Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking í leðjunni

Fyrir viku mátti heyra á fulltrúum beggja stjórnarflokkanna að ríkisstjórn þeirra væri í miðjum björgunarleiðangri og miklum verkefnum enda stjórnin byggð á traustum grunni þar sem miklir kærleikar voru með báðum flokkum og ástúð umlék allt. Ekki var annað að heyra á málflutningnum en að samstarfið væri traust og gott þrátt fyrir mótmæli - fólk áttaði sig bara ekki á að afrakstur nauðsynlegrar vinnu léti bíða eftir sér.

Í dag þegar ljóst var að stjórnin væri sprungin tóku við glímutök. Flokkarnir voru komnir í leðjuslag þar sem ásakanirnar gengu á víxl um að lausatök hvors annars væru sökin á ógæfunni. Það sem mér fannst skemmtilegast í þessu öllu var að sjá friðardúfuna Steingrím J. Sigfússon koma fram, ekki lengur sem reiðan byltingarmann heldur yfirvegaðan og ábyrgan föður.

Það verður æsispennandi að fylgjast með næstu köflum í leikfléttunum sem varða okkur öll. Maður vonast til þess að flétturnar gangi út á eitthvað annað en að vinna fréttatíma eða Kastljós kvöldsins.


mbl.is VG leggur línurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Martens

hann Steini fær þó + í kladdan fyrir að vera ekki skælbrosandi eins og borgarstjórnar lýðurinn í sumar.

Ragnar Martens, 27.1.2009 kl. 00:53

2 Smámynd: Ragnar Martens

Ég var að velta því fyrir mér hvort FF þurfi ekki að fara í allsherjar naflaskoðun og henda út nánast öllum sínum mönnum?

Hvaða vikt hefur flokkurinn haft í stjórnmálum?

Hverju hefur hann náð fram?

Ef flokkurinn getur ekki haft áhrif núna, hvenar þá?

Málefnin sem flokkurinn hefur eru góð, en þau ná ekki fram.

Ragnar Martens, 27.1.2009 kl. 01:01

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Það var nú nokkuð ljóst á borgarafundi á Selfossi nú í kvöld að litlir kærleikar ríktu millum fyrrum fulltrúa í ríkisstjórn.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.1.2009 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband