Leita í fréttum mbl.is

Verður skipaður sérstakur dómstóll?

Það má vel skilja reiði fólks þótt mér finnist eggjakastið setja mótmælin aðeins niður. Viðbrögð ráðamanna eru með ólíkindum, nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að skipa sérstakan saksóknara til að ákæra í málum sem beinast að stjórnvöldum. Með þessu eru stjórnvöld að grípa með beinum hætti inn í ákæruvald þjóðfélagsins þegar böndin berast að ráðamönnum.

Hvað verður næst?

Munu stjórnvöld skipa sérstakan dómstól til að dæma í sínum málum, sínu klúðri?

Tíðindi dagsins hljóta að vera ummæli varaformanns Samfylkingarinnar á borgarafundinum í dag þar sem hann talaði um verðtrygginguna eins og eitthvert náttúrulögmál sem ekki væri hægt að fara gegn. Hann fullyrti að það væri ekki hægt að afnema verðtrygginguna nema ganga í ESB vegna þess að þá gyldu sparifjáreigendur fyrir það!

Það er engu líkara en að Samfylkingin geri sér ekki grein fyrir því að verðtryggingin hefur ýtt undir það ójafnvægi í efnahagsmálum sem nú brýtur á okkur þar sem bankarnir voru óhræddir við að slá erlend lán og lána svo aftur á hærri vöxtum hér sem þar að auki voru verðtryggðir og töldu sig þannig gulltryggða gegn verðbólgu og gengisbreytingum.

Auðvitað er ekkert náttúrulögmál að það verði sjálfvirk hækkun á lánum frekar en launum fólks. Það er stórundarlegt að forystumaður í jafnaðarmannaflokki skuli láta þetta út úr sér. Menn ættu kannski að hugsa það að það er heldur ekki gott að lán hækki svo mikið að lántakendur hætti að greiða skuldir sínar, skili bara lyklunum. Þá er þjóðfélagið fyrst komið í klemmu. 


mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Sigurjón minn !

Það; sem veldur eggjakasti fólksins, er sú gildra, sem frjálshyggju hyskið er, ásamt ''greininga'' deildum bankanna, búið að koma landsmönnum öllum í.

Þú hlýtur; að geta sett þig í spor þeirra, hver eru, að glata öllu sínu, sökum glæpsamlegs stjórnarfars hér.

Því; eru allir vísar, til þjóðfélgas byltingar, hér á Fróni, góðir vísar, Sigurjón minn. HVER EINN OG EINASTI !!!

Með beztu kveðjum, á slóðir Ásbirninga frænda minna, nyrðra /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 20:55

2 identicon

Ég er mest hissa á að ekki skuli vera kasatð fleiru og meira öflugu...

Að það skuli eingöngu vera eggjakast, finnst mér sýna merki um mikla stillingu.

Karl A (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 21:04

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

eggjakastið fékk meiri athygli í fjölmiðlum en sjálf mótmælin.. afhverju var þrumuræða einars más ekki sýnd ??  ástæðan er einföld, það á að gera lítið úr mótmælunum fram í rauðan dauðann og því einblínt og krakka með egg .. og segja að 500 manns mæti... 

Sigurjón þú ert partur af þessu sýstemi sem verið er að mótmæla svo þú ættir að fara varlega í orðum..  

Óskar Þorkelsson, 8.11.2008 kl. 21:23

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

það var þyngra en en tárum taki að hlusta á varaformanninn. Svo blind er trú hans á evruna að hann sér ekki skóginn fyrir trjánum. það tekur mörg ár að taka upp evru.

Hvað ætlar þessi vesalings varaformaður að gera þangað til. Með þessu áframhaldi verður sjálfhætt að fólk borgi sína reikninga, það einfaldlega getur það ekki.

En varaformaðurinn boðar bara skattahækkun. Líklega til að létta greiðslubyrði heimilanna eða hvað? Svo eru þessir menn steinhissa á mótmælum. Þó varaformaðurinn hefði fengið eitt fúlegg í andlitið hefði ég ekki grátið en hann hefði kannski vaknað.

Víðir Benediktsson, 8.11.2008 kl. 21:40

5 identicon

Komið þið sælir; á ný !

Karl A ! Þakka þér; skynsamlegar ályktanir !

Nafni ! Nei; Sigurjón mun, þegar hann tekur á honum stóra sínum, hreinsa ærlega til, í flokki þeirra. Hann þarf bara; að byrja á, að henda Jóni Magnússyni - Hönnu Birnu Jóhannsdóttur og Kolbrúnu Stefánsdóttur, út af spjallvinalista sínum. Góð byrjun; þar.

Víðir ! Þakka þér; sérstaklega, þínar ábendingar, sem einarðleg og fölskvalaus skrif, sem oftar, reyndar.

Svona;; Sigurjón ! Áfram, með smjörið, ágæti drengur !!!

Með beztu kveðjum, sem oftar /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 21:50

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Rosalegt bull er þetta Óskar Þorkelsson að fullyrða að ég sé partur af þessu systemi. 

Þó að ég segi sjálfur frá þá eru það ekki margir sem hafa setið á Alþingi á síðustu árum sem hafa rætt jafn opinskátt um bankarugl Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem Samfylkingin er búin að flækja sig illilega í.

Þjóðin er búin að brenna sig illilega á þessu dæmi sem lofsungin var af mörgum.

Sigurjón Þórðarson, 8.11.2008 kl. 22:44

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Sigurjón, þú ert fyrrverandi alþingismaður.. og sennilega væntanlegur líka og þar með ertu part av programmet ;)

Vertu þá rödd skynseminnar, þú ert góður í kvótanum en stundum missirðu þig þegar kemur að Samfylkingunni þegar þú átt í raun að beina spjótum þínum í rétta átt.. sem sagt að sjálftektarflokknum... sem er sem betur fer að hverfa.. 

Óskar Þorkelsson, 8.11.2008 kl. 22:49

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Mjög svo sannmála þér í þessu Sigurjón. Hin skefjlausa frálshyggja
og  hin öfgafulla alþjóðahyggja er hér AÐAL-sökudólgurinn. Svo vil
ég mótmæla harðlega Óskari Helga um að eitthvað geti réttlætt
árás á Alþingi vort!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.11.2008 kl. 01:17

9 identicon

Komið þið sælir; enn á ný !

Guðmundur Jónas ! Þar sem gildi þau; sem Úlfljótur og arftakar hans byggðu á, eru löngu fallin, fyrir róða, á þessi stofnun; Alþingi nútímans, engan tilverurétt.

Einungis; þægileg afgreiðslumaskína ólaga, gagnvart almenningi, en einkar handhægt verkfæri valdastéttarinnar, hverja við þurfum, að losna við, hið fyrsta, áður meira tjóni veldur, Guðmundur minn.

Með beztu kveðjum, sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 02:09

10 identicon

Loksins mótmæli þar sem þúsundir streyma um götur. Þetta líkar mér, fjöldinn eykst með hverjum laugardegi. Nokkrir sem köstuðu í mat í Alþingi og klifruðu upp á Alþingishúsið, það er bara eitthvað sem búast má við af hluta unga fólksins og athyglin má ekki fara öll á það. Ekki rmargir sem voru í þeim kima. Aðalatriðið er að í heildina fóru mótmælin vel fram. Og fjöldinn trúlega um 5 þúsund. Skyldi sú tala verða til þess að Davíð finni sig knúinn til að taka mark á þeim fjölda? Skyldi sú tala verða til þess að ríkisstjórnin skilji að almenningur þarf daglegar upplýsingar, það þarf að setja hann inn í málin og hann á að fá að fylgjast með. Í stað þess að stjórnvöld og forsætirráðherra eru lengst í burtu bak við skrifboð og dulkóðuð orð og setningar til þjóðarinnar sem enginn botnar í.

Nína S (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 02:38

11 Smámynd: Þórir Kjartansson

Ef þessi fáránlega verðtrygging lána hefði ekki verið við lýði, hefði fólk aldrei skuldsett sig eins og raunin varð. Þá  hefðu allir séð strax hvað kostaði að taka lánin og getað  gert áreiðanlegar fjárhagsáætlanir fram í tímann. Það eru nefninlega flestir tilbúnir að fresta vandanum og vona það besta.  Verðtryggingin er ein af ástæðum ástandsins í dag.

Þórir Kjartansson, 9.11.2008 kl. 07:29

12 identicon

Sæll Óskar Þorkellsson og allir hinir líka að sjálfsögðu.

Það að Frjálslyndi flokkurinn er svo mikið í nöp við Samfylkingunna er að hann vil komast í stjórn með Sjálfstæðisflokknum sama hvað það kostar. Guðni formaður Framsóknarflokksins hefur draum Frjálslynda í höndum sér að ég tel því hann yrði að fylgja með í pakkanum.

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 14:57

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er mikill misskilningur að liðsmönnum Frjálslynda flokksins sé í nöp við Samfylkinguna.  Málið er einfaldlega að Samfylkingin er komin í að verja sérhagsmuni og spillingaröflin.

Hvers vegna vill jafnaðarmannaflokkur viðhalda óréttlátu og gagnslausu kvótakerfi í sjávarútvegi og verðtryggingu sem hefur komið flestu í bál og brand í efnahagslífinu.

Sigurjón Þórðarson, 9.11.2008 kl. 18:37

14 Smámynd: Gunnar Þór Gunnarsson

Við þurfum nýja þjóðarsátt. Sú sem gerð var um afnám verðtryggingar á launum á sínum tíma er ekki lengur fær. Annað hvort þarf að verðtryggja launin aftur eða afnema líka af lánum. Það er ekki hægt að hafa bara annað hvort. Ég hef heyrt að lífeyrissjóðirnir hafi áhyggjur ef verðtrygging lána verði afnumin. Af hverju? Er það út af því að lífeyrir okkar rýrnar við það? Hvað hef ég að gera við lífeyrir ef ég lifi það ekki að fá hann vegna örbyrgðar?

Og svo hitt, með eggin, ég stórefast að þeir sem köstuði í Alþingishúsið hafi nokkurn áhuga á málefnum mótmælenda. Æsingafólk sem skilar engu nema leiðindum og taka athyglina frá málefnum sem skipta máli.

Gunnar Þór Gunnarsson, 10.11.2008 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband