Leita í fréttum mbl.is

Hvað lét Jóhanna Steingrím J. gera í dag?

Nú er fyrsti vinnudagur nýrrar ríkisstjórnar hálfnaður, klukkan rúmlega fjögur. Ástæða þess að fyrri ríkisstjórn sprakk var að sögn Samfylkingarinnar getuleysi Geirs Haarde, hin svokallaða verkstjórn. Jóhanna ætlar að bæta úr því og setja mönnum fyrir og hlýða mönnum yfir hvað þeir hafa gert frá morgni til kvölds. Einhvern veginn finnst mér þetta nokkuð sérstök stjórnunaraðferð en þannig er það nú bara.

Ég rakst á viðtal við Kolbrúnu Halldórsdóttur þar sem hún segir að hún ætli að leyfa bruggið. Það er spurning hvort fyrsti dagur nýrrar ríkisstjórnar verði virkilegur gleðidagur fyrir bruggara landsins. Það er ekki yfir svo mörgu að gleðjast með þessa ríkisstjórn sem vill banna hvalveiðar og hefur gefið í skyn að halda eigi áfram að svívirða mannréttindi sjómanna.


mbl.is Stefnuræða forsætisráðherra í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurjón,

 ég tek hvorki afstöðu með eða á móti hvalveið almennt, en eitt er víst að ráðast í þær núna, þegar við erum háð samskiptum við önnur lönd sem öll fordæma hvalveiðar væri mjög svo óhjálplegt. Atvinnuskapandi segja menn, en að sama skapi þá myndi það kippa stoðum undan annarri atvinnugrein, ferðamannaiðnaði. 

Ég vona nú að Frjálslyndir hugsi um heildarmyndina, að ráðast gegn spillingunni og efla lýðræðið, og láti ekki hvalveiðabitling Einars skipa Frjálslyndum í lið með Sjálfstæðisflokknum, sem var ástæða þess að Einar gerði það sem hann gerði.

 Frekar ættu Frjálslyndir að styðja nýja ríkisstjórn í að berjast fyrir réttlæti og jöfnuði, sem tekur auðvitað til kvótakerfissins, sem þarf að gjörbylta, til að tryggja jafnan aðgang allra landsmanna að auðlindum landsins. Og alls ekki að niðurfella skuldir kvótakónganna!

kv

jón

Jón (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 16:29

2 Smámynd: Heidi Strand

Þeir eru ekki öfundsverðir að þrífa upp skítinn eftir nýfrjálshyggjunni. Ég er viss um að þeir reyna að gera sitt besta fyrir fólkið í landinu.


Heidi Strand, 2.2.2009 kl. 16:40

3 identicon

Hvernig væri ef frjálslyndir myndu leggja fram að nær væri að afturkalla/skila 30.000 tonna gjafakvóta íhaldsmanna(XD) aftur til ríkisins/fólksins, þá fyrst værir þú og þínir menn að sína trúverðuleika í pólitík. En þið þykist vera voðalega uppteknir af hvölum :( Og ég sem helt að orðið afnám kvóta og kvótabrask væri í annari hverri setningu í stefnuskrá Frjálslyndra.

Vilhjálmur C Bjarnason (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 18:16

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Eina vitið nú er að auka veiðheimildir stórlega og tvöfalda þorskaflann.

Mér virðist vera sem að margir þeir sem eru í ríkisstjórninni séu ekki farnir að átta sig á þeim svakalegu tölum sem blasa við þjóðarbúinu.

Sigurjón Þórðarson, 2.2.2009 kl. 19:25

5 Smámynd: Vilhjálmur C Bjarnason

það var enginn að mæla á móti því, 30.000 tonna kvótinn á að dreyfast á landsbyggðina, en hvernig væri að ná í hann fyrst af íhaldsklíkunni, leggið ykkur í það.

Vilhjálmur C Bjarnason, 2.2.2009 kl. 20:37

6 identicon

Sammála Vilhjámi Bjarnasyni. Sigurjón,Hver andskotin er að hrjá ykkur frjálslinda,auka kvótan til ,tlhvers andskotans,,ég spyr, eru einhverjir umbjóðendur ykkar frjálslindra orðnir blankir og þurfa meira til að braska með og veðsetja,og hættið svo þessu mannréttinda brota kjaftæði,það skilur eingin hvað þið eruð að fara.Aflaheimildir til ríkisins,strax þar sem útgerðir geta ekki staðið í skilum,fyritæk sem standa í skilum,missa 5% á ari,en geta leigt af ríkinu eins og aðrir Ísleningar og allar viðbætur,fara í útleigu frá ríkinu

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 21:36

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Júlíus og Vilhjálmur, núna er það ekki íhaldsklíkan sem heldur kvótanum heldur er það VG. Ef Steingrímur vill breyta kerfinu þá hefur hann það í hendi sér en hann getur einfaldlega gefið út reglugerð.Harðasti andstæðingur þess að auka veiðiheimildir og dreifa þeim um byggðirnar er núna VG.   

Sigurjón Þórðarson, 2.2.2009 kl. 22:58

8 Smámynd: Þór Jóhannesson

Guði sé lof að Frjálslyndir séu að þurrkast út fyrst þetta er hugmyndafræðin.

Þór Jóhannesson, 3.2.2009 kl. 00:21

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Fann eftirfarandi inn á vef VG - stefna þeirra í sjávarútvegsmálum

Birgitta Jónsdóttir, 3.2.2009 kl. 09:22

10 Smámynd: Þór Jóhannesson

Ef þú kannt ekki að lesa Ágúst Valves - þá ætla ég ekki að mata þetta ofan í þig.

Þór Jóhannesson, 3.2.2009 kl. 09:35

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Birgitta - stefna VG birtist landsmönnum núna í áframhaldandi mannréttindabrotum en Steingrímur J greiddi sjálfur atkvæði með framsali veiðiheimilda á sínum tíma.

Það hlýtur að vera ömurlegt fyrir velmeinandi liðsmenn VG að horfa upp á leiðtoga flokksins ætlað að halda óréttlætinu og mannréttindabrotunum áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Sigurjón Þórðarson, 3.2.2009 kl. 12:55

12 identicon

það er nú hálf hlægilegt að lesa hvernig þú vilt gera hlutina, eg held að það sem er mest aðkallandi akkúrat núna er að redda fólki og fyrirtækjum landsins, enn ekki eiða innan við 80 dögum í einkvert kvótaþras, við höfum allt annað við tíman að gera. Steingrímur vill breyta kerfinu, en hann þarf þá heilt kjörtímabil til þess og það hlítur þú að skilja.

Vilhjálmur C Bjarnason (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 18:41

13 identicon

Það er greinilegt að Vilhjálmur er úti að aka hvað varðar það að vernda

fiskimiðin okkar fyrir bröskurum.Fiskimiðinn eru okkar helsta lífsbjörg

ekki síst nú á timum og ef að tekið yrði á   þessu svokölluðu kvötabraskkerfi yrði það eitt mesta jafnréttismál  nú á dögum.Við lifum ekki á því að selja hvorum öðrum pylsur.

Björn Birgisson (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband