Leita í fréttum mbl.is

Meira um REI og GGE - svar til Vilhjálms Þorsteinssonar

Ég var byrjaður að svara athugasemd frá Vilhjálmi Þorsteinssyni við pistli mínum um hjal sjónvarpsmannsins Evu Maríu við athafnamanninn Bjarna Ármanns í athugasemdakerfinu en ákvað síðan að gera svarið að sérstökum pistli:

 

Vilhjálmur Þorsteinsson ritar hér að ofan nokkrar línur þar sem hann setur fram lágmarkskröfur til mín sem eiga að felast í að ég eigi að reyna að kynna mér hlutina áður en ég læt vaða á súðum eins og hann orðar það. Nú skal ósagt látið hvort ég bjóði fram starfskrafta mína í stjórnmálum á ný þannig að þessar áhyggjur Vilhjálms gætu verið með öllu óþarfar.

Í sporum Skerfirðingsins Vilhjálms hefði ég miklu meiri áhyggjur af borgarstjóranum okkar sem virðist ekki hafa kynnt sér eitt eða neitt varðandi sameiningu REI og GGE og virðist koma af fjöllum þegar hann er spurður út í kaupréttarsamninga starfsmanna og verðmat fyrirtækisins. Hann er jafnvel illskiljanlegur á köflum þar sem hann virðist vita miklu minna um málið en þeir sem fylgjast endrum og eins með fréttum.

Varðandi athugasemdir Vilhjálms að öðru leyti:

1. Ég vil leyfa mér að kalla fyrstu athugasemdina orðhengilshátt þar sem það var vissulega gert ráð fyrir að viðkomandi starfsmenn, sumir nýráðnir, fengju að kaupa í fyrirtækinu á ákveðnu gengi þó að þeir hafi ekki verið framvirkir.

2. Það hefur komið fram að ekki liggur fyrir neitt óháð verðmat á REI, ekki annað en mat stjórnenda fyrirtækisins sem ákváðu sér síðan rétt til að kaupa hlut í fyrirtækinu á kjörum sem eru helmingi lægri en öðrum starfsmönnum áttu að bjóðast. Þeir sem voru neðar í goggunarröðinni áttu að fá að kaupa á genginu 2,77 og þeir sem ákváðu þessi skipti ákváðu helmingi betri sérkjör fyrir sjálfa sig.  Það er rétt að gæta að því að hér er um eigur hins opinbera að ræða sem stjórnendurnir Vilhjálmur og Björn Ingi eru að rétta út til valinkunnra fyrir mjög mismunandi háa endurgreiðslu.

2,77 eru ekki sérkjör fullyrðir Vilhjálmur en þau bjóðast samt sem áður ekki öðrum borgarbúum eða fjárfestum. Þeir sem ákváðu sjálfum sér til handa að greiða helmingi lægra verð hljóta þá að hafa verið að skammta sjálfum sér tombóluverð. 

Það sem er sömuleiðis alvarlegt í þessum skyndisamruna er að það fór ekki fram neitt óháð verðmat á GGE, a.m.k. hefur það ekki verið kynnt nokkrum manni.

3. Að réttlæta kaupréttinn með því að um lykilstarfsmenn væri að ræða er eins og hvert annað þvaður. Þarna er margur annar á skrá yfir kaupréttarhafa en þeir sem búa yfir verðmætri þekkingu.  Ég ætla að gera það að tillitssemi við viðkomandi að vera ekki að margtyggja þau nöfn sem hafa flækst inn á þennan lista, s.s. skemmtanastjórans o.fl.

4. Það að eitthvað hafi alltaf legið ljóst fyrir í þessu máli er mjög vafasöm fullyrðing en síðast í gærmorgun hlýddi ég á Hjörleif Kvaran forstjóra á Útvarpi Sögu þar sem það mátti skilja á honum að fyrirtækið REI hefði ekki átt að vera mjög umsvifamikið í upphafi en eftir að Bjarni Ármannsson hafi komið að fyrirtækinu hafi verkefnið undið upp á sig. Það mátt sömuleiðis skilja á honum að fleiri eignir hefðu farið inn í þetta púkk sem kallaðist REI.

5. Það hefur ekkert óháð verðmat farið fram, a.m.k. hefur það ekki verið kynnt hvorki á Geysir Green Energy eða REI eins og áður segir.

6. Það eiga að mati Vilhjálms að felast stórkostleg tækifæri í saminingu REI og GGE en það má svo sem vera að við Íslendingar búum yfir alveg einstakri þekkingu á sviði nýtingar jarðhita sem hvergi er til annars staðar í heiminum.  

Hvers vegna má þá þessi sameining ekki vera uppi á borðum og þokkalega undirbúin? Í stað þess er almenningi boðið upp baktjaldamakk, skyndisameiningu og stjórnendur sem bera ábyrgð á milljarðasamningum koma algerlega af fjöllum þegar þeir eru spurðir nánar út í samþykktir sínar. Hvað veldur?

Ein spurning til Vilhjálms Þorsteinssonar: Hvernig er það, ert þú tengdur í viðskiptum við OR eða GGE og áttu þá einhverra hagsmuna að gæta? Ég skil ekki að maður sem hefur látið til sín taka á sviði atvinnurekstrar vilji ekki stuðla að gagnsæjum viðskiptum, sérstaklega með eigur og gæði hins opinbera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hanna

Ég get nú ekki annað sagt en glæsilegt :)

Vilhjálmur Þorst. búinn að pissa í skóinn strax - vonandi sér hann sér fært að svara.

Hanna, 10.10.2007 kl. 11:32

2 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Þetta er líkast því sem "drengstaulinn" Vilhjálmur Þorsteinsson hafi verið settur á kné og rassskelltur opinberlega.  Ég spái því að gamli góði Villi tilkynni um starfslok sín á borgarstjórnarfundinum í dag.  Því miður er illa komið fyrir góðum dreng sem "hrifsarar" hafa haft að leiksoppi í þessu máli. 

Hann virðist hafa fallið í þann fúla pytt að ljúga til um þessa gjörð alla saman og aðkomu sína að henni.  Þetta er kallað "Árna Johnsens heilkennið"

Sveinn Ingi Lýðsson, 10.10.2007 kl. 12:14

3 identicon

Það er greinilegt að fólkið í þessu landi skiptist í tvo hópa, þá sem eru tilbúnir að samþykkja sölu, eða útsölu á orkuauðlindum þessa lands til einkaaðila og þá sem eru á móti slíkum gjörningum. Það er mín skoðun að meirihluti Íslendinga sé á móti sölu orkuauðlinda í eigu ríkis eða sveitarfélaga. Slíkar eignir er líka afar erfitt að verðleggja. Þær eru eins og kalda vatnið, lífsnauðsyn sem allir eru háðir og snertir grundvallarþarfir okkar allra. 

Nú lætur meirihluti Borgarstjórnar sem að málið megi leiða til farsælla lykta, með því einfaldlega að OR selji í snarhasti sinn hlut í samrunafyrirtækinu og tönglast á því að tíu milljarðar fáist fyrir þann hlut, sem sé lítið annað en þekkingarauður. Samrunasamningurinn þolir hinsvegar ekki dagsljósið og það liggur í augum uppi að GGE er að slægjast eftir hlut OR í Hitaveitu Suðurnesja,-  34 % í allt. Það er semsagt þekkingarauðurinn!! Þannig ná þeir meirhluta stöðu í HS og geta farið með það fyrirtæki eins og þá lýstir. Hlutir OR í HS eru þó ekki alveg í höfn, því önnur sveitarfélög geta neitt forkaupsréttar síns. Þar sem orkuauðlindir HS eru innan þeirra fjarlægðamarka að hægt er að virkja þær fyrir borgarbúa og nágrannasveitarfélög, er með áætlaðri sölu OR hlutans í þeim, verið að vega að langtímahagsmunum borgarbúa og annarra íbúa á svæðinu, því hvað eru skítnir tíu milljarðar fyrir þær?   

Það er af og frá að GGE sé aðallega útrásarfyrirtæki. Það hefur fyrst og fremst verið að kaupa hluti í HS og vill kaupa þar fleiri hluti. Almenningur þessa lands þarf að mynda öfluga hreyfingu og slá skjaldborg um náttúruauðlindir landsins, til að klækjóttir stjórnmálamenn, eins og Villi borgarstjóri, afhendi þær ekki á silfurþaki til verðbréfakapítalista. Frjálslyndi flokkurinn og VG eru einu trúverðugu flokkarnir sem geta verið í slíkri hreyfingu, ásamt ýmsum óflokkspólitískum öflum.

Guttormur Sigurdsson (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 20:58

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Vel skrifandi menn með skoðanir, bæði Sigurjón og Viðar.

Nútíminn er fremur skoðana- og husjónalaus enda eru svok. samræðustjórnmál heldur illa séð og þeirri innrætingu hefur verið komið inn í almennig af ákveðinni maskínu og henni heldur fasískri. Þessi maskína þolir ekki vel umræðu vegna brenglaðar og fjármagnsstýrðrar hugmyndafræði - rétt eins og samsvarandi ruglustrumpar fyrir þetta 70 árum - þeir vilja bara framkvæma og láta síðan leppstýrðan ruslpóst ljúga sig út úr afleiðingunum. Þetta er ekkert nýtt. Hjólið var ekki fundið upp í gær. 

Baldur Fjölnisson, 10.10.2007 kl. 22:41

5 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Ég þakka ítarleg viðbrögð Sigurjóns og þann heiður að fá heila bloggfærslu í andsvar við tilskrifelsi mínu.

Komnum á fimmtugsaldurinn og gránandi í vöngum finnst mér líka þakkarvert að vera kallaður "drengstauli", lít á það sem kompliment á unglegt útlit.  Kannski er það vatnið hér í Skerjafirðinum sem er svona hollt?

Ég á engra hagsmuna að gæta í þessu máli, af eða á, en hef 25  ára reynslu af viðskiptalífinu og rann til rifja það yfirgripsmikla þekkingarleysi á viðskiptum sem mér fannst ég sjá hér á blogginu, sem blindar mönnum sýn í málefnalegri umræðu.  Vissulega er þörf á málefnalegri umræðu um REI og ýmsar rangar ákvarðanir teknar í því máli undanfarið, bæði hvað varðar samskipti og varðandi hagsmunagæslu fyrir eigendur OR.  En það er um að gera að gagnrýna á réttum forsendum, ekki fara bara með gaspur og fleipur, eins og allt of oft markar málflutning Frjálslynda flokksins og hans talsmanna.  (Ekki þó Margrétar Sverrisdóttur í málefnum REI, ég held að ég sé að mestu leyti sammála henni.)

Vík ég þá að andsvörum Sigurjóns.

1. Mér finnst kaupréttarsamningar, um hugsanleg kaup í framtíð á fyrirframákveðnu gengi, þannig að ekki er hægt að tapa á viðskiptunum, allt annar hlutur en bein kaup á hlutafé sem greitt er út í hönd.   Lesendur verða bara að ákveða sjálfir hvort þeim finnst þetta markverður munur eða bara orðhengilsháttur.

2. Það þarf ekkert óháð verðmat á REI því verðmæti helstu eigna liggur fyrir; það hafa verið nýleg viðskipti með HS og Jarðboranir og svo er um að ræða reiðufé og mat á viðskiptavild OR upp á 10 milljarða.  Út frá þessu má setja verðmiða með nokkurri nákvæmni á bæði framlag OR og GGE til REI og mynda þannig heildarverðmæti hins sameinaða félags og skiptihlutföll milli eigenda (en OR á 35,5% í sameinuðu félagi og er stærsti hluthafi þess).

Ekki ætla ég að verja endilega kaup lykilmanna á hlutafé á undirverði en vek þó athygli á því að kaupendurnir hefðu klárlega þurft að borga strax tekjuskatt af mismuninum á genginu 1,3 og genginu 2,77 og hefðu því sirka 35% af ávinningnum runnið beint í ríkissjóð.

3. Upphaflegi punktur minn um að það sé ekkert endilega óeðlilegt að starfsmönnum fyrirtækja bjóðist að gerast hluthafar, stendur óhaggaður.  Það getur verið prýðileg hagsmunagæsla fyrir almenning að varna því að starfsmenn fari frá fyrirtækinu og að tengja hag þeirra við hag félagsins.

4.  Það er alveg á hreinu og ekkert leyndarmál hvaða eignir gengu inn í REI.  Það má t.d. lesa í fréttatilkynningu um samrunann á vef REI og líka í ýtarlegum fréttum Morgunblaðsins og annarra fjölmiðla.

5. Það er ekkert til sem heitir "óháð verðmat".  Rétt verð er einfaldlega það verð sem kaupandi er tilbúinn að greiða og seljandi sættir sig við að fá.  Það er engin leið að halda því fram að OR sé hlunnfarin í þessum samruna því tiltölulega auðvelt er að reikna út verð eigna GGE miðað við nýleg viðskipti, og OR fær viðskiptavild metna á 10 milljarða inn í samrunann.

6.  Sameiningin sjálf er alveg uppi á borðum, menn geta kýtt um hlutafjárkaup einstaklinga en stóru fjárhæðirnar í málinu eru ljósar.  Þeir sem nenna að bera sig eftir gögnum, t.d. með örstuttri leit á netinu, geta fengið tölurnar og lesið þær sjálfir.

Að þessu sögðu, þá geta menn vitaskuld rætt um það prinsipp hvort Hitaveita Suðurnesja eigi að vera í almannaeigu eða einkaeigu, en sú ákvörðun var í raun tekin fyrir alllöngu þegar ríkið seldi sinn hlut í HS í útboði til hæstbjóðanda (á mjög háu verði, nóta bene).  Sömuleiðis er mjög athyglisvert að velta því fyrir sér hvort ályktun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, sem tekin var í taugaæsingi, um að selja beri hlut OR í REI sem fyrst, sé skynsamleg fyrir borgarbúa.  Þá má líka ræða hvort afstaða Moggans og Björns Bjarnasonar, sem er sú að OR hefði alls ekki átt að búa til REI og gera verðmæti úr jarðhitaþekkingu félagsins, sé galin eður ei.   En eitthvað bull um "arðrán" og að "afhenda náttúruauðlindir landsins á silfurþaki (svo)" og að Bjarni Ármannsson sé að "ljúga" og að "ræna milljörðum af þjóðinni" og "kæra sameininguna til lögreglunnar" og "kaupa hlut í Hellisheiðarvirkjun" er nóg til að drengstaula úr Skerjafirði ofbjóði orðbragðið og órökstuddu dylgjurnar og staðreyndavillurnar.



Vilhjálmur Þorsteinsson, 11.10.2007 kl. 00:18

6 Smámynd: Haukur Nikulásson

Vilhjálmi má vera það umhugsunarefni stundarkorn að það eru ekki allir haldnir þeirri svívirðilegu græðgi sem endurspeglast í því að auðmenn vilji ná tangarhaldi á orkufyrirtækjunum.

Þeir vilja fá þekkingu og reynslu orkufyrirtækjanna fyrir lítið, blanda því saman við peninga frá sér og eignast svo allt trallið. Það þarf ekki mikil gáfumenni til að skilja hvernig þetta virkar.

Þeir borgarbúar sem hafa greitt til orkuveitunnar, stundum okurfé, eru nefnilega eigendur hennar og það hefur alveg gleymst í umræðunni. Græðgisfrekjurnar láta nefnilega eins og þeir séu ekki til og eigi engan rétt vegna fjölda og smæðar hvers fyrir sig.

Ég tel eðlilegt að Vilhjálmur, Björn Ingi, Hjölfeifur Kvaran, Guðmundur Þóroddsson og Haukur Leósson verði allir reknir. Þeir hafa myndað samsærið um að stela helstu eignum Orkuveitu Reykjavíkur en hafa samt þegið laun í umboði eigenda fyrirtækisins sem eru borgarbúar. Þetta er borðleggjandi einfalt: Burt með svona þjófa!

Þetta er klárlega trúnaðarbrestur, þetta sjá flestir borgarfulltrúar íhaldsins þótt þeir séu neyddir af forystunni til að hlýða. Sýnið manndóm í þessu máli og mokið þessum mannskap út!

Það er ekki fallegt, Vilhjálmur, að væna Sigurjón um þekkingarleysi á viðskiptasviði. Í þessu máli sjá allir hvað er í gangi. 

Haukur Nikulásson, 11.10.2007 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband