Leita í fréttum mbl.is

Frjálsir Vestfirðir

Hún hefur farið nokkuð hátt, sú umræða meðal Vestfirðinga og annarra þeirra sem er annt um byggðina að helsta ráðið til að snúa við byggðaþróuninni, eða réttara sagt byggðahnignuninni, sé að stofna fríríki eða sjálfstjórnarhérað. Mér er mjög annt um byggðirnar fyrir vestan og fannst á tíðum ferðum mínum sárt að koma til staða þar sem ég sá byggðunum greinilega hnigna frá ári til árs.
Ég hef miklar efasemdir um að það sé rétt eða árangursríkt fyrir þá sem vilja breytingu að leiða talið að einhverju sjálfstæði Vestfjarða og leiða þá talið frá meginmeinsemdinni sem er fiskveiðióstjórnin. Þá verður að segja eins og er að mikill meirihluti þeirra stjórnmálamanna sem hafa komið frá Vestfjörðum hefur stutt kvótakerfið sem hefur grafið undan byggðinni. Það hafa þeir gert þrátt fyrir loforð um annað fyrir kosningar og jafnvel eftir að hafa gengið undir borða á fjölmennum fundum þar sem á hefur verið letrað að orð skuli standa.
Eitt síðasta voðaverk stjórnmálamannanna var að setja minnstu bátana inn í alræmt kvótakerfi og það var gert þrátt fyrir viðvaranir og vissu um voveiflegar afleiðingar þess fyrir vestfirskar byggðir. Mun minna hefur heyrst frá bæjarstjórninni á Ísafirði um að verða við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna en að beita sér fyrir mögulegri byggingu olíuhreinsistöðvar innan einhverra ára. Samt sem áður liggur fyrir að íslensk stjórnvöld þurfa að bregðast við áliti Sameinuðu þjóðanna eftir örfáar vikur.
Skynsamleg breyting sem opnaði leið Vestfirðinga til sjávarins á ný yrði gríðarleg lyftistöng fyrir vestfirskar byggðir. Þá ríður mikið á að þeir sem óska Vestfjörðum og hinum dreifðu byggðum bjartrar framtíðar leggist á árar um breytingar í átt að frelsi til fiskveiða á Íslandi.

Grein sem birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn var.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

enn og aftur.. ég vil frjálst krókaleyfi.. það mundi rífa upp vestfirði og önnur smápláss úti á landi.

Óskar Þorkelsson, 1.4.2008 kl. 09:40

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

þegar kvótakerfinu var komið á, þá var hlutfallslega einn stærsti hluti kvótans á Vestfjörðum. hinsvegar bjuggu Vestfirðingar við það að Þingmenn þeirra voru duglegir að pota niður togurum í sína firði. það er að segja, mjög mikil afskipti og hjálp frá hinu opinbera. þetta leiddi síðan til þess að á Vestfjörðum, voru mörg, stór fyrirtæki og enginn lítill aðili gat keppt við togara útgerðina um mannskap eða laun. Síðan í áranna rás hættu sumir rekstri, fóru á hausinn eða sameinuðust öðrum. þannig að loksins þegar mannskapur varð til þá var það orðið nánast of seint.

mörg smá fyrirtæki eru mun betri heldur en eitt eða tvö risafyrirtæki. það sést best í dag á Eskifirði, ef fyrirtækið fer á hausinn þá er nánast hægt að segja að byggð leggist þar af. Smákonungar sem eru studdir af þingmönnu, eins og var á Vestfjörðum kom þeim í koll. 

þess vegna, í ljósi sögunar, verður það eitthvað betra ef menn reyna núna að breyta eða bæta með handaaflsstýrðum aðgerðum? nei ég bara spyr. Þegar hringalanda háttur og missvísandi skilboð og von um hjálp frá hinu opinbera er alltaf yfir höfðinu, gera þá einstaklingar eitthvað?  

að mínu mati er aðalhagsmuna mál Vestfjarða í dag, vegalengdir. hálftíma stytting til sundahafnar um Sundabraut (enginn umferðarhnútabið um Mosó) mun gera fluttningar, til og frá Vestfjörðum, mun hagkvæmari.

Síðan þykir mér mun gáfulegra að leggja einn veg sem tengir allar byggðir á Vestfjörðum (að ströndunum undanskildum) og myndi síðan liggja suður um Barðarströnd. 

bara að koma með smá innlegg í umræðurnar.  

Fannar frá Rifi, 1.4.2008 kl. 12:35

3 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Athyglisverð söguskýring hjá Fannari frá Rifi. Akkúrat í anda dagsins.

Togaravæðingin sem hann talar um með aðstoð hins opinbera var framkvæmd 1959. Það þurfti enga sérstaka opinbera aðstoð, aðeins venjulega lánafyrirgreiðslu sem allir fengu, til að fá skuttogarana til Vestfjarða, undir þá miklu aflaskipstjóra sem tóku við þeim skipum þegar þau komu.

Í áranna rás, áður en kvótakerfið  var sett á, framleiddu Vestfirðingar lang mestar gjaldeyristekjur, á hvern íbúa, af öllum landshlutum. t. d. 1986 kr. 456.121, pr. íbúa, meðan Vesturland (að Rifi meðtöldu) skapaði kr. 231.007.  Þeir fengu hins vegar ekki að njóta þessara tekna sinna.

Staða  vestfirðinga nú gæti átt rót sína í því að þeir hafi trúað of lengi á að heiðarleiki og drenglyndi mundi hafa yfirhöndina hjá stjórnmálamönnum. Þeir virðast hafa tapað á að veðja á heiðarleikann. Er það ekki svolítið lýsandi fyrir þjóðfélag okkar í dag?????????

Kveðja frá fyrrvegandi hagdeildarmanni í banka, sem þekkir söguna. 

Guðbjörn Jónsson, 1.4.2008 kl. 14:46

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

"aðeins venjulega lánafyrirgreiðslu sem allir fengu"

trúiru þessu sjálfur sem þú skrifar? það fengu ekki allir lán. aðeins útvaldir fengu lán og þá oftast með fyrirgreiðslu af hendi þingmanna.

Þingmenn Vestfjarða voru duglegir að pota hér í denn.

allir fengu jafnt úthlutað á sínum tíma. það er eftir því hvernig þeir höfðu veitt. þannig að þú getur viðurkennt að Vestfirðingar fengu lang messt í sinn hlut ekki satt? 

Síðan verða menn bara reka sín fyrirtæki. Togarar hafa þann ókost í byggðarlegu tiliti að þeir geta verið gerðir út hvar sem er. þá er helst kostur að gera bara togarann út þar sem aflinn er sendur úr landi ef hann á ekkert að vinna í landi. Frystitogarar eru gott dæmi um það. 

með mikinn togara flota og fáar útgerðir, þá stóðu atvinnumál Vestfiðringa á tæpasta vaði. við höfum síðan séð mímörg dæmi, bæði þar og annarstaðar að þær byggðir sem treystu á togara útgerðir hér áður fyrr, hafa farið verrst út. 

Byggðir sem voru með fleyri en smærri útgerðir og báta hafa farið mun betur út. 

og Guðbjörn, helduru að Vestfirðingar séu eitthvað sér á báti þegar kemur að ósannsögli stjórnmálamanna og að þeir hafi farið eitthvað verr út úr því heldur en aðrir?  

Fannar frá Rifi, 1.4.2008 kl. 17:41

5 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll Fannar!

Nei, ég held ekki að Vestfirðingar séu neitt sér á báti varðandi ósannsögli stjórnmaálamanna, eða að þeir hafi farið eitthvað verr út úr henni en aðrir.

Mér sýnist hins vegar að þú hafir farið illa út úr ósannsögli einhverra eða röngum upplýsingum. Það breytir hins vegar ekki því sem liðið er.

Mynd þín af Vestfirsku atvinnu- og útgerðarlífi stenst ekki samanburð við raunveruleikann, en það er ekki hægt að banna þér að lifa í þeirri villu sem þú virðist hafa tileinkað þér.

Lifðu heill. 

Guðbjörn Jónsson, 2.4.2008 kl. 10:06

6 Smámynd: Landvernd

Sæll Sigurjón,

Það er svolítið merkilegt hversu lítið heyrist frá sveitarstjónarmönnum um mannréttindarmálið og eins og þú bendir á:

"Mun minna hefur heyrst frá bæjarstjórninni á Ísafirði um að verða við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna en að beita sér fyrir mögulegri byggingu olíuhreinsistöðvar innan einhverra ára."

Ég má þó til með að hrósa sveitastjórnarmönnum fyrir Vestan fyrir framtak sitt er varðar fundarhöld sem Fjórðungssambandið stóð fyrir. Tólf framsögumenn sem fóru yfir málið vítt og breytt. Glærur og hljóðupptökur frá fundinum í framhaldinu sett á netið. Þetta verklag ætti að vera öðrum til eftirbreyttni. Set hér að gamni inn tengil á síðuna þar sem nálgast má gögn fundarins

Kveðja,
Bergur 

Landvernd, 2.4.2008 kl. 10:13

7 Smámynd: Fannar frá Rifi

Síðan má nú bæta einu við. Eru menn virkilega að taka mark á þeirri nefnd sem ályktaði svo að í Rúandi væri bara allt í góðum málum á meðan þjóðarmorð geisuðu þar. Eða að hún neyti að ræða á neikvæðan hátt um þjóðernishreynsanir í Darfúr?

Fannar frá Rifi, 2.4.2008 kl. 11:52

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já Bergur þetta er stórmerkilegt hvað það heyrist lítið í Halldóri Halldórssyni bæjarstóra. 

Það fer ótrúlega mikil orka í þessa olíuhreinsunarstöð miðað hvað það er stutt í að ríkisstjórnin þurfi að bregðast við að leiðrétta óréttlætið. 

Það segir sína sögu að fólk hvaðan af úr heiminum sem ýmsu er vant í mannréttindamálum eins og bent hefur verið á er algerlega misboðið af íslensku kvótakerfi - það segir sína sögu um kerfið.

Sigurjón Þórðarson, 2.4.2008 kl. 22:13

9 Smámynd: Fannar frá Rifi

Sigurjón.

Það er bara auðveldara fyrir þau að gagnrýna vesturlönd heldur en að taka á málum heima fyrir. Sést best í Zimbabwe þar sem heima tilbúinn vandi er kenndur upp á vesturlöndum. þannig að þín rök fyrir þessu halta ekki vatni. 

Fannar frá Rifi, 4.4.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband