Leita í fréttum mbl.is

Mun Sjálfstæðisflokkurinn fallast á að Ísland láti af stuðningi við stríðið í Írak?

Það verður fróðlegt að sjá hvort að Sjálfstæðisflokkinn fallist á þá kröfu að Ísland verði tekið af  lista hinna viljugu og stríðsfúsu þjóða sem Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson komu þjóðinni á.

Forysta Samfylkingarinnar hefur látið stór orð falla um stuðning Íslands við innrásina í Írak og nauðsyn þess að nafn Íslands verði máð af umræddum lista.  Geir Haarde hefur einhverra hluta vegna þráast við og ekki viljað gera gangskör í því að Íslendingar hætti umræddum stuðningi.  Ég tel sjálfur mjög miklar líkur á því að Geir Haarde gefi eftir í málinu enda hefur stuðningurinn árásina á Írak misboðið þorra landsmanna.   

Það ætti að vera algerlega útilokað fyrir Samfylkinguna að láta ekki reyna á að Ísland hætti umræddum stuðningi við stríðsaðgerðirnar í Írak enda væri það í hrópandi mótsögn við málflutning Samfylkingarinnar á umliðnum árum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Sæll Sigurjón. Ég sé ekki að Geir H. Haarde sé haldinn sama hroka sem Davíð og Halldór voru. Annars hefur umræðan um stuðningsyfirlýsinguna opnað augu stjórnvalda og ég sé ekki að Geir vilji halda í hana ef hún kemur í veg fyrir stjórnarmyndun

Guðrún Magnea Helgadóttir, 18.5.2007 kl. 16:59

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er mín skoðun að staða Geirs sé mjög veik ef hann lætur brjóta á þessum stuðningi við innrásina í Írak.  Stuðningurinn við innrásina í Írak var siðlaus. 

Sigurjón Þórðarson, 18.5.2007 kl. 17:19

3 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Við studdum innrásina á sínum tíma.  Því verður ekki breytt héðan af þótt við glöð vildum.  Maður getur ekki gefið umboð fyrir fjöldamorðum og komið síðan fjórum árum seinna og bakkað út.  Nú er verið að hreinsa upp skítinn eftir stríðið sem Davíð og Halldór létu okkur styðja.  Við verðum að taka þátt í þeirri hreinsun og leggja okkur að mörkum við uppbyggingu í Írak.  Það er það eina sem við getum gert úr því sem komið er gagnvart Írak.

Hitt sem við getum gert er að læra af þessum mistökum og gera þetta aldrei aftur.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 18.5.2007 kl. 17:27

4 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Ég held það hafi ekki farið framm hjá nokkrum manni að það geysar borgarastyrjöld í Írak þar sem hundruðir manna eru drepnir á hverjum degi. Það varð í frammhaldi af innrás Buss og Blair inn í landið. Við íslenska þjóðin studdum ekki innrásina í Írak, ákvörðunina tóku einungis tveir misvitrir stjórnmálamenn fyrir okkar hönd og við eigum heimtingu á að láta þá taka yfirlýsinguna til baka. Þá tvo og ekki aðra!

Guðrún Magnea Helgadóttir, 18.5.2007 kl. 18:48

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Össur hefur margsagt að fyrsta verk Samfylkingarinnar í nýrri ríkisstjórn verð að taka Ísland af list yfir hina vilju og stríðsfúsu þjóðir. Jafnframt verði ríkisstjórn Íslands að biðja fórnarlömbin afsökunar.  Þetta er réttlætiskrafa sem sjálfstæðismenn verða að  taka til greina, enda sýna kannanir að einungis örlítill hluti þjóðarinnar (nokkrir sjálfstæðismenn) styður stríðið. 

Sigurður Þórðarson, 18.5.2007 kl. 20:52

6 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Er til einhver listi sem er virkur núna? Samkvæmt Bandaríkjastjórn er stríðið löngu búið. Hvernig er þá hægt að vera áfram á stuðningslista yfir stríð sem er opinberlega búið?

Það voru vissulega mistök á sínum tíma að styðja þetta stríð, en við förum ekki aftur í tímann og breytum þeirri ákvörðun eftir á.

Svala Jónsdóttir, 18.5.2007 kl. 21:53

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það var ekki löngu búið að mati samfylkingarmanna í kosningabaráttunni, það var enn eitt af mikilvægustu málunum að þeirra mati. Ég trúi ekki öðru en að sjálfstæðismenn fallist á þetta.

Það verður örugglega erfiðara fyrir sjálfstæðismennina að kyngja vatninu.

Sigurjón Þórðarson, 18.5.2007 kl. 22:28

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Augun þín blá.....Þetta er snoturt lag o.frv. Pólitíkin í nýju stjórninni mun ekki snúast um einhver samfélagsgildi sem Jóhanna Sig. og hennar armur hefur fengið að boða. Hægri armur Samf. er stærri en sá vinstri og það til muna. Og það eru haukar í flokknum sem eru framgjarnir, metnaðargjarnir og flinkir. Ég er tilbúinn að semja um að þessi nýja stjórn verði vinstra megin við Íhaldsstjórn Mrs. Thatcer en ekki áberandi langt frá. Það verður hægt á markaðsöflunum hvað varðar pólitíska vild, en þau eru nú þegar komin með þá forgjöf að þau mega heita sjálfbjarga.

Margar nefndir um málefni veikari hópa samfélags okkar verða settar á laggirnar til að skila áliti fyrir árslok 2010 svo þar verður vinnufriður. Samfó er sérfræðistofnun í nefndaskipunum.

Íhaldið mun aldrei hvika frá fiskveiðabandalaginu við LÍÚ en málin tekin í alvarlega skoðun sérfræðinefnda sem LÍÚ mun stýra.

Ótölulegur grúi gamalla krata verður settur á biðlaun, eftirlaun, fæðingarorlof o.fl. álíka. Fjölmargar sendinefndir erlendis þar sem 5 kratar verða á móti einum sjalla.

Íraksstríðið! það finnst óskiljanlegt orðalag sem róar kjósendur.

Helstu ágreiningsefnin verða forgangsröðun í samgöngubótum og einkavæðing Ríkisútvarpsins. Geir verður að fjölga starfsliði í veislueldhúsinu. Þessi nýja vinnumannahjörð er nefnilega banhungruð.

Árni Gunnarsson, 18.5.2007 kl. 23:28

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Gott að rifja upp nokkur aðalmál.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.5.2007 kl. 23:52

10 identicon

Hið formlega Íraksstríð sem við studdum er löngu lokið, ekki er lengur notað þann lista sem var myndaður þegar innrásin hófst. Ef við myndum hringja í kanann og biðja hann um að taka okkur af listanum þá yrði bara hlegið að okkur. Eiga annars Írakar sjálfir einnig að biðjast afsökunar? Ég veit ekki betur en lýðræðislega kosin stjórnvöld kjósi að hafa bandamenn áfram í landinu. Bush og Blair hafa báðir lýst yfir að þeir muni draga herliðin til baka um leið og stjórnvöld þar í landi óski eftir því, eins og er hafa engar slíkar óskir komið frá Írak. Al-qaeda, Baathistar og Íranskar sveitir eru ennþá í landinu. Eru Íslendingar alveg með vatn í munninum að þessir hópar felli Írösku stjórnina? Írakar þurfa allavega ár í viðbót til þess að taka við öryggismálum og þeir segja það sjálfir, dálítið skrýtið að friðarsinnar taki ekki mark á Írökum sjálfum með þá kröfu að hersveitir eigi að snúa heim tafarlaust. 

Geiri (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 01:19

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Heldur Geir Haarde því fram að  þessi illræmdi listi einungis yfir þær þjóðir sem studdu formlegt Íraksstríð  en ekki hið  "óformlega Íraksstríð" sem geisar nú  af meiri og sívaxandi hörku?  Svo vitlaus getur hann ekki verið og því hlítur hann að samþykkja að Íslendingar verði teknir af listanum sem þeir vildu aldrei vera á. Allar kannanir sýna að  almenningur í Írak óskar þess heitt og innilega að innrásarherinn  (hvort sem hann er formlegur eða óformlegur) hverfi úr landinu sem fyrst.  

Sigurður Þórðarson, 19.5.2007 kl. 02:55

12 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég held að við ættum íslendingar ekki að vera að velta okkur of mikið uppúr stríðinu í Írak það á að kallast vera lokið en hver vann og hver tapaði það var einfaldlega hin Íraska þjóð sem tapaði og nú er þar í raun borgarastyrjöld enginn sigraði og skiptir stuðningur Íslands engu máli.  Við eigum að snúa okkur að eigin vandamálum sem eru hrun byggða víða um land vegna kvótakerfis LÍÚ-mafíunnar sem öllu virðist ráða sama hvaða stjórn situr að völdum.  Mér er nokk sama þótt verið múslímar séu að drepa hvorn annan en mig tekur sárt þegar maður fær fréttir eins og frá Flateyri þar sem 120 manns eru að missa vinnuna.  Dauður múslimi skiptir mig ekki miklu máli en að horfa uppá börn sem eru neydd til að alast uppí fátækt á Íslandi sem í dag á að vera eitt ríkasta land í heimi finnst mér svo sárt að við liggur að ég gráti.

Jakob Falur Kristinsson, 20.5.2007 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband