Leita í fréttum mbl.is

Einar er fórnarlamb skrifræðisins

Maður lærir ýmislegt nytsamlegt í skóla. Ég hef verið í námi hjá einum virtasta stjórnmálafræðingi þjóðarinnar og þreytti próf í morgun þar sem farið var yfir veikleika og styrkleika hinna ýmsu aðferða við að stjórna. Kennslan leiddi mér fyrir sjónir að Einar Kristinn Guðfinnsson, sem uppalinn er í sjávarútvegi, er saklaust fórnarlamb faglegs skrifræðis. Sömuleiðis líður hann fyrir uppburðarleysi sitt.

Ein skipulagsheildin nefnist því fróma nafni Fagskrifræði og gengur út á að sérfræðingar uppfræði og móti komandi nýliða í greininni sem munu síðan taka við keflinu og setja enn aðra nýliða á sama bás. Einn helst galli þessarar aðferðar er að ef menn hafa tekið snarvitlausan pól í hæðina í upphafi eins og er með reiknisfiskifræðina ungar vitleysan út enn meiri vitleysu.

Nú er að sjá hvort skilningur minn sé réttur eða rangur en hann fæst væntanlega staðfestur með niðurstöðu fyrsta prófs míns í félagsvísindadeild.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég er nokkuð handviss um að skilningur þinn er réttur. En það verður fróðlegt að sjá samt.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 26.9.2008 kl. 11:11

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já það verður fróðlegt að fá niðurstöður úr prófinu en námsefnið var að  mjög áhugavert en að sama skapi strembið og þá að þræla sér í gegnum þungan enskan textan.

Sigurjón Þórðarson, 26.9.2008 kl. 13:13

3 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll Sigurjón!  Mér finnst skemmtilega orðað hjá þér að Einar frændi minn sé - saklaust fórnarlamb faglegs skrifræðis. Athyglisverð stutt lýsing á manni sem ekki þurfti að taka tillit til neins nema sjálfs sín í uppvexti sínum og vegna ættartengsla sinna plantað á ákveðinn stall í stærsta stjórnmálaflokki landsins, vegna atgerfis afa síns. Eigin verðleika, frumkvæði eða þekkingu hefur hann aldrei þurft að reiða sig á, þar sem hann hefur geta stutt sig við - Fagskrifræði sem gengur út á að „sérfræðingar“ uppfræði og móti...  nýliða í greininni sem munu síðan taka við keflinu og setja enn aðra nýliða á sama bás.

Skemmtilega orðað, sem líklegt er til að skila góðri einkun, ef kennarinn er ekki Sjálfstæðismaður. 

Guðbjörn Jónsson, 26.9.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband