Leita í fréttum mbl.is

Ekki kjósa ráðgjöf norska hernaðarsérfræðingsins

Það var ekki neinum að kenna, þetta með bankahrunið, það var bara óheppni að þeir hrundu allir meðan Geir var á vaktinni. Bara rakið ólán.

Geir finnst óráð að verk hans verði sett í dóm kjósenda. Ætli það séu ekki ráð frá norska hernaðarsérfræðingnum sem ræður ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks heilt núna? Dagskipunin er: Rannsakið ekki neitt, gefið öllum klúðrurum, hvort sem eru í bönkunum, Fjármálaeftirlitinu eða ríkisstjórninni, tækifæri til að gera betur. Betur?

Ekki reikna ég með að landsmenn taki skilaboðum Geirs fagnandi. Fólk er einfaldlega nóg boðið. Það er stórfurðulegt að maðurinn komi ekki auga á það sem er nú farið að byrgja honum sýn.

Einn útgerðarmaður fær 25 milljarða út úr bönkunum, upplýsingafulltrúi Glitnis neitar að svara og sá vann til skamms tíma hjá Fjármálaeftirlitinu. Þetta er ein saga af mörgum, sumar eru sennilega hviksögur en sönnu sögurnar sem ganga staflaust um samfélagið eru margar og fólki er nóg boðið, fólki sem fær reikninginn í hausinn  í eigin haus, barna sinna og barnabarna.


mbl.is Ekki stefna aðgerðunum í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Það er ótrúlegt hvernig ríkistjórnin vinnur og mun enda með ósköpum.

Ef þetta rugl verður mikið lengur þá munum við hætta á Borgarstyrjöld það er bara spurning hvenær ef þetta heldur áfram.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 20.11.2008 kl. 22:41

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég óttast kannski síður átök en það er mikil hætta að mínu viti að fólk gefist upp á þessari þvælu og fari - láti ekki bjóða sér þetta lengur.

Sigurjón Þórðarson, 20.11.2008 kl. 22:44

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Rannsókn snýst ekki bara um að finna sökudólga. Hún á að vera tæki til að koma í veg fyrir að vondir hlutir endurtaki sig ekki (það er til dæmis eini tilgangur rannsóknarnefndar sjóslysa og má ekki nota gögn frá þeim fyrir rétti) Síðan en ekki síst er hún best falli til þess að hreinsa mannorð þeirra sem ekkert hafa til saka unnið. Það er ekki veigaminnsti þátturinn.

Víðir Benediktsson, 20.11.2008 kl. 23:01

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er alveg hárrétt Víðir.

Ég er í og með farinn að vorkenna mjög fréttamönnum sem hafa atvinnu af því að fá ráðamenn í viðtal en firring þeirra sem bera ábyrgð er þvílík að það er mikil hætta á að verða meðvirkur í bullinu.

Í gær benti Björn Bjarnason fréttamanni á að hann væri jafnvel í betri aðstöðu en stjórnvöld að finna út úr því hvað vakti fyrir Bretum þegar þeir beittu hryðjuverkalögum gegn Landsbankanum.

Sigurjón Þórðarson, 20.11.2008 kl. 23:14

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Já svo er það Samfylkingartískan, þar tala jafnan að minnsta kosti tveir Samfylkingarþingmenn gegn stofnunum ríkisstjórnarinnar hvern dag sem líður, og Geir kemur af fjöllum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.11.2008 kl. 01:51

6 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Það mætti líka spyrja þá aðeins út í Bilderberg og hvers vegna t.d Davíð var boðaður á fund fyrir fjórum árum, skilst að Jón Sigurðsson hafi farið á einn ef ekki tvo á sínum tíma og hreppt feitt stjórasæti í Norska Fjárfestingabankanum í framhaldinu. Tímasetningar heimsókna eru áhugaverðar í ljósi þróunar síðustu ára fram að hruni. Ég vil sjá vel framan í Davíð Oddson ef einhver fréttamaður hefur dug til að spyrja hann ákveðið um heimsóknir sína á þessa fundi.

Máttlítil varnaðarorð sem hann státar sig af voru grunsamlega bitlaus en firra hann grunsemdum í augum sumra. Ég er ekki sannfærður og held að Davíð sé ekki allur þar sem hann er séður, kannski telur hann sig vera að gera góða hluti sem muni firra okkur ennþá ógnvænlegri framtíð ef leikurinn er ekki spilaður eins og heimselítann vill, vorum við kannski aldrei raunverulega frjáls þó að okkur væri leyft að hleypa á skeið í nokkra áratugi, þeir sem toga í strengina hugsa ekki í árum og þeirra markmið eru langtíma. Held því miður að gildran sé að lokast, spurningin er hvort að við viljum leyfa sama fólkinu og kom okkur inní hana, sveik okkur og/eða brást, sitji sem fastast og vilji "hafa vit" fyrir okkur áfram.

Er fólk sem sá þetta allt fyrir ekki betri kostur en þeir sem neituðu að nokkuð væri að fram á síðustu stundu að ekkert alvarlegt bjátaði á ?  Er fólk sem sá hættumerkin strax 2004 og reyndu að ýta við fólki og vara það við um ósköpin sem stefndi í ekki trúverðugri og heppilegri fulltrúar almennings en þeir sem ýmist sáu ekkert fyrir þó nokkuð augljóst væri hverjum sem setti sig aðeins inní málin og skoðaði kúrfurnar bæði hér heima og erlendis? Það á ekki að vera hægt að stjórna jafn fáráðslega og raunin hefur reynst, var mönnum ekki sjálfrátt hlýtur maður að spyrja sig!

Áhugavert bréfið sem Egill Helgason birti 19 Nóvember, en það er upprifjun á viðtali sem Egill tók við Andrés Magnússon lækni í Febrúar 2008.

Georg P Sveinbjörnsson, 21.11.2008 kl. 04:11

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú gleymir sýnist mér að Norski hernaðarsérfræðingurinn var starfsmaður Glitnis og gekk beint úr bankanum í þetta ábyrgðarstarf fyrir ríkisstjórnina. Skyldi það skýra eitthvað? Engin kviksaga það.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.11.2008 kl. 11:17

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

yfirsást linkurinn.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.11.2008 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband