Leita í fréttum mbl.is

Borgarahreyfingin dregur sig í hlé

Það er áhugavert að fylgjast með „þjóðinni á þingi“. Margir bundu vonir við að þjóðarflokkurinn léti duglega til sín taka um helstu pólitísku álitamál samfélagsins. Þess vegna kom mér verulega á óvart að Borgarahreyfingin sæi ekki nokkra ástæðu til að taka þátt í umræðu um fyrningu aflaheimilda á þinginu í fyrradag. Markmiðið með henni er m.a. að koma til móts við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, ekki síður að auðlindir þjóðarinnar lendi ekki í höndunum á erlendum lánardrottnum og enn fremur að gera skuldug sjávarútvegsfyrirtæki rekstrarhæf. Það er deginum ljósara að engin sátt verður um það að skuldir verði afskrifaðar í stórum stíl og að haldið verði áfram að veðsetja og leigja aflaheimildir eins og ekkert sé. Kvótakerfið markaði upphaf hrunsins og er nauðsynlegt að taka á málum.

Þó að ég hefði viljað fara aðra leið, fara í aukningu veiðiheimilda sem hefði verið úthlutað af jafnræði, er fyrningarleiðin skoðunar virði og furðulegt að Borgarahreyfingin hafi ekki skoðun á málinu.

Þegar ég sá þetta ákvað ég að kanna hvaða þingmál Borgarahreyfingin leggur áherslu á. Á þeim mánuði sem brátt er liðinn frá alþingiskosningum hafa liðsmenn Borgarahreyfingarinnar ekki séð ástæðu til að leggja fram eitt einasta mál ef frá er talið að Birgitta Jónsdóttir er meðflutningsmaður á fortakslausu banni við nektarsýningum. Einhvern veginn held ég að það mál brenni ekki á mörgum heimilum í landinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sæll Sigurjón

Eitthvað hefur þú misskilið mig. Ég er algjörlega sammála þér engin lifandi leið er að afskrifa skuldirnar hjá þessum mönnum og afhenda þeim síðan fyrirtækin og kvótann eins og ekkert hafi í skorist!

Þetta er auðvitað kvótinn, sem á að innkalla strax og síðan geta aðrir tekið við stjórn fyrirtækjanna og spreytt sig við að leigja kvótann! þeir sem hafa sett sín fyrirtæki á hausinn missa auðvitað fyrirtækin sín með öllu sem tilheyrir. Það er hins vegar verra með þá sem hafa keypt sína kvóta dýrum dómum og eru kannski enn að basla við að borga að honum, en ég get ómögulega skilið að hægt sé að svipta þá þessum heimildum bótalaust!

Fóru Lehman Brothers og Hypo Vereinsbank AG á hausinn vegna kvótakerfisins? Nei, það var græðgi bankamanna og útrásarvíkinga um heim allan, ónógt eftirlit þar til bærra stofnana og sofandaháttur fjölmiðla og stjórnmálamanna sem orsakaði þessa heimskreppu, sem við förum svo illa út úr.

Kvótakerfið er ekki upphaf alls ills í heiminum, þótt það sé meingallað eins og það er og þurfi breytinga við! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 22.5.2009 kl. 12:18

2 identicon

Heill og sæll; Sigurjón, æfinlega !

Svo; sem mér bauð í grun, mjög fljótt,, að afloknum kosningum, reynist þorri ''Borgara hreyfingar'' meðlima vera lýðskrumarar og fjölmiðla sæknir kjánar, að megin uppistöðu.

Undirstöðu atvinnuvegir okkar; eru þessum mannskap, algjört aukaatriði - eins og aumleg málafylgja þeirra, hefir sýnt, að undan förnu, og keppikeflið helzt, að gera krötum og Kommúnistum, til hins mesta hæfis, í dauðyfla hættinum.

Með; hinum beztu kveðjum, sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 12:18

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Það er mjög skýrt í stefnu Borgarahreyfingarinnar að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera í þjóðareigu.

Heiða B. Heiðars, 22.5.2009 kl. 13:15

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er gott að heyra að Guðbjörn að við séum sammála í miklum megin efnum en hins vegar er ég á því að það sé út í hött að stýra fiskveiðum á öllum fiskveiðum eins og um eitt mengi sé að ræða.

Óskar, maður sér að Egill Helgason fjölmiðlamaður númer eitt heldur mikið upp á þjóðarflokkinn og lætur að því liggja að aðrir séu hálfgerð hænsn í umræðu um sætaskipan í fastanefndum þingsins.  Ég kannast nú ekki við að það hafi verið mikil festa í sætaskipan nema hvað það varðar að formaður sat í forsæti og varaformaður til hliðar við formann.  Ég hef um langt skeið verið fylgjandi því að allir nefndarfundum væri sjónvarpað á netinu en það yrði til þess að fundir yrðu formfastari og að þingmenn hyrfu ekki margir hverjir í prófkjörsvertíðinni.

Heiða, ef að stefnan er skýr þá ætti að vera hægur leikur að tala fyrir henni - ekki satt?

Sigurjón Þórðarson, 22.5.2009 kl. 13:25

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Viðar ertu hættur í Frjálslynda flokknum?

Sigurjón Þórðarson, 22.5.2009 kl. 14:03

6 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Viðar Helgi ! Hvaða andskotans gjálfur er þetta; í þér, drengur ?

Sjálfur; hefir þú lokað, á helvítis athugasemda kerfi þitt - en þenur þig svo, í öðrum plássum.

Fæ ekki séð; að einhverju máli skipti, þókt svo Guðjón Arnar sæti, allt til sinnar elli, í formanns stólnum, gott fólk. Reyni þá bara aðrir, að gera eitthvað betur en hann - hafi þá nokkur þor til.

Með fullri virðingu; fyrir ykkur; sumum langskóla genginna, hygg ég, að Guðjón hafi meiri lífsreynslu á byggja -  eftir sjóvolk sitt, sem streð margvíslegt; árin um kring.

Hver; er annars tilbúinn, að skipta við kauða, í FF, í fyllstu alvöru þessarra mála, almennt ?

Með; hinum beztu kveðjum - sem þeim fyrri, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 14:57

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ha?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.5.2009 kl. 16:01

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er mikill munur á þjóðareign og ríkiseign.Þjóðfáninn er til að mynda ekki eign ríkisins þótt hann sé sem tákn eign íslensku þjóðarinnar, og ríkið getur þar af leiðandi ekki fénýtt sér fánann.Sama er með þjóðsönginn.Þjógarðurinn á þingvöllum er hinsvegar eign íslenska ríkisins og getur þess vegna fénýtt sér hann,svo framarlega sem það stangast ekki á við lög.Íslenska ríkið hefur aldrei átt veiðirétt einhliða á Íslandsmiðum og ekki kóngur Íslands þar áður.Íslenska ríkið getur því ekki fénýtt sér Íslandsmið nema taka veiðiréttinn af þeim sem hafa haft hann frá alda öðli, það eru þeir aðilar sem eiga skip.Það heitir einhliða þjóðnýting atvinnurekstrar og ríkisvæðing og boðar ekkert annað an lækkað kaup hjá öllum landslýð og eyðingu landsbyggðar.Hinn nýi Tími Mugabes norðursins er kominn.

Sigurgeir Jónsson, 22.5.2009 kl. 21:16

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Þau verða auðvitað undir smásjánni Borgarahreyfingin sem fékk fjóra þingmenn út á fá og heldur rýr málefni. Fróðlegt að lesa um langhundageð Viðars en það er eflaust pláss fyrir hann í Vinstri grænum fyrst hann treystir sér ekki að styðja Borgarahreyfinguna samkvæmt bloggfærslu hér að ofan . Það er nú þannig að oft er það siður lítilla bóga að andskotast út í stjórnir og þá einmitt með þessum upphrópunum , lýðræðismisfærslum, svikum, getuleysi os. frv. Reyndar hefur Viðar gefið kost á sér í stjórn og það var heldur dapurt að hann skyldi ekki ná kjöri en það skyldi þó aldrei vera að hann, með sinni framkomu fyrir kosningar, beri einhverja ábyrgð á hruni flokksins og ekki hefur hann svarað því hvort hann hafi yfirhöfuð kosið Frjálslynda síðast. Sigurgeir, er einhver að tala um ríkisútgerð ? Er það með því að taka fyrirtækin upp í skuldir við ríkisbankana? Auðvitað er munur á þjóðareign og þjóðnýtingu. Það er eflaust öllum ljóst. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 23.5.2009 kl. 23:48

10 identicon

Mér heyrist Borgarahreyfingin vera að tapa fluginu. Viðar var ákaflega ósáttur við að fá ekki að leiða lista í öðru hvoru R-kjördæminu. Hann sem hrópar svo hátt um lýðræði sætti sig ekki við að verða undir á félagsfundi í lýðræðislegri kosningu. Þessi blessaði Viðar sem setti inn í lög félags Ungra frjálslyndra að HANN ætti að velja þá sem sitja í stjórn en ekki aðalfundur. Það er rétt hjá ykkur Sigurjón og Kolbrún, þetta er sami Viðar sem titlar sig formann Ungra frjálslyndra en kaus Vinstri- græn. Hann er náttúrulega illa haldinn af sama "sindrúmi" og hrellir Jón Magnússon flokka flakkara og Heilaga Ásgerði Jónu. Og gott ef hann er ekki líka illa haldinn af sama einræðis heilkenninu sem hrellir Eirík Stefánsson þ.e. Idi Amin heilkenninu. Ég er á þeirri skoðun að Viðar hafi fyrirgert öllu trausti félaga sinna í Frjálslynda flokknum ef hann er þá ennþá í flokknum...e.t.v. var það hann og Eiríkur sem hleyptu upp fundinum í Borgarahreyfingunni. Kæmi mér ekki á óvart!

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 21:17

11 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Við benda Helga Helgasyni á það að hlýða á viðtal mitt  í Tebollanum á Lýðvarpinu, við Eirík Stefánsson sem er í Samfylkingunni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.5.2009 kl. 01:13

12 identicon

Nei, Guðrún María, mér dettur það ekki í hug.

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 22:01

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þér færi nú ágætlega Helgi að fara að líta í eigin barm, áður en þú kastar fleiri steinum úr glerhúsi, í fólk sem farið er úr flokk þessum, og varla getur talist meðferðis í einhvers konar erjum sem greinilega enn eru til staðar, þrátt fyrir hinn góða anda, allra handa.

kv.Guðrún Maria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.5.2009 kl. 00:27

14 identicon

Þú ert greinilega alveg gengin til handar einni konu í einum flokk! Er ekki rétt að minna þig á hvernig einn flokkur blekkti eitt fólk í framboð fyrir sig? Maður að nafni Garðar Björgvinsson, sem ég higg að þú kannist við, blekti fólk til þess að skrifa undir meðmælandalista fyrir einn flokk er kallast Lýðræðishreyfingin. En þegar til kom þá var eitt fólk að játast því að fara í farmboð fyrir þann eina sama flokk. Þér fer sjálfri að líta í eigin barm ágæta Guðrún María.

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 19:00

15 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sverrir Hermannsson hvað?  

Megi hvítasunnuhátíðin gera ykkur gott ágæta fólk.

kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 28.5.2009 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband