðherra því við að þetta ástand, að borga af hátt í tveggja þúsund milljarða skuldum, væri á að giska tveggja ára verkefni. Maður hlýtur að velta fyrir sér hvort fjórflokkurinn sé í svona stórkostlegri afneitun eða að ljúga vísvitandi að fólki. Eini flokkurinn utan Frjálslynda flokksins sem sagði að smjör drypi ekki af hverju strái á komandi árum var Borgarahreyfingin og mér fannst jafnvel Ástþór Magnússon hafa á köflum mun meiri jarðtengingu en stjórnmálaklúbburinn. Samfylkingin heldur að fólki efnahagstillögum sem samdar eru af fyrrum stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins sem var Icesave-fyrirsætan í fyrrasumar. Jóni þeim Sigurðssyni til aðstoðar við samningu ritsins var enginn annar en Jón Þór Sturluson sem gerði lítið úr olíusamráðssvindlinu fyrir fáum árum.

Bjartsýni er góðra gjalda verð en hún verður að ganga í takt við raunsæið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Verð að taka hér undir með þér Sigurjón. Mér fannst raunalegt á köflum að sitja þarna undir loforða flæði sem á sér litla stoð í raunveruleikanum og fylgjast með sömu loforðum uppskera ítrekað mikið lófatak stúdenta.

Verð að vona að stúdentar geri sér skýra grein fyrir því að peningar til þess að auka þjónustu hér á næsta ári eru ekki til og allt tal þar um aðeins draumsýn.

Ég var ánægður með þig í kvöld, við eigum að segja bara satt

Baldvin Jónsson, 17.4.2009 kl. 00:12

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég deili þezzari skoðun þinni um að meðan Ástþór er ekki mesti  jólasveinninn í hópnum, þá eru hinir ótrúðugverðari trúðar.

Steingrímur Helgason, 17.4.2009 kl. 00:28

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Það vantar ekki afneitunina það er rétt.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.4.2009 kl. 01:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband