16.10.2007 | 22:56
Grípur rektor inn í störf prófessors Baldurs?
Enn og aftur kemur Baldur Þórhallsson í fjölmiðla og skreytir sig með prófessorstign við Háskóla Íslands, æðstu menntastofnun þjóðarinnar. Í kvöld birtist hann gleiður á skjánum og lýsti fjálglega stöðu mála innan Sjálfstæðisflokksins og pólitískri stöðu fyrrum borgarstjóra, lýsti því yfir að Vilhjálmur væri í þröngri stöðu. Sem áður voru þessar yfirlýsingar fræðimannsins ekki rökstuddar, hvað þá að einhverjar rannsóknir hafi legið að baki þessari niðurstöðu. Mér finnst fráleitt að fræðimaður á sviði stjórnmála skuli nefna aðeins annan þeirra sem bar ábyrgð á framvindu mála í REI-málinu og hlaupa alveg yfir þátt hins, þ.e. Björns Inga Hrafnssonar, þegar hann ræðir pólitíska stöðu þeirra og flokka þeirra.
Ég get ekki betur séð en að Björn Ingi Hrafnsson beri síst minni ábyrgð á klúðrinu sem varð til þess að skyndilega var búið að einkavæða orkuauðlindir almennings. Ég held að fólk sjái í gegnum þetta og að Baldur stundar pólitískan spuna til að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn sem er dulbúið í fræðilegan búning. Ég er ekki viss um að þessi ráð sem hann veitti forsætisráðherra um að grípa inn í og koma Vilhjálmi frá í borgarstjórn hafi verið veitt af umhyggju fyrir Sjálfstæðisflokknum eða almannahagsmunum. Ef almannahagsmunir hefðu ráðið för hefði hann frekar beint sjónum sínum að Birni Inga Hrafnssyni. Hann situr í meirihlutanum sem hefur völd og raunveruleg áhrif á hvernig greitt verður úr þessu hneyksli sem REI-málið óneitanlega er.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 109
- Frá upphafi: 1013224
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Prófessorar eiga auðvitað að passa sig, svo sem. En af hverju ætti rektor að grípa inn í vegna þessa prófessors þegar annar stjórnmálafræðiprófessor hefur um árabil "túlkað" stjórnmálin, á hlutdrægan hátt, án aðgerða? Báðir eiga auðvitað að gæta fræðilegrar óhlutdrægni, en það má ekki skamma bara annan þeirra, eða hvað?
Friðrik Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 23:24
Fáum prófessorum hjá HÍ tekst að fjalla um stjórnmál á óhlutdrægan hátt.
Sigurður J. (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 00:14
Sigurjón. Þetta þykir mér dálítið hörkuleg árás.
1. Getur ekki verið að Baldur hafi rætt Björn Inga við fréttamenn? Það eina sem við áhorfendur vitum er að þessi ákveðna frétt sneri að meintum erjum innan sjálfstæðisflokks og viðtalið því væntanlega klippt til að falla að efninu.
2. Baldur "skreytir" sig ekki með prófessorstign, held ég fari rétt með þegar ég fullyrði að hann hafi aldrei minnst á það í örstuttu viðtali. Það gerðu hins vegar fréttamenn í tvígang, auk þess sem starfsheiti var ritað undir nafni Baldurs meðan hans bútur var spilaður.
3. Sem fræðimaður veistu að það er eitt að leggja mat á aðstæður út frá þeirri þekkingu sem maður býr yfir og varpa fram áliti þar að lútandi - annað að fullyrða um eitthvað líkt og það sé ritað í stein.
Annars hlýt ég að vera að misskilja þig eitthvað, því varla ertu í alvöru að gagnrýna Baldur fyrir að framvísa ekki rannsóknum í 63 sekúndna örviðtali til að "sanna" að staða fyrrum borgarstjóra sé veik?
Baldur McQueen (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 00:19
Mér finnst yfir höfuð óþolandi hvað fréttamenn eru gjarnir á að fá allskonar álitsgjafa, sem eru allt of pólitískir og innvígðir inn í einhvern stjórnmálaflokk og geta þar af leiðandi ekki talað hlutlaust um það mál sem til umræðu er.
Þórir Kjartansson, 17.10.2007 kl. 08:35
Ég get ekki fallist á að þessi pistill sé hörkuleg árás en ég nota sama orðalag og Baldur gerði í því í fréttaviðtali á Stöð 2 sem vitnað er til.
Baldur hefur einnig lagt vana sinn í að setja olnbogann í Frjálslynda flokkinn án þess að kynna sér í nokkru það sem hann er að fjalla um.
Sigurjón Þórðarson, 17.10.2007 kl. 09:16
Er þér virkilega alvara Sigurjón? Ertu virkilega þeirrar skoðunar að kalla eigi stjórnmálafræðinga sem starfa við háskólastofnanir á teppið ef þeir svara spurningum fréttamanna með einhverjum þeim hætti sem einhverjum pólitíkusum mislíkar? Tek undir hvert orð sem Baldur McQueen skrifar hér fyrir ofan.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 10:41
Rektor hlýtur að hafa metnað fyrst hún vill koma skólanum á lista yfir þá 100 bestu í heimi. Þá verður að taka á því þegar „fræðimenn“ koma ítrekað fram með illa rökstudd álit í nafni háskólans. Sömuleiðis ætti hinn metnaðarfulli rektor að fara yfir að hagsmunasamtök eins og LÍÚ séu með einhverjar kostaðar rannsóknarstöður til að koma að fyrirframgefinni niðurstöðu.
Sigurjón Þórðarson, 17.10.2007 kl. 12:11
Já, þetta er athyglisverð hugmynd. Því ekki að kalla menn almennt til ábyrgðar, og beita þá viðurlögum, ef þeir hafa ekki "réttar" skoðanir. Minnir svolítið á "útlendingastefnu" FF.
Annars get ég ekki skilið að maður sem hefur verið svo svikinn og niðurlægður af hálfu félaga sinna í FF skuli sífellt kyssa vöndinn og ganga erinda flokksins
Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 14:07
Hmmm...mér sýnist minn kæri Sigurjón að þú sért kominn út í horn á eigin síðu. Ekki það að þú verst fimlega en hér ertu á hálum ís. Fréttamaðurinn hefði kannski átt að tala við Hannes Hólmstein?
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 14:33
Það er rétt að vel meinandi Samfylkingarfólk sem hefur í gegnum árin gagnrýnt harkalega Hannes Hólmstein, velti því fyrir sér hvort að rétt sé að skrifa nú upp á vinnubrögð prófessors Baldurs, sem eru jafnvel vafasamari en þau sem Samfylkingarfólk hefur gagnrýnt áður.
Ódýrar órökstuddar pólitískar yfirlýsingar dulbúnar í fræðabúning eru jafn ómerkilegar hvort sem viðkomandi álitsgjafi kemur úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins eða Samfylkingarinnar.
Sigurjón Þórðarson, 17.10.2007 kl. 15:59
Við skulum ekki gleyma að eiginmaður Baldurs er í nefndum og ráðum fyrir hönd Samfylkingarinnar og má í því ljósi telja vafasamt að líta megi á hann sem hlutlausan.
Gestur Guðjónsson, 17.10.2007 kl. 22:08
Bjarni ég er ekki viss um að við höfum sama skilning á ofangreindum skrifum á síðunni.
Vissulega greinir mönnum á og það er tekist á en ég sé fátt sem getur beinlínis valdið sorg.
Sigurjón Þórðarson, 17.10.2007 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.