Leita í fréttum mbl.is

Er formaður Sjálfstæðisflokksins geislavirkur?

Í herbúðum Framsóknarmanna er mikil ánægja með boðað forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur og umdeilda endurkomu Svandísar inn í matvælaráðuneytið. 

Það sem vekur einkum kæti í framsóknarfjósinu er að formaður flokksins eygir þá von að verða forsætisráðherra. Innviðaráðherra virðist vera næstur í röðinni þrátt fyrir að vera þekktur af allt öðru en eldmóði við að leysa úr verkefnum sínum hvort sem það hefur verið að koma skikk á húsnæðismálin eða vegakerfið. 

Það er auðvitað stórundarlegt að sprækur og geislandi formaður stærsta ríkisstjórnarflokksins Bjarni Benediktssonar komi ekki til greina til þess að leiða ríkisstjórnina. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins virðast sjálfir vera búnir að játast undir að Bjarni Ben komi ekki til greina m.a. vegna Borgunarmálsins, Falsons og vinavæðingar Bankasýslunnar ofl. ofl.

Sú spurning vaknar hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn gerir ekki þá kröfu að varaformaður flokksins leiði ríkisstjórnina ef allir eru sammála um að formaðurinn komi ekki til greina? 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er v.þ.a. flokkurinn klofnaði þá a.m.k. í tvennt,

arm Guðlaugs Þórs annars vegar 

og arm Bjarna með andlit ÞKRG.

18% flokkurinn klofnaði í tvennt.

Hvor helmingur um 9%.   

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2024 kl. 11:19

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að samstarflokkarnir myndu ALDREI samþykkja það að Sjálfstæðisflokkurinn væri með Fjármálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið og Forsætisráðuneytið, því held ég að málmiðlunin verði sú að Sigurður Ingi fari í Forsætisráðuneytið og Svandís verði færð í Innviðaráðuneytið og svo verði einhver "þægur" Sjálfstæðismaður settur í Matvælaráðuneytið til þess að veita Hval leyfi til hvalveiða til næstu fimm ára.....

Jóhann Elíasson, 4.4.2024 kl. 13:10

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég á mjög erfitt með að sjá einhvern málefnalegan klofning en báðir eru þeir fyrst og fremst bankaelítumenn sem þjóna til borðs hjá Viðskiptaráði og gera ekkert fyrir sjónarmið minni atvinnurekandans eða ungs fólks sem er að reyna að koma undir sig fótunum.

Þegar Guðlaugur Þór bauð sig fram gegn Bjarna þá setti hann engin mál á oddinn eða gagnrýndi Bjarna Ben efnislega, heldur setti hann á svið fegurðarsamkeppni.  Auðvitað tapaði Guðlaugur Þór þeirri keppni enda kom hann haltur til leiks. 

Sigurjón Þórðarson, 4.4.2024 kl. 13:16

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurjón auðvitað þarf að skipta VG út. Það eru bara þrír möguleikar, eða nýjar kosningar. 

1. Viðreisn

2. Piratar

3. Flokkur fólksins. 

Samkvæmt mínum upplýsingum eru tveir síðustu kostirnir ekki mögulegir þar sem þessir flokkar eru ekki stjórntækir. Þar sem þú hefur nú verið á þingi sem varaþingmaður Flokks fólksins og ef stjórnarflokkarnir eru ekki nógu góðir, þá þýðir ,,ekki stjórntækir" nánast að var rusl. Her er þín sýn á dæmið? Þú veist að ég samþykki ekkert bull hvað þetta varðar. 

Sigurður Þorsteinsson, 5.4.2024 kl. 03:00

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Við í "ruslinu" sjáum nú ekki mikla gimsteina í Framsóknarflokknum en sá flokkur er nánast spilliefni.  Ef við lítum til þeirra mála sem brýnt er að taka á nú og þegar þ.e.hælisleitendamálin, orkumálin fátæktin og húsnæðismálin auk jú að draga úr atvinnuhöftum til sjávarins, þá er ég nokkuð viss um að Sjálfstæðisflokkurinn sé klár í að gera skurk í tveimur fyrst nefndu málaflokkunum, en myndi draga lappirnar vegna misskildra sérhagsmun elítunnar í 3 þeim síðari. 

Formaður Framsóknarflokksins myndi örugglega þvælast enn frekar fyrir í öllum málunum, enda gengur hvorki né rekur í neinu því sem hann tekur sér fyrir hendur enda er hann stöðugt með hugann við einhverja undarlega sérhagsmuni.

Þú gleymir einum möguleika og þeim líklegasta þ.e. kippa Miðflokknum upp í vagninn og skilja Vg eftir. 

Sigurjón Þórðarson, 5.4.2024 kl. 08:19

6 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurjón, fyrirfram hefði ég haldið að Flokkur fólksins hefði átt að eiga mikla möguleika að taka við af VG. Þá hefði reyndar verið styrkleiki fyrir flokkinn að hafa Ólaf Ísleifsson inni, með sína miklu þekkingu á efnahagsmálum. Það veikir dæmið þegar einstaka þingmenn fara að tala sem sérfræðingar í efnahagsmálum en hafa engan faglegan bakgrunn t.d. varðandi efnahagsmál, eða t.d. húsnæðismál og telja að ríkisstjórnin geti rekið Ásgeir Jónsson. Píratar setja sjálfa sig í ruslið, og Flokkur fólksins þarf bara að koma sér upp úr forinni. Það að vinna fyrir þá sem minna mega sín er sannarlega verðugt verkefni. Held að engin ríkisstjórn vilji starfa með einn alþingismann í meirihluta. 

Sigurður Þorsteinsson, 5.4.2024 kl. 14:59

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er sérkennilegt að tala um að það séu fólgin einhver mikil tækifæri í því að taka við af Vg í þessu samstarfi með Sigurði Inga og kó, en þá fyrst væri Flokkur fólksins kominn í fjóshauginn.

Flokkur fólksins er ekki að sækjast eftir embættum við ráðherraborðið heldur að koma ákveðnum málefnum í gegn og án þess að ég viti eitt né neitt um málið þá reikna ég með að Ff myndi frekar semja um að koma ákveðnum málum í gegn t.d. á sviði hælisleitenda, Múlalunds og eldri borgara og strandveiða.  Allt mál sem myndu gera lífið á Íslandi skemmtilegra og betra.

Annars er óþarfi að hafa áhyggjur af þessu þar sem mér skilst að það séu nokkrir flokksleiðtogar eins og beiðandi rollur í kringum þá Bjarna og Sigurð Inga.

Sigurjón Þórðarson, 5.4.2024 kl. 18:32

8 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurjón ég er ekki skuldbundinn neinum flokki og fyrir mörg okkar er þetta leikrit sem íslenskir pólitíkusar leika hálf hallærislegt. 

1. Ástæða fyrir því að stjórnmálaflokkar vilja komast í stjórn, er að þá eru meiri líkur til þess að koma sínum áhersluatriðum í gegn. Það að vilja ekki fara í stjórn bendir því til þess að fólk vilji ekki bera ábyrgð og heldur skiptir áherslur viðkomandi flokks ekkert sérlega miklu máli. 

2. Þú hefur komið þínum skoðunum á framfærði varandi val á næsta forsætisráðherra, og þar erum við algjörlega ósammála. Hjá Framsókn finnst mér Willum hafa staðið sig best ástamt Lilju. Sigurður Ingi nálgast þau ekki. Varðandi efnahagsmál finnst mér Bjarni hafa staðið sig mjög vel, miðað við þetta samstarf. 

Sigurður Þorsteinsson, 5.4.2024 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband