Leita í fréttum mbl.is

Geir Haarde þarf að fara frá völdum

Geir Haarde hefur með athöfnum sínum og athafnaleysi komið þjóðinni í ótrúleg vandræði. Hann stjórnaði einkavæðingu bankanna þegar ekki var tekið hæsta tilboði í Landsbankann, heldur voru þeir aðilar sérvaldir sem eru nú búnir að koma bankanum í þrot. Geir hefur ekki heldur hirt um að setja starfsemi bankanna skynsamlegar skorður þannig að niðurstaðan er neyðaraðgerðir. Núna lýsir hann því yfir að hann sé ekki tilbúinn að skoða með opnum hug auknar veiðar á þorski þó að núverandi stefna reiknisfiskifræðinnar hafi engu skilað, ekki einungis hér á Íslandi heldur hvergi í heiminum.

Í Barentshafinu þar sem veitt er umfram þessa svokölluðu vísindaráðgjöf ganga veiðar sinn vanagang. Þessi gervivísindi sem notuð eru til að stjórna fiskveiðum stangast algerlega á við viðtekna vistfræði.


mbl.is Vísindin ráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Björn

Ég er sammála að gott yrði að auka kvótann til að auka framleiðni og tekjur, en það er sorglega heimskulegt af þér að segja að þetta þurfi að gerast strax.  Á nógu öðru er að taka og er ríkisstjórnin að standa sig mjög vel við það.  Þið Frjálslynd haldið að aukning þorskkvótans leysi öll vandamál, annað kemur ekki frá ykkur.

Það var einmitt einn sjómaður (sem er örugglega bara vitleysingur í þinum huga) að segja að það væri enginn þorskur í sjónum. Nú eru sjómenn meira að segja farnir að tala í kross.  Er nægur fiskur í sjónum eða ekki? Á bara að gefa skít í Hafró þótt það megi oft setja spurningarmerki við aðferðarfræði þeirra?

Guðmundur Björn, 7.10.2008 kl. 17:48

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Aukning þorskkvótans strax myndi um leið auka gjaldeyrisstreymið til landsins um tugi milljarða og myndi þar með hifa upp verðið á ísl. krónunni og lækka verð á erlendum varningi.

Ég er þeirrar skoðununar að það sé rétt að gera það strax en ekki á morgun.

Ég hef ekki heyrt í mörgum sjómönnum þessa dagana sem telja að lítið sé af þorski í sjónum við strendur.  Ég var hins vegar á sjávarútvegssýningunni fyrir nokkrum dögum og þá voru allir og þeir voru þó nokkrir sem ég ræddi við þeirrar skoðunar að nauðsynlegt væri að auka veiðar ekki síðar en strax.

 Ég vil orða það með þeim hætti að það eigi að gefa skít í Hafró heldur að líta til þess að kenningar þeirra á sl. árum hafa ekki gengið upp og hafa þær ekkert forspárgildi og þess vegna sé rétt að leggja þær til hliðar á meðan þjóðin þarf nauðsynlega á auknum gjaldeyri að halda.

Við höfum dæmi úr Barentshafinu og víðar þar sem sýnt hefur verið fram með veiðum að kenningar sem Hafró vinnur standa á brauðfótum.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 18:04

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Hvílík steypa Sigurjón að Geir þurfi að fara frá!

Það sem við þurfum er einmitt "stabíll" maður á borð við Geir núna og ekki skemmir að hafa Björgvin og Samfylkinguna, en báðir flokkar eru að standast þessa þolraun mjög vel.

Maður spyr sig hins vegar, hversvegna til þessa þurfti að koma? Hversvegna sváfu stjórnvöld svo á verðinum undanfarin ár og leyfðu bönkunum að veðsetja okkur á þennan hátt?

En úr því sem komið er, eru þau Geiri og Solla að spila vel úr þessu.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 7.10.2008 kl. 18:15

4 identicon

Hehe. Þessi færsla hjá þér er væntanlega mistök. Ef ekki, þá er heimskan hjá þér alveg fullkomnuð.

Bara til að hafa meira gaman, getur þú séð mun á Austfjarðarþorski og Vestfjarðarþorski?

Ef þú svarar rangt, er það ekki mér að kenna :) 

nicejerk (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 18:19

5 identicon

Kannski ertu bara náttúrulegur bjáni.  Ég set ekki spurningarmerki við þá spurningu.

Grow up, lilli.

nicejerk (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 18:33

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðbjörn, ég vil minna þig á að Geir kom málum í það far sem þjóðin situr í.  Hann sá um að koma ríkisbönkunum í hendur þeirra manna sem hafa hlaðið þá skuldum og spilað póker með þá.  Ekki voru settar reglur um að aðgreina viðskiptahluta og fjárfestingahluta og ekki voru heldur settar reglur eða kvaðir á bankana um að hrein skuldastaða þeirra í útlöndum fari ekki yfir ákveðin mörk.  Geir var margsinnis varaður við bæði af Frjálslynda flokknum VG og dönskum bönkum.  Síðan það fór að þrengja að lánsfé á erlendum mörkuðum er liðið heilt ár hefur hann verið í afneitun  allan þann tíma og helsta afrek hans hefur verið að fara í ferðalag með bankastjórunum sl. vor til útlanda þar sem boðskapurinn var að hlutirnir hér væru ákaflega traustir.

Verst af öllu fyrir stöðu mála nú er að Geir er ekki tilbúin til að skoða allar leiðir s.s. þá auðveldustu til  að afla gjaldeyris þ.e. að veiða meiri þorsk. 

Nicejerk, bara til að þú getir haft meira gaman þá er rétt að benda þér á að ef þú telur að það sé einhver útlitsmunur á þorski veiddum á Austfjörðum og þorski veiddum á Vestfjörðum þá ætti það að benda til þess að um aðskilda stofna sé um að ræða og þess vegna algerlega út í hött að stýra veiðum með einum þorskkvóta fyrir öll fiskimið landsins.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 18:49

7 Smámynd: Guðmundur Björn

Mér finnst það einkennilegt Sigurjón ef gjaldeyrisforðinn myndi aukast strax við þessar aðgerðir.  Nú er náinn vinur minn útgerðarstjóri á góðum stað á landsbyggðinni og við vorum einmitt að ræða þessi mál í gær.  Hann sagði að það taki um sex til 12 mánuði fyrir aukningu að hafa áhrif. Er þetta ekki dálítið vanhugsað?  Auðvitað hjálpar þetta ef fiskurinn finnst, það er ekki málið, en ríkisstjórnina má gagnrýna á ósanngjarnan hátt - en það er bara ekki rétt að gagnrýna hana og krefjast heimskulegrar afsagnar Geirs vegna þess að þorskkvótinn hefur ekki verið aukinn strax.  Ekki bíður þá betra, ef Addi Kiddi Gau, Bogga, Búkolla eða Jarpur taka við!! 

Guð forði okkur frá þeirr eymd og vitleysu.

Guðmundur Björn, 7.10.2008 kl. 19:32

8 Smámynd: Guðmundur Björn

NB! Það þarf auðvitað að veiða fiskinn fyrst er það ekki Sigurjón??

Guðmundur Björn, 7.10.2008 kl. 19:35

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ja ég er sannfærður um að hlutirnir skáni til muna ef að það verða umskipti í stjórnmálunum.

Ég held að við getum verið sammála um gjaldeyrisstaðan skáni ekki við að fara veiða seinna.  Annars verðum við að fara varlega í umræðu um gjaldeyrisforðan góða en bara við það að krónan falli mikið t.d. um 80% þá verður það til þess að gjaldeyrisforðin mældur í íslenskum krónum vex ógurlega en varaformaður Samfylkingarinnar var sigri hrósandi í einhverjum þætti um daginn þar sem að hann tilkynnti að forðinn hefði vaxið fimmfalt.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 20:12

10 identicon

Það eru ekki margir sem geta verið í skónum hans Geirs í dag

hann er búin að sýna og sanna að hann sé sannur leiðtogi, frábær maður.

Kristín (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 20:14

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Kristín, það er greinilegt að þú ert mjög ánægð með stöðu mála á Íslandi í dag og mér þætti virkilega áhugavert svo ekki sé meira sagt að þú greindir stuttlega frá því helsta.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 20:31

12 identicon

Það er að minnsta kosti eitt sem ég er ánægður með rétt í þessu augnabliki..... þú ræður nákvæmlega engu um framtíð mína, né minnar fjölskyldu frekar en hinna þegna þessa lands.

Eftir að hafa lesið færsluna þína og umræður hér að ofan, hef ég fyllst enn meiri trú á ráðamönnum þjóðarinnar og því sem að þeir eru að gera. Ég mun sofa rólegri í nótt.... Takk,Takk fyrir það.

Það verður ekki af ríkisstjórninni tekið að hún hefur unnið sem ein heild við að reyna að leysa vandann sem upp er kominn. Það að þú skulir hér fara fram á að Geir eða nokkur annar ráðherra skuli fara frá er til marks um hvað þú og þinn flokkur er uppbyggilegur í sínum málflutningi.

Ég held að þið ættuð að prísa ykkur sæl að það voruð ekki þið sem að voruð í sporum ríkistjórnarinnar, flokkur sem að getur varla tekið ákvörðun um hver á að hela á könnuna á flokksfundum.

takk fyrir að vera til og láta okkur hin líta betur út ! 

Jón Jóns (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 23:40

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jón Jóns, Þú mátt trúa því að mér finnst ákaflega gott ef ég hef getað átt þátt í góðum nætursveinn þínum en mér er enn hulin ráðgáta hvað það er í skrifum mínum sem hefur svo jákvæðar afleiðingar.

Sigurjón Þórðarson, 8.10.2008 kl. 08:49

14 identicon

Þú endunýjaðir trú mína um að við stjórnvölinn á Íslandi séu menn sem eru hæfastir þeirra sem á nokkrum tíma hafa boðið sig fram til þeirra starfa.

Ef þetta útskýrir ekki nægjanlega hvað ég á við þá get ég því miður ekki hjálpað þér frekar. Ég vona að vangaveltur þínar um málið valdi þér ekki svefnmissi, um leið og ég þakka enn og aftur næturblundinn... ég vaknaði hress og kátur í morgun.  

Jón Jóns (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband