Leita í fréttum mbl.is

Mun Össur Skarphéðinsson segja sig úr breska Verkamannaflokknum?

Í dag bar það til tíðinda að breskir ráðherrar Verkamannaflokksins hótuðu íslensku þjóðinni í kjölfar þess að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, ákvað að leyfa þjóðinni að ákveða hvort hún undirgengist afarskilmála Breta í Icesave-málinu. Össur Skarphéðinsson, félagi í breska Verkamannaflokknum, deildi réttlátri reiði samflokksmanna sinna í Bretlandi í garð forsetans og neitaði að fara með honum í fyrirhugaða heimsókn til Indlands eftir nokkra daga.

Hingað til hefur Össur ekki vílað fyrir sér að leggja land undir fót þótt ferðafélagarnir hafi verið ótíndir fjárglæframenn, s.s. ferðalög með auðrónunum til Indónesíu og Arabíu - en núna er Össur kallinn orðinn of fínn fyrir forsetann okkar.

Ríkisstjórnin hafði í dag einstakt tækifæri til þess að íhuga að fara yfir stefnu sína í Icesave-málinu, breyta um kúrs og ganga í takt við þjóðina sem hefur m.a. ofboðið að ríkisstjórnin skuli veita þeim sem stofnuðu til Icesave-reikninganna sérstakan skattaafslátt til atvinnuuppbyggingar á sama tíma og mörg hundruð milljóna króna álögur eru lagðar á íslensku þjóðina.

Össur hefði getað notað tækifærið og skilað inn flokksskírteininu í breska Verkamannaflokknum.  Aldrei er að vita nema fýlan renni af honum og hann sjái sitt óvænna á morgun.


mbl.is Fundur hafinn í Ráðherrabústaðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og Össur brást við eins og krakki sem gotteríið hefur verið tekið af og segir: "ÉG VIL EKKI LEIKA MEIRA VIÐ ÞIG HREKKJUSVÍNIÐ ÞITT".  Voðalega "þroskað" hjá honum.........   Og ég sem hélt að meðlimir "ríkisstjórnar fólksins" gætu ekki lengur komið mér á óvart með viðbrögðum sínum.....

Jóhann Elíasson, 5.1.2010 kl. 22:51

2 Smámynd: Marinó Óskar Gíslason

Ég spyr nú bara. Hvaða ríkisstjórn hefur gengið í takt við þjóðina? Ég hef ekki séð hana ennþá, og er ég þó kominn yfir miðjan aldur. Kommakratarnir og rassháraviðhnýtingar (ASÍ, BSRB og Villi viðutan í SA) þeirra munu ekki gera það frekar en aðrar stjórnir. Nú á að kalla til þá sem svínuðu allt út og láta þá svara til saka. Tökum Króatíu okkur til fyrir myndar í því máli.

Marinó Óskar Gíslason, 5.1.2010 kl. 23:29

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Góðu fréttirnar eru að Björn Valur virðist vera að átta sig en hann var nokkuð spakur í fréttatíma kvöldsins.

Annars voru fréttir stöðvar 2 ótrúlegur skandall en þar var hirðblaðamaður Samfylkingarinnar og fyrrum framkvæmdastjóra Alþýðubandalagsins í aðalhlutverki.  Hann toppaði hlutdrægnina með því að fá Jón Baldvin gamlan fjandavin Ólafs Ragnars í að flytja æsingaræðu í lok "fréttatímans.".

Sigurjón Þórðarson, 5.1.2010 kl. 23:35

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hreinsum til og stokkum upp nýtt stjórnkerfi takk. Össur var í stjórn þegar allt hrundi í hittifyrra hvað er hann að gera þarna og hann fór sjálfur að kinna ísland fyrir ESB frekjan er óendanleg nokkurskonar valdhroka gætir hjá honum þegar á móti blæs þá fer hann að kjökra og neitar að fara út með háttvirtum forseta vorum hann á að víkja.

Sigurður Haraldsson, 5.1.2010 kl. 23:36

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hitti blaðamann Samfylkingarinnar á Bessastöðum í morgun og var ekki laust við að tára gætti á körmum hans og hreytti hann í mig ónotum um að það væri mikið að gera hjá sér.

Sigurður Haraldsson, 5.1.2010 kl. 23:40

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það var a.m.k. ekkert jafnvægi í fréttaflutningi Heimis Más frekar en leiðtogum flokksins.

Sigurjón Þórðarson, 6.1.2010 kl. 00:01

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Já stjórnvöld og fylgisveinar virðast svolítið úr jafnvægi þessa dagana

Jón Aðalsteinn Jónsson, 6.1.2010 kl. 14:29

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ríkisstjórnin virðist ætla að beina athyglinni frá eigin aðgerðarleysi og spillingu í eitthvert stríð gegn forsetanum.  Það eina sem forsetinn hefur sér til saka unnið er að vísa máli til þjóðarinnar og er það bæði í samræmi við stjórnarskrá og svo stefnu stjórnarflokkanna um aukið lýðræði.

Sigurjón Þórðarson, 6.1.2010 kl. 16:29

9 Smámynd: Jón Magnússon

Össur átti að segja sig úr breska verkamannaflokknum sama dag og þeir beittu okkur hryðjuverkalögunum. Ég innti hann eftir því á þeim tíma en hann skellti bara í góm. Hann segir sig varla úr þessum fína klúbbi núna.

Jón Magnússon, 7.1.2010 kl. 17:18

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Flokksskírteinið í breska Verkamannaflokknum virðist vera Össuri mjög kært og svo virðist hann vera mjög upp með sér þegar hann á von símtali frá vinum sínum.

Sigurjón Þórðarson, 7.1.2010 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband