Leita í fréttum mbl.is

Ingibjörg Sólrún stjórnar Sjálfstæðisflokknum

Leiðtogi Sjálfstæðisflokksins er mjög tvístígandi þessar vikurnar og reynir að halda spilunum þétt að sér og hindra þjóðina í að sjá á þau enda er þjóðarskútan stefnulaust rekald. Svo virðist sem hann treysti dómgreind Ingibjargar frekar en sinni eigin.

Geir var ekkert of áfjáður í að fá lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og vildi frekar leita á náðir Rússa sem tóku vel í að lána okkur. Hins vegar kom mikill afturkippur í Rússalánið þegar Ingibjörg Sólrún kom aftur til starfa og má vera að hún hafi talið það geta truflað Evrópudrauminn, þ.e. að Íslandi færi inn í Evrópusambandið. Hún lagði alla áherslu á að sækja um lánið hjá AGS og loks þegar Geir gekkst inn á það kom í ljós að lánið var ekki á lausu vegna andstöðu svokallaðra vinaþjóða Evrópusambandsins.

Þjóðirnar hafa allar sem ein, þar á meðal Norðurlandaþjóðirnar Svíþjóð og Danmörk, lagst gegn láninu nema gengið verði frá Icesave-reikningunum eins og kunnugt er. Geir hefur hins vegar margoft lýst því yfir að Íslendingar láti ekki kúga sig, en nú virðist sem Ingibjörg Sólrún hafi sveigt hann enn og aftur þar sem hún vill ólm komast inn í Evrópusambandið þótt það muni kosta næstu kynslóðir gríðarlegar skattbyrðar.  

Það er ótrúlegt að fylgjast með málflutningi ráðherra þar sem hún rekur miklu frekar erindi sitt fyrir Evrópusambandinu en að ganga erinda íslensku þjóðarinnar. Hún hefur margsagt að við séum í þröngri samningsstöðu og afsakað óbilgirni evrópsku þjóðanna með þeim rökum að það sé liður í að bjarga fjármálalífi Evrópu. Svo bítur hún höfuðið af skömminni með því að lýsa því yfir að við þurfum þessa svokölluðu aðstoð til að borga reikningana í Bretlandi.

Eina hjálpræðið sem hún sér er að ganga sem fyrst þjóðunum á hönd sem beita okkur kúgun. Í kvöld tilkynnti hún þjóðinni að búast mætti við stefnubreytingu hjá Sjálfstæðisflokknum hvað varðaði Evrópusambandsaðild, hennar mætti jafnvel vænta á morgun þar sem miðstjórn Sjálfstæðisflokksins fundar.

Það er spurning hvort Ingibjörg mæti á þann fund til að treysta stöðu Geirs.


mbl.is Von um niðurstöðu í IceSave-deilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Eiríksson

Mikill er máttur Ingibjargar segi ég bara... :-)

Það er í það minnsta ljóst hvar afstaða síðuhaldara liggur gagnvart ESB. Kannski Frjálslyndi Flokkurinn móti sér ákveðna stefnu gegn ESB.   Þá hefur fólk skýran valkost.    Þann valkost vantar núna.

Spurning hvort Jón Magnússon kvitti undir And-ESB stefnu Frjálslyndra.

Jón Halldór Eiríksson, 13.11.2008 kl. 20:05

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ingibjörg Sólrún hafði einhverjar grillur um Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn myndi rétta Íslendingum hjálparhönd um leið og ríkisstjórnin fyllti út umsóknareyðublaðið.  Raunin hefur orðið önnur

Nú á Ingibjörg Sólrún sér þann draum að þær þjóðir sem brugðu fæti fyrir að Íslendingar fengju aðstoð AGS, munu veita Íslendingum hagstæðan samning við inngöngu í í ESB.  Það ætti hver maður að sjá að Þetta er tálsýn.

Það sem verst er í málinu er að óraunhæft mat stjórnvalda og leynimakk hefur gert stöðuna enn þrengri en hún þyrfti að vera og sett allar lausnir í mikla tímaþröng.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 21:10

3 Smámynd: Gísli Már Marinósson

Ég held að Samfylkingin sé búin að setja Sjálfstæðisflokknum úrslitakosti. Annað hvort samþykki Sjálfstæðismenn að sækja um aðild að ESB. eða stjórnarsamstarfinu er lokið, og það vilji Sjálfstæðismenn ekki hugsa sér.

Gísli Már Marinósson, 13.11.2008 kl. 21:18

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ekki veit ég hvort að þessu svokallaða samstarf sé komið á þetta stig Gísli Már.

Ég er reyndar viss um að báðir flokkar gera sér fyllilega grein fyrir að reglulegri samveru Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í stjórnarráðinu fer brátt að ljúka.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 21:25

5 identicon

Ingibjörg er krabbamein í stjórnarsamstarfinu.Sjálfstæðisflokkurinn átti aldrei að fara í samstarf með Samfylkingunni.

Anna (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 23:04

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Seinni tímar munu líta á stöðu Sjálfstæðisflokksins eftir síðustu kosningar sem sögulegt slys. Afleiðingarnar voru óbreytt stefna í efnahagsmálum. Engum knapa kæmi til hugar að stíga á bak trylltum fjörhesti nema að hafa áður smeygt upp í hann beislinu. Málefnasamningur var ekki vandamál þegar Samfylkingin var annars vegar. Samfylkinguna varðaði ekkert um smámuni eins og verðgildi tólffaldrar þjóðarframleiðslu í erlendum skuldum.

  Með formanninn í embætti utanríkisráðherra hafði stóri draumurinn ræst. Nú var slegið undir nára og þoturnar urðu annað heimili Ingibjargar Sólrúnar. Þegar rætt var um vegarstubb á Alþingi hélt Árni Páll frændi minn korters langt erindi um ESB. Þegar rætt var um málefni Þingvalla hélt Össur kjarnyrta ræðu um gildi evrunar fyrir skjólbelti við sumarbústaði. Þegar málefni kirkjunnar voru rædd kom Ágúst Ólafur í pontu og sagði frá aðkomu ESB að málefnum samkynhneigðra. 

Ísland var orðið verkefni grínara í öðrum löndum og Ingibjörgu var hvarvetna fagnað eins og Jóhannesi Kristjánssyni á Þorrablóti þegar hún tilkynnti umsókn okkar í Öryggisráðið.

Ljóta klúðrið að leita ekki betur í símaskránni áður en ríkisstjórnin var mynduð. Munum að gera það næst.

Árni Gunnarsson, 14.11.2008 kl. 00:03

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Árni, ég get tekið undir með þér að símaskráin hefði dugað betur.

Það er merkilegt að fylgjast með Árna Páli frænda okkar en hann sver sig í ættina með mikilli trúrækni.  Hann virðist trúa því einlæglega að við það eitt að fylla út umsóknareyðublað að ESB, að þá hverfi öll mannanna mein. Hann flytur boðskap sinn iðulega á nokkuð flóknu máli þannig að ég a.m.k. þarf að hafa mig allan við til að fylgja honum eftir þó svo boðskapurinn sé alltaf sá sami.

Sigurjón Þórðarson, 14.11.2008 kl. 00:21

8 identicon

Góð grein hjá þér Sigurjón og kommentin mörg hver mjög góð.

Sérstaklega fundust mér kommentin hjá Árna Gunnarssyni lýsandi um Samfylkinguna og hennar ESB trúboð.

Það kemur svo glögglega í ljós að þetta fólk er svo háttstemt í ESB trúarhita sínum að það má ekkert vera að því að ræða raunveruleg málefni þjóðarinnar, það kemst ekkert að annað en trúboðið sjálft.

Svo er því orðið þannig varið að ef einhverjar raunhæfar tillögur eru settar fram til að leysa bráðan vanda þjóðarinnar, þá má alls ekki ræða þær ef þær hugsanlega gætu á einhvern hátt skaðað málstað trúboðsins !

Þetta er nú ljóti sértrúarsöfnuðurinn sem við sitjum uppi með og ég vil leyfa mér að segja að þessu liði er alls ekki treystandi til að leiða þjóðina útúr þessum stórkostlegu vandræðum. 

Það er allt skárra en að hafa þessa þjóðníðinga í Samfylkinguni við stjórnvölinn. 

Þetta er ekkert annað en landráðahyski sem ætti að ákæra fyrir landráð og svik við þjóðina !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 10:16

9 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sumir vilja reyndar meina að við þurfum nýja símaskrá með nýju fólki fyrir næstu kosningar ? .kv .

Georg Eiður Arnarson, 14.11.2008 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband