Leita í fréttum mbl.is

Fallega gert hjá Norðmönnum

Fallega gert hjá Norðmönnum, sagði seðlabankastjórinn í Kastljósi kvöldsins um þessa fregn af tilboði forsætisráðherra Noregs. Það sem mér þótti markverðast í viðtalinu við Davíð er að ég virðist hafa átt kollgátuna um hver áætlun stjórnvalda er með neyðalögunum, þ.e. að ríkisstjórnin ætli að taka sem mest af hinum innlenda hluta lánakerfisins og láta erlendu aðilana sem hafa lánað bönkunum til útrásar sitja uppi með svarta-pétur, þ.e. skuldir sem verði að afskrifa.
mbl.is Norðmenn fylgjast grannt með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Það er alltaf verið að draga fleiri kanínur upp úr hattinum.

Heidi Strand, 7.10.2008 kl. 20:40

2 Smámynd: Steini Thorst

það er rétt, hann sagði það að eigið fé færi í að greiða erlendum kröfuhöfum.

Steini Thorst, 7.10.2008 kl. 20:40

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Í viðtalinu kom einnig fram að Davíð hefði varað ríkisstjórnina við en hún ekki hlustað.

Það sem mér fannst standa upp úr er hve Davíð á auðvelt með að skýra hluti og atburðarrás út fyrir þjóðinni á meðan varla nokkur maður skilur hvert Geir Haarde er að fara.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 20:45

4 identicon

Málið er að Geir er eins og ótalandi barn miðað við Davíð hvort sem okkur líkar betur eða verr!

haha (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 20:47

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

held margir geti verið sáttari við Davið eftir þennann þátt og vonandi einhverjir af þeim sem hafa deilt óþarflega hart á manninn, allavegana þá fannst mér hann skíra þessa atburðarrás nokkuð vel stjórnandi stundum óþarfa gráðugur stundum - Davíð kom með þessa gullnu áminningus em margir hefðu / ættu að fara eftir er að góðir hlutir gerast hægt

Jón Snæbjörnsson, 7.10.2008 kl. 20:53

6 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

En af hverju tóku þá stjórnendur bankanna ekkert mark á viðvörunum seðlabankastjóra?

Berglind Steinsdóttir, 7.10.2008 kl. 20:58

7 Smámynd: Skattborgari

Þetta var gott viðtal á mannamáli sem allmenningur skilur en ekki eins og hjá Geir sem mjög fáir skilja eitthvað í.

Við skulum vona að þetta fari betur en lítur út fyrir núna.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 7.10.2008 kl. 21:02

8 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sammála þér með muninn á Davíð og Geir en sá síðarnefndi talar eins og véfrétt um mál sem brenna á þjóðinni.

Er ekki eitthvað hræðilegt í aðsigi þegar menn koma ekki orðum að því?

Það er alla vega tilfinningin sem maður fær!

Davíð talar hreint út um málin og er stundum óbilgjarn en það er oft skárra en þögnin.

Að visu fannst mér Davíð ganga of langt í Kastljósi kvöldsins þegar hann talaði um að Glitnir yrði kannski ekki til á laugardaginn þegar ríkið á að reiða fram sinn hlut í honum!

M.ö.o. allir flykkjast í Glitni fram að helgi og slíta út það sem þeir eiga þar og -bang- ríkið fær bankann eins og Landsbankann.

Seðlabankastjóri má ekki gefa svona "veiðileyfi" á þær stofnanir sem heyra undir hann!

Vilborg Traustadóttir, 7.10.2008 kl. 21:29

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég er sammála Vilborg þetta var nokkuð glannalegt með Glitni ofl. svo sem en á móti kemur að það er búið að margtyggja að allar innistæður séu tryggðar.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 21:31

10 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Glitnir verður norskur í lok vikunnar ;)

Óskar Þorkelsson, 7.10.2008 kl. 21:32

11 Smámynd: Víðir Benediktsson

Viðtalið var sannarlega athyglisvert þó ekki sé meira sagt.

Víðir Benediktsson, 7.10.2008 kl. 21:57

12 identicon

Davíð komst frábærlega frá Kastljósinu í kvöld. Svaraði gagnrýni og jók skilning minn á málinu í heild til mikilla muna. Þessa hefur maður saknað frá öðrum ráðamönnum og þessa manns hef ég mikið saknað. Davíð er maður sem þarf að vera í eldlínunni meðan hann hefur heilsu til og maður sem þarf að dæla hugrekki í þessa þjóð. Ef þessi maður verður látinn fara úr Seðlabankanum eftir það sem á undan er gengið skal ég lofa því að ég kýs aldrei Sjálfstæðisflokkinn aftur. Davíð er leiðtogi sem þjóðin þarf á að halda í þessum ólgusjó og mér fannst það mjög mikið hugrekki að koma fram, skýra þjóðinni frá því sem hefur verið að gerast og taka af allan vafa um að einhver óheiðarleiki eða hefnd hafi ráðið för. Eitthvað sem ég reyndar hef alltaf vitað að væri samsæri og bull af hálfu þekktra manna í þjóðfélaginu. Davíð vildi aldrei þessa svakalegu blokkir þó svo frelsinu hafi verið komið á. Hann sagðist alveg getað tekið alla ábyrgð á þessu ef það væri það sem menn vildu en það væri samt ákaflega ósanngjarnt þó einhverjir hafi misnotað frelsið með þessum hætti. Vissulega væri margt sem mætti læra af þessu.

Ég er enn á því að frjálshyggjan sé það sem virkar fyrir þessa þjóð og við getum haldið aftur í þessa för með bankana á næstu árum. Næst verður bara farið með stóran og mikilvægan reynslubanka um það hvernig menn eiga ekki að haga sér og regluverkið verður mun ítarlegra og stærra í því samhengi. Tek það samt fram að Geir Hilmar Haarde hefur verið að standa sig með prýði síðustu tvo daga og ég vona svo sannarlega að hann haldi því áfram. Eitt af því er að halda Davíð í Seðlabankanum, þrátt fyrir skot úr áttum andstæðinga Davíðs um árabil. Það má og á ekki að hafa áhrif á okkur Sjálfstæðismenn. Við vitum öll hvað maðurinn hefur fram að færa og hvað hann hefur fært þessari þjóð.

Frelsisson (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 22:23

13 Smámynd: ragnar bergsson

Tja ég veit ekki það er rétt hann kom mjög vel frá þessu viðtali og ef hann hefur rétt fyrir sér þá gæti farið að rofa til eftir nokkrar vikur. Þá kemur í ljós hvort Davíð hefur rétt fyrir sér ef svo er mun álit mitt á honum gerbreytast til hinns betra.   Sjáum til.......

ragnar bergsson, 7.10.2008 kl. 23:01

14 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Davíð var í essinu sínu í kvöld og fékk nógu mikinn tíma til að tala og að sjá má er varð til þess að auka skilning margra á ástandinu, sem er af hinu góða.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.10.2008 kl. 23:29

15 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Af hverju sat Frjálslyndi flokkurinn hjá við atkvæðagreiðslu neyðarlaganna á ögurstundu? Er slíkur heigulsháttur vænlegur til atkvæða? Er ekki best að menn í þeim flokki sleppi því líka að tjá sig um aðgerðirnar, fyrst þeir eru svona ofboðslega hlutlausir?

Maður bara spyr.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.10.2008 kl. 23:34

16 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jón Steinar, málið snýst alveg örugglega ekki um heigulskap heldur gæti ég trúað án þess að ég þekki málið til hlýtar að málið hefur verið á forræði ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunni ekki hleypt að því fyrr en með stuttum fundi fyrr um daginn. 

Ég reikna með að með því að með því að sitja hjá hafi þingmenn viljað undirstrika að málið væri á ábyrgð ríkisstjórnar og að stjórnarandstöðunni ekki hleypt að málinu.  Allir þingmenn Alþingis lögðu sig fram um að málið næði fram sem fyrst og það fengi flýtimeðferð.

Sigurjón Þórðarson, 7.10.2008 kl. 23:41

17 Smámynd: Heidi Strand

Kannski verðum við öll norðmenn þegar upp er staðið.

Heidi Strand, 8.10.2008 kl. 11:57

18 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Nei ég á bágt með að trúa því Heidi að þetta sé búið - þetta er rétt að byrja.

Sigurjón Þórðarson, 8.10.2008 kl. 13:09

19 Smámynd: Heidi Strand

Það fer eftir hvað sem er rétt að byrja.

Heidi Strand, 8.10.2008 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband