Leita í fréttum mbl.is

Villi féll á eigin bragði

Maður fann til með borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins þegar maður fylgdist með beinni útsendingu sjónvarpsins af fundi þeim sem borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins boðuðu til. Ég verð að segja eins og er að ég var virkilega farinn að finna til með fólkinu sem stóð þar fyrir svörum. Þau voru ringluð og sársvekkt, og greinilega ekki búin að vinna úr tilfinningum sínum.

Það má þó segja að borgarfulltrúi Vilhjálmur Þór hafi fallið á eigin bragði, því sem hann beitti þegar hann blekkti Ólaf F. Magnússon vorið 2006 eftir kosningarnar þá. Eini munurinn er sá að nú hefur taflið snúist við og borgarfulltrúi Björn Ingi Hrafnsson lék á Villa með því að telja honum trú um að samstarfið héldi. Þannig hélt hann Villa volgum.

Þessi vinnubrögð öll eru þó ekki til eftirbreytni, hvort sem um er að ræða ráðslag Villa eða Binga.

Eftir þennan tilfinningahlaðna blaðamannafund Sjálfstæðisflokksins birtist forsætisráðherra okkar í þinghúsinu, ekki síður sár og svekktur á svip og í tali. Það var greinilegt að honum fannst sem hann hefði misst borgina sína sem hann ætti með hurð og gluggum. Hann tók það þó fram að hann hefði leitað eftir fundi hjá „samstarfskonu“ sinni sem staðfesti við hann að hann væri ekki að missa sæti sitt í landsstjórninni. Var honum greinilega mikill léttir að þeim huggunarorðum formanns Samfylkingarinnar.

Nú er að sjá hvort Ingibjörg leikur sama leikinn og bæði Björn og Villi.

Það er rétt að óska nýjum meirihluta borgarstjórnar og borgarstjóra velfarnaðar. Maður hefur vissar efasemdir en þær væru eflaust mun minni ef í borgarstjórastólnum sæti Svandís Svavarsdóttir. Hún hefur sýnt af sér röggsemi og það verður fylgst með störfum hennar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

 Já hvað með Margréti  -  það er skemmst að segja frá því að ég veit ekkert um hana enda væri ef til vill meiri von að spyrja formann Íslandshreyfingarinnar, hann Ómar Ragnarsson um fréttir af henni.

Það var hins vegar ánægjulegt að sjá í viðtölum í dag að Margrét hefur tekið gleði sína á en hún var kotroskin og glöð í bragði.

Ég tek eftir því að það er minna spurt um Ólaf F en það kæmi mér ekki á óvart að hann kæmi fljótt til starfa á ný í borgarstjórninni. 

Sigurjón Þórðarson, 11.10.2007 kl. 23:47

2 identicon

Margrét er tækifærissinni, fulltrúi hvers er hún í Borgarstjórn?  Veit það einhver?  Er ekki sammála þér með Svandísi, hún er búin að missa álit hjá mörgum.  Rakkar og rægir Björn Inga og tekur svo við honum því það kemur henni til valda.  Tækifærismennska eins og verst verður.

Ber miklar vonir til Dags

Dísa (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 00:35

3 Smámynd: Kári Harðarson

Ef þú vilt vinna í málefnum borgarinnar þarftu að umgangast Björn Inga, ég sé enga leið í kringum það.

Það er þroskamerki að geta unnið með fólki sem manni líkar ekki vel við.  Mér finnst Svandís ekki vera í neinni mótsögn þótt hún segi skoðun sína á fólki en reyni samt að gera góða hluti með því.

Kári Harðarson, 12.10.2007 kl. 12:00

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

tek undir með Kára.

Óskar Þorkelsson, 12.10.2007 kl. 12:11

5 Smámynd: Jón Magnússon

Sjálfstæðisflokkurinn er í miklum vanda eftir þessa uppákomu. Ég man ekki til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lent í jafn miklu klúðri og þessu. Það hlítur að hrikta í stjórnarsamstarfinu vegna þessa og e.t.v. sér Ingibjörg Sólrún eða Össur ofurbloggari möguleika á að koma LSD(langstærsta draumnum) í gegn með því að mynda hreina vinstri stjórn.

Jón Magnússon, 12.10.2007 kl. 14:27

6 identicon

Ég held nú að í pólitík séu stjórnmálamenn oftast að gagnrýna gjörðir sinna pólitísku andstæðinga frekar en þá persónulega, jafnvel þótt persónuleg gagnrýni loði oft við í litlum skammti. Svandís ætlar sennilega að reyna að stýra Birni Inga til góðra verka, draga hann upp úr spillingunni. Núna var það algerlega á valdi Björns Inga hvort sjálfstæðismenn væru leystir frá stjórn borgarinnar eða ekki. Þessvegna var auðvitað ekki hægt að skáka honum út í horn í nýja meirihlutanum. Þetta var einstakt tækifæri til að skipta um stjórn, vegna afstöðu Björns Inga og hefði verið algjör heimska af hinum minnihlutaflokkunum að nota það ekki. 

Það hafa verið nokkrar umræður um metinn hlut OR í sameiginlegu fyrirtæki REI og GGE sérstaklega. Björn Ingi sagði  í dag á fundi flokkssystkina, að ef óháðir aðilar hefðu verið fengnir til að meta værðmæti hlutar OR, þá hefðu þeir bara fundið  áþreifanlegar eignir upp á þrjá milljarða. Hann meinar að stjórnendur OR hafi samið um það við GGE að skrá hlutinn miklu hærri, en raunveruleg efni stæðu til, eða á tíu milljarða. Þetta er auðvitað kjaftæði hjá Birni Inga. Hlut OR í HS (ef kaupin ganga upp) er sennilega hægt að meta á sjö milljarða hið minnsta, því það er sú upphæð sem GGE bauð í þann hlut áður. Það er ekki þar með sagt að sá hlutur gangi á svo háu verði við sölu á milli sveitarfélaga.  En fyrir GGE er hann að minnsta kosti það verðmætur vegna þess að með því að eignast GGE 64% hlut í HS og myndi geta stjórnað því fyrirtæki alveg. Það er rósrauður draumur GGE. Það veit auðvitað engin fyrir víst hve verðmætar orkuauðlindir HS eru, sem Árni Sigfússon sjálfstæðismaður hefur smám saman verið að afhenta til einkaaðila, þ.e GGE. Svo eru sjálfstæðismenn að segja að þeir vilji alls ekki að orkufyrirtæki sveitarfélaga séu þátttakendur í útrás. Hvað ættu sveitarfélögin þá að gera, sem ættu minnihluta í HS á móti meirihluta í eigu GGE, sem ætlar í bullandi útrás? Ættu þau þá ekki að selja þennan hlut sem þau ættu eftir? Það sjá allir viti bornir menn að sjálfstæðismenn eru í mótsögn í gjörðum sínum og virðast hafa það helst á stefnuskrá sinni í orkumálum á höfuðborgarsvæðinu að grafa undan meirihluta eignaraðild sveitarfélaganna í orkufyrirtækjunum og vinna þannig gegn hagsmunum almennings.

 

Guttormur Sigurdsson (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 20:59

7 identicon

Eftir á að hyggja, hvernig er eiginlega samrunasamningurinn á milli REI og GGE ? og hvernig er samningurinn á milli OR og REI? Er það kannski rangt hjá mér að eignirhlutur sá er OR er að reyna að eignast í HS sé inni í þessu tíu milljarða verðmati á hlut OR í sameiginlegu fyrirtæki? Og hvað heitir þetta samruna fyrirtæki?

Guttormur Sigurdsson (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband