Leita í fréttum mbl.is

Bjálfagangur Sjálfstæðisflokksins

Það hefur komið fram að Sjálfstæðisflokkurinn beitir skattahækkunum og -lækkunum þvert á það sem allir hagfræðingar eru sammála um að sé skynsamlegt. Í þenslu lækkaði Sjálfstæðisflokkurinn skatta þvert á ráðleggingar og í samdrættinum hækkar hann skatta.

Nú er það líka staðfest að ráðherra sjávarútvegsmála vill ekki leyfa auknar veiðar á síld þó að síldin sé sýkt og illa haldin. Síldar sem er illa haldin af sýkingu bíður vart annað en dauðinn þar sem hún mun ekki auka kyn sitt. Það þarf að veiða hana, bræða og nýta í dýrafóður því að hún smitar ekki. Ég hef orðið var við að fólk haldi það ranglega. Í hafinu er hins vegar nákvæmlega ekkert gagn að henni - nema þá fyrir sýkilinn sem lifir góðu lífi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ár & síð

Enn einu sinni sannast gamla fullyrðingin að 1/10 hluta vandans vegna kreppu megi rekja til kreppunnar sjálfrar, 9/10 megi rekja til rangra viðbragða stjórnvalda.
Matthías

Ár & síð, 13.12.2008 kl. 23:32

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það virðist ekki vera heil ´brú í því sem þessir menn gera.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.12.2008 kl. 23:39

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Er ekki kúturinn í 'Zkaffózkíri' að vakna frá vælinu & farinn að verða pólitíkuz aftur ?  Það hefur dáldið vantað á þig bringuhárin undanfarið.

Gemmér von, þú færð pönnzur í staðin...

Steingrímur Helgason, 14.12.2008 kl. 01:02

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nú sem aldrei fyrr þarf að moka síldinni upp. Ekki síst inn á Breiðafirði þar sem hún kemur til með drepast í hundraða þúsunda tonna tali. Hugsaðu þér þykkt lag af rotnandi síld þar á botninum. Það er skelfilegt fyrir lífríkið í Breiðafirði.

Haraldur Bjarnason, 14.12.2008 kl. 06:21

5 identicon

Það á auðvitað að veiða alla síldina annað er ekki hægt að gera.

Árni Björn Guðjónsson (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband