22.3.2009 | 22:37
Til varnar Eskju hf.
Í fréttaskýringaþætti RÚV upplýstist hve grænir Íslendingar geta verið fyrir lymskulegum áróðri græningja. Verksmiðjustjórinn vildi nokkuð örugglega gera vel við erlenda fréttamenn og frændur sem sýndu fiskimjölsverksmiðjunni áhuga. Fréttamennirnir þökkuðu fyrir sig og klipptu saman glannaleg ummæli og kjánaaðfarir verksmiðjustjórans við veiðar. Tilgangurinn var eflaust að undirstrika hvers konar umhverfishryðjuverk færu fram á Íslandi.
Það vakti athygli mína að fræðimaðurinn Daniel Pauly var fenginn til þess að votta að framleiðsla á eldisfiski værI óábyrg og framleiðsla á fiskimjöli skaðleg fyrir ofveidda fiskistofna. Ofveiðigrýlan lifir góðu lífi hér á Íslandi, bæði á Hafró og hjá fjölmiðlamönnum þar sem stöðugt er klifað á því að helstu nytjastofnar þjóðarinnar séu ofveiddir þrátt fyrir að sú staðreynd liggi á borðinu að þorskveiði hefur nánast aldrei verið minni og ekki er það vegna þess að þorskinum sé ekki til að dreifa. Nei, ástæðan er að sjómenn hafa ekki leyfi til að veiða hann. Sömuleiðis liggur fyrir að í Barentshafinu og Færeyjum þar sem ekkert er gert með ofveiðigrýluna ganga veiðar sinn vanagang og fiskistofnar eru við hestaheilsu.
Það er sem margur átti sig ekki á að Daniel Pauly er á mála hjá umhverfissamtökum og -sjóðum, t.d. PEW, sem hafa yfir gríðarlegum fjármunum að ráða sem greiða fyrir rannsóknir sem eiga að sýna fram á skaðleg áhrif fiskveiða og reyna að sverta atvinnugreinina með falsvísindum.
Ekki er Pauly einn um að birta reglulega heimsendaspár um sjávarútveginn, fleiri frægir hafa komist í fréttirnar hér, s.s. Boris Worms sem kom fram með spádóminn um að allir fiskistofnar heims kláruðust 2048, Andrew Rosenberg sem reiknaði út stærð þorskstofnins við strendur Bandaríkjanna á 19. öld og Ransom Myers sem reiknaði út hnignun mörg hundruð fiskistofna vítt og breitt um heiminn.
Það sem vekur ugg er að íslensk stjórnvöld hafa nýtt sér starfskrafta sumra þessara manna, s.s. Andrew Rosenbergs, í að fara yfir hvers vegna friðunarstefna sem verið hefur við lýði undanfarna áratugi hafi ekki gengið eftir eins og þegar Hafró týndi mörg hundruð þúsund tonnum af þorski fyrir nokkrum árum. Það stóð ekki á svarinu sem var á þá leið að friðunarstefnan stæði fyrir sínu nema þá að helst þyrfti að friða enn meira til þess að geta veitt meira seinna en þetta seinna hefur aldrei komið eins og þeir sem fylgjast með sjávarútvegi ættu að vita.
Það er langt í frá að starfsmenn Eskju séu þeir einu sem ekki hafa varað sig á lymskulegum áróðri græningja gegn sjávarútvegi og veiðum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- Helga Þórðardóttir
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Jens Guð
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ásta Hafberg S.
- Jóhann Elíasson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Georg Eiður Arnarson
- Óskar Þorkelsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Hallur Magnússon
- Sigurður Þórðarson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Katrín
- Þarfagreinir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Frjálslyndi flokkurinn í Eyjafirði
- Hallgrímur Óli Helgason
- Jón Kristjánsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Kjartan Eggertsson
- Halla Rut
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- ragnar bergsson
- Bjarni Harðarson
- Rannveig Þorvaldsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Eiríkur Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- erlahlyns.blogspot.com
- Agný
- Guðjón Ólafsson
- Einar Ben
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Halldór Jónsson
- Elvar Atli Konráðsson
- Kristján H Theódórsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Helgi Már Barðason
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Víðir Benediktsson
- Valgerður Sigurðardóttir
- Jens Sigurjónsson
- Vestfirðir
- Sigurður Ásbjörnsson
- Jón Magnússon
- Viðar Friðgeirsson
- Axel Jóhannes Yngvason
- Svava S. Steinars
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Quackmore
- Árni "Gamli" Einarsson
- Haukur Már Helgason
- Þóra Guðmundsdóttir
- Heiða Þórðar
- Steingrímur Ólafsson
- Vefritid
- Ársæll Níelsson
- S. Einar Sigurðsson
- Rannveig H
- Gísli Gíslason
- Bjarni Kjartansson
- Steingrímur Helgason
- Fiðrildi
- Baldur Fjölnisson
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Linda Lea Bogadóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Hanna
- Sverrir Stormsker
- Ottó Marvin Gunnarsson
- gudni.is
- Einar Vignir Einarsson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Jóhann Kristjánsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- María Harðardóttir og Þorsteinn Narfason
- Grétar Rögnvarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Róbert Guðmundur Schmidt
- Steinn Hafliðason
- Landssamband ungra frjálslyndra
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Þórir Aðalsteinsson
- Vilborg Traustadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Sævar Einarsson
- Ketilás
- Ómar Pétursson
- Eyþór Grétar Grétarsson
- FF
- Jón Þór Bjarnason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Róbert Tómasson
- Landvernd
- ThoR-E
- Haraldur Baldursson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- busblog.is
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Svanhildur Karlsdóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Árni Árnason
- Grétar Mar Jónsson
- Perla
- Ingunn Guðnadóttir
- Irma Þöll
- Skattborgari
- Gulli litli
- Jón Snæbjörnsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- kreppukallinn
- hreinsamviska
- Arinbjörn Kúld
- Orgar
- Guðjón Baldursson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Gunnar Björn Björnsson
- Haraldur Hansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Birna Steingrímsdóttir
- Gestur Guðjónsson
- Jónas Rafnar Ingason
- Stríða
- Götusmiðjan
- Brynja skordal
- Haraldur Bjarnason
- Guðmundur Óli Scheving
- Ásta
- Markús frá Djúpalæk
- Jörundur Garðarsson
- MIS
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Björn Júlíus Grímsson
- S Kristján Ingimarsson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Magnús Kristjánsson
- Bergur Sigurðsson
- Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Heimssýn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Óskar Arnórsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Árni Davíðsson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Árelíus Örn Þórðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- L.i.ú.
- Rafn Gíslason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Samtök Fullveldissinna
- Vaktin
- Arnar Guðmundsson
- Lárus Baldursson
- Sveinn Elías Hansson
- Þórarinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Berglind Steinsdóttir
- Bjarney Vigdís Ingimundardóttir
- BJÖRK
- Björn Emilsson
- Dagný
- Dominus Sanctus.
- Friðgeir Sveinsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Pálsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Högni Snær Hauksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jón Þórhallsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Ingólfsson
- Stefán Júlíusson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sveinn Björnsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Úrsúla Jünemann
- Valdimar H Jóhannesson
Tenglar
Mínir tenglar
- Losnað við pestina Þetta hefur reynst mér vel við að losna við allar pestir þá 5 mánuði sem ég hef reynt immiflexið
- Ginseng Hér fæ ég kraftinn
- Frjálslyndi flokkurinn Vill breyta kvótakerfinu
- Ungmennasamband Skagafjarðar Ég er formaður
- Hér kaupi ég tölvudótið Ódýrt og gott
Sjávarútvegsmál
- Hafró Stofnunin þar sem ákveðið er hversu mikið má veiða
- Landssamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ
- Landssamband smábátaeigenda LS
- Jörgen Niclasen Formaður Fólkaflokksins í Færeyjum
- Helgi Áss Grétarsson Sérfræðingur í HÍ á vegum LÍÚ
Fréttamiðlar
- Al Jazeera Gefur Bandaríkjamönnum engin grið
- BBC BBC
- Börsen Dönsk fjármálasíða
- Seðlabankinn Musteri Davíðs
Nýjustu athugasemdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 318
- Sl. sólarhring: 567
- Sl. viku: 862
- Frá upphafi: 1014009
Annað
- Innlit í dag: 296
- Innlit sl. viku: 756
- Gestir í dag: 289
- IP-tölur í dag: 289
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Apríl 2023
- Október 2022
- Október 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Janúar 2019
- Apríl 2018
- Desember 2017
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- Nóvember 2014
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Mér fannst nú Haukur Jónsson ~Mellari~ ágætur í þættinum. Nákvæmilega jafnlíkur sjálfum sér & hann hefur alltaf verið.
Steingrímur Helgason, 23.3.2009 kl. 00:32
Datt alveg það sama í hug. Hafði reyndar gaman af þessu, gaman að heyra svona karlagrobb á þessum síðustu og verstu.....hressandi og yndislegt að sjá fjöllin og umhverfið . Við eigum svo sannarlega fallegt land.
Ína (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 02:52
Menn ættu að vara sig á svona liði sem kallar sig fréttamenn, sérstaklega ef þeir eru frá Svíþjóð og Þýskalandi, þar sem að umhverfis-hysterían er svo grasserandi að það ríður ekki við einteyming.
Haukur Mellari var náttúrulega í hlutverki sjálfs síns, svona eins og hann er, en hann oflék sjálfan sig reyndar heldur betur.
Og auðvitað var þessi gervivísindamaður og álitsgjafi; Daniel Pauly, ekkert að hafa fyrir því að minnast á hið gífurlega afrán hvala á fiski, svona rétt eins og hvalir væru bara ekki til, enda er þetta afrán hvala eitt mesta feiminismál umhverfisverndarsinna.
Magnús Þorkelsson (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 10:31
Daniel Pauly, var einn af þeim sem spáði fyrir um hrun fiskistofna árið 2010 þ.e. ef ekki yrði dregið úr stórlega úr veiðum, þá væri túnfisksamlokan ófáanleg og eina sem væri á boðstólnum væru marglyttusamlokur.
Sigurjón Þórðarson, 23.3.2009 kl. 10:42
Fannst alveg óhemjusmart að sjá manninn henda öllu í sjóinn sem hann gat. Hélt að þetta væri liðin tíð.
Þekki þennan mann ekki, en fannst hann hálf kjánalegur kallgreyið.
Hrönn (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 11:33
Ég verð nú að fá meiri upplýsingar um þennan Daniel Pauly sem þið kallið gervivísindamann. Augljóslega er maðurinn umhverfisverndarsinni en ég veit ekki hvort þið gerið ykkur grein fyrir því að hann er höfundur og meðhöfundur á um 500 ritrýndum vísindagreinum. Er það gervivísindamennska, getur verið að allt sem hann skrifar sé rangt? Ég held ekki.
Davíð Gíslason (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 15:52
Davíð, þú ættir að vita það manna best að magn og gæði í þessum geira er ekki það sama en þá vísa ég til allra þeirra fjölda "vísindamanna" sem skrifa upp á að ekki sé forsvaranlegt að Íslendingar veiði hvali sem fullyrt er að séu í útrýmingarhættu.
Pauly er einskonar spámaður sem sér eyðingu fiskistofna á næsta leiti hvar sem að hann ber niður í rannsóknum sínum. Það er mikið ályktað út frá takmörkuðum gögnum bæði um útrýmingu allra fiskistofna heimsins og ofveiði fyrri alda. Ég hef orðið vitni af því að reiknisfiskifræðingar kynni mat sitt á ofveiði á síld á 17. öld út frá mjög takmörkuðum gögnum.
Þetta er auðvitað ekkert annað en það sem kallast hrein og tær della.
Sigurjón Þórðarson, 23.3.2009 kl. 16:39
Þessi Daniel Pauly heldur því fram að því meira sem framleitt er af eldisfiski því meira verði veitt. Þetta er ákaflea heimskulegt af því að það er ekki fiskeldi sem stjórnar veiðunum. Í öllum þeim löndum sem framleiða fiskimjöl er til staðar fiskveiðistjórnunarkerfi og það eru yfirvöld sem ákveða hversu mikið er veitt að fengnu áliti vísindamanna. Það er líka rétt að nefna að aðeins brot af því mjöli sem framleitt er er notað til fiskeldis, stærsti hlutinn fer til framleiðslu á kjarnfóðri fyrir kjúklinga, svín, nautgirpi o.þ.h.
S Kristján Ingimarsson, 23.3.2009 kl. 18:24
Er þetta rétt ?
30% af veiddum fiski heimsins fer í mjöl til að fóðra eldisdýr:
"Forage fish account for a staggering 37 percent (31.5 million tonnes) of all fish taken from the world's oceans each year, and 90 percent of that catch is processed into fishmeal and fish oil.
In 2002, 46 percent of fishmeal and fish oil was used as feed for aquaculture (fish-farming), 24 percent for pig feed, and 22 percent for poultry feed."
http://www.wildlifeextra.com/go/news/fish-meal823.html#cr
Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.3.2009 kl. 22:29
Það er náttúrulega snilld að það þurfi einhverja svía til að finna þennan snilling fyrir austan og sleppa honum lausum í sjónvarpið. Kom svo öllum viðskiptum í uppnám í fyrirtækinu. Kýs þetta atriði ársins. Klárt
Sissinn
Sigþór Guðnason (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 23:15
Ómar, ég þekki ekki þessar tölur sem vitnað er til en við vitum að á Íslandi getur verið mjög misjafnt hversu hátt hlutfall fer í bræðslu.
Hitt er svo annað mál að ef farið er yfir orkuþörf spendýra hafsins og sjófugla þá kemur í ljós að það sem maðurinn er að taka úr hafinu er lítill hluti, kannski einn tíundi eða einn tuttugasti af því sem þessi dýr gæða sér á. Í fréttum hefur nýlega verið til umræðu vandræðalegar fréttir af útreikningum sérfræðinga Hafró sem gáfu til kynna að hrefnan ein étur meira af þorski en sjómenn veiða af sömu tegund hér við land.
Það má reikna það út að ef talningar lunda séu nær lagi að það séu a.m.k. um 4 milljón stykki hér við land. Ætli orkuþörf þeirra sé ekki í kringum 1.000 tonn á dag sem er rúmlega tvöfalt það magn sem við veiðum af þorskinum. Í öllu þessu dæmi verður að líta til þess að þó svo að hrefnan selir og fuglarnir éti mikið meira en við erum að taka þá eru það fiskarnir sjálfir sem eru stærsti lífmassinn og hljóta að vera aðalleikararnir en ekki lundinn eða hvað þá trillukarlinn.
Það er rétt að hafa það í huga að ef að allt það magn væri látið vera í hafinu sem við annars veiddum til bræðslu og það færi ofan í dýr sem eru ofar í fæðukeðju hafsins þá myndi það einungis verða til þess að lífmassi dýranna ofar í stiganum ykist um 3,7 %. Þumalputtareglan er sú að 90% af orkunni tapast á leið upp þrep í fæðukeðjunni og þess vegna eru m.a. talsvert færri fálkar en rjúpur.
Annars á ég erfitt með að skilja hvert vandamálið er þar sem að það magn sem maðurinn tekur af næringarefnum úr hafinu með fiskveiðum er slíkt örlítið brot að það er ekki mælanlegt og getur ekki skaðað frumframleiðslu og lífkeðjuna í heimshöfunum.
Ég hef a.m.k. ekki áhyggjur af því að það verði einungis marglyttur eftir eins og félagi Daniel Pauly.
Sigurjón Þórðarson, 24.3.2009 kl. 01:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.