Leita í fréttum mbl.is

Einar Kristinn á að vita betur

Nú fyrir skömmu lauk upplýsandi Kompássþætti um svindlið í kvótakerfinu, svindl sem allir vita um sem starfa í eða þekkja með öðrum hætti til sjávarútvegsins, þ.e. að landaður afli er meiri en skráður og að í lönduðum afla eru aðrar og verðmætari tegundir en gefnar eru upp. Að auki er brottkast.

Einar Kristinn þóttist koma alveg af fjöllum þegar hann var spurður út í svindlið og svaraði hálfkindarlega að þetta væru óstaðfestar sögusagnir. Einar Kristinn á að vita betur, enda mátti hann hafa sig allan við að halda andlitinu þegar hann reyndi að gera lítið úr alvarleika málsins.

Í þættinum var stuttlega fjallað um færeyska fiskveiðistjórnunarkerfið, enda eru menn í því lausir við svindl og sóun sem fylgir kvótakerfum nær undantekningarlaust. Menn reyndu þar kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd og þá komu upp nákvæmlega sömu vandamál, þ.e. brottkast og svindl, og við erum búin að glíma við árum saman, vandamál sem eru fylgifiskur kvótakerfisins í sjávarútvegi. Hér hefur verið farin sú leið að þagga niður umræðu og dæma menn, sem viðurkenna það sem flestir stunda, til hárra sektargreiðslna.

Svarið við þessu svindli sem kostar þjóðarbúið marga milljarða króna árlega er ekki að auka eftirlit og herða refsingar, heldur koma á kerfi þar sem enginn eða lítill hvati er til þess að svindla. Núverandi íslenska kvótakerfi felur í sér eftirlitskostnað - sem er vel á annað þúsund milljónir árlega - með duglegu og venjulegu fólki sem starfar í sjávarútvegi. Þeir fjármunir væru betur komnir í vöruþróun og aukin gæði.

Í Færeyjum hef ég fyrir satt að séu tveir veiðieftirlitsmenn - tveir svo að annar þeirra geti farið í sumarfrí.

Færeyskir stjórnmálamenn hafa margir notið leiðsagnar Jóns Kristjánssonar fiskifræðings og ég hef sjálfur farið gaumgæfilega yfir gögn hans og kenningar. Ég sem líffræðingur get ekki séð annað en að þær kenningar séu í fyllilegu samræmi við viðtekna vistfræði og þær hafa sannarlega gengið upp í Færeyjum. Á hinn bóginn er óumdeilt að kenningar Hafró hafa alls ekki gengið upp á síðustu árum, enda ganga þær í berhögg við vísindin.

Íslendingar verða að fara að gera upp við sig hvort menn ætli að þora að ræða þessa hluti án þess að beita sleggjudómum og áróðri fyrir íslenska kvótakerfinu sem er á góðri leið með að hafa það af að lama atvinnulíf sjávarbyggðanna. Það er stutt til Færeyja eins og við í Frjálslynda flokknum höfum oftsinnis bent á og við eigum að vilja sjá möguleikana í því að breyta því sem hefur mistekist hér heima og læra af því sem er betur gert í öðrum löndum.

Það virðist vera tabú að ræða þennan vanda. Menn virðast vera í afneitun og Einar Kristinn er í því að teikna upp glansmynd sem stenst engan veginn.

Nú er verið að ræða vanda Bolungarvíkur, og borgarafundi nýlokið vestra. Í stað þess að Einar Kristinn einbeiti sér að því að sjá leiðir út úr kerfinu sem hefur engu skilað þjóðarbúinu heldur hneppt atvinnulíf Bolungarvíkur í fjötra og hvatt til svindls forðast hann að ræða þessi mál og afneitar þeim.

Hann hefur kosið sér ömurlegt hlutskipti í lífinu.

Kompás á þakkir skildar fyrir þáttinn. Ég hef oft furðað mig á hvað íslenskir fjölmiðlar hafa sýnt þessum málum lítinn áhuga. Vonandi verður núna breyting á því að þetta er vitaskuld ekki flokkspólitískt mál, heldur snýst það um framtíð Íslands.


mbl.is Atvinnumál Bolungarvíkur rædd á borgarafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef einhver velkist í vafa um hvað kosningarnar snúast um, þá upplýsi ég það hér með: KOSNINGARNAR SNÚAST UM AÐ KOMA SPILLTUM STJÓRNMÁLAMÖNNUM FRÁ VÖLDUM!!! Nú er það kvótasvindlið, áður Jónínu ríkisfangsshneykslið, síðan misnotkun á fé aldraðra, Birgishneykslið, Auðlynda- og vatnamálssvínaríið, sala ríkisfyrirtækja til "vina", vinaráðningar í sendiherrastöður, Árna Jónsen hneykslið, árásir valdhafa á öryrkja í kjölfar hæstaréttardóma, vanræksla í öldrunar og sjúkrahúsmálum. Og nú er verið að undirbúa sölu Landsvirkjunar og orkufyrirtækja í einkaeigu til "vina" og svo mætti lengi telja" Kjósum heiðarlegt fólk á Alþingi, setjum X við F!!!

Kristinn J. (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 21:22

2 Smámynd: Atli Hermannsson.

Ég sá ekki Kompás, bíð bara eftir að þátturinn komi á netið. En ég sá í fréttunum á stöð 2 að fiskistofustjóri viðurkenndi vandann. Það er að segja vigtar- og tegundarfalsanirnar, ísfalsanirnar og brottkastið. En vildi alls ekki... sko alls ekki viðurkenna að þessi vandamál væru kerfinu að kenna.... Hverju er annars hægt að kenna um, fiskinum sjálfum? Ég er kanski að misskilja Þórð, hann átti kannski við að vandamálið væri þeim að kenna sem verja kerfið með kjafti og klóm? Það er vissulega rétt - þangað til þegi ég.

Atli Hermannsson., 6.5.2007 kl. 22:24

3 Smámynd: haraldurhar

   Það er ekki frétt í sjálfu sér að fiskur sé stærðar- og tegundafl., og metið hvað af honum sé hæft til að koma með að landi.  Þetta er að sjálfsögðu innbyggt í núverandi kerfi.   Stórafréttinn er sú í mínum augum er afneituninn hjá Einari, þvi það er eins og mig mynni, að hann hafi stundum verið kjörinn á þing, á því loforði að leggja niður kvótakerfið.

   Einn daginn sjá menn ´ljósið. og allir hamast við að afneita þessari vitleysu sem viðgengst í dag.

haraldurhar, 7.5.2007 kl. 00:56

4 Smámynd: Þarfagreinir

Ekki hef ég kynnt mér kvótakerfið svo gjörla, en hitt veit ég að afi minn, sem var sjómaður á Ísafirði mestallt sitt líf, blótaði því í sand og ösku vegna þess að með því högnuðust menn handahófskennt með því að selja kvótann úr byggðunum.

Þegar bætast ofan á það óréttlæti vísbendingar um að kerfið leiði til brottkasts og annarra glæpa er það að bera í bakkafullan lækinn. Gott hjá Kompási að taka þennan slag.

Þarfagreinir, 7.5.2007 kl. 01:33

5 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Maðurinn á ekkert að vita betur - hann veit betur. Sjá einnig mitt blogg.

Magnús Þór Hafsteinsson, 7.5.2007 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband