Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórnin tefur eðlilega rannsókn á bankahruninu

Ef við berum þennan fréttamannafund saman við þá sem haldnir voru í byrjun október kom enn ekkert nýtt fram. Geir boðar samráð við stjórnarandstöðuna og að velt verði við hverjum steini í bankahruninu til að komast að því hvort eitthvað sé að. Gott ef menn töluðu ekki enn og aftur um að dæma engan fyrirfram.

Ég var rétt í þessu að ræða við Guðjón Arnar Kristjánsson og spurði hann út í samráðið. Hann sagði að samráðið við stjórnarandstöðuna væri á algjöru frumstigi.

Skrýtnir millileikir hafa verið leiknir, s.s. með ráðningu Valtýs Sigurðssonar og Boga Nilssonar, í stað þess að láta málið fara í eðlilegan farveg til lögreglunnar. Fram hefur komið í fréttum að lögbrot hafi verið framin, s.s. með afnámi ábyrgða stjórnenda bankanna og sömuleiðis hafa fréttir verið þess efnis að að hundruð milljarða millifærslur hafi orðið síðustu dagana fyrir hrun bankanna án mikilla skýringa og til staða þar sem erfitt er að grennslast fyrir um hverjir séu eigendur bankareikninga.

Æðstu stjórnendur hafa ekki verið boðaðir til yfirheyrslna eins og eðlilegt væri, miklu frekar hafa þeir sést í spjall- og fréttaþáttum þar sem þeir bera af sér sakir og bjóðast til að vinna á lyfturum. Þess á milli berast fréttir af þeim að reiða milljarða upp úr veskinu til kaupa á fjölmiðlum landsins. Í fyrramálið geta landsmenn fylgst með fréttahauknum Birni Inga Hrafnssyni þegar hann tekur fyrrum stjórnarþingmann Kaupþings á beinið í Markaðnum sínum.

Björn Ingi var sem kunnugt er  innsti koppur í REI-málinu og áður aðstoðarmaður fyrrum forsætisráðherra sem ráðstafaði Búnaðarbankanum til S-hópsins sem réði Sigurð Einarsson.

Þess ber að gera að þeir sem fengu að kaupa Búnaðarbankann, forvera Kaupþings, áttu ekki fyrir kaupunum nema fá lán í Landsbankanum (og hvað áttu þeir þá) og kaupin voru á þeim forsendum að þeir hefðu í farteskinu sérstakan kjölfestufjárfesti, þýskan bankan sem gufaði upp nokkrum mánuðum eftir kaupin.


mbl.is Enginn undanþegin rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Ég heyrði það í dag á mínum vinnustað að það væri búið að leita eftir aðstoð 15 norræna efnahags afbrotasérfræðinga í þetta mál.

Rannveig H, 7.11.2008 kl. 18:16

2 identicon

Þessir fréttamannafundir á föstudögum hafa það hlutverk að minnka þátttöku á mótmælum.

Þegar fólk kvartaði undan því að fá engar IMF-fréttir, ólgan kraumaði og fólk hvatt til að mótmæla á laugardegi var boðað til fundar - á föstudegi.

Undanfarna daga er kvartað undan skorti á upplýsingum og aftur er boðað til fundar - á föstudegi. Gefa lýðnum smá mola svo menn verði ekki eins reiðir í smá stund og mæti síður í mótmæli.

Gestur H (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 18:23

3 Smámynd: Dunni

Þar sem ég sit úti í Noregi hefi ég ekki fundið verulega fyrir kreppunni á sjálfum mér.  En ég veit hvernig hún kemur við fjölskylduna mína heima og höggið var þungt fyrir suma.  Ég veit líka hve hrikalega hrun efnahagskerfisins kemur við íslenska eftirlaunaþega og öryrkja sem búa í Noregi og Danmörku.  Högg þeirra er verulegt og endar ná engan vegin saman hjá því fólki.

Mér finnst þú vera mildur í máli, Sigurjón, þegar þú segir að ríkistjórnin tefji eðlilega rannsókn á klúðrinu.  Séð frá Noregi virðist sem ríkistjórnin reyni hreinlega að koma í veg fyrir að nokkur rannsókn fari fram.  Geir þorir ekki að láta ransaka Seðlabankann,  það hvarflar ekki að Björgvini að láta rannsaka fjármálaeftirlitið of fíflagangurinn í Birni Bjarnasyni er hreynlega ótrúlegur.  Íslendingar búa ekki við samskonar lýðræði og aðrar Norðurlandaþjóðir.  Hérna væri búið að hreinsa til fyrir löngu. 

Geir hefur orðið uppvís að því að skrökva að þjóðinni, a.m.k. tvisavar sinnum á síðustu vikum, IMF og umræðan um Davíð í ríksisjtjórninni.  Í Noregi er búið að reka 2 ráðherra á kjörtímabilinu fyrir að ljúga að þjóðinni.

Ríkistjórnin tefur ekki fyrir rannsókninni.  Hún reynir að koma í veg fyrir hana.

Dunni, 7.11.2008 kl. 19:01

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta eru þjóðarníðingar

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.11.2008 kl. 19:12

5 identicon

Dunni. Þetta er nákvæmlega það sama sem ég hugsa hér í Danmörku. Ríkisstjórnin er að reyna slá ryki í augu fólks. Belgar eru duglegri að sýna vanþóknun sýna. (sbr. frétt "Sameinast geg Kaupþingi"). Hvar er nú víkingablóðið íslendingar, ætlum við virkilega að láta ganga yfir okkur á skítugum skónum endalaust?

Thor Svensson (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 20:15

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

Dunni segir allt sem segja þarf. Það er skrútin ferill að Björn Bjarnason ákveður að Valtýr Sigurðsson skuli athuga og gera rann sókn á því hvort þurfi á lögreglu að halda í þessum málum. Bæði BB og Valtýr eig syni sem eru á bólakafi í þessu klúðri. Ég bý í Svíþjóð og það er ömurlegt að sjá grúppu af fólki ræna landið og ekkert er gert. Þetta er bara hægt á Íslandi. Digurbarkaleg orð Geir Haarde hafa ekkert að segja. Hann segir í dag það sem hann heldur að þjóðin vilji heyra...íslendingar eru orðnir latir og finnst allt í lagi að Ríkisstjórnin pissi yfir almúgan og það eru engin viðbrögð...

Óskar Arnórsson, 7.11.2008 kl. 20:46

7 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ríkisstjórnin er of innvinkluð í málið!

Vilborg Traustadóttir, 8.11.2008 kl. 00:20

8 Smámynd: Skattborgari

Það að þeir vilji ekki hefja rannsókn þýðir bara eitt að mínu áliti og það er að þeir hafa eitthvað að fela sem má ekki koma upp á yfirborðið.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 8.11.2008 kl. 00:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband