Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórnin spáir illa fyrir heiminum

Þegar ég las stjórnarsáttmálann varð mér óneitanlega hugsað til palladóma Steingríms J. Sigfússonar um stjórnarsáttmála ríkisstjórna sem hann hefur ekki átt aðild að. Hann leggur fram eina óskýrustu stjórnarstefnu sem sett hefur verið saman, hún hefst á spádómi þar sem ríkisstjórnin segir að miklar efnahagsþrengingar verði um allan heim og að efnahagsástand kunni að versna áður en það fari að batna aftur!

Plaggið ber með sér að vera samantekt á mjög óljósri loðmullu um margvísleg mál, s.s. merkingu matvæla, kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi og svokallaðan landslagssáttmála Evrópu, og vægast sagt óskýrri sýn á hver næstu skref eiga að vera út úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Mikið traust er sett á peningastefnunefnd Seðlabankans sem nýbúið er að finna upp en ríkisstjórnin leggur allt sitt traust á hana í að móta stefnu í hinum og þessum málum.

Örfá atriði eru kristaltær í stjórnarsáttmálanum. Eitt er að halda eigi áfram að beita aflareglunni við ákvörðun heildarafla í fiskveiðum þrátt fyrir að reglan byggist ekki á neinni líffræði og hafi hvergi í heiminum skilað árangri. Annað atriði er að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar ætlar að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er kannski ljósi punkturinn sem veldur ánægju Gylfa Arnbjörnssonar.

Það er ekki hægt að vænta mikils árangurs eða langlífis af stjórn sem hefur næsta litla hugmynd um þá vegferð sem hún er farin í.


mbl.is Trúverðugt plagg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband